Fréttablaðið - 06.03.2005, Side 12

Fréttablaðið - 06.03.2005, Side 12
Á þessum degi fyrir réttri öld sigldi Coot, fyrsti íslenski botn- vörpungurinn, inn í Hafnarfjarð- arhöfn og markaði þar með upp- haf togaravæðingar landsins. Forgöngumennirnir í að kaupa Coot voru Einar Þorgilsson, kaupmaður í Hafnarfirði og Björn Kristjánsson, kaupmaður í Reykjavík og alþingismaður. Björn hafði áður lagt fram tillögu á Alþingi um að leigja einn til tvo togara hingað til lands í tilrauna- skyni, sem var felld. Björn fór því á fund Einars og lagði til að þeir myndu sameina krafta sína og ráðast í skipakaup. Björn fann nothæfan bát, Coot, í Aberdeen í Skotlandi. Verðið var 35 þúsund krónur og stofnuðu Björn og Einar hlutafélag með sjö hlutum sem síðar hlaut nafnið Faxaflóafélagið. Í ársbyrjun héldu hluthafarnir til Skotlands að kaupa skipið. Coot var smíðað í Glasgow árið 1892, var 98 fet að lengd, 155 brúttótonn að þyngd og gekk fyrir gufuafli. Með veiðarfærum og varahlutum, sem fæstir feng- ust á Íslandi, kostaði skipið 45 þúsund krónur. Arnbjörn Ólafs- son var einn skráður eigandi skipsins en Einar Þorgilsson var kjörinn framkvæmdastjóri fé- lagsins. Hinn 1. mars lagði Coot úr höfn í Aberdeen og hélt áleiðis til Íslands. Útgerð skipsins hófst svo að segja um leið og það kom til landsins og var Indriði Gott- skálksson skipstjóri, en hann var einn hluthafanna. Koma Coots til landsins var þó ekki öllum fagn- aðarefni. Togarar voru illa þokk- aðir af mörgum sjómönnum og þótti sumum það jaðra við land- ráð að ráða sig á slíkan. Þá fékkst ekki sama verð fyrir fisk úr Coot og úr skútunum, þar sem talið var að togarafiskur væri verri að gæðum. Reynslan sýndi hins veg- ar annað og kaupmenn fóru fljót- lega að kaupa fisk úr Coot á jöfnu verði og annan fisk. Viðhorfin til togaranna breyttust fljótt ekki síst í ljósi þess að veiðigeta þeirra var margfalt meiri en skútanna. Þess voru dæmi að Coot landaði fjögur þúsund fiskum eftir einn róður, sem var um mánaðarafli skútu. Þetta skapaði frekari for- sendur fyrir útbreiðslu togara- útgerðar hér á landi og vorið 1906 fóru fjórir skútuskipstjórar á fund Thors Jenssonar og báðu hann um að gangast fyrir kaup- um á togara. Árið 1907 höfðu Íslendingar eignast þrjá nýja togara, Marzinn, Snorra Sturlu- son og Jón forseta. Útgerð Coot gekk vel og var rekin með hagnaði þegar ógæfan dundi yfir. Hinn 14. desember 1908 var Coot á leið til Hafnar- fjarðar frá Reykjavík með skút- una Kópanes í eftirdragi. Svo óheppilega vildi til að taugin milli skipanna slitnaði og strengslitrin flæktust í skrúfu Coot. Straumur var mikill og bæði skipin ósjálf- bjarga. Þau rak stjórnlaust suður fyrir Hafnarfjörð og strönduðu við Keilisnesið um kvöldið. Skip- verjar komust allir lífs af en skip- in eyðilögðust. Hinn 8. janúar var Coot selt sem strandgóss fyrir 1479 krónur og Faxaflóafélagið leystist upp. En þó saga Coot væri á enda komin, voru þær breytingar sem það hrinti af stað rétt að byrja. ■ 12 6. mars 2005 SUNNUDAGUR CYRANO DE BERGERAC (1619-1655) fæddist á þessum degi. Coot kemur til Íslands TÍMAMÓT: TOGARAVÆÐINGIN HEFST Á ÍSLANDI „Stórt nef er til marks um hnyttinn, kurt- eisan, vingjarnlegan, örlátan og frjálslynd- an mann.“ Franska leikskáldið Cyrano de Bergerac var víðfrægt fyrir risastórt nef sitt en sagt var að engin kona gæti staðist fagurgala hans. Leik- rit og kvikmyndir hafa verið gerðar eftir verkum hans og ævi. timamot@frettabladid.is BOTNVÖRPUNGURINN Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur teiknaði þessa mynd af Coot. Skipið var 98 fet að lengd , 155 brúttótonn að þyngd og gekk fyrir gufuafli. Á þessum degi fyrir 54 árum hófust réttarhöldin yfir Rosenberg- hjónunum, en þau voru sökuð um njósnir fyrir Sovétmenn. Julius og Ethel Rosenberg voru bæði verk- fræðingar að mennt og félagar í bandaríska kommúnistaflokknum. Óttinn við kommúnista var í al- gleymingi um þessar mundir og ofsóknir Josephs McCarthys, öld- ungardeildarþingmanns á hendur þeirra sem hann grunaði að væru kommúnistar, að ná hámarki. Juli- us Rosenberg hafði verið rekinn úr starfi sínu hjá ríkinu vegna aðildar sinnar að kommúnistaflokknum. Mágur hans, David Greenglass, var vélamaður í Los Alamos þar sem Bandaríkjamenn hönnuðu fyrstu kjarnorkusprengjuna. Hann hélt því fram að Julius hafi árið 1945 beðið sig um að smygla trúnaðar- upplýsingum um sprengjuna til Sovétríkjanna. Hann hafi látið mann