Tíminn - 16.03.1975, Qupperneq 37
Sumiudagur 1(>. 'niarz 1!)75.
TÍMINN
•37
Kunnir erlendir einsöngvarar
syngja í AAessíasi
Einsöngvararnir, sem koma
fram meö Pólyfónkórnum og
kammershljómsveit undir stjórn
Ingólfs Guðbrandssonar vegna
fiutnings óratórfunnar „Messfas”
eftir G.F. Handel, eru ekki valdii
af lakari endanum. Þrjú þeirra
koma frá Bretlandi einungis til að
taka þátt I þessum flutningi og
njóta þau öll mikils áiits og
viðurkenningar i heimalandi sfnu
og vlðs vegar á meginiandi
Evrópu, þar sem þau hafa hlotið
lofsamlega dóma. Fjórði ein-
söngvarinn er einnig brezkur að
uppruna, hin góðkunna söngkona,
Ruth L. Magnússon, sem
tónleikagestum hér er að góðu
kunn fyrir þátttöku sina i
fiutningi fjölda meiri háttar
tónverka hér á seinni árum,
meðal annars með Pýlýfónkórn-
um, og mun óþarfi að kynna hana
hér nánar.
Sópranaríurnar i „Messiasi”
eru meðal hins fegursta, sem
samið hefur verið fyrir sópran-
rödd, t.d. hin þekkta aría ,,I know
that my redeemerliveth • Það er
söngkonan Janet Price, sem fer
með þetta hlutverk. Hún er ættuð
frá Wales og er nú talin ein af
fremstu konsertsöngkonum
heimsins.Hún hefur komið fram á
fremstu listahátíðum viðs vegar i
Evrópu og tekið þátt i meira en
hundrað útvarps- og sjónvarps-
útsendingum. Einnig hefur hún
sungið inn á hljómplötur fyrir
brezk og amerisk hljómpiötufyrir
tæki. Fjölhæfni hennar þykir með
eindæmum, svo að hún hefur fullt
vald yfir hinum ólikustu
viðfangsefnum og stiltegundum,
og frábær tækni hennar i
Vilja sameigin-
legar viðræður
við stjórnarand-
stöðuflokkanna
kóloratúrsöng hefur aflað henni
frægðar jafnt i óratóriu- og óperu-
söng.
Með tenórhlutverkið i
„Messíasi” fer Neil Mackie,
ungur söngvari, sem lokið hefur
námi frá skozku tónlistar-
akademiunni og einnig frá Royal
College of Music i London. Nú
sfðustu árin hefur hann notið
leiðsagnar hins fræga söngvara,
Peter Pears, og oft komið fram á
hljómleikum ásamt honum. Hann
stundaði upphaflega nám i
pfanóleik, en sneri sér siðan að
söngnámi. Hann er einnig
þekktur lútuléikari og hefur aflað
sér álits með túlkun sinni á
söngvum frá renaissancetima-
bilinu. En hann er mjög fjölhæfur
söngvari og hefur hlotið lof
þekktra gagnrýnenda fyrir
flutning sinn á ólíkustu viðfangs-
efnum. Hann hefur einnig sungið
inn á hljómplötur fyrir brezk og
erlend hljómplötufyrirtæki, m.a. i
„Messlasi” og „Jóhannesar-
passiunni”, einnig hefur hann oft
komið fram i útvarpi.B.B.C. Neil
Mackie hefur komið fram sem
einsöngvari með mörgum kórum
I Bretlandi og kemur nú beint frá
Edinborg frá þvi að syngja aðal-
hlutverkið i „Mattheusarpassiu”
