Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 56
Lafði Macbeth og Dorian Gray
mætast á sviðinu í Klink og Bank
í kvöld og annað kvöld þegar
sænska leikkonan Annika B. Lew-
is fer með hlutverk þeirra beggja
í einleik sínum, Blændverk.
Annika er bæði leikari, dansari
og skemmtikraftur. Hún segist
blanda saman þessum þremur
þáttum sviðslistarinnar og geti í
raun ekki gert upp á milli þeirra.
Þar fyrir utan er hún bæði höf-
undur og leikstjóri einleiksins,
sem byggður er á textum eftir
Shakespeare og Oscar Wilde,
textabrotum úr dægurlögum og
kvikmyndum, auk þess sem hún
bætir við frumsömdum textum
frá eigin brjósti.
„Við erum líka með stjórt tjald
og sjónvarpsskjá þar sem sýndar
eru kvikmyndir. Svo er tónlistar-
maður með mér á sviðinu sem
notar nútímagræjur til að stjórna
bæði sjónrænni hlið sýningarinn-
ar og tónlistinni.“
Þessi tónlistarmaður er Jens
Mønsted, sem jafnframt gegnir
hlutverki „myndbandasnúðs“, ef
nota má svo skelfilegt orð yfir „vid-
eo jockey“ eins og hann nefnir sig.
„Ég er líka að leika mér svo-
lítið með orðið Blændverk,“ segir
Annika, því Blændverk, sem er
nafn sýningarinnar, þýðir blekk-
ingarleikur eða sjónhverfingar,
en um leið er hún að blanda sam-
an ýmsum þáttum sviðslistanna,
dansi, leiklist og skemmtiatriðum
svo úr verður ein heild.
„Og svo nota ég blandara á
sviðinu, heimilistækið.“
Sýningin hverfist sem fyrr
segir í kringum þau lafði Macbeth
og Dorian Gray, sem við fyrstu
sýn virðast ekki eiga margt sam-
eiginlegt.
„Mér finnst þau samt standa
mjög nærri hvort öðru. Þau hafa
bæði mikinn metnað, en munur-
inn er þó sá að Lafði Macbeth átt-
ar sig á endanum á því hvílíkt ill-
virki hún hefur framið. Gray er
hins vegar tælandi, eins og djöf-
ullinn, hann reynir að sannfæra
menn um að hugsa fyrst og fremst
um sjálfa sig en vera ekki að
brjóta heilann yfir stórum hug-
myndum eða vera með tillitssemi
við aðra.“
Sýningin Blændverk var frum-
sýnd árið 2003 í Kaupmannahöfn,
en Annika hefur ferðast með hana
víða um Danmörku og Svíþjóð.
Í júní ætlar hún með hana til
Noregs og á næsta ári til Banda-
ríkjanna.
Sýning hennar í Klink og Bank
hefst klukkan 21 bæði kvöldin. ■
32 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Stuðboltarnir í frönsku hljómsveitinni NoJazz
ætla að sjá til þess að allir bregði sér út á
dansgólfið á Nasa við Austurvöll í kvöld.
Þrátt fyrir nafnið eru þeir djassarar af lífi og
sál, en hafa einsett sér að blása nýju stuði í
djassinn, hefja hann til vegs á ný sem
fjöruga danstónlist og skemmtitónlist eins
og hann var í öndverðu.
NoJazz verður með tónleika í Nasa bæði í
kvöld og annað kvöld. Engin lognmolla ríkir
á tónleikum þeirra enda eru þeir jafnvígir á
djass, hiphop, fönk og jungle.
Á báðum tónleikunum kemur hin einstæða
fönkhljómsveit Jagúar fram með NoJazz, og
aldrei er að vita nema tónlistarmennirnir úr
þessum tveimur líflegu hljómsveitum
djammi svolítið saman þegar líða tekur á
kvöldið.
NoJazz er skipuð þeim Philippe Sellam á
saxófón, Guillaume Poncelet á trompet,
Pascal Reva á slagverk og gítar, Philippa
Balatier á hljómborð og Mickael Chekli sem
sér um hljóðsmölun.
Hljómsveitin gaf út sinn fyrsta disk árið 2002
eftir að hafa einbeitt sér lengi að tónleika-
haldi. Árið 2004 kom svo plata númer tvö:
Nolimits Mixes & Combinations.
kl.17.00
Í dag stendur myndlistardeild Listaháskóla
Íslands fyrir kynningu í sýningarrýminu
Kubbnum á listamanninum Einari Þorláks-
syni, sem á sínum tíma varð fyrir sterkum
áhrifum af verkum Cobra-listamanna og hefur
sótt innblástur til náttúrutengdra listamanna
á súrrealíska kantinum. Kynningin hefst
klukkan 17 í dag, en sýning á verkum hans
verður opin virka daga næstu þrjár vikurnar.
menning@frettabladid.is
Blása nýju stuði í djassinn
!
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Lau 26/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 5/3 kl 20,
Su 13/3 kl 20 Fi 17/3 kl 20, Fi 7/4 kl 20,
Fö 8/4 kl 20
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
SÝNIR: OPEN SOURCE
eftir Helenu Jónsdóttur
Frumsýnig Su 27/2 kl 20, Fi 3/3 kl 20,
Su 6/3 kl 20 - Aðeins 3 sýningar
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Sýningar halda áfram eftir páska.
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 27/2 kl 14 , Su 6/3 kl 14 Síðustu sýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana.
Forsala aðgöngumiða hafin.
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Lau 26/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
Su 6/3 kl 20, Su 13/3 kl 20
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson, Gríman fyrir besta leik í
aðalhlutverki
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Fi 3/3 kl 20, Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20,
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Lokasýningar
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA.
Lau 26/2 kl 20, Su 6/3 kl 20, Su 13/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson. Í samstarfi við
Hið lifandi leikhús.
Fö 11/3 kl 20, Lau 18/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson. Í samstarfi við TÓBÍAS.
Í kvöld kl 20, Mi 2/3 kl 20, Fi 10/3 kl 20,
Fi 17/3 kl 20
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Frumsýning Fö 4/3 kl 20,
Su 6/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Su 12/3 kl 20,
Fö 18/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Su 27/2 kl 20, Lau 12/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
15:15 TÓNLEIKAR
ÍSLENSKI FLAUTUKÓRINN
Lau 26/2 kl. 15:15
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Lafði Macbeth
og Dorian Gray
... opnun á myndlistarsýningu
Jóns Óskars í 101 gallery að Hverf-
isgötu 18a, sem verður klukkan 17
í dag. Þar dregur Jón Óskar saman
marga þætti úr rúmlega tveggja
áratuga starfi sínu.
... tónleikum í Salnum á morgun
þar sem söngvararnir Marta Guðr-
ún Halldórsdóttir, Snorri Wium og
Ólafur Kjartan Sigurðarson syngja
lög eftir Tryggva M. Baldvinsson.
Með þeim leikur Hrefna Eggerts-
dóttir á píanó og einnig leikur
Salon-hljómsveit Berjadaga með
Örn Magnússon í broddi fylkingar.
... þremur einkasýningum í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu,
sem öllum lýkur nú um helgina.
Þetta eru sýningar Bjargeyjar
Ólafsdóttur, Brians Griffin og
Þórðar Ben Sveinssonar.
SJÓNHVERFINGAR Sænska leikkonan Annika B. Lewis sýnir einleik sinn, Blændverk, í
Klink og Bank í kvöld og annað kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N