Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 12
12 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Guffi bílasali hefur selt
30.000 bíla um ævina
Guðfinnur Halldórsson hefur selt bíla í 35 ár. Hann segir að bílasalar séu almennt heiðarleg stétt en
vandar verðbréfamiðlurum og lögfræðingum ekki kveðjurnar. Guðfinnur rekur líka bílaþvottastöð og
hefur lent í ýmsu. Dolli, hundurinn hans, nýtur trausts í bankanum.
Sigrún Þorláksdóttir var kjörin
formaður kvenfélagsins Baugs í
Grímsey á aðalfundi félagsins
sem haldinn var um síðustu helgi.
Sigrún er jafnmikill Grímseying-
ur og hægt er að vera, báðir for-
eldrar hennar fæddust í eynni og
ólust þar upp og sjálf hefur hún
búið þar alla sína tíð, utan tveggja
ára sem hún varði á Akureyri.
„Þetta er öflugasta kvenfélag
landsins, allar konurnar í eynni
eru félagar, bæði ungar og gamlar
og allt þar á milli,“ segir Sigrún.
Þegar blaðamaður nær af
henni tali situr hún í stól á hár-
greiðslustofu í Kópavogi og er að
láta setja í sig nýjar strípur. „Ég
þurfti rétt að skreppa hingað
suður,“ segir Sigrún sem líður þó
hvergi betur en heima í Grímsey.
Starfsemi Baugs í Grímsey er
öflug og segir formaðurinn að helst
þyrfti að fjölga helgum í árinu svo
kvensurnar gætu gert allt sem þær
langar til. Framundan eru ýmsar
skemmtanir á vegum félagsins, til
dæmis hátíðarkaffi um páskana og
húllumhæ á sumardaginn fyrsta.
„Það er brjálað stuð út allt sumarið
og ekki minnkar það þegar vetur-
inn gengur í garð,“ segir Sigrún og
hlakkar til að komast heim á ný
enda Hörður Torfa væntanlegur í
næstu viku til tónleikahalds.
Þess má geta að Kvenfélagið
Baugur á ekkert skylt við sam-
nefnt stórfyrirtæki, sem raunar
hefur enga starfsemi í Grímsey.
- bþs
Guðfinnur Halldórsson er aldrei
kallaður annað en Guffi, nema ef
vera skyldi Guffi bílasali. Hann
hefur selt bíla í 35 ár og marga
fjöruna sopið. Hann segist hafa
selt um 70 bíla á mánuði í öll þessi
ár og samtals gerir það um 30 þús-
und bíla. Fáir komast með tærnar
þar sem hann hefur hælana í þeim
efnum.
Guffi gefur lítið fyrir þann
lífseiga orðróm um að við-
skiptasiðferði bílasala sé skorið
við nögl. „Miðað við aðra erum við
góðir. Það er miklu meira um
glæpamenn í lögfræðingastétt,“
segir Guffi og hlær. Og gusar svo
út úr sér glósu á bankamenn. „Hér
spruttu upp svokallaðir verð-
bréfamiðlarar sem seldu hluta-
bréf hægri vinstri, til dæmis í
Decode. Svo féll þetta í verði og
fólk tapaði enda var það platað. Ef
ég hefði gert það sem þessir menn
gerðu hefði ég verið dæmdur á
Alcatraz og lyklunum hent.“
Fréttir hafa borist af óvenju
mikilli sölu nýrra bíla síðustu vik-
ur og mánuði en Guffi segir hana
ekki koma niður á sölu notaðra
bíla. „Það er fínt að gera. Það er til
fullt af fólki sem vill ekki skulda
og staðgreiðir því sína bíla og
lætur sér líða vel. Þetta er fólk
sem veit að bílar eru verðmæti og
ef gengið er um þá af virðingu og
vinsemd þá duga þeir þótt þeir
séu gamlir.“
Samhliða bílasölunni rekur
Guffi bílaþvottastöð á Bíldshöfðan-
um. Mikið er að gera enda vilja
flestir hafa bílana sína hreina og
fína. „Stundum fáum við þó bíla
sem hafa ekki verið þvegnir árum
saman og fólk heldur að það komi
nýr bíll út úr þvottastöðinni. Það
virkar bara ekki svoleiðis, því
miður. Svo kemur fyrir að þurrkur
brotna af afturrúðum en það gerist
af því að aldrei hefur verið skipt
um þurrku. Þær falla þá ekki að
rúðunum og lenda í burstunum.
Sama á við um hliðarspegla, þeir
geta losnað af. Það er af því að þeir
hafa ryðgað fastir og falla ekki að
bílnum eins og þeir eiga að gera
lögum samkvæmt.“
Guffi botnar hvorki upp né
niður í fólki sem þannig fer með
bílana sína en finnst þó loftnets-
klaufarnir verstir. „Margir eru á
fínum bílum bílum með raf-
magnsloftneti sem fer sjálfkrafa
niður þegar slökkt er á útvarpinu.
Þeir slökkva samviskusamlega á
tækinu þegar ekið er inn en leiðist
svo þófið meðan á þvotti stendur
og kveikja á útvarpinu. Þá fer
loftnetið auðvitað upp og brotnar
undan burstunum.“
Guffi segist reyna að benda
fólki á þetta en þorir varla að aug-
lýsa það sérstaklega. „Þetta er svo
viðkvæmt því olíufélögin eiga
flestar þvottastöðvarnar og aug-
lýsa að þau bæti ekki svona tjón.
