Tíminn - 16.03.1975, Side 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 16. marz 1975.
ÚTBOÐ
Tilboö óskast i 65 skólatöflur fyrir Fræösluskrifstofu
Reykjavikur.
tJtboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3.
Tilboöin verða opnuð á sama stað, þriöjudaginn 22. april
1975, kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
UTBOÐ
Tilboö óskast f smföi skólahúsgagna ásamt kennaraborö-
um og — stóium fyrir Fræösluskrifstofu Reykjavfkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3.
Tilboöin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 8. aprll
1975. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 2580Q - -
||| ÚTBOÐ Q|
Tilboð óskast I eftirfarandi efni fyrir Hitaveitu Reykjavlk-
ur:
1. Þensiuslöngur.
— Opnunardagur tilboöa 17. aprll 1975.
2. Suðurfittings.
— Opnunardagur tilboða 23. aprll 1975.
3. Lokar og gildrur.
— Opnunardagur tiiboöa 24. apríl 1975.
tltboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Srmi 25800
ÚTBOÐ
Tilboð óskast I eftirtaldar bifreiðar og vélar:
Nr. 1 Volvo árg. 1962 meö sorpkassa (Bjargkassi).
Nr. 2. Volvo árg. 1962 meö sorpkassa (Bjargkassi).
Nr. 3. Trader árg. 1964 meö 3ja manna húsi og pallhúsi.
Nr. 4. Trader árg. 1965 meö 3ja manna húsi og pallhúsi.
Nr. 5. Trader árg. 1966 meö 6 manna húsi og palllaus.
Nr. 6. Trader árg. 1964 meö 6 manna húsi og palilaus.
Nr. 7. Trader árg. 1964 meö 6 manna húsi og pallhúsi.
Nr. 8. Massey
Ferguson árg. 1966 meö ámoksturstækjum og
húsi.
Nr. 9 Dráttarvél
David Brown árg. 1968 meö ámoksturstækjum
og húsi.
Nr. 10. Dráttarvél
Massey Ferguson árg. 1961 meö húsi.
Nr. 11. Sláttuþyrla.
Nr. 12. Sláttuþyrla.
Tækin verða til sýnis I porti Vélamiðstöðvar Reykja-
vlkurborgar aö Skúlatúni 1 n.k. mánudag og þriðjudag.
Tilboðin verða opnuö á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
miövikudaginn 19. marz 1975, kl. 10 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Hagkaup I Kjörgarði
(Tímamyndir Gunnar).
Hagkaup opnar við Laugaveg
— velta fyrirtækisins nam 915 milljónum s.l. ór
FB—Reykjavlk. Verzlunin Hag-
kaup er nú að færa út kvíarnar, en
á fimmtudagsmorgun var opnuð
ný Hagkaupsverzlun, pg að þessu
sinni í Kjörgarði við Laugaveg.
Verzlunin er á 800 fermetra gólf-
fleti, og þar verður um 20 manna
starfsliö. í þessari verzlun verður
selt flest eöa allt það sama og i
Hagkaup í Skeifunni. Þarna verð-
ur auk þess sérstök verzlun, sem
mun sérhæfa sig i tízkufatnaði
ungs fólks.
Hagkaupsverzlunin I Kjörgarði
kemur I stað verzlunarinnar, sem
fyrirtækið hefur rekið mörg
undanfarin ár I Lækjargötu.
Verzlunarstjóri verður Sigrún Jó-
hannesdóttir, en framkvæmda-
stjóri er Magnús Ólafsson. Að-
stoðarmaður framkvæmdastjóra
er Gunnar Kjartansson. Skýröu
þau blaðamönnum frá þvl á fundi,
að I nýju búðinni við Laugaveg
yrði verzlað með alls konar mat-
vörur, gjgfavörur, búsáhöld, fatn-
að, skófatnað svo nokkuð sé nefnt.
Auk þess verður kaffiteria I
verzluninni, sem er bæði ætluð
viöskiptavinum, og þeim sem
vilja bregða sér I kaffi af göngu
um Laugaveginn.
Hagkaup hefur haft þar mark-
mið að selja matvörur 10% undir
hámarksálagningu. Til skamms
tlma fékk fólk þennan 10% afslátt
út á viðskiptakort, en nú hefur
verið horfið frá viðskiptakorta-
kerfinu, og I staðinn fá allir við-
skiptavinir verzlunarinnar vör-
urnar á sama verði.
Allt frá upphafi höfðu um 9000
manns fengið sér viðskiptakort
hjá Hagkaup gegn 1000 króna
greiöslu. Verða nú kortin greidd
út aftur á niu mánuðum, og hófst
endurgreiðslan um slðustu ára-
mót. Eru kortin greidd út eftir
númerum, 1000 kort á mánuði.
Velta Hagkaups nam 915 mill-
jónum á síðasta ári, og var þar
um aö ræða 80% aukningu frá ár-
inu á undan. A launaskrá hjá
Hagkaup munu vera um 200
manns, en auk verzlananna
tveggja I Reykjavik rekur fyrir-
tækið verzlun á Akureyri.
Hagkaup gefur út pöntunarlista
og starfrækir póstverzlun.
