Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 45

Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 45
Laugavegurinn: Lífæð miðborgarinnar Héldi ég því fram að Reykjavík- urlistinn hefði staðið sig vel í skipulagsmálum stæði sú fullyrð- ing því miður ekki á traustum rökum. Þvert á móti hefur R- listinn staðið sig afar illa þegar kemur að skipulagi höfuðborgar- innar. Sem er miður því skipu- lagið mótar jú mannlífið í borg- inni. Þó verður að segjast að R-listinn tók nú ekki við kræsi- legu búi af sjálfstæðismönnum, sem hlupu alltaf upp á næsta hól til að reisa ný hverfi, en enginn mátti eiga heima í gróðursælum dölununum sem skilja hverfin að. Síðan er lagt tröllvaxið vegakerfi sem sker borgina í sundur svo nú kemst enginn hverfa á milli nema á kraftmikilli bensínbelju, sem á Íslandi er orðin heilagari en mjólkurbeljurnar á Indlandi. En nú hefur borgin loksins druslast til að deiliskipuleggja Laugaveginn, eins og sagt er á bjórókratísku, og eftir áralangt stapp heimilað niðurrif örfárra kofaræfla sem standa þar engum til prýði, skilst að það sé innan við tíundi hluti húsanna við göt- una sem nú má skipta út. Lauga- vegurinn er lífæð gamla miðbæj- arins og því segir það nokkuð um hug manna til borgarinnar hvort þar verði byggt af stórhug og virðingu eða hvort haldið verður áfram að láta Laugaveginn grotna niður af misskilinni verndarstefnu. Og hrekja versl- unina endanlega út í mollin sem eru eins og virki vörðuð hrað- brautum og ógurlegu bílastæða- flæmi sem hinn gangandi maður á ekki séns í að komast yfir. Það er vonandi að borgaryfir- völd heykist ekki á uppbyggingu Laugavegar og raunar miðbæjar- ins alls, sem er vinsælasta íbú- hverfi landsins eins og fasteigna- verð sannar, enda eini vísirinn að raunverulegu borgarskipulagi. En maður er ekki viss um að ráðafólkið í Ráðhúsinu þori þegar á hólminn er kominn, sporin hræða. Til að mynda hrökkluðust þau til baka með ágætar áætlanir um uppbygginu á Snorrabraut því ekki mátti eyðileggja minn- ingar nokkurra manna af 68-kyn- slóðinni sem höfðu séð kúreka- mynd frá Ameríku í Austurbæj- arbíói þegar þeir voru litlir. Sögð vera svo mikil menningarverð- mæti í húsinu þótt það standi meira og minna autt og enginn vilji reka það. Svo eru fram- kvæmdirnar við nýju Hring- brautina nú ekki beint hug- hreystandi, hana átti auðvitað að setja í stokk. Svo ekki sé talað um flugvallarklúðrið allt saman. Sá farsi er einhvern veginn svona: Fyrst festa borgaryfirvöld flug- völlinn í sessi fram yfir árið 2016 en sjá svo að sér og setja framtíð svæðisins í dóm kjósenda sem kjósa völlinn beinustu leið í burtu. En völlurinn er þarna enn nokkrum árum síðar sem fleinn í síðu borgarinnar og jafnvel verið að byggja við skúrana sem þar standa. Og okkar ágæti borgar- stjóri hefur meira að segja gefið í skyn að flugvöllurinn fái að vera áfram í Vatnsmýrinni í smækk- aðri mynd, sem er þvert ofan í dóm kjósenda hennar. Það er von- andi að menn standi í lappirnar að þessu sinni. Sjáum til. 21FÖSTUDAGUR 25. febrúar 2005 Flottir hestar – feit börn! Eitt hundrað milljónir í hestarækt. Tólf milljónir í mannrækt! Fyrir liðlega ári var fjallað um það í sjón- varpsfréttum hversu miklum fjár- munum hið opinbera eyddi í gælu- verkefni tengd íslenska hestinum hér á landi og útbreiðslu skepnunn- ar á erlendum vettvangi. Niður- staðan var sú að á þriggja ára ára tíma- bili hafði rík- isvaldið veitt um 300 millj- ónum króna í íslenska hest- inn með marg- v í s l e g u m hætti. Á sama tíma og stór hluti heims- byggðarinnar horfir upp á börn fitna, ekki síst hér á Íslandi, setur ríkisvaldið 12 milljónir króna í Manneldisráð á ári. Því ráði er ætlað að halda uppi víðtækri starf- semi og áróðri með það að mark- miði að við borðum holla fæðu og gætum þess að missa börnin okkar ekki út í vitleysu í neyslunni. Vissu- lega er óábyrgt að ætlast til þess að ríkisvaldið beri ábyrgð á uppeldi barna okkar en ef veita á fjármun- um til þess að hafa áhrif á foreldra, og þá sem láta sig holdafar barna varða, er ansi naumt skammtað – í samanburði við íslenska hestinn. Með fullri virðingu fyrir honum. Manneldisráð heyrir nú undir Lýðheilsustöð, sem er ætlað að sinna alhliða forvarnarstarfi. Frá upphafi hefur sú stöð ekki haft fjár- muni til að halda uppi því öfluga starfi sem til er ætlast, jafnvel þótt hún hafi til þess mannafla og þekk- ingu. Ef ríkisvaldinu er alvara með því að setja á stofn alhliða forvarn- arstöð, sem á leynt og ljóst að minna okkur á það með margvísleg- um hætti að heilbrigðir lífs-hættir séu undirstaða vellíðunar, árangurs og framfara, þarf að skapa Lýð- heilsustöð starfsgrundvöll. Hann er tæplega til staðar í dag. Þrjú hundruð milljónir í ísl- enska hestinn á móti þrjátíu og sex milljónum í Manneldisráð endur- speglar því miður þá forgangsröð sem er svo áberandi í okkar upp- lýsta, siðmenntaða og vinavædda þjóðfélagi. Svo hrista menn haus- inn yfir því að allt fari úr böndun- um en halda áfram að dæla fjár- magni í hégóma og það sem skiptir litlu máli. Á stundum virðist sem þeir sem telja sig hafa mestu völd- in beri ekki skynbragð á hjartslátt þjóðarinnar. Það gæti verið heppi- legt að stíga niður af kontórnum annað slagið og setja sig inn í mik- ilvæga málaflokka áður en menn greiða atkvæði á alþingi, umhugs- unarlaust að því er virðist. SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek- ið á móti efni sem sent er frá Skoðana- síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið- beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR UMRÆÐAN LAUGAVEGURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.