Ég á hins vegar erfitt með það því
ég vil ekki vera ásakaður um sam-
ráð við olíufélögin,“ segir hann og
hlær.
Sjálfur passar Guffi loftnet,
spegla og þurrkur þegar hann
þvær eigin bíla sem eru af
Mercedes Benz og Land Rover
gerð. „Það eru bestu bílarnir,“
segir Guffi og klappar hundinum
sínum Dolla sem er stjórnarfor-
maður fyrirtækisins, „enda hefur
bankinn trú á honum,“ segir hann
og hlær sem aldrei fyrr.
bjorn@frettabladid.is
– hefur þú séð DV í dag?
ELLEFU ÁRA
DRENGUR
ALBLÓÐUGUR
EFTIR ÁRÁS
Í SKÓLANUM
Fjórtán ára nemandi gekk í skrokk
á yngri dreng í Árbæjarskóla:
Hafði kvartað undan
stríðni árásarpiltsins
LANDSMENN EIGA
8.439 TJALDVAGNA
Miðað við árið 2003.
HEIMILD: SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
SVONA ERUM VIÐ
Framleiðendur hafa merkt aukna sölu á
íslenskum vörum í kjölfar átaksins Velj-
um íslenskt – og allir vinna. Brynjar
Ragnarsson, markaðsstjóri Samtaka
iðnaðarins, segir átakið hafa verið upp-
fært á áramótum.
„Samtökin kalla átakið hér eftir: Þitt val
skiptir máli. Framleiðendur nota hins
vegar áfram: Veljum íslenskt – og allir
vinna,“ segir Brynjar. Hann segir hug í
mönnum. Neytendur verði varir við það
á næstunni þegar íslenskir dagar verði í
Nóatúnsverslunum. Átakið sé því langt
í frá að lognast út af en Samtök iðnað-
arins hafa þurft að laga sig að aðstæð-
um þar sem hagsmunasamtök mega
ekki hvetja til kaupa á íslenskri vöru á
íslenskum markaði vegna reglna
Evrópusambandsins.
Átakið var kynnt með viðhöfn í húsi
Mjólkursamsölunnar í lok ágúst.
Bændasamtök Íslands, Alþýðusam-
bandið og Samtök iðnaðarins standa
að því. Þau vilja vekja forráðamenn
fyrirtækja, stofnana og almenning til
vitundar um mikilvægi þess að velja
íslenskt fyrir atvinnu- og verðmæta-
sköpun í landinu.
Samtök iðnaðarins skoðuðu með að-
stoð Gallup viðhorf neytenda til ísl-
enskra iðnaðarvara frá október til des-
ember. Ánægjuvog Gallup sýnir til
dæmis að ríflega sextíu prósent neyt-
enda eru mjög ánægð með íslenskar
mat- og drykkjarvörur og gefa þeim
fyrstu einkunn. Örfáir gefa íslenskum
vörum falleinkunn eða á bilinu 0,8 til
3,3 prósent. Könnun Gallup náði til
950 einstaklinga á aldrinum 16 til 75
og var svarhlutfallið 63 prósent. - gag
Einungis örfáir gefa íslenskum vörum falleinkunn
EFTIRMÁL: ÁTAKIÐ SEM ÆTLAÐ ER AÐ HVETJA TIL KAUPA Á ÍSLENSKUM VÖRUM
„Mér líst bara vel á þetta,“ segir
Sigrún Ármanns Reynisdóttir, miðill og
forsvarsmaður Samtaka gegn fátækt,
um þá tilllögu sem liggur fyrir flokks-
þingi Framsóknarflokksins að aðildar-
viðræður við Evrópusambandið verði
hafnar. „Það er gott að fólki komi
saman og ræði hlutina,“ segir hún en
þekkir þó ekki til dýpstu innviða
Evrópusambandsins. Hún telur þó að
hag almennings á Íslandi sé betur
borgið innan sambands en utan, til
dæmis gæti verð á mat lækkað. „Já,
ég held að það kæmi fólki til góða að
Ísland gengi í Evrópusambandið.“
SIGRÚN ÁRMANNS REYNISDÓTTIR
Líst vel á
FRAMSÓKN OG ESB
SJÓNARHÓLL
SIGRÚN ÞORLÁKSDÓTTIR
STJÓRNARFORMAÐUR BAUGS
Til vinstri við hana situr Bogga
kvenfélagskona.
M
YN
D
/H
U
LD
A
SI
G
N
Ý
G
YL
FA
D
Ó
TT
IR
Sigrún Þorláksdóttir kjörin formaður á aðalfundi:
Nýr stjórnarformaður Baugs
BRYNJAR RAGNARSSON
Markaðsstjóri Samtaka iðnaðarins sækir
hér nýtt plakat í prentun. Því er ætlað að
hvetja landsmenn til að velja íslenskar
vörur í stað erlendra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
GUFFI BÍLASALI
Fáir komast með tærnar þar sem hann hefur hælana í sölu á bílum.