Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 10
Nú fyrir helgi var tilkynnt um að
hið gamalgróna stórveldi á af-
þreyingarmarkaði Skífan hefði
tekið nýtt nafn og yrði hér eftir
kallað Dagur Group. Það er senni-
lega hætt að koma á óvart að
íslensk fyrirtæki skeyti orðinu
„group“ aftan við heitið en að
sögn Sverris Berg Steinarssonar
forstjóra fyrirtækisins er breyt-
ingin gerð til að undirstrika sjálf-
stæði þeirra eininga sem starfa
innan fyrirtækisins.
Umfangsmikill rekstur í afþrey-
ingarbransanum
Sverrir Berg keypti Skífuna í fé-
lagi við Róbert Melax um mitt ár í
fyrra en Skífan var þar áður hluti
að Norðurljósasamsteypunni. Nú
er velta samstæðunnar talin nema
um fjórum og hálfum milljarði
króna á ári. Innnan samstæðunn-
ar eru meðal annars níu verslanir
BT, tvær verslanir Skífunnar auk
kvimyndahúsanna Regnbogans,
Smárabíós og Borgarbíós. Stór
hluti íslenskrar tónlistarútgáfu
hefur einnig farið fram undir
merkjum Skífunnar en hér eftir
verður tónlistarútgáfan undir
vöruheitinu Sena.
Meiri aðskilnaður
Sverrir segir að sökum umfangs
starfseminnar hafi verið talið
nauðsynlegt að skerpa betur að-
skilnað milli rekstrareininga.
Hann segir það meðal annars gert
í ljósi þess að rekstur eininganna
sé ólíkur í eðli sínu og það sé til
dæmis ákveðin samkeppni á milli
Skífunnar og BT. BT-verslanirnar
eru lágvöruverðsverslanir og í
þeim geira snýst reksturinn um
daglega samkeppni um verðlag.
„Þegar menn reka þannig verslun
þá eiga menn að vakna á hverjum
morgni með það að markmiði að
vinna verðstríð en í hinum búðun-
um er verið að hugsa til lengri
tíma. Skífan er til að mynda sett-
legri heldur en BT, ef svo má að
orði komast, þar er lögð meiri
áhersla á langtímahugsun og
boðið upp á meiri þjónustu og
betra úrval,“ segir hann.
Erfitt að finna gott nafn
Sverrir seigr það ávallt vera hálf-
gerða matröð að velja nafn á fyrir-
tæki. „Það koma ýmsir þættir til.
Menn þurfa til dæmis að hugsa um
það hvort lénið sé laust og svo
framvegis. Hugsunin hjá okkur var
að úr því við ætluðum að nefna
fyrirtækið „group“ þá vildum við
að fyrra nafnið væri stutt og gott
alíslenskt orð. Okkur finnst hafa
tekist vel til því Dagur er jákvætt
nafn og vísar til framtíðarinnar og
nýs upphafs,“ segir hann.
Aðspurður um það hvort ekki
hafi komið til greina nafnið Skífan
Group segir Sverrir að stjórnend-
urnir hefðu talið heppilegra að
finna alveg nýtt nafn og tengja
móðurfélagið ekki svo sterkt við
eitt af undirfélögunum. „Skífan er
sterkt vörumerki sem gildir um
Skífubúðirnar,“ segir hann. Þá
segir Sverrir það hafa valdið
óþægindum og misskilningi í sam-
skiptum við ýmsa viðskiptavini að
öll starfsemin færi fram undir
nafni Skífunnar, sem var annars
vegar samkeppnisaðili annarra
hljómplötuverslana en stendur
einnig fyrir útgáfu og markaðs-
setningu á tónlist sem allar aðrar
verslanir eru með í sölu. Þannig
voru menn bæði að keppa við
Skífuna og kaupa tónlist af félag-
inu.
Skífan er auk þess vörumerki
sem er mjög tengt persónu Jóns
Ólafssonar fyrrum eiganda fé-
lagsins og Norðurljósa. Sverrir
segir að nafnabreytingin sé ekki
komin til í ljósi þessa en neitar því
ekki að það kunni að vera bónus í
þessari breytingu að marka skil
milli núverandi og fyrrverandi
eigenda.
Sérdeild um stafræna dreifingu
En það eru fleiri breytingar fyrir-
hugaðar hjá Degi Group. Ný deild
hefur verið stofnuð innan félags-
ins sem hefur það hlutverk að
þróa nýjar leiðir til dreifingar á
efni. Hér sér Sverrir miklar
breytingar yfirvofandi. „Á síðasta
ári voru meiri tekjur í sölu
hringitóna í farsíma í heiminum
en sem nemur verðmæti sölu á
smáskífum,“ segir Sverrir og
nefnir sem dæmi um breytt lands-
lag í afþreyingariðnaði. Hann
segir að þróunin sem nú á sér stað
í gagnaflutningum og gagna-
geymslu bjóði upp á mikla mögu-
leika fyrir fyrirtæki sem eiga rétt
á sölu hugverka á borð við tónlist
og bíómyndir en Dagur Group á
rétt til að dreifa kvikmyndum frá
mörgum af stærstu kvikmynda-
verum heims auk þess sem fyrir-
tækið á dreifingarrétt á stærstum
hluta íslenskrar tónlistar.
