Tíminn - 16.03.1975, Side 1
ÆNGlRr
Áætlunarstaöir:
BlÓnduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
ailt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
&
íslenzkir rithöfundar
___________ ■ 3_______
I DAG
Jökull Jakobsson
Hvað gera þau í tómstundum?
I DAG
Hrönn Hafliðadóttir
sjónvarpsþulur
Manstu gamla daga?
I DAG
Sigurður Sigurðsson
Árangur mislingabólu-
setninga kannaður hér
Reikna md með að í framtíðinni faili þær undir
skyldubólusetningu
FB-Reykjavík. — Undanfarin ár
hefur fólk getað fcngið bólusetn-
ingu gegn mislingum, þótt sú
bólusetning hafi ekki verið fram-
kvæmd i stórum stil. Nú stendur
hins vegar yfir kónnun á þvi,
hvernig bóluefnið hefur reynzt
þeim, sem það hafa fengið, og
hvort fólk hefur orðið veikt þrátt
fyrir bólusetninguna, ef það hcfur
komizt i snertingu við misling-
ana.
Margrét Guðnadóttir prófessor
stjórnar athugun þessari, og
sagði hún Timanum, að allt frá
þvi að byrjað hefði verið að bólu-
setja fólk hér á landi hefði verið
fylgzt með árangri bólusetn-
ingarinnar annað slagið með
blóðrannsóknum. Hefði þar aðal-
lega verið um að ræða fólk á
Norð-Austurlandi og á Austur-
landi.
Siðan hefði verið ákveðið nú
fyrir skömmu að ganga lengra i
þessari athugun, og hefðu verið
fengnar upplýsingar hjá Heilsu-
vemdarstöðinni i Reykjavik um
böm, sem hafa verið bólusett
gegn mislingunum, og þá á tima-
bilinu frá 1965 og fram til 1969 og
jafnvel 1970. Hefur foreldrum
þessara barna verið skrifað, og
þeir beðnir um að gefa upplýsing-
ar um það, hvort barnið hafi
veikzt eftir bólusetninguna, hvort
það hafi siðar komizt i snertingu
við mislinga, og þá oftar en einu
sinni, og hvort það hafi i þvi til-
felli fengið hita eða nokkuð borið
á lasleika. Svör eru þegar farin að
berast aftur, og mjög greiðlega,
og munu vera komin á sjötta
hundrað svör.
Barnahóparnir, sem bólusettir
voru t.d. 1965og 1966hafa komizt i
kynni við mislinga kannski oftar
en einu sinni, og er þvi miklar
upplýsingar hægt að fá um nota-
gildi bóluefnisins.
Margrét Guðnadóttir sagðist
ekki geta sagt um það, hversu
margir hefðu þegar verið bólu-
settir gegn mislingum hérlendis.
Upphaflega i kringum 1962—63,
hefðu komið til landsins 1000
skammtar til Rannsóknarstofn-
unar á Keldum. Næstu tvö til þrjú
árin lá svo bólusetningin niðri að
mestu leyti, vegna þess hversu
erfitt var að fá bóluefni, en upp úr
þvi fór það að ganga greiðlegar,
eftir að það komst á almennan
markað i Bandarfkjunum. Mun
nú vera búið að bólusetja hér að
minnsta kosti nokkur þúsund
manns.
Þá sagði Margrét, að rætt hefði
verið um að koma hér upp
skyldubólusetningu gegn misling-
um, en það hefði ekki verið end-
anlega ákveðið ennþá, og hefði
verið talið mjög æskilegt, að
framkvæma athugun á árangri
þeirra bólusetninga, sem þegar
hefðu verið framkvæmdar áður
en skyldubólusetningin vrði tekin
upp.
Bóluefnið gegn mislingum kom
fyrst verulega fram i' kring um
1958. 1 upphafi var bóluefnið
sterkara en það er nú og bar þá
við, að fólk fékk hita og jafnvel
útbrot eftir bólusetninguna.
Margrét sagði að lokum, að
mjög sjaldgæft væri erlendis á
þéttbýlum svæðum, að til væri
fólk á fullorðinsaldri, sem ekki
hefði fengið mislinga. Þar fengju
flestir þá innan við skólaaldur.