að nafni Harry Gold fá þess- ar upplýsingar sem kom þeim áleiðis til Sovétríkjanna. Sovét- menn sprengdu sína fyrstu kjarn- orkusprengju árið 1949. Einu haldbæru sönnnunargögnin um málsaðild Rosenberg- hjónanna var játning Greenglass. Margir töldu að um pólitískar of- sóknir á hendur hjónanna væri að ræða enda var saksóknarinn, Roy Cohn, hjálparhella MacCarthys. Réttarhöldin stóðu í mánuð og lyktaði með að Greenglass var dæmdur í fimmtán ára fangelsi, Gold í 30 ár en Rosenberg-hjónin voru dæmd til dauða fyrir njósnir og tekin af lífi hinn 19.júní 1993. Margir telja enn í dag að um pólitískt rétt- armorð hafi verið að ræða en aðrir trúa að hjónin hafi verið njósnarar. 6. OKTÓBER 1951 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1521 Ferdinand Magellan finnur Guam. 1836 Mexíkóar bera sigurorð af Bandaríkjamönnum við Alamo eftir þrettán daga orrustu. 1853 Óeran La Traviata eftir Giuseppe Verdi er frum- sýnd í Vínarborg. 1918 Bandaríska herskipið Kýklópi hverfur í Bermúda- þríhyrningnum. 1946 Frakkland viðurkennir Víet- nam sem ríki. 1953 Malenkov verður formaður sovéska kommúnista- flokksins. 1957 Ghana lýsir yfir sjálfstæði frá Bretum. 1991 Bandaríkin lýsa yfir sigri í Írak. Réttað yfir Rosenberg-hjónunum Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Björns Þ. Þórðarsonar læknis, Sörlaskjóli 78, Reykjavík. Þórunn Bára Björnsdóttir, Pálmi V. Jónsson, Sigurður Hafsteinn Björnsson, Þórunn Ólafsdóttir, Bryndís Anna Björnsdóttir, Edda Björnsdóttir, Jakob Þór Pétursson, Páll Björnsson, Lilja Jónasdóttir, afabörn og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Aðalheiður Ósk Jónsdóttir Aðalgötu 1, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn 9. mars kl. 14:00. Garðar Ólafsson, Inga Ósk Ólafsdóttir, Gissur Hans Þórðarson, Heiða Ósk Garðarsdóttir, Ólafur Ingvi Hansson og Brynjar Þór Hansson. AFMÆLI Ingólfur Guðbrandsson, tónlistarmaður og ferðamálafrömuður, er 82 ára í dag. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir læknir er fimmtug í dag. Ragnar Axelsson ljósmyndari er 47 ára í dag. Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttaritstjóri er 44 ára í dag. Arnar B. Gunnlaugsson fótboltamaður er 32 ára í dag. Bjarki B. Gunnlaugsson fótboltamaður er 32 ára í dag. ANDLÁT Þórhallur Björgvinsson, frá Þorgerðar- stöðum í Fljótsdal, Útgarði 6, Egilsstöð- um, lést miðvikudaginn 2. mars. Guðrún Júlía Elíasdóttir, Aðalsteini, Stokkseyri, lést föstudaginn 4. mars. 1475 Listamaðurinn Michelangelo, sem meðal annars gerði styttuna af Davíð og málaði loft Sixtínsku kapellunnar í Róm. 1926 Alan Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er af sumum tal- inn einn áhrifamesti maður heims. 1928 Nóbelsverðlaunaskáldið Gabriel Garcia Marquez, sem skrifaði meðal annars Hundrað ára ein- semd. 1944 Óperusöngkonan Kiri Te Kanawa frá Nýja Sjálandi hefur komið oftar en einu sinni til Íslands. 1944 David Gilmore, gítarleikari og söngvari Pink Floyd. 1945 Kvikmyndaleikstjórinn Rob Reiner sem hefur gert myndir á borð við This is Spinal Tap og When Harry Met Sally. 1972 Shaquille O’Neal, körfuknattleiks- maðurinn risavaxni. FÆDDUST ÞENNAN DAGNýr vikulegur dálkur Fréttablaðið hefur gengið til sam- starfs við Kirkjugarðasambandið um birtingar á ítarefni um þekkta látna einstaklinga sem eru á leg- staðaskránni gardur.is. Vikulega, á sunnudögum, verð- ur birtur fróðleikur af gardur.is og verður leitast við að velja ævi- drög einstaklinga af ólíkum toga og af báðum kynjum. Jón Valur Jensson ættfræðingur tíndi sam- an ævidrögin. Vefurinn gardur.is er í umsjón og eigu Kirkjugarða- sambands Íslands og geta að- standendur fengið birt efni um látinn ástvin á vefnum. ■         !! " #   $% & '    (  )   * ++   & '   #   , -     % # '  /  ) '  ' 0      !1  2     /  ++     # '   # # ++      //   +    # # + .  )   #    & 3   4)   // +    # #  '      // "     .   '     &   ' + . # #  2  #   & # + /   "5 /   %  #   " / #  '  /    " & + & ( + #  . 6//## 5        / / / + )7  ##8  # (9/ : (  /   /+    (9-#  #*   : ( /  6  /)   8  9$  %  !  (9 ; #+" #< = / /  7 8  9  / %  #;   >  .# /                  !  "   ?  @ # ' %// ,"5 AB)   0.  /    "  .   )    " -     )# (6  ?  /  ) 2   /    - 5/ '  %   % '   (.  )  . A)       $%      /#'  ( / . @ ' )    "5 /   # & %   ! %' )  Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn á síðunni má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.