Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 22

Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 22
22 6. mars 2005 SUNNUDAGUR NLP-nám Hrefna Birgitta Bjarnadóttir er alþjóðlegur NLP- kennari og verður með 3ja daga grunnnámskeið í NLP dagana 10.-12.apríl nk. Námskeið þetta er hægt að nýta sem hluta af Practitionar menntun sem er í heild 120 timar. Allar nánari upplýsingar veita Guðrún Harðardóttir í síma 863-0800 og Hrefna Birgitta í síma 00-47-99509750 og 00-47 -71254642 Noregi Kennari er Hrefna Birgitta Bjarnadóttir NLP kennari/ meðhöndlari/þjálfari. Samskipti og sjálfstjórnun Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, segist hafa verið fjörlegur pjakkur í meira lagi og er þakk- látur fyrir að alast upp á tímum sjónvarpsleysis, þó hann hafi stolist ásamt félögunum niður á Laugaveg á miðviku- dögum klukkan sex til þess að horfa á Bonanza í gegnum glugga á sjón- varpsverslun. Otrateigur, Reykjavík, 1960 til 1965 Ég er alinn upp í Laugarneshverf- inu, og við þessa götu bjó ég mín fyrstu ár í hverfinu. Þarna hóf ég minn handboltaferil. Hverfið skipt- ist í Ármanns- og Framhverfi og ég hóf feril minn með Fram í hand- boltanum og var æft í gamla Hálogalandsbragganum. Þetta var mjög skemmtilegur tími, og um- hverfið var allt öðru vísi fyrir krakka en í dag, menn léku sér á götum úti á þeim tíma. Seinna lék ég svo með Ármanni í knattspyrnu þegar félagið stofnaði knatt- spyrnudeild. Hrísateigur, Reykjavík 1965 til 1967 Við vorum búin að búa í nokkur ár á Otrateignum þegar foreldrar mínir keyptu lóð undir einbýlishús við Hrísateig. Grunnur var grafinn sem fljótlega fylltist af drullu og þá fengum við bræðurnir alveg snilldarhugmynd. Ég var þá sendill hjá hverfisbúðinni og hafði til um- ráða sendilshjól. Við bræðurnir skelltum upp vegg við grunninn og borguðum nokkrum strákum tutt- ugu og fimm krónur, fyrir að hjóla á hann og steypast niður í drulluna á bólakaf. Við rukkuðum svo fimm- tíu krónur í aðgangseyri og komum út í góðum gróða, en þetta athæfi var síðan stöðvað af móður eins drengjanna, sem var ekki par hrif- in þegar sonur hennar kom heim drullugur upp fyrir haus. Otrateigur, Reykjavík, 1967 til 1970 Það var stríð í þessu hverfi milli þeirra sem bjuggu á Austurbrún og í Teigunum, en þeim hópi var stjórnað af Gísla Rúnari Jónssyni leikara. Einu sinni var blásið til styrjaldar og þá höfðu safnast sam- an um hundrað og tuttugu krakkar, reiðubúnir til orrustu. Undirbún- ingurinn hafði staðið lengi og við bræðurnir höfðum staðið í ein- hverju þrasi við Gísla Rúnar og fé- laga.En þetta spurðist vel út og þegar orrustan var rétt hafin kom lögga hverfisins á vettvang. Magn- ús Einarsson heitir hann, varð- stjóri í dag, og var á risastóru lögguhjóli. Hann var svona Rambó okkar tíma. Hann þurfti ekki annað en blikka ljósunum einu sinni og þá var hópurinn tvístraður. Við bárum rosalega virðingu fyrir honum. Við spiluðum alla daga fótbolta niðri á gamla sundlaugatúninu. Ég man eftir því að einu sinni kom karl, okkur fannst hann allavega vera karl, dálítið rauðbirkinn. Hann spurði okkur hvort hann mætti ekki spila með okkur, og við leyfðum honum það. Þegar við spurðum hann af hverju hann spilaði fótbolta með einhverjum guttum, þá sagðist hann vera að halda sér í formi vegna þess að hann væri skemmtikraftur. Við komumst síðan að því að þetta var hann Ómar Ragnarsson. Laugateigur, Reykjavík, 1970 Við fluttumst svo tímabundið á Laugateiginn meðan húsið var í byggingu. Þetta var náttúrlega fyr- ir tíma sjónvarpsins, og menn brölluðu hitt og þetta. Ég man eftir því að við bræðurnir fórum oft nið- ur á Laugarnestanga, við skítarör- ið, og veiddum kola með steypu- styrktarjárnum. Við fylltum síðan kjallarann af þessu, stoltir af því að hafa veitt í matinn næstu daga. Þegar mamma kom heim lét hún okkur vita af því að þeir væru fáir sem ætu marhnúta og kola og þá sérstaklega ef þeir væru veiddir við skítarörið. Við þurftum því að moka allri veiðinni aftur í hjölbör- ur og skila henni í hafið. Þegar svo sjónvarpið kom til skjalanna vorum við ekki að setja fyrir okkur að ekkert