Tíminn - 11.03.1975, Side 3
Þriðjudagur 11. marz. 1975.
TÍMINN
3
Göngugarparnir niu úr Flug-
björgunarsveitinni komu til
byggða á sunnudaginn. Þeir lögðu
upp frá Akureyri laugardaginn
annan marz eins og frá var sagt i
fréttum Tlmans. Ferðin gekk vel,
þótt fæstir þeirra félaga slyppu
við hælsæri og einn væri raunar
allilla haldinn af þvi, þegar þeir
komu til byggða. — Þessa mynd
tók einn Flugbjörgunarsveitar-
mannanna af félögum sinum á
leiðinni frá Hveravöllum að Hvit-
árnesi. Eins og sjá má var mikið
hriðarkóf þá stundina og raunar
talsverður strekkingur líka, en
þeir félagar eru allir þaulvanir
fjallamenn og létu slíkt ekki á sig
fá.
Ljósm. Hjalti Sigurðsson.
Rithöfundar vilja láta endur-
meta störf úthlutunarnefndar
HHJ-Rvik. Sem kunnugt er hafa
miklar deilur og blaðaskrif
spunnizt utaf úthlutun viðbótarrit
launa og vinnubrögð úthlutunar-
nefndar verið átalin af mörgum
rithöfundum. Nú hafa aiimargir
rithöfundar skorað á Aiþingi og
menntamálaráðherra að láta
endurmeta störf nefndarinnar og
var skjal þess efnis afhent Alþingi
i gær.
Rithöfundarnir, sem undirrita
skjalið, eru Tómas Guðmunds-
son, Kristinn Reyr, Jón Björns-
son, Sveinn Sæmundsson, Þór-
halíur Guttormsson, Hilda
Hinriks vegna Ingólfs Kristjáns-
sonar, Magnús Jóhannsson,
Jóhannes Helgi f.h. Sverris
Kristjánsson, Halldór Laxness,
sem mótmælir fyrir þá sök, aö
nefndin hafi i sjónvarpi lýst þvi
yfir, að umsókn hans hafi verið
hunzuð vegna þess að hún var
undirrituð af lögfræðilegum
umboðsmanni hans, Jóhannes
Helgi, Snjólaug Bragadóttir,
Andrés Kristjánsson, FHippía
Kristjánsdóttir, Hilmar Jónsson,
Kristinn Reyr f.h. Eirlks Sig-
urðssonar og Ragnar Þorsteins-
son.
Áskorun rithöfundanna er
svohljóðandi:
„Við undirritaðir höfundar sem
höfum gefið út verk á árunum
1970, 1971 1972 og 1973 teljum
vinnubrögð úthlutunarnefndar
viðbótarritlauna allsendis
óviðunandi og skorum eindregið á
alþingi og sér í lagi menntamála-
ráðherra, að það og ráðherra
hlutist til um að fram verði látið
fara sem allra fyrst endurmat á
störfum nefndarinnar árin 1973 og
1974.
Það er samróma álit okkar að
framkvæmdin á úthlutun
viðbótarritlauna nefnd ár hafi
orðið með öðrum hætti heldur en
löggjafinn ætlaðist til með fjár-
veitingunni.
Samkvæmt framansögðu telj-
um viö að hlutur okkar hafi verið
ósæmilega fyrir borð borinn og
setjum traust okkar á réttsýni
löggjafarvaldsins og væntum þar
með afdrá11 a r 1 ausrar
leiðréttingar mála okkar.”
o
IC'tAý. a<s
Toma8 '
U^TvvWO'
ÍTminHa a OH
1 ót-nli 6
yfir i s.'cnv&.-p
hún hafi verí"
umboö nmartni
Hallaor Laxnes
/"'Vbrhallur Guttormsson
Andrea Kry&tdanss'
'ilippía KristjáÆdóttir
líílaa Hinrika vegna
Ingolfs Kriatjanssonar
(lrn*r]tn 7Ttn
Hilmar /onsson
Kristinn Reyr f. h. Eiriks Sigurðssona
samkv. meöf. umboöi*.,. _ >.
Sýningu á list
íslenzkra
kvenna
lýkur í kvöld
Fádæmagóð aösókn betur ver-
ið að sýningu á list islenzkra
kvenna i Norræna húsinu og
hafa nokkur verkanna selzt.
T.d. keypti Listasafn tslands
verk Margrétar Jóelsdóttur
„Dúett”. A sýningunni eru 67
verk eftir 44 listakonur, og er
u.þ.b. helmingur verkanna til
sölu.