Hér er þetta hins vegar alls ekki
óalgengt.
HEFJAST FRAMKVÆMDIR VIÐ
BORCARLEIKHÚSID í VOR?
Teikningar nær fullgerðar
BH-Reykjavik. — Forráðamenn
Leikfélags Reykjavíkur hafa tjáð
blaðinu, að vonir standi til, að
byrjaðverðiá framkvæmdum við
bvggingu borgarleikhúss i sumar,
en eins og kunnugt er hefur þvi
verið valinn staður i miðbænum
nýja, scm ætlunin er að reisa við
FB—Reykjavik. Astæða er til
hóflegrar bjartsýni varðandi far-
þegaflugið i sumar, sagði Sigurð-
ur Helgason forstjóri hjá Flug-
leiðum á blaðamannafundi, þrátt
fyrir það að bókanir, sem liggja
fyrir verði ætið að taka með
nokkrum fyrirvara. Þótt það sé
gert má segja, að bókanir miðað
við sama tima i fyrra séu 10%
meiri nú.
Sigurður sagði, að alltaf væri
mikið um það, að stórar ferða-
Kringluinýrarbraut. Leikfélagið
á nú um 30 milljónir i byggingar-
sjóði, og þvf ekki ncma eðlilegt,
að kominn sé byggingarhugur i
Leikfélagsmenn, og væntanlega
stendur ckki á framlagi borgar-
innar til þessa menningarmáls,
sem varðar borgarbúa alla.
skrifstofur og ferðahópar pöntuðu
flugfar, en sfðan yrðu einhver af-
föll af þessum pöntunum. Þess
vegna gerðu Flugleiðir alla sinar
áætlanir með mikilli varfærni.
Að þvi er okkur var tjáð, munu
teikningar leikhússins senn verða
fullgerðar, en að þeim vinna nú
þeir arkitektarnir Guðmundur
Kr. Guðmundsson, Ólafur
Sigurðsson og Þorsteinn Gunn-
arsson, sem jafnframt er i röð
fremstu leikara Leikfélagsins.
Mun það einsdæmi, að einn úr
röðum leikara vinni á þennan hátt
að byggingu leikhúss, og ekki vit-
að um annan slikan i leiklistar-
sögunni.
Þá var okkur tjáð sömuleiðis,
að ætlunin sé að hafa tvö svið i
nýja leikhúsinu, og á stærri salur-
inn að rúma um 500 manns, en sá
minni um 150 manns.
r
Utvarpsgjöld innheimt
með sköttunum?
Flugleiðir hf.:
Bókanir 10% meiri nú en í fyrra
TÍAAINN Aðalstræti 7, Reykjavík
Jd, ég vil gerast dskrifandi að TIMANUM
Nafn .................................
Heimilisfang ...........................
--- Klippið og sendið ---- --- ---- --- ----
SJ-Reykjavik. — Menn frá Hag-
sýslustofnun og Rikisútvarpinu
hafa undanfarið iinnið að atbugun
á möguleikum á að auka liag-
kvæmni i innheimtu afnotagjalda
útvarps og sjónvarps. Rikisút-
varpið rekur umfangsmikið inn-
lieimtukerfi og skráningu við-
tækja.
Að sögn Vilhjálms Hjálmars-
sonar menntamálraðherra eru
ekki komin heildarskil úr könnun
þessari og vildi hann þvi litið um
málið segja að svo komnu. Eitt
atriði er sérstaklega i athugun.
nefnilega að afnotagjöldin yrðu
með einhverjum hætti innhéimt
með öðrum opinberum gjöldum.
Annars vegar kæmi til greina, að
afnotagjöldin vrðu nefskattur á
alla borgara á ákveðnum aldri.
eða þau yrðu lög á hvert heimili.
Hins vegar gætu þau fallið inn i
almenna skatta til rikisins. Held-
ur kvaðst menntamáiaráðherra
þó gera ráð fyrir að þau héldu
nafni sínu á gjaldheimtuseðlin-
um, ef úr yrði.
Tugir milljóna króna koma til
með að sparast. ef skráning við-
tækja verður lögð niður sem og
innheimtukerfi rikisútvarpsins.
Nefndin sem vinnur að athugun
þessara mála lvkur störfum al-
veg á næstunni.