Tíminn - 16.03.1975, Page 40
Sunnudagur 16. marz 1975.
mufSiR
er einnig
traust
eldvarnatæki
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun Siöumúla
Símar 85694 & 85295
SIS-FOIHJll
SUNDAHÖFN
fyrir góéan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Aka má beggja megin eyjunnar, segir þetta merki okkur. Nýtt merki,
Bústaöavegar og Háaleitisbrautar.
sem öruggt er, aö allir skilji. Þetta merki er á gatnamótum
Gsal—Reykjavik. — Ýmsir
Reykvikingar hafa tekið eftir
því að undanförnu að sett hafa
verið upp ný umferðarmerki,
svokölluð leiðbeiningamerki. Er
m.a. um að ræða merki fyrir
götur sem lokaðar eru I annan
endann, merki sem gefur til
kynna útakstur af aðalbraut og i
þriðja lagi merki sem gcfur til
kynna tvistefnuakstur, — og er
t.d. eitt slikra merkja á gatna-
mótutn Bústaðavegar og Háa-
leitisbrautar.
Tvö áðurnefndra nterkja eru •
nokkuð torskilin fyrir hinn
almenna ökumann og sam-
kvæint könnun, sem Timinn
efnditil, voru fáir ökumenn sem
vissu um þýðingu merkjanna.
Er hér unt að ræða mcrkið fyrir
lokaða götu og merkið sein gef-
ur til kynna útakstur af aðal-
braut, en það merki er á Miklu-
braut, þar sem beygt er til
hægri inn á Breiðholtsveginn
svonefnda.
Ekki er okkur kunnugt um, að
áðurnefnd merki hafi verið
kynnt almenningi, en að sögn
lögreglunnar er ástæðan sú, að
merki þessi eru ekki komin inn i
merkjaskrá og uppsetning
þeirra að nokkru leyti tilraun.
Timinn ræddi við Sigurjón
Sigurðsson, lögreglustjóra, sem
er formaður umferðariaga-
nefndar, en sú nefnd vinnur
einmitt um þessar mundir að
nýrri merkjareglugerð, og er
þar um að ræða allmiklar breyt-
ingar bæði hvað viðkemur nýj-
um merkjum og breytingum á
eldri merkjum.
— JU, það er rétt að bætt
verður við nokkrum nýjum
merkjum, alþjóðamerkjum,
aðallega i flokki svokallaðra
leiðbeiningmerkja, sem talið er
að nútimaumferð krefjist. Eins
munu bætast viö nokkur boð-
merki, og nokkrum merkjum
verður breytt litilsháttar, s.s.
stöðvunarskyldumerkinu, sem
verður breytt i samræmi við
alþjóðareglugerð.
Lögreglustjóri kvað allar
þessar reglugerðir i stöðugri
endurskoðun, þvi ör þróun væri i
öllum umferðarmálum.
Reglugerð sú, er áður er
nefnd, er ekki fullsmiðuð ennþá,
að sögn Sigurjóns, en drög að
henni verða sennilega send
nokkrum aðilum til umsagnar
áður en þau verða send ráð-
herra.
Við inntum lögreglustjóra eft-
ir þvi, hvort ekki væri hæpið að
setja upp ný merki, sem jafnvel
fáir ökumenn áttuðu sig á, eins
og kom fram i þessari litlu
könnun okkar.
— Merkin eiga að vera þann-
ig, að þau beri það með sér hvað
þau tákna. Hins vegar veita
þessi merki, sem þú nefnir, ekki
rétt heldur eru þau eingöngu til
leiðbeiningar.
Lögreglustjóri kvað það
höfuðnauðsyn, að öll merki
væru vel kynnt öllum almenn-
ingi, en vart væri nauðsyn á
kynningu fyrr en eftir útkomu
reglugerðarinnar.
— Ég geri ráð fyrir, að það
verði verkefni Umferðarráðs að
standa að mjög viðtækri kynn-
ingu á öllum nýjum merkjum,
þvi það er vissulega undirstöðu-
atriði að merki séu vel kynnt.
Þvi meiri fræðslustarfsemi sem
er I sambandi við umferðarmál
þvi betra að minni hyggju.
Nýlega var samþykkt að setja
upp stöðvunarskyldumerki á
gatnamótum Frakkastigs og
Njálsgötu, en þegar slikt er
gert, birtist auglýsing um það i
Lögbirtingablaðinu. Við spurð-
um Sigurjón hvort hann teldi
ekki nauðsynlegt að birta slikar
auglýsingar viðar.
— Vist er það æskilegt, en
hins vegar verður maður að
muna eftir þvi, að nútima merki
byggjast á þvi, að fólk geti
beinlinis lesið sig sjálft áfram i
umferðinni. Sá, sem ekki hefur
kynnt sér itarlega tákn um-
ferðarmerkja, kemst ekkert
áfram i akstri erlendis. Það er
þvi hæpið að birta einu sinni
auglýsingu i Lögbirtingi eða
blöðunum. Við verðum þvi að
leggja megináherzluna á það,
að hver vegfarandi geti lesið sig
áfram i umferðinni eins og gert
er viða erlendis. Út frá þessu.
sjónarmiði hafa menn yéfengt
það, hvort það eigi yfirleitt
nokkuð að birta tilkynningar um
slikar breytingar.
Ekki kvað lögreglustjóri
ástæðu til að ætla annað, en
íslendingar væru nokkuð vel að
sér i umferðarmerkjum, og
sagðist halda, að obbinn af þeim
ökumönnum, sem væru i dag-
legum akstri ,,þekktu sin
merki” eins og hann orðaði það.
Eins og menn rekur eflaust
minni til, urðu nokkrar deilur
um þýðingu á svoköiluðu
,,klifurakreinamerki” sem var
sett upp á Hellisheði, og sagði
lögreglustjóri i viðtalinu við
Timann, að það merki hefði
einmitt verið mikið til umræðu i
umferðarlaganefnd.
Að lokum spurðum við Sigur-
jón Sigurðsson, hvort hann vissi
með nokkurri vissu, hvenær
nýju merkin, yrðu tekin i gildi.
Kvað hann gildistökutimann
óákveðinn.
Mörg ný umferðarmerki
tekin í notkun á árinu
Þetta merki hefur verið sett upp á Miklubraut, þar sem beygt er til vinstri inn á svonefndan Breið-
holtsveg. Merkið táknar útakstur af aðaibraut, — en vart getur það verið eitt þeirra merkja, sem
lögreglustjóri segir, að séu auðskilin. Timamyndir: Róbert.
ökumaður athugar nýuppsett merki fyrir lokaða götu, en sam-
kvæmt könnun Tímans, áttuðu fáir ökumenn sig á þýðingu merkis-
ins.