Tíminn - 16.03.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 16. marz 1975.
Sunnudagur 16. marz 1975
V.
V'atnsberinn: (20. jaa-18. febr)
Þaö eru smáatriöin, sem skipta öllu máli i dag.
Þú skalt huga vel aö þeim og igrunda þau, þvi aö
þau hafa meira aö segja upp á framtiöina en þig
órar fyrir þessa stundina.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Þetta verður annasamur dagur hjá þér i dag. Og
nú skaltu gæta þess vandlega, aö þaö er nauö-
synlegt aö kunna góö skil á smáatriöum og aöal-
atriöum og greina þar á milli.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Þaö þýöir ekkert aö vera meö þessa hlédrægni
og minnimáttarkennd si og æ. Þú eyðileggur
bara fyrir þér meö svona hugsunarhætti og
framkomu. Hertu upp hugann og hristu af þér
sleniö.
Nautið: (20. april-20. mai) ,
Ef þú vanrækir þær kröfur, sem heimiiið gerir
til þín, hefur þaö i för meö sér alls konar óþæg-
indi fyrir þig siöar meir. Viöskipti eru hagstæð I
dag, og kvöldiö getur orðiö skemmtilegt.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þú hagnast á þvi aö gera gangskör aö þvi aö
eyöa alls konar þvættingi og slúöri, sem er á
kreiki I kunningjahópnum, enda þótt þaö snerti
ef til vill ekki sjálfan þig beinlinis.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það litur út fyrir, að nýtt tiltæki eöa eitthvaö I þá
áttina breyti vinnu þinni þér mjög i hag, og þá
viröist mikið og ábyrgðarmikiö hlutverk vera á
næstu grösum.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
Þú skalt alveg búast viö þvi, aö til þin veröi
geröar miklar kröfur I dag, en það er lika jafn
vist, aö hagnaöur þinn veröur þar af leiöandi
góöur. Smáatriöin eru atriöi lika.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. septj
Þaö er eitthvaö, sem ekki vil ganga aö óskum
hjá þér i dag, en ef þú hins vegar heldur þig
innan þins fastmótaöa ramma, áttu ekki svo
ýkja mikiö á hættu. Gættu þin vel.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Reyndu aö hafa hemil á geövonzkunni I dag,
annars áttu á hættu, að þú verðir fyrir gagnrýni
frá umhverfi þinu. Annars litur út fyrir, aö eitt-
hvert uppgjör sé i nánd.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Láttu ekki fallast i þá freistni aö hverfa frá gerð-
um áætlunum. Gamall draumur, sem er þér
hjartfólginn, gæti rætzt. þótt hann verði ekki
alveg eins og þú haföir imyndaö þér.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
t dag skaltu foröast fólk, sem ekki er þvi
auöveldara aö umgangast. Þú skalt eyöa orku
þinni I annað en þaö aö láta þér leiðast I dag, en
þú ert hörundssárari en venjulega.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Það litur út fyrir, að gleöileg tiðindi séu á næstu
grösum. Hugrekki er þaö, sem þarf, og þú ættir
að sýna þaö að þú getir og aö þú þorir — I
ákveönu máli.
Hjúkrunarkonur
óskast nú þegar
að Sjúkrahúsinu á Selfossi — Upplýsingar
gefur yfirhjúkrunarkona i sima 99-1300.
Sjúkrahússtjórn.
Úthlutunarnefnd viðbótarritlauna:
REGLUR RÁÐUNEYTISINS SLÍKAR,
AÐ EKKI ER UNNT AÐ VEITA
HALLDORI LAXNESS VIÐBÓTARRITLAUN
1 tilefni af athugasemd Hall-
dórs Laxness, sem fylgir bréfi
sextán rithöfunda til Alþingis og
menntamálaráðherra, vill
Úthlutunarnefnd viðbótarrit-
launa taka fram eftirfarandi:
Það er misskilningur að nefndin
hafi lýst þvi yfir i sjónvarpi að
umsókn Halldórs „hefði verið
hundsuð vegna þess, að hún hefði
verið undirskrifuð af lögfræðileg-
um umboðsmanni hans,” eins og
segir i fréttatilkynningu höfund-
anna. Sami lögfræðilegur
umboðsmaður sendi nefndinni
upplýsingar um ritverk Halldórs
vegna viðbótarritlauna 1973, og
hlauthann þá úthlutun. Orö Bergs
Guðnasonar i sjónvarpsþættinum
Kastljós 7. febrúar lutu að þvi
einu aö aðrir aðilar en höfundar
sjálfir, t.d. útgefendur eöa lög-
fræðilegir umboösmenn, hefðu
mátt senda upplýsingar fyrir
þeirra hönd. Halldór Laxr.ess er
að sjálfsögðu allra rithöfunda
maklegastur hvers konar viður-
kenningar, en orsök þess að hann
hlaut ekki úthlutun að þessu sinni
voru þær reglur ráðuneytisins að
veitt skyldu viðbótarritlaun fyrir
verk, útgefin eða flutt árið 1973.
