Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 54
30 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
NR. 8 - 2005 • Verð kr. 599
Deilt um eignirnar!
Besta dagskráin!
24.feb.-2.mars
Lilja Pálmadóttir
fjárfestir:
Jón og Helga
í Skífunni
í kröppum da
nsi:
EYÐIR
MILLJÓNUM
Í GÆÐINGA!
Vilborg Arnardóttir
talar um sorgina:
MISSTI BÆÐI
EIGINMANN OG SON
í Kast-
ljósinu:
ERFIÐUR
SKILNAÐUR!
Sjáið
myndirnar í
GLAMÚR
OG GLANS!
Ráðherrar og
ríkisbubbar
flottir á því:
Sigmar
EINN
Á NÝ!
GERIR LÍFIÐ SKEMMTILEGRA
!
ÍSLENSKI MARKAÐSDAGURINN:
Lúðurinn veittur í dag
Lúðurinn, íslensku aug-
lýsingaverðlaunin, verður
veittur í nítjánda sinn í
dag. Það er ÍMARK, félag
íslensks markaðsfólks, í
samráði við Samband ísl-
enskra auglýsingastofa
(SÍA), sem stendur fyrir
keppninni en markmiðið
með henni er að verð-
launa þær auglýsingar
sem þykja skara fram úr
á Íslandi.
Yfir 400 auglýsingar
bárust í keppnina í ár.
Keppt er í tólf flokkum og
dómnefnd er skipuð
fimmtán aðilum; fimm frá
ÍMARK, fimm frá SÍA,
þremur frá Félagi ísl-
enskra teiknara, einum
frá Orðspori, félagi texta-
gerðarmanna, og einum
aðila frá Félagi kvik-
myndagerðarmanna. At-
kvæðagreiðsla dómnefnd-
ar er leynileg, þannig að
dómnefndin veit ekki fyrr
en í dag hver úrslitin eru.
Íslenski markaðsdag-
urinn, sem haldin er af
sama tilefni, verður
einnig haldinn með pompi
og prakt í dag. Ráðstefna
hefst klukkan níu sem
stendur langt fram eftir
degi. Klukkan fimm hefst
sjálfurinn Lúðurinn í Há-
skólabíói, þar sem verð-
launin verða afhent og um
kvöldið verður boðið í
sérstaka Lúðrahátíð í
Listasafni Reykjavíkur
þar sem verður boðið upp
á mat og skemmtanir.
Bestu auglýsingarnar
að mati þjóðarinnar
TITILL:
Hægðu á þér
AUGLÝSANDI:
Umferðarstofa
FRAMLEIÐANDI:
Hvíta húsið og Spark
ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - LJÓSVAKA
Þjóðin kaus um bestu auglýsing-
una í sex flokkum, Almannaheilla-
auglýsingar – ljósvakamiðlar,
Almannaheillaauglýsingar –
prent-miðlar, Dagblaðaauglýsing-
ar, Sjónvarpsauglýsingar, Tíma-
ritaauglýsingar og Útvarpsauglýs-
ingar, á visir.is. Um þúsund manns
tóku þátt í valinu og varð niður-
staðan sem hér segir.
TITILL:
Clinton á
Bæjarins beztu
AUGLÝSANDI:
SS
FRAMLEIÐANDI:
Fíton
DAGBLAÐAAUGLÝSINGAR
TITILL:
Gefðu gjöf sem vex
AUGLÝSANDI:
Íslandsbanki
FRAMLEIÐANDI:
Fíton
TÍMARITAAUGLÝSINGAR
TITILL: Kollekt *888* – lækur
AUGLÝSANDI: Síminn
FRAMLEIÐANDI: ENNEMM / Saga film
– Samúel Bjarki og Gunnar Páll
SJÓNVARPSAUGLÝSINGAR
TITILL: Hlussan á Hlemmi
AUGLÝSANDI: Síminn
FRAMLEIÐANDI: Sveppi, Pétur og
Auddi í 70 mínútum
ÚTVARPSAUGLÝSINGAR
TITILL:
Hægðu á þér
AUGLÝSANDI:
Umferðarstofa
FRAMLEIÐANDI:
Hvíta húsið
ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - PRENT
HÆGÐU Á ÞÉR: VALIN BESTA AUGLÝSINGIN Á VISIR.IS
Falleg en átakanleg
Þ jóðin valdi auglýsingaher-ferðina Hægðu á þér, semHvíta húsið og Spark gerðu
fyrir Umferðarstofu, sem bestu
auglýsinguna en kosið var á vef-
svæðinu visir.is. Hægðu á þér
fékk yfirburðakosningu eða rúm
30 prósent, nánast tvöfalt fleiri
atkvæði en næsta auglýsing sem
kom á eftir.
Hugmyndasmiður auglýsing-
arinnar er Bjarney Hinriksdótt-
ir sem starfar hjá Hvíta húsinu.
„Þegar Umferðarstofa var að
leita að hugmyndum fyrir næstu
herferð komum við á fót aug-
lýsingakeppni hér innanhúss.