tæki væri á heimilinu. Við einfaldlega tókum strætó niður á Laugaveg og horfð- um á framhaldsþættina í verslun- arglugga. Ég man að Bonanza var alltaf á miðvikudögum klukkan 6, og við misstum ekki úr þátt. Ann- ars held ég við bræðurnir höfum verið óttalegir gaurar. Við vorum mikið á ferðinni. Selvogsgrunn, Reykjavík, 1971 Við fluttum okkur um set og þá kom auðvitað ekkert annað til greina en að vera áfram í Laugar- nesinu og keyptu foreldrar mínir hús við Selvogsgrunn. Fjölskyldan hefur alltaf haldið miklu ástfóstri við Laugarnesið og nýlega fluttu foreldrar mínir á ný í Laugarnesið, enda hafði pabbi orð á því að nú væru þau komin heim á ný. Sunnubraut, Kópavogur, 1972 til 1975 Þangað flytjumst við hjónin og komum okkur upp heimili. Þrátt fyrir að vera kannski þekktur fyrir að vera leikmaður Víkings hérna heima hef ég aldrei búið í Víkings- hverfinu og ætla aldrei að gera. Þeir verða örugglega alveg brjál- aðir strákarnir í Fossvoginum. Kríuhólar, Reykjavík, 1975 til 1979 Við keyptum okkur svo okkar fyrstu íbúð við Kríuhólana í Breið- holti. Við hjónin erum kannski mest Breiðhyltingar og kunnum ákaflega vel við okkur hérna, og höfum í raun alltaf komið hingað í hverfið eftir að hafa verið erlendis. Pobla de Lillet, Barcelona, 1979 til 1981 Þegar ég gerðist svo atvinnumaður í handboltanum hjá FC Barcelona fluttum við á Pobla de Lillet. Við bjuggum við hliðina á hinum þekkta íþróttaleikvangi Camp Nou, sem er heimavöllur Barcelona-liðs- ins. Ég kunni svona þokkalega við mig þarna, þó ég þrífist ekkert vel í svona stórborgum, þetta er svona aðþrengjandi, allt of mikil umferð og ég var til að mynda aldrei með bíl, tók bara leigubíl. Ég náði að verða Spánarmeistari með liðinu og held að ég og Ólafur Stefánsson séum þeir einu sem hefur tekist það. Oswald Spengler Strasse, Leverkusen, 1981 til 1983 Frá Spáni lá svo leiðin til Þýska- lands, nánar tiltekið Leverkusen i miðju Ruhr-héraði. Þar bjuggum við í Oswald Spengler Strasse. Við vorum aðeins 20 mínútur þaðan inn í miðborg Kölnar. Það var mikill munur að koma frá svona blóðheitum Spánverjum yfir í þýska agann. Þeir á Spáni voru kannski svona kæruleysis- legri, en það var meira aðhald í Þýskalandi, sem ég kunni vel við. Atvinnumannalífið er svona hálf- gert sældarlíf, æfingar á morgn- ana og kvöldin, leikur einu sinni í viku og góður frítími á milli. Á þeim tíma sem við vorum þarna var mikið af Íslendingum, Axel Ax- elsson og Atli Eðvaldsson, og við héldum hópinn eins og landanum er tamt. Seinna árið okkar þar kom svo Sigurður Gunnarsson, æskufélagi úr Víkingi, til Leverkusen og það var alveg frábært að hafa landa sinn hjá sér. Hjá löndum erlendis myndast alltaf vinskapur sem verður ólíkur öðrum. Trönuhólar, Reykjavík, 1983 til 1987 Við seldum Kríuhólana þegar við fluttum til Spánar og keyptum fok- helt hús við Trönuhóla. Þarna gerð- um við mikil mistök. 100% verð- bólga var á þessum tíma og nær allt okkar fé fór í að klára húsið. Við fluttum svo inn árið 1983, en lánin voru fljót að vaxa yfir húsið og við gáfumst upp. Þarna fór mik- ið af okkar sparifé í hreina vitleysu og oft hefur maður blótað fjár- málaástandinu sem var á þessum tíma. Lynghagi, Reykjavík 1987 til1989 Við seldum Trönuhólana og keypt- um okkur íbúð við Lynghaga. Rétt hjá Dabba. Frábær gata alveg við Ægisíðu og alltaf leið okkur jafn vel, hvar sem við höfum nú búið. Engjasel, Reykjavík, 1989 til1990 Við vorum ákveðin í að eignast aft- ur einbýli og festum tímabundið kaup á íbúð við Engjasel með það að markmiði að trappa okkur upp í stærri eign. Við vorum heppin á þessum tíma, minni eignir hækk- uðu á meðan stærri eignir stóðu í stað. Lindarsel, Reykjavík, 1990 til 1996 Við keyptum okkur svo fallegt ein- býlishús við Lindarsel og komum okkur vel fyrir. Þetta er heimili okkar í dag, frábært hús með út- sýni yfir borgina. Þegar við fórum aftur út settum við húsið á leigu, sem betur fer. Vorum að hugsa um að selja en eins og allir vita hafa svona eignir hækkað langt umfram annað. Ferdinand Lassalle Strasse, Wuppertal, 1996 til 2000 Ég gerðist svo þjálfari hjá Wupp- ertal