Það ár var gefin út aðeins ein rit-
gerð eftir Halldór i Skirni.
Þjóöhátiöarrolla hans kom ekki
út fyrr en 1974.
Reykjavik 14. marz 1975
Þorleifur llauksson,
RannveigG. Agústsdóttir,
Bergur Guönason.
FIMM SOVÉZKIR LISTAMENN
SKEMMTA ÁSAMT FÓSTBRÆÐRUM
Fimm kunnir listamenn frá
Sovétrlkjunum og Karlakórinn
Fóstbræður koma fram á af-
mælistónleikum og danssýningu,
sem félagiö MÍR efnir til i sam-
komusal Menntaskólans við
Hamrahlið sunnudaginn 16. marz
kl. 14.30.
Listamennirnir eru:
Vitali Gromadski bassasöngv-
ari frá Moskvu, einsöngvari við
Filharmóniuna i' Moskvu og verð-
launahafi ihinni alþjóðlegu Schu-
mann-samkeppni söngvara.
Boris Feoktistof, einleikari á
balalæka, heiðurslistamaður
Rússneska sovétlýðveldisins.
Svetlana Zvonaréva, pianóleik-
ari, konsertmeistari við Filharm-
óniuna i Moskvu.
Þjóðdansaparið Galína Sjein og
Vladimir Vibornof, eindansarar
hjá Moskonsert.
Listamennirnir eru i 7 manna
sendinefnd, sem hingað kemur á
vegum Sambands sovézkra
vináttufélaga og félagsins
Sovétrikin—Island i tilefni 25 ára
afmælis MtR, Menningartengsla
tslands og Ráðstjórnarrikjanna.
Meö þeim eru tveir af forystu-
mönnum félagsins Sovétrik-
in—tsland: Stúdenetski aðstoðar-
útvegsráðherra Sovétrikjanna,
Vitali Gromadski bassasöngvari
formaður félagsins, og A. Sorokin
einn af stjórnarmönnum þess. t
upphafi tónleikanna i MH á
sunnudag flytur Stúdenetski ráð-
herra ávarp. Einnig flytja ávörp
Vilhjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra og prófessor
Margrét Guðnadóttir vara-
formaður MIR.
Tónleikunum lýkur með þvi að
Karlakórinn Fóstbræður syngur
nokkur islenzk lög undir stjórn
Jóns Ásgeirssonar tónskálds.
Til stóð að hinn kunni norrænu-
fræðingur M. Stéblin-Kamenski
prófessor i Leningrad ætti og sæti
I sendinefndinni, en hann gat þvi
miður ekki komið að þessu sinni
og fellur þvi fyrirhugaðar
háskólafyrirlestur hans niður.
Samkoman i Menntaskólanum
við Hamrahllð á sunnudaginn
hefst kl. 14.30 og er öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Þjóödansapariö Galina Sjein og Vladimir Víbornof, eindansar:
hjá Moskonsert.
Lögtaksúrskurður
Samkvæmt beiðni oddvitans i Kjalarnes-
hreppi, úrskurðast hér með, að lögtak
geta farið fram vegna ógreiddra eða
gjaldfallinna útsvara, aðstöðugjalda,
fasteignagjalda, kirkjugjalda og kirkju-
garðsgjalda, álagðra i Kjalarneshreppi
árið 1974, allt ásamt dráttarvöxtum og
kostnaði.
Lögtökin geta farið fram að liðnum átta
dögum frá birtingu úrskurðar þessa ef
ekki verða gerð skil fyrir þann tima.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
4
SKIPAUTGCR0 RÍhflSINS
M/s Esja
fer frá Reykjavík
föstudaginn 21. þ.m.
vestur um land i hrinq-
ferð.
í Vörumóttaka
I mánudag, þriðjudag og
miðvikudag til Vest-
fjarðahafna, Norður-
fjarðar, Sigluf jarðar,
Ólafsf jarðar, Akur-
eyrar, Húsavíkur,
Þórshafnar, Bakka-
fjarðar, Vopnafjarðar
og Borgarfjarðar
eystra.