Hann sér fyrir sér að fólk muni
í sífellt meiri mæli kaupa tónlist í
gegnum netið og það bjóði upp á
þann möguleika að í stað þess að
fólk kaupi tónlistina til ævilangr-
ar eignar þá geti það til dæmis
borgað nokkrar krónur fyrir að
heyra tiltekið lag einu sinni og
meira eftir því sem það vill hafa
lagið lengur til afnota. „Þegar fólk
kaupir disk í dag þá þarf núna að
rukka fullt verð og miðað við full
afnot. En með stafrænu dreifing-
unni get ég farið að selja með mis-
munandi verði. Þetta á eftir að
breyta hugsunarhættinum þannig
að fólk borgi fyrir afnot en ekki
eign. Þú getur notið einhvers án
þess að eiga það,“ segir hann.
Pantað beint heim
Framtíðarsýn Dags Group í staf-
rænni dreifingu er að geta boðið
fólki upp á að panta eftir þörfum
efnis, til dæmis bíómyndir eða
tónlist. „Við erum ekki að tala um
marga mánuði þar til menn geta
farið að panta bíómyndir eða sjón-
varpsefni eftir því sem þeim hent-
ar. Við erum að safna í tunnurnar
efni og tryggja okkur réttindi
til dreifingarinnar,“ segir hann.
Hann segir að Dagur Group muni
ekki standa í dreifingu sjálft en
sér fyrir sér samstarf við til dæm-
is símafyrirtæki. Þannig geti
viðskiptavinir pantað sér efni og
fjarskiptafyrirtækin sjá svo um
að dreifa því og rukka notandann.
Íslenskri tónlist síður stolið
Ólöglegt niðurhal og dreifing á
tónlist og ýmis höfundarréttarmál
hafa hingað til verið stærstu
hindranirnar í vegi fyrir staf-
rænni dreifingu. Sverrir segir að
greinilegt sé að ólöglegt niðurhal
hafi vond áhrif á tónlistarmarkað-
inn og sé í auknum mæli orðið
vandamál varðandi kvikmyndir.
10 6. mars 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
„Þegar fólk kaupir disk í dag þá þarf að rukka fullt verð og miða við full afnot.
En með stafrænu dreifingunni get ég farið að selja með mismunandi verði. Þetta á
eftir að breyta hugsunarhættinum þannig að fólk borgi fyrir afnot en ekki eign.
Þú getur notið einhvers án þess að eiga það.“
Skráning og afhending gagna
Ræ›a formanns
Sigur›ur Á Sigur›sson forma›ur stjórnar SVfi
Ávarp
Valger›ur Sverrisdóttir vi›skiptará›herra
Verslun og fljónusta eftir 5 ár
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group hf.
A› bera saman epli og appelsínur
Dr. Jón fiór Sturluson forstö›uma›ur
Rannsóknaseturs verslunarinnar
Ni›urstö›ur vi›horfskönnunar SVfi
Júlíus Valdimarsson framkvæmdastjóri Lausna ehf.
Veitingar - Afhending gagna fyrir a›alfund
Hef›bundin a›alfundarstörf
D A G S K R Á
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • Sími: 511 3000 • Fax: 511 3001 • Netfang: svth@svth.is • www.svth.is
A ‹ A L F U N D U R
SVfi – Samtaka verslunar og fljónustu
haldinn 8. mars 2005 á Grand Hótel Reykjavík
12:45
13:00
14:30
15:00
Vinsamlega tilkynni› flátttöku
í síma 511 3000 e›a me› tölvupósti til svth@svth.is
Fundarstjóri: Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Sigur›ur Á Sigur›sson
Valger›ur Sverrisdóttir
Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón fiór Sturluson
2005
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta
er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari
upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir
sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 410 4000.
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
76
12
03
/2
00
5
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
76
12
03
/2
00
5
Banki allra landsmanna
6,2%* – Peningabréf Landsbankans
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
*Nafnávöxtun frá 02.02.2005–28.02.2005 á ársgrundvelli.
410 4000 | landsbanki.is
Í ÚTRÁSARHUG Sverrir Berg Steinarsson, forstjóri Dags Group, segir að með nýrri tækni í gagnaflutningum og gagnageymslu muni
viðsipti fólks með tónlist og annað afþreyingarefni breytast mikið.
Dagur Group, sem áður hét Skífan, er risi á ís-
lenskum afþreyingarmarkaði. Forstjórinn sér fram
á miklar breytingar í sölu og dreifingu tónlistar og
kvikmynda og segir félagið endurskipulagt til að
bregðast við þeim. Hann sér líka fyrir sér útrás.
Afþreyingarveldi
í útrásarhug
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I