Fréttablaðið - 25.02.2005, Qupperneq 51
FÖSTUDAGUR 25. febrúar 2005 27
Argentínska knattspyrnugoðiðDiego Armando Maradona þarf
að punga út 40 milljónum dollara í
sekt til ítalskra
skattayfirvalda
vegna skattsvika.
Maradona var
fundinn sekur í
nóvember árið
2001 en áfrýjaði
dómnum. Áfrýjun-
inni var synjað í
hæstarétti í fyrradag. Verjendur
Maradona greindu frá því að skjól-
stæðingi þeirra hefði aldrei verið
sagt frá málinu af ítölskum skatta-
yfirvöldum. Það reyndist hins vegar
ekki á rökum reist þar sem kom í
ljós að Maradona fékk tvívegis
gögn um málið, árið 1994 og 1998.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-stjóri Manchester United, var
ekkert gramur yfir mistökum Roy
Carroll, markvarðar United-liðsins,
eftir tapið gegn AC Milan í Meistara-
deild Evrópu í fyrrakvöld. Carroll
missti boltann frá sér eftir langskot
frá Clarence Seedorf og Hernan
Crespo varð fyrri til knattarins og
skoraði, 12 mínútum fyrir leikslok.
„Við hefðum átt að stöðva þá fyrr í
sókninni,“ sagði Ferguson, sem full-
yrti að leikurinn hefði tapast á
dauðafærum United-liðsins þar sem
menn stigu feilspor í hvívetna.
Seinni leikurinn verður á heimavelli
Milan eftir tvær vikur.
Jose Antonio Reyes var í gærdæmdur í þriggja leikja bann af
enska knattspyrnusambandinu eftir
að hafa tekið þátt í slagsmálum í
leik gegn Sheffield United um síð-
ustu helgi. Leiknum lauk með jafnt-
efli, 1-1. Þá var áfrýjun Hollendings-
ins Dennis Bergkamp hafnað.
Shaquille O’Neal meiddist á hnéþegar Miami Heat beið lægri hlut
fyrir Chicago Bulls í framlengingu í
NBA-körfuboltanum á þriðjudags-
kvöldið, 105-101. Orðrómur fór
strax á kreik um að kappinn myndi
ekki leika meira
með á tímabilinu
en forráðamenn
Heat þvertóku fyrir
að meiðslin væru
alvarleg. „Hann fer í
myndatöku í dag,“
sagði Stan Van
Gundy, þjálfari
Heat, og bætti við að liðið væri full-
fært um að leika vel þó að Shaq
væri fjarri góðu gamni. „Liðið er
náttúrulega byggt í kringum hann
en við getum alveg bitið frá okkur
með því að breyta leikskipulaginu.“
Heat tapaði fyrir Indiana Pacers í
fyrrinótt, 93-91.
Það er auðveldara að leika í aug-lýsingu en að vinna spænsku
deildina. Þetta lét David Beckham,
leikmaður Real Madrid, hafa eftir
sér á meðan á tökum stóð á nýrri
Pepsi-auglýsingu. Þar má einnig sjá
söngdívurnar Jennifer Lopez og
Beyoncé. Beck-
ham sagði að
sönn ánægja
hefði verið að
vinna með söng-
konunum tveim-
ur. Slúðurblöðin
máttu bíða eftir
Beckham í vel á
þriðju klukku-
stund eftir að
tökum lauk. Blaðasnáparnir vildu
ólmir spyrja Becks út í nýfæddan
son kappans en breska knattspyrnu-
goðið vildi ekkert afhjúpa um
drenginn.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Allt fyrir tónlistarmanninn!
Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 525 5060
Á mögnuðu verði!
Verð áður 39.900,-
nú 29.900,-
Gítarmagnari 100W
Verð áður 29.900,-
nú 24.900,-
Bassamagnari 60W
Rumble-100
FM-212
Verð áður 27.900,-
nú 22.900,-
Gítarmagnari 65W
FM-65
Verð áður 39.900,-
nú 29.900,-
Bassamagnari 100W
Rumble-100
Fjölnismenn missa sinn besta mann í Intersportdeildinni í körfubolta:
Skelfileg blóðtaka á þessum tíma
KÖRFUBOLTI Darrel Flake hefur
spilað sinn síðasta leik fyrir Fjölni
í Intersportdeildinni í körfubolta í
vetur því hann þarf að fara í að-
gerð á hné vegna þráðlátra hné-
meiðsla sem hafa angrað hann
seinni hluta vetrar. Í stað Flake
hafa Fjölnismenn fengið til sín
William Coley sem lék síðast í
sænsku úrvalsdeildinni í fyrra.
Coley er 197 sm framherji sem
skoraði 16 stig að meðaltali með
Södertalje í Svíþjóð síðasta vetur.
„Þetta er skelfileg blóðtaka á
þessum tíma fyrir okkur og í raun
algjört neyðarúrræði. Það er
mjög slæmt að þurfa að stokka
upp í liðsheildinni þegar svona
lítið er eftir af mótinu. Nýi maður-
inn er engin bomba en honum er
ætlað það hlutverk að komast sem
fyrst inn í leik liðsins og er von-
andi traustur liðsspilari. Flake er
mikið hörkutól og hefur verið að
pína sig í síðustu leikjum en nú
fékk hann þau skilaboð frá lækn-
um að hann yrði að fara í aðgerð
annars væri hann að skemma sig.
Það er mjög leiðinlegt að hann
geti ekki klárað þennan vetur með
okkur því Flake er frábær leik-
maður og hefur átt mikinn þátt í
velgengni okkar og var algjör
miðpunktur í sóknarleiknum,“
sagði Benedikt Guðmundsson,
þjálfari Fjölnis, um missi nýlið-
anna.
Darrel Flake hefur glímt við
meiðslin eftir áramót og hefur
lítið sem ekkert getað æft vegna
þeirra.
„Flake átti mjög góðan leik
gegn Njarðvík en eftir leikinn gat
hann varla stigið í löppina og þá
var ljóst að þetta væri vart á hann
leggjandi lengur,“ sagði Benedikt
enn fremur en Flake skoraði 22,9
stig og tók 13 fráköst að meðaltali.
ooj@frettabladid.is
HNÉMEIÐSLIN DÝRKEYPT Hnémeiðsli
Darrels Flake þýða að hann spilar ekki
meira með Fjölni í vetur og þarf að fara í
aðgerð í Bandaríkjunum.