og þar bjuggum við í götu sem heitir Ferdinand Lassalle Strasse. Við vorum um tuttugu Ís- lendingar þarna og það var mikill samgangur á milli. Konurnar héldu mikið saman og þrátt fyrir að ég væri þjálfarinn skemmdi það ekkert fyrir vinskapnum. Við vor- um komin með fjögur börn, og það var mjög gott að vera með þau þarna úti. Þau voru reyndar orðin svo miklir Þjóðverjar í sér að ef við hefðum verið eitt ár í viðbót hefðu þau ekki komið með okkur heim. Ég kann vel við Þjóðverjana, finnst þeir vera gott fólk Lindarsel, Reykjavík, 2000 – Eins og níutíu og fimm prósent þeirra sem fara út í atvinnu- mennskuna er maður kominn heim og ég kann best við mig hér heima. Það blundaði vissulega í mér þegar ég hætti með Haukana að fara aft- ur út, en þegar börnin eru annars vegar er erfitt að fara að rífa sig upp og fara af stað. Ég útiloka ekki neitt, en verð samt líka að horfast í augu við það að ég er ekkert að yngjast og get ekki verið að stúss- ast í þessu endalaust. ■ Við erum á fasteignasölu í Reykjavík fyrir um tuttugu og fimm árum. Þar starfa ásamt eig- andanum, sem þótti hrokafullur og var fámáll, ritari sem var ung kona alin upp í sveit, var röggsöm og vissi að að ljúka varð öllum verkum sem byrjað var á, dugn- aðarforkur, og sölumaður sem var drengur ágætur. Þeim þrem- ur tókst að afla sér ágætlega, þó skoðanamunur væri mikill. Svo kom að eigandinn réð lærling, launalaust. Sá vildi verða sölu- maður og þeir, það er eigandinn og lærlingurinn, gerðu með sér samning um að lærlingurinn kynnti sér starfið, launalaust. Svo fór að sölumaðurinn og ritarinn reyndu að fræða lærling- inn. Fer fáum sögum af árangri kennslunnar. Dag einn tók lærlingurinn að grúska í geymslu sem var inni af kontórnum. Þar fann hann tvo gamla blekpenna, sjálfblekunga, og krukku af bleki. Hann vildi umbuna sölumannin- um fyrir þægindin í sinn garð og gaf honum annan pennann, sem hann hafði áður fyllt af bleki. Næst er frá að segja að sölu- maðurinn var upptekinn í símtali þegar tilkynnt er að fleiri vilji ná tali af honum. Hann losnar ekki strax, þannig að lærlingurinn talar við þann sem hringdi. Það reyndist vera kona sem ætlaði að koma og gera tilboð í búð sem hún hafði skoðað kvöldið áður. Lærlingurinn sótti fast að fá að taka á móti tilboðinu. Sölumaður- inn var hugsi, en sagði já með skil- yrðum. Þannig háttaði til að sölu- maðurinn og lærlingurinn sátu í herbergjum sem voru samhliða, hurðarop var í milliveggnum, en þar sem skrifborðin voru nánast á sama punkti herbergjanna sá sölumaðurinn ekki lærlinginn þar sem hann sat við borðið, og öfugt. Sölumaðurinn gat hins vegar séð þá sem sátu gegnt lærlingnum. Hann sagðist ætla að þykjast vera við vinnu, en reyna að hlusta eftir að allt gengi vel eftir. Svo kom að konan og maðurinn komu til að gera tilboðið. Ritarinn vísaði þeim inn til lærlingsins og settust þau gegnt honum. Sölumaðurinn kink- aði kolli til þeirra og þóttist eftir það vera upptekinn við vinnu. Þau höfðu ekki setið lengi þegar þau skelltu upp úr, ekki venjulegum hlátri, heldur vandræðalegum en innilegum hlátri. Fengu ekki við sig ráðið. Andarataki síðar birtist lærlingurinn í hurðaropinu. Hann var ekki bara skelfdur. Hann var blekblár um munninn og þegar hann tók að reyna að tjá sig reynd- ist hann vera með blekbláar tenn- ur, blekbláa tungu og munnholið var allt blekblátt. Hvað kom fyrir, spurði sölu- maðurinn. Lærlingurinn svaraði engu, en tár mynduðust í augum hans. Konan sagði að hann hefði orðið svo stressaður þegar hann ætlaði að skrifa niður tilboðið að hann hefði sett pennann að vörum sér og í taugakasti saug hann eins og hann ætti lífið að missa allt blekið úr pennanum. Hann var sendur heim í leigubíl og kom ekki aftur. Hjónin keyptu íbúðina. Saga af... lærlingi NÝJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR með Sigurjóni SIGURJÓN M. EGILSSON sigurjon@frettabladid.is Var lífsglaður strákur VIGGÓ SIGURÐSSON MEÐ HUNDUNUM SÍNUM TVEIM „Ég spilaði fótbolta með rauðhærðum karli, sem reyndist vera Ómar Ragnarsson að halda sér í formi.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.