Tíminn - 11.03.1975, Side 11
Þriöjudagur 11. marz. 1975.
TÍMINN
Iðjuþjálfarnir, sem veitt hafa sjúkiingum hinna ýmsu deilda Borgarspítalans tilsögn. (Tlmamyndir
Gunnar)
Munir eftir sjúklinga
sýndir d Borgar-
spítalanum
FB-Reykjavík. Starfsmannaráð
Borgarspitalans hefur tekið upp
þá nýbreytni i starfsemi
spitalans, aö efna til sýninga i
húsakynnum hans. Fyrir
ikömmu var þar haldin mál-
verka- og höggmyndasýning og á
fimmtudaginn var svo opnuð
önnur sýningin á spitalanum,
sýning á munum, sem sjúklingar
á hinum ýmsu deildum spítalans
hafa unnið.
Munir þeir, sem sýndir eru að
þessu sinni eru unnir undir hand-
leiöslu iðjuþjálfa stofnunarinnar,
en iðjuþjálfunin er þáttur i
lækningu þeirri, sem stofnunin
leitast við að veita.
t ávarpi, sem yfirlæknir
geödeildar Borgarspitalans, Karl
Strand, hélt við opnun
sýningarinnar sagði hann m.a. að
þegar hann fyrir allmörgum ár-
um kom inn á geðdeildir sjúkra-
húsa hefðu sjúklingarnir legiö
með sængurnar breiddar uppyfir
höfuð. Slikt væri ekki raunin i
dag. Mjög fáir sjúklingar þyrftu
vegna veikinda sinna að vera
rúmliggjandi á þessum deildum.
Fólkið getur sýslað við ýmislegt,
og iðjuþjálfunin er liður I
Sýningarmununum er komiö fyrir I stigum og á göngum spltalans.
lækningunni. Henni er ætlað að
gera óvirka persónu virka á ný,
eins og læknirinn komst að orði.
Iöjuþjálfun er litt þekkt grein
hér á landi og örfáir, sem hafa
sérmenntun i þeirri grein. Þörf
sjúkrahúsa og ýmissa annarra
stofnana fyrir iðjuþjálfa er mjög
brýn, en litið hefur verið gert hér
á landi til þess að kynna þessa
starfsgrein og þýðingu hennar.
Iðjuþjálfun má skýra á þann hátt,
að hún sé starfsgrein, þar sem
sérmenntað fólk (iðjuþjálfar)
þjálfa hreyfingargetu og starfs-
hæfni sjúlinga á margvislegan
hátt, og tekur hún einnig þátt I
endurhæfingu þeirra ásamt
öðrum starfshópum, svo sem
læknum, hjúkrunarkonum,
sjúkraþjálfurum, talþjálfurum,
félagsráðgjöfum, o. fl.
Þær deildir, sem taka þátt i
sýningunni eru Geðdeild Borgar-
spitalans I Fossvogi, á Arnar-
holti, og á Hvitabandinu og
Endurhæfingar- og hjúkrunar-
deild á Heilsuverndarstöð.
A Geðdeild Borgarspitalans I
Fossvogi er 31 sjúklingur. Þar
kenna Guðrún Bjarnadóttir og
Ragnheiður Thorarensen.
Munum sjúklinga hefur verið
komið fyrir i anddyri spitalans.
Hvitabandið hefur rúm fyrir 31
sjúkling, sem áður hafa verð á
Geðdeild Borgarspitalans i Foss-
vogi. Þar kennir Grethe Bendtsen
og sýnir hún 55 muni eftir
sjúklinga á aldrinum 16-80 ára i
skálum á 6. og 7. hæð.
A deildinni i Arnarholti eru 60
sjúklingar sem eru andlega og
likamlega fatlaðir langdvalar-
sjúklingar af báðum kynjum. A
iðjuþjálfunarstofu vinna að
jafnaði um 40 sjúklingar einhvern
hluta dags. önnur störf i þágu
heimilisins — en þau má einnig
telja þátt i iðjuþjálfun — stunda
um 30 sjúklingar, en segja má, að
langflestir sjúklingar
deildarinnar taki að meira eða
minna leyti þátt i gerð þeirra
muna, sem fara siðan á árlega
sölusýningu deildarinnar. Aðeins
fimm sjúklingar eru óvirkir.
Iðjuþjálfun á Arnarholti er
stjórnað af Huldu Þorgrimsdóttur
og með henni starfa Guðriöur
Þorvaldsdóttir og Sigrún Lára
Shanká. Sölusýning Arnarholts á
þessu ári, verður sunnudaginn 6.
april I Fólkvangi á Kjalarnesi.
Andvirði sölu gengur aftur til
efniskaupa og sjúklingar
deildarinnar fá nokkra greiðslu
fyrir þá vinnu, sem þeir inna af
hendi i þágu deildarinnar og I
iðjuþjálfun. Munir Arnarholts
eru sýndir á 3., 4. og 5. hæö
spftalans.
A Endurhæfingar- og
hjúkrunardeild á Heilsúverndar-
stöð eru 35 sjúklingar, lang-
dvalarsjúklingar, fatlaðir eftir
sjúkdóma og slys. Flestir hafa
mjög skerta hreyfigetu og aðeins
II
iVlargskonar munir eru á sýningunni, hér má t.d. sjá vatnslitamynd eft-
ir einn sjúklinginn, auk annarra handunna muna.
aðra hönd virka. Kennari á á stigavegg á 5. hæð.
deildinni er Hallfriður E. Péturs- Sýningin mun standa fram að
dóttir. Munir sjúklinga eru sýndir mánaðamótum.
Amerísk
HRÍSGRJÓN
(Rpiana)
RIVER hrisgrjón þekkir húsmóöirin og veit hve hagkvæm
þau eru, sérstaklega i grauta. RIVIANA býöur nú einnig:
AUNT CAROLINE hrísgrjón, sem eru vítamínrik, drjúg, laus
í sér, einnig eftir suðu og sérstaklega falleg á boröi.
SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoðin i poka, tilbúin
i pottinn. RIVER brún hýðishrisgrjón holl og góð.
$ KAUPFÉLAGID