Tíminn - 05.01.1975, Page 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 5. janúar 1975.
Ingólfur Davíðsson:
Bvggt og búið
í gqmla dagg LV
7
Hugsum okkur stadda norbur
á Oddeyri fyrir rúmri öld. Þá
var þar lítil byggö. Og þar sem
nú er Oddeyrargata var kúa-
gata um aldamótin. Það voru
kýrnar, sem „hönnuöu” legu
götunnar! Ariö 1872 keypti
Gránufélagiö Oddeyri af Þor-
steini Danlelssyni á Skipalóni og
greiddi með 32 hlutum I félag-
inu, en hver hlutur var 25 rd, eða
50 kr. Tveir húskofar fylgdu i
kaupunum, en aöalatriðið var
góö verzlunaraðstaða. Má telja
að veruleg byggð á Oddeyri
hefjist með verzlunarstarfsemi
Gránufélagsins. Til bráða-
birgða voru öll skilrúm rifin úr
öörum húskofanum og hann
gerður að búð. Var kofinn að
stærö eins og ein væn skemma á
bæ, segir Einar i Nesi haustið
1873. Þarna verzlaði Einar fyrir
félagiö um sumarið og veiktist
af aðbúðinni i óþéttum kofan-
um. Einar kvartar lika undan
drykkjuskap sumra starfs-
manna félagsins. Verzlunarhús-
ið Grána á Oddeyri, nú Strand-
gata 49, mun vera byggt rétt
fyrir 1880. í árslok 1878 átti
félagið tvö haffær skip með öll-
um fargögnum og auk þess
verzlunarhús á Oddeyri, Vest-
dalseyri, Siglufirði og Raufar-
höfn. Fjaran var þá mun nær
Gránufélagshúsinu á Oddeyri
en nú, eins og glöggt má sjá á
myndinni frá 1885.
Grána hefur verið hið
myndarlegasta hús fyrir tæpri
öld og er það raunar enn. Sagnir
ganga um að eitthvað af viðnum
hafi verið úr húsi úti i Skjaldar-
vik. Vel hefur verið til Gránu
viðað og eru viðir enn ófúnir og
ilmandi (rauðfura?) Húsagerð-
in er dönsk, þykk borð felld
saman og önnur negld yfir sam-
skeytin (skarsúð). Húsið er enn
óbreytt að mestu hiö ytra, nema
pappi settur á miðja framhlið.
Liturinn er grár. Nú starfar i
húsinu vélsmiöjan Oddi, siöan
1945. Húsið er orðið mjög gisið
og mun i ráði að lagfæra það.
Nýju myndirnar af húsinu tók
undirritaöur sl. haust. A vestur-
enda er einn gluggi, en fjórir á
austurgafli. Fyrrum var búiö I
miöju hússins, en verzlunin var
i vesturenda. Austan'megin var
m.a. sumarbústaöur, dvaldi t.d.
Christer Hafstein þar stundum.
Á minum unglingsárum var
Pétur Pétursson verzlunarstjóri
I Gránu og bjó um skeið i hús-
inu. Siðar tók Einar Gunnarsson
viö verzluninni. Gránufélagið
var mjög athafnasamt og bætti
verzlunina stórum um skeið,
undir öflugri stjórn Tryggva
Gunnarssonar. En — kreppa
kom og þá eins og oftar —.
Nokkru ofar viö Strandgötuna
á Oddeyri standa tvö sérkenni-
leg hús, sem enn vekja athygli,
þ.e. húsin nr. 23 og 29. Þau eru
klædd gráum hellum, bæði þak
og veggir. Mun það hafa veriö
gert sem vörn við eldhættu.
Húsið nr. 29 byggði Snorri Jóns-
son, skipasmiður og kaupmað-
ur, árið 1897. Þetta er stórt og
geröarlegt hús, en hefur nokkuð
látið á sjá i seinni tið. Vinstra
megin viö það, bakatil, sér i
lága, gamla byggingu.
Húsið nr. 23 byggði
Metúsalem Jóhannsson. Þetta
er fallegt hús, skreytt tréskurði.
Ég man hve mér fannst til um
það, er ég kom i skóla 1924, og
við Pálmi Pétursson, nú skrif-
stofustjóri i Reykjavik, lásum
saman i húsinu, sem þá var eign
föður Pálma „Péturs i Gránu”,
sem bjó lengi i húsinu. Siðar bjó
þar Bogi Hólm yfirmaður
Hjálpræöishersins. Nú er þarna
Atlabúðin, nafnið sést undir
svölunum á myndinni. Þeir
byggðu margir fallega gömlu
húsameistararnir.
A þessum slóðum fór fram
„Oddeyrardómum” og konungi
voru unnir hollustueiðar 15. og
16. júni 1551. Konungur og
Lútherstrú höfðu þá sigrað.
Skyldi einhver húsakostur
hafa þá verið á Oddeyri?
Flöguklætt hús Strandgötu 29 Oddeyri (3. sept. 1974)
Gamla „Grána” á Oddeyri (vesturgafl) (3. sept. 1974)
Gamla Gránufélagsverzlunarhúsiö (Grána), nú vélsmiðjan Oddi
(3. sept.) 1974
Strandgata 23 Akureyri (30/8. 1974)
Verziunarhús Gránufélagsins á Oddeyri sumarið 1885.