Tíminn - 26.01.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 26. janúar 1975
TÍMINN
5
Heimsmet eða hvað?
Bandariska kvikmyndastjarnan
Edy Williams hefur aldrei verið
hrædd viö að vekja athygli, svo
að ekki sé meira sagt. Hún er
heldur ekki sérlega nákvæm
með að velja fatnaðinn, sem hún
ætlar sér að ganga i, eða
kannski öllu fremur aö ganga
ekki i. Hér á myndinni er hún að
leggja upp i ökuferð til Rómar-
borgar en þann stað heiöraði
hún með nærveru sinni i sam-
bandi við gerð kvikmyndarinn-
ar Fjölskyldusyndir. Það má
bæta þvi við, að hún hefur keypt
sér brjóstatryggingu, og hljóðar
hún upp á hvorki meira né
minna en 110 milljónir Isl.
króna. Það hlýtur að vera
heimsmet.
Mikið um gervifrjógvun
Um 2000 konur urðu aðnjótandi
gervifrjógvunar í Frakklandi á
siðasta ári. Allt voru þetta gift-
ar konur, en eiginmenn þeirra
voru ófrjóir, og höfðu samþykkt
þessa aðferð til þess að konum
þeirra auðnaöist að eignast
barn. Hins vegar mun kaþólska
kirkjan, sem er mikils ráðandi I
Frakklandi, vera þessu mjög
mótfallin. Sex sæðisbankar eru
starfræktir I nokkrum helztu
borgum Frakklands. Þeir, sem
leggja sæði af mörkum, eru allt
giftir menn, sem þegar hafa átt
börn, og fá þeir enga greiðslu
fyrir sæði sitt. Mennirnir verða
að vera undir fertugu og hafa
gengizt undir læknisskoðun, og
einnig hafa börn þeirra verið
rannsökuð og reynt hefur verið
að komast að þvi hvort nokkur
veikindi eða erfðagallar kunni
að felast i ættinni. Sæðið er sett I
„plaststrá” og varðveitt i
nitrogenvökva við 196 stiga
frost. Sæðið er talið endast i að
minnsta kosti 10 ár. Hvorki
kona, sem fær sæðið, né
læknirinn, sem framkvæmir
aögerðina, vita hver gefandinn
er Stráið, sem sæðið er i, er að-
eins merkt sérstöku númeri. t
sæðisbankanum er allt sæði á
skýrslu. Hver sæðisgefandi er
einungis notaður til þess að
sæða þrjár til fjórar konur, svo
hann á ekki að geta veriö faðir
að fleiri börnum en þeim, sem
þar af hljótast. Er þessi tak-
mörkun sett til þess að koma i
veg fyrir að miklir möguleikar
séu á þvi, að bræður og systur,
hálfbræður eða hálfsystur gift-
ist.
1200 km d klukkustund! !
í KHARKOVI Sovétrikjunum er
starfandi rannsóknar og til-
raunastofnun, þar sem fram-
leiddir eru kappakstursbilar, og
hafa verið framleiddir I 25 ár.
Stúdentar.sem starfa við þessa
stofnun vinna nú að gerð nýrrar
tegundar bils, Khadi — 9
módelsins. Þetta er léttbyggt
farartæki, sem á að þola vel
hita, en þaö er smiöaö úr gler-
fiber- og plastefnum. Billinn,
sem er 10,5 metrar á lengd á að
geta fariö með 1200 kilómetra
hraða á klukkustund. Bill þessi
llkist reyndar meira flugvél en
bfl i ytra útliti, eins og gleggst
kemur fram á meðfylgjandi
mynd. Bilar frá Khadi hafa sett
heimsmet niu sinnum. Stúlkan á
hinni myndinni, sem hér fylgir
heitir Natalia Sycheva, og er
einn af nemendunum, sem
vinna að gerð bílsins, hún er hér
aö kanna innri byggingu bilsins.