J. S. Bachs.
Bassaariurnar i „Messlasi” eru
einhverjar þær vandsungnustu
sem til eru. Baritonsöngvarinn
Glynn Davenport er aðeins 27 ára
að aldri, en gagnrýnendur hafa
komizt svo að orði, að hann hafi
nú þegar náð þeirri fágun i
túlkun, sem minnir á jafn frá-
bæra baritonsöngvara, sem
Fischer-Dieskau. Arið 1970 hlaut
hann þýzkan rikisstyrk til náms
hjá Jakob Stömpfli i Hamborg, og
1972 vann hann hin eftirsóttu
Kathleen Ferrier verðlaun.sem
eru einhver mesta viðurkenning,
er ungum söngvara getur
hlotnast. Hann lauk prófi frá
Royal College of Music í London,
þar sem hann lagði einnig stund á
lágfiðluleik. Hann nýtur enn
leiðsagnar Paul Hamburger i
söng, en hefur komið fram á
fjölmörgum hljómleikum með
þekktum hljómsveitum á sl. ári,
m.a. með The English Chamber
Orchestra undir stjórn Raymond
Leppard. 1 næsta mánuði syngur
hann i Florida i Bandarikjunum
og i júni nk. syngur hann i hinu
þekkta verki Brittens, „Dauði i
Feneyjum” i Covent Garden.
Janet Price
Glynn Davenport
Ruth L. Magnússon.
Neil Mackie
® SHODR 110 LS
5-MANNA, FJÖGURRA DYRA. VÉL 62 HESTÖFL.
BENSÍNEYÐSLA 8.5 LÍTRAR Á 100 KM.
FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GÍRKASSI.
GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 18.5 SEK. í 100 KM. Á KLST
619.000,00
449.000,00
VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR
VERÐ TIL ÖRYRKJA KR
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBODID A 1SLANDIH/E
AUÐBREKKU 44-46 — SÍMI 42600
Timanum barst í gær eftirfar-
andi fréttatilkynning:
Eftirfarandi bréf var I dag sent
þingflokkum Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags:
„Á fundi þingflokks S.F.V.
þann 5. mars s.l. var gerð eftir-
farandi samþykkt.
Stefna núverandi rikisstjórnar i
efnahags- og launamálum hefur
orðið þess valdandi, að stórkost-
leg kjaraskerðing hjá öllu launa-
fólki er staðreynd.
Kjaraskerðing þessi er svo
alvarlegs eðlis að verði ekkert að
gert þá blasir við gjaidþrot f jölda
heimila á næstunni. Verkalýðs-
hreyfingin freistar þess nú að fá
leiðréttingu mála sinna umbjóð-
enda og þá fyrst og fremst þeirra
lægst launuðu, sem verst eru sett-
ir.
Þar sem fulltrúar allra verka-
lýðsflokkanna á Alþingi, and-
stöðuflokka núverandi rikis-
stjórnar, hafa lýst stuðningi við
þetta meginsjónarmið verkalýðs-
hreyfingarinnar, samþykkir
þingflokkur S.F.V. að óska eftir
þvi við þingflokka stjórnarand-
stöðunnar, að þeir tilnefni hver
um sig fulltrúa til sameiginlegra
viðræðna um hugsanlegar leiðir
til stuðnings verkalýðshreyfing-
unni I þeirri baráttu, sem hún á
nú fyrir höndum.
Virðingarfyllst,
f.h. þingflokks S.F.V.,
Karvel Pálmason
formaður.”
Fyrstir á
morgnana
Sj
Electrolux
ELDAVÉLAR
CF 266. 60 cm breið.
4 hellur. Ofn 45 Itr. að ofan,
hifageymsla að neðan.
Kaupa má sérstaklega:
Klukkuborð og grillbúnað.
CF 160. 70 cm breið með 4 hellum og
klukkuborði. 2 ofnar. Sá efri 54 Itr. með
innbyggðum grillbúnaði, hraðræsi og
steikarmæli.
i neðri of ninum er einnig hægt að baka.
Litir: Rautt — gult — brúnt —
hvitt.
Lituð kr. 81.500,-
Hvit kr. 74.300.-
Litir: Brúnt — grænt — hvítt.
Copper kr. 106.300.-
Avocado kr. 96.100.-
Hvít kl. 92.400.-
CF 205. 50 cm breið. 3 hellur.
Ofn að ofan, geymsluhólf að
neðan.
Litir: Rautt— brúnt — hvitt.
Lituð kr. 49.600.-
Hvit kr. 47.900.-
EINNIG FYRIRLIGGJANDI
VIFTUR OG GUFUGLEYPAR