Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 31

Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 31
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { FERMINGAR } ■■■■ 5 Óhjákvæmilegt er að af- gangar verði af hinu og þessu þegar búið er að halda stórar veislur. Þá reynir á útsjónarsemina og hagsýnina! Þeyttur rjómi er eitt af því sem oft stendur eftir í skál- um hér og þar. Þótt hann sé ekki það kræsi- legasta að kvöldi veislu- dags er óþarfi að fleygja honum. Frystið hann frekar í ísteningamóti. Þá eigið þið alltaf til- tækan rjóma í sósurnar. Ef of mikið hefur verið keypt af kaffidufti er gott ráð að skella því í frystinn. Þá heldur það mun betur bragðinu en í eldhússkápnum. Til að fá stökka og fallega skorpu á brauðin er gott ráð að skvetta 1/2 bolla af vatni inn í hliðar ofnsins rétt áður en brauðin eru fullbökuð. Ráð - Bakstur er okkar fag - Við bjóðum upp á heildarlausnir fyrir ferminguna Komdu við og bakarameistarar okkar leggja á ráðin með þér Bleik og flott veisla María Rut Róbertsdóttir finnst fermingin spennandi. „Ég ákvað strax að fermast og fór að spá í þetta fyrir þremur árum þegar frænka mín fermdist,“ segir María Rut Róbertsdóttir aðspurð hvort hún hafi velt því fyrir sér hvort hún ætti að fermast eða ekki. Hún mun fermast í Grafarvogs- kirkju þann 17. apríl og undirbún- ingurinn hófst fyrir jól. „Ég veit ekki alveg af hverju ég er að fermast,“ segir María Rut en telur upp tvo af sínum jafnöldrum sem fermast ekki sökum þess að þeir eru annarrar trúar eða trúa ekki. „En ég er trúuð,“ segir María Rut. Hún segist alls ekki upplifa þetta sem einhverja fullorðinsvígslu en telur það þó vera mjög merkilegt að fermast. „Mér finnst þetta allt saman mjög spennandi,“ segir María Rut. „Ég hef mikið hugsað um veisl- una og hún á að vera bleik og flott,“ segir María Rut ákveðin og segist hún spjalla um servíettur og kerti við vinkonur sínar. Fermingar- fræðsluna sjálfa ræðir hún lítið og val hennar á ritningarorðunum sem hún mun fara með: „Sælir eru hjartahreinir því þeir munu guð sjá. Mér finnst það svo fallegt,“ segir María Rut að lokum. María Rut spjallar við vinkonur sínar um servíettur, kerti og fleira tengt veislunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Fermingar- sálmur Svona fermdust íslensk börn á áttunda áratugnum. Sturla er loksins fermdur dýrum varningi kalda borðið stendur, lokið barningi pabba og mömmu, afa og ömmusystranna sem lánuðu þeim fínu blúndudúkana úr Húsmæðra Vasatölva og prímus, sjálftrekkt ómega ritsafn Einars Kvaran, upplýst jarðkúla heillaskeytin streyma heillakarlsins til elsku Sturla sértu velkominn í tölu kristinna... (Pétur Gunnarsson og Spilverk þjóðanna) Aðstoða við undirbúning fyrir stóra daginn Fyrirtækið Amuzo sérhæfir sig í stórviðburðum. Fyrirtækið Amuzo sérhæfir sig í að halda utan um undirbúning og skipu- lagningu á ýmiss konar stórviðburðum í lífi fólks – þar með talið fermingu. Amuzo finnur til dæmis hentuga stað- setningu, hárgreiðslu, veitingar, föt, söngvara og margt fleira. Margir gleyma sér í stressi við undirbúning á fermingunni en Amuzo sér til þess að fermingarbörnin og þeirra nánustu geti notið þessa tíma. Hægt er að hafa sam- band við fyrirtækið í gegnum tölvupóstinn amuzo@amuzo.net eða í síma 868 7866. Einnig er hægt að kíkja inn á heimasíðuna amuzo.net.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.