Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 29

Fréttablaðið - 06.03.2005, Síða 29
Nýstofnað Menntasvið Reykjavíkurborgar leitar að framsæknum og kraftmiklum leiðtoga til að stýra grunnskólaskrifstofu sviðsins. Meginverkefni skrifstofustjóra grunnskólaskrifstofu er að hafa forystu í fagmálum grunnskóla, þ.e. þróun starfshátta og skólastarfs almennt, og vera faglegur leiðtogi grunnskólastjóra og næsti yfirmaður þeirra. Verkefni skrifstofustjóra og ábyrgðarsvið eru að öðru leyti m.a.: Hafa forgöngu um þróun faglegs starfs í skólunum og þjónustu við nemendur og foreldra þeirra Bera ábyrgð á að lögum og reglugerðum svo og stefnu Reykjavíkurborgar fyrir grunnskólastigið sé framfylgt Skipuleggja samstarf og stuðning við skólastjóra Annast samskipti við hagsmunaðila, hafa umsjón með