Pöntunarlistinn er sendur til um
15þúsund áskrifenda, og koma að
jafnaði út þrír listar á ári.
Notfærir fólk sér út um allt land
þessa póstverzlun mjög mikið,
sér I lagi Austfirðingar. Þess má
enn fremur geta, að Hagkaup
starfrækir saumastofu, þar sem
vinna mjög margar konur að
fatasaum alls konar.
Hagkaups-verzlunin i Skeifunni
er opin til klukkan 10 á föstudags-
kvöldum, en hins vegar verður
verzlunin I Kjörgarði ekki opin
lengur en til klukkan 7 á föstudög-
um. Ekki hefur endanlega verið
gengið frá þvi, hvernig búðin
verður opin á laugardögum, en
verzlunin I Lækjargötunni var op-
in frá 10 til 12. Verður Hagkaup að
hafa samráð við aðra verzlunar-
eigendur i Kjörgarði um opnun-
artlmann, þar sem ekki er hægt
að hafa aðeins eina búð I húsinu
opna, en aðrar lokaðar.
Sigrún Jóhannesdóttir verzlunar
stjóri, Stefán Gunnarsson yfir
smiður, Gunnar Kjartansson að
stoðarframkvæmdastjóri og
Magnús Ólafsson framkvæmda
stjóri.
Hin nýja verzlun i Kjörgarði er
máluð I rauðum og svörtum lit, og
hefur Björn Björnsson, leik-
myndasmiður teiknað innrétting-
ar, en Stefán Gunnarsson var
yfirsmiður við innréttingasmið-
77 æskulýðsfélög starfa í
Reykjavík
Æskulýðsráð Reykjavfkur ákvað
siðastliðið haust að gefa út bækl-
ing með handhægum upplýsing-
um um æskulýðsfélög og samtök i
Reykjavik. Skortur hefur verið á
slikum upplýsingum á einum stað
i handhægu formi, bæði fyrir þá,
sem óska að taka þátt I félags-
starfi og hina, sem að því starfa.
Bæklingur þessi er nú kominn
út. Ber hann nafnið „Æskulýðs-
starf”, undirtitill er „Félög og
stofnanir I Reykjavik — Lands- og
landshlutasamtök”. Þar er að
finna upplýsingar um nöfn félaga,
starfsstaði og forráðamenn.
Starfi félög I deildum eru sömu
upplýsingar um hverja deild.
Félög I Reykjavik eru flokkuð i
eftirfarandi hópa:
Bindindisfélög. Iþróttafélög.
Kristilegt æskulýðsstarf. Skáta-
félög. Ýmis félög. Æskulýðsfélög
stjórnmálaflokka.
Alls eru félög þessi 77 talsins.
Þá eru I bæklingnum upp-
lýsingar um þær borgarstofnanir
og nefndir, er sinna félagsmálum
æskunnar að einhverju leyti.
Skráðir eru allir almennir skólar
borgarinnar og getið skólastjóra
og forstöðumanna félagsstarfs.
Landsamtök og landshlutasam-
HEIMILIS-
rafstöðvar
Höfum til afgreiðslu strax
úr vörugeymslu
6 kw eins og þriggja fasa
rafstöðvar
12,5 kw og 72 kw
sjálfvirkar rafstöðvar væntanlegar
með vorinu
GÓÐIR
GREIÐSLU-
SKILAAÁLAR
%la»alani
Garðastræti 6
Símar 1-54-01 & 1-63-41
tök æskulýðs- og iþróttafélaga eru
einnig skráð I bæklinginn, 43 að
tölu. Loks er getið þeirra æsku-
lýfcsráða og félagsmálastofnana
sveitarfélaga, er um var vitað, og
birtur listi yfir fjölmiðla. Bækl-
ingurinn er 32 slður i handhægu
vasabókarbroti.
Tilgangur Æskulýðsráðs
Reykjavikur með útgáfu þessari
er að bæta úr þeirri þörf, er verið
hefur á slikum upplýsingum á
einum stað, og stuðla þar með að
þvi, að ungt fólk, sem áhuga hefur
á félagslegu starfi, en veit ekki
hvar það á að afla sér upplýsinga
um slikt, geti haft samband við
forsvarsmenn samtaka eða
félaga með þátttöku i félagsstarfi
i huga. Kannanir, sem gerðar
hafa verið á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavikur, hafa leitt mjög
greinilega i ljós, að mikill fjöldi
ófélagsbundinna unglinga óskar
eftir þátttöku i félagsstarfi, en
veit ekki hvernig á að bera sig við
að komast I slikt starf.
Bæklingnum „Æskulýðsstarf”
verður dreift til allra 12, 13, 14 og
15 ára nemenda I skólum borgar-
innar.
Aætlað er að slikt rit komi út
árlega, en upplýsingar af þessu
tagi verða vitanlega mjög fljótt
úreltar. Undirbúningur er reynd-
ar hafinn að endurskoðun þessa
bæklings, og eru félög hvött til
þess að koma athugasemdunum
og upplýsingum á framfæri við
skrifstofu Æskulýðsráðs
Reykjavíkur.