Sýning þessi er sett upp i til-
efni hins alþjóðlega Kvenna-
árs Sameinuöu þjóðanna, og
er hvorki ætlað að vera sögu-
leg yfirlitssýning né einskorð-
ast við verk þeirra islenzkra
listakvenna, sem lengst hafa
náð álistabrautinni.
Þessi sýning átti að vera
uppörvun og hvatning starf-
andi listakonum, bæði þeim,
sem eru búnar að hasla sér
völl, og eins hinum, sem nú
eru að hefja listferil sinn.
Þetta viröast hins vegar gagn-
rýnendur ekki hafa skilið, ef
dæma má af skrifum þeirra.
Sýningunni lýkur kl. 22 i
kvöld.
Ha^iuo Joh^riBson
'=~rfcj??Cc f.'g'&vít&is \fftSrjfWS3k.
Jóhannes Helgi f. h. Sverris Kristjánssonar samkv^mt meöf. umboöi
Undirskriftir rithöfundanna á skjalinu, sem afhent var Alþingi I
gær.
Happdrætti
Hdskóla
Islands:
AAilljón til
Neskaupstaðar
Afstaða Björns
Jónssonarfyrr
og nú
í Þjóðviljanum á
sunnudaginn er ráðizt með
miklu offorsi á Björn Jónsson,
forseta Alþýðusambands ts-
lands, fyrir þá yfirlýsingu, að
hann teldi það vafasaman
hagnað, þó að verkalýðs-
hreyfingin fengi kjara-
skerðingu frá siðustu
samningum bætta I einu lagi. 1
viðtali við Mbl. fyrir
skemmstu sagði Björn Jóns-
son orðrétt:
„Við teijum
þessa kröfu
ekki vera
raunhæfa og
myndi vera
vafasamur
hagnaður að
þvi, jafnvel
þótt við ættum
kost á þvi.
Slikt myndi hafa vafasöm
áhrif á allt efnahagskerfiö og
myndum við hugsa okkur
tvisvar um, þótt svo óliklega
vildi til, að okkur yrði boðinn
allur pakkinn.”
Sú afstaða Björns Jónssonar
að stefna beri að þvi að kjara-
skerðingin verði bætt I áföng-
um, er skynsamleg og raun-
sæ, þó að það sé hins vegar
rétt, sem Þjóðviljinn bendir á,
að Björn hafi ekki sýnt
hliðstætt raunsæi I tlð vinstri
stjórnarinnar. Um þaö eru
flestir sammála nú, að þá hafi
verið gengið of langt I kjara-
samningum og rekja megi
hluta þeirra efnahagsörðug-
leika, sem nú er við að etja, til
þeirra.
Takmörkuð geta
atvinnufy rir-
tækjanna
En þótt forseti Alþýöusam-
bands islands hafi haft aðra
afstöðu áður, ber að virða það,
að forystumenn Alþýöusam-
bandsins skuli gera sér grein
fyrir þvl, að ekki eru forsend-
ur til þess nú að bæta kjara-
skerðingu launafólks I einu
lagi. Slikt gerðist ekki öðru
vlsi en á kostnað atvinnufyrir-
tækjanna, og miðað við stöðu
þeirra I dag, yrði fyrst um
alvarlega hættu á atvinnu-
leysi að ræða, ef greiöslugetu
fyrirtækjanna yrði misboðið
svo, aö þau treystu sér ekki til
að greiða umsamið kaup.
Þjóðviljinn með
atvinnuleysi
Stefna núverandi rikis-
stjórnar er sú að koma I veg
fyrir atvinnuleysi, þvl aö um
það eru menn sammála, að
fyrsta og síðasta boðorðið er,
að full atvinna haldist, þótt um
timabundna kjaraskerðingu
sé að ræða. Það er þess vegna
ekki með velferð launþega I
huga, þegar Þjóðviijinn krefst
fullra kjarabóta vitandi það,
að staða atvinnufyrirtækjanna
býður ekki upp á slikt, og það
muni einungis leiða til
uppsagna og atvinnuleysis
meðal fjölda fólks. Skrif
Þjóðviljans eru þvl gegn betri
vitund.
Á það ber einnig að llta, að
enn þá hefur Þjóðviljinn ekki
bent á eina einustu leið til að
bæta kjaraskeröinguna til
fuiis, án þess að atvinnufyrir-
tækin færi yfir um. Hvers virði
væri það að kaupið hækkaði
um 50%, ef engin væru fyrir-
tækin til að greiöa mönnum
sllkt kaup? -a-þ-
Mánudaginn 10. marz var
dregið I 3. flokki Happdrættis Há-
skóla tslands. Dregnir voru 8.775
vinningar að fjárhæð 78.750.00
krónur.
1.000.000 króna vinningurinn
kom á númer 7181. Var þetta
númer selt I þessum fjórum
umboðum: Aðalum boðinu,
Tjarnargötu 4, hjá Frlmanni
Frlmanssyni I Hafnarhúsinu og á
Neskaupstað.
500.000 krónur komu á númer
30770. Voru allir miðarnir af þvi
númeri seldir hjá Frimanni
Frímannssyni i Hafnarhúsinu.
200.000 krónur komu á númer
7211. Voru allir miðarnir af þessu
númeri seldir hjá Frimanni
Frímannssyni i Hafnarhúsinu.
50.000 krónur:
6-7% hækkun á
landbúnaðarvörum
— Mjólk hækkar ekki vegna aukinna
niðurgreiðslna
SJ—Reykjavik. Framleiðsluráð
landbúnaðarins auglýsti á sunnu-
dagskvöld i rlkisútvarpinu nokkr-
ar breytingar á verðiagi land-
búnaðarvara, sem tóku gildi i
gær, mánudag. Ástæðan fyrir
breytingum þessum er fólgin I
verðhækkunum rekstrarvara I
verðgrundvelii, svo sem fóður-
bætis, sem hefur hækkað um 27%
siöan slðast var verölagt, hækk-
unum á benslni, oiium, rafmagni
o.fl. Hækkunaráhrif þessara
rekstrarvara á verðlagsgrund-
völlinn er 5.62%. Verð á nýmjólk
breytist ekki vegna aukinna
niðurgreiöslna úr rikissjóði. Yfir
leitt er smásöluverðhækkunin
milli sex og sjö prósent og þar
með cr einnig talin sölu-
skattshækkunin á kjöti. Þetta er
hámarkshækkun, sem rikis-
stjórnin hefur ákveðið að fara
ekki fram úr og þess vegna hefur
hún aukið niðurgreiðsiurnar.
Sölulaun til smásöluverzlana á
kjöti hækka um 2 1/2% að krónu-
tölu, en lækka i raun miöað við
prósentuálagningu.
Eins og áður segir hækka niður-
greiðslur rikissjóðs i nokkrum
tilvikum. Helztu hækkanir niður-
greiðslnanna eru þessar: Niður-
greiðsla á mjólk hefur verið aukin
um 2 kr. og 78 aura á litra, á
smjöri 15 kr. pr. kiló, á 1. verðfl.
kindakjöts 2.70 kr. og öðrum
flokkum kindakjöts sambærilega.
Hér eru sýnishorn af veröhækk-
unum nokkurra vara i smásölu:
Verðáður Verðnú Hækkun i kr. Hækkun i%
3994 — 7180 — 7182 — 7748 — 8224 Súpukjöt, frampartar 301 kr. pr. kg. og siður 322 21 kr. 6.97%
-8507- -11346 — 11827 — 12196 — Læri 341 - - - 363 22 kr. 6.45%
13849 — 14446 — 15884 — 31853— Hryggir 351- - - 373 22 kr. 6.27%
36227 — 39832 — 40496 — 40564 — Rjómi i 1/4 1 hyrum 77 kr - - 82 5 kr. 6.4%
46657 — 48442 — 56737 — 59051 — Smjör 463 - - - 491 28 kr. 6.05%
59055. Ostur 45% 445 - - - 470 25 kr. 5.62%
HVAÐ GAMALL
TEMUR UNGUR
J SAMVINNUÐANKINN
ISI
Alan og Júlía á förum til írans
Alan Carter og Julia Claire,
sem stjórnað hafa og kennt
listdans i Þjóðleikhúsinu, eru
á förum héðan eftir tveggja
ára dvöl. Brottfarardagur er
ákveðinn 25. marz, og 'leggja
þau nú leið slna til Teheran,
þar sem þau taka við starfi i
þágu iranskra listdansara.
1 bréfi sem þau Alan Carter
og Júlia hafa skrifað Sveini
Einarssyni Þjóðleikhússtjóra
og starfsfólki Þjóöleikhúss-
ins, segjast þau fara héðan i
glaðri fullvissu þess, aö hafa
komið hér nokkru til leiðar.
Láta þau 1 ljósi þá von sina, að
þaö sem þau hafa gert, verði
upphaf annars meira, og vitna
til þess, að mjór visir hafi ver-
iö upphaf hins konunglega
balletts i Englandi fyrir fjöru-
tiu árum.
Enn fremur segir I bréfinu,
að listdans sé listgrein, þar
sem Islenzkir hæfileikar geti
notið sin, og láta þau Alan og
Júlia I ljós þá von, aö þeim
veitist síöar tækifæri til þess
að æfa og setja hér á svið fleiri
verk.