Fréttablaðið - 25.02.2005, Qupperneq 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 25. febrúar,
56. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 8.49 13.41 18.34
AKUREYRI 8.38 13.25 18.14
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Mér finnst reyndar oft að ég eldi ágætan
mat en ég myndi seint flokka mig sem lista-
kokk,“ segir Bergþór, sem hefur eins og svo
margir Íslendingar breytt um matarvenjur á
undanförnum árum. „Ég forðast allt sem er
hvítt eins og hvítan sykur og hveiti, en fylgi
þó ekki of stífum reglum og svindla af og til.
Ég er líka algjör nammifíkill þannig að ann-
að hvort verð ég að sleppa namminu alveg
eða ég ligg í því. Það leyfi ég mér að gera á
stórhátíðum en læt það svo vera á milli.“
Þó að Bergþór sé ekki síeldandi hefur
hann mikinn áhuga á veislum og borðsiðum
og 4. mars næstkomandi ætlar hann að vera
með námskeið í Námsflokkum Hafnar-
fjarðar um borðsiði.
„Það mun snúast um almenna borðsiði
og svo verður heilmikill kafli um umræður
við borðhaldið. Hvernig maður nálgast þá
sem sitja næst manni og ekki síst hvernig
maður fær þá óframfærnu til að taka þátt í
samræðunum. Tilgangurinn er nefnilega
ekki að maður sjálfur njóti sín sem best og
sé fyndnastur og skemmmtilegastur heldur
að láta hinum líða vel. Það er heldur ekki
nauðsynlegt að kunna stífustu reglur um
borðhald í kóngaveislum, en óneitanlega
gaman að kunna þær.“
Bergþór segist alltaf hafa verið áhuga-
maður um veislur enda sungið í þeim mörg-
um. „Ég spyr þjónana út úr sem hafa þjón-
að í fínustu veislunum og svo finnst mér
forvitnilegt að njósna um hverjir af okkar
fyrirmönnum kunna sig og hverjir ekki.“
Bergþór verður dularfullur í framan og vill
ekki nefna nein nöfn. „Þeir eru til sem
kunna sig afskaplega vel en hinir eru sann-
arlega til líka,“ segir hann hlæjandi.
Bergþór gefur lesendum uppskrift að
hörpudiski sem hann segir einfaldan, en
sérlega ljúffengan. Uppskriftin er á síðu 3.
edda@frettabladid.is
Láttu öðrum líða vel
að hætti hefðarmanna
Bergþór Pálsson óperusöngvari telur sig ekki afburðakokk, en segist hafa
tilfinningu fyrir kryddum. Veislur og borðsiðir eru hins vegar áhugamál hjá
Bergþóri og í mars verður hann með námskeið um efnið.
tilbod@frettabladid.is
Fermingarkjólar og annar
kvenfatnaður af öllum stærð-
um og gerðum eru á 20% af-
slætti í tískuversluninni Zikzak.
„Við ákváðum
að gefa við-
skiptavinunum
afslátt af öllum
nýju vörunum
okkar í tilefni
fjögurra ára af-
mælis verslun-
arinnar,“ segir
Berglind versl-
unarstjóri.
Zikzak er í
Hamraborg í
Kópavogi, Firði
í Hafnarfirði og
Brekkuhúsum í Garðabæ. Þar
er opið á laugardögum til 16.
Fatnaður, snyrtivörur fyrir hár
og húð og töskur eru meðal
þess sem nú er á rýmingarsölu
hjá B. Magnússon að Austur-
hrauni 3 í Garðabæ. Af fatn-
aði má nefna boli, nærfatn-
að, íþróttagalla og úlpur og
töskur fást á allt niður í 500
krónur stykkið. B. Magnús-
son er opið virka daga frá
10 til 18 og á laugardögum frá
11 til 14.
Brjálað bíótilboð er nú á veit-
ingastöðum McDonald's. Það
gildir frá klukkan 20 til 23 á
kvöldin. Tilboðið hljóðar upp á
einn McOstborgara og eina
miðstærð af
McSjeik á aðeins
399 krónur. Mið-
ar þetta að því
að fólk geti grip-
ið með sér létt-
an skyndi-
bita
áður
en það
fer í bíó á
kvöldin eða eftir
bíósýninguna svo garnirnar
gauli ekki alla myndina og spilli
ánægjunni fyrir öðrum bíógest-
um.
Allar gleraugnaumgjarðir eru
seldar á hálfvirði í gleraugna-
versluninni Sjón. Sjón er stað-
sett á þremur stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu, Laugavegi 62,
verslunarmiðstöðinni Glæsibæ
og á Garða-
torgi í
Garðabæ.
Nú er því
upplagt fyrir
gleraugna-
notendur að fríska upp á útlitið
og fá sér nýjar umgjarðir á
kostakjörum. Útsalan stendur
út febrúar.
Bergþór Pálsson er góður með kryddstaukana og telur sig þokkalegasta kokk.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Einmitt, afi.
En hvað gerðu
allir hinir
hermennirnir?
Hægindi af ýmsu tagi á útsölu
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000