Bjarney átti þessa hugmynd en
auglýsingin á að sýna á tákn-
rænan hátt fórnarlömb umferð-
arslysa,“ segir Gísli Brynjólfs-
son sem kom einnig að gerð
auglýsingarinnar ásamt Elínu
Hilmarsdóttur textagerðarkonu.
Hægðu á þér hefur hlotið verð-
laun víða en hún hreppti meðal
annars gullið á Eurobest Awards
auglýsingahátíðinni. Þar er, að
sögn Gísla, keppt um hálfgerðan
Evrópumeistaratitill í auglýsing-
um. „Hún vann í almannaheilla-
flokknum þar og atti meðal ann-
ars kappi við auglýsingu frá
frönsku Umferðarstofunni. Sú
auglýsing hefur verið gríðarlega
vinsæl út um allan heim. Engin
íslensk auglýsing eða auglýsinga-
stofa hefur fengið verðlaun á
þessari hátíð áður,“ segir Gísli.
Aðspurður segir Gísli að verð-
laun sem þessi skipti hiklaust
miklu máli. „Þetta er ákveðin
viðurkenning á því starfi sem
við erum að vinna enda eru
einkunnarorð Hvíta hússins:
– allt starf er skapandi.“
Kosningin um bestu auglýsing-
una fór fram á Vísi og þar var
hægt að rökstyðja hvers vegna sú
auglýsing varð fyrir valinu. Þeir
sem kusu Hægðu á þér sem bestu
auglýsinguna sögðu meðal ann-
ars: „Þetta er besta auglýsingin
vegna þess að hún er einföld en
segir samt allt sem segja þarf.
Hún er eftirminnileg, falleg en
samt átakanleg. Tónlist og mynd
fara vel saman og textinn er
skýr“, „Rosalega áhrifamikil aug-
lýsing!!! Fer alltaf að gráta þegar
ég sé hana...svo sorgleg“ og „Það
smellur allt saman, vísur Vatns-
enda-Rósu passa vel við, hún er
falleg en jafnframt sorgleg“.
Hvíta húsið fær afhentan
Lúður, verðlaunagrip Ímark-há-
tíðarinnar, í kvöld en það eru
Fréttablaðið og visir.is sem gefa
verðlaunin. ■
SIGURVEGARARNIR Elín Hilmarsdóttir, Bjarney Hinriksdóttir og Gísli Brynjólfsson fá Lúður, sem Fréttablaðið og visir.is gefa, en þjóðin
valdi auglýsingu þeirra, Hægðu á þér, sem bestu auglýsinguna. Guðjón Jónsson hjá Spark leikstýrði auglýsingunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Heildarvelta íslenska auglýsinga-
markaðarins var um 11,3 milljarð-
ar á síðasta ári og jókst um 10
prósent frá árinu á undan. Þetta
kemur fram í úttekt IMG-Gallup
sem nær utan um alla auglýsinga-
miðla nema útvarp. Tölurnar eru
reiknaðar út frá listaverði fjöl-
miðlanna og er án afslátta.
Dagblöðin eru langstærstu aug-
lýsingamiðlarnir með um 61 pró-
sents hlut af veltunni en í öðru sæti
er sjónvarp með 27 prósenta hlut.
Auglýsingar í dagblöðum juk-
ust verulega á síðasta ári í saman-
burði við auglýsingar í öðrum fjöl-
miðlum samkvæmt úttekt IMG-
Gallup. Fréttablaðið leikur lykil-
hlutverk í þeirri aukningu. Frá því
að blaðið var sett á fót árið 2001
hafa auglýsingatekjur dagblaða
aukist um 44 prósent í samanburði
við 7 prósenta tekjuhækkun í sjón-
varpi. Þennan árangur má þakka
fádæma útbreiðslu blaðsins en
fjölmiðlakannanir hafa ítrekað
sýnt að um 70 prósent landsmanna
lesa Fréttablaðið á hverjum degi
og yfir 90 prósent lesa það eitthvað
í hverri viku. Þessi mikli og
stöðugi lestur gerir Fréttablaðið að
mest notaða fjölmiðli landsins.
Auglýsingamarkaðurinn hefur
fylgt blaðinu vel eftir en velta þess
rúmlega sexfaldaðist frá 2001 til
2004. Ef heldur fram sem horfir
mun Fréttablaðið afla mestra aug-
lýsingatekna allra fjölmiðla á
þessu ári. ■
LESTUR DAGBLAÐA 1999-2004 Upp-
safnaður lestur dagblaða á vikutímabili skv.
fjölmiðlakönnunum IMG-Gallup. Yfir 90%
landsmanna lesa Fréttablaðið í hverri viku.
Íslenski auglýsingamarkaðurinn velti 11,3 milljörðum 2004:
Fréttablaðið í lykilhlutverki
100% Fréttablaðið
Morgunblaðið
DV
Okt. 2000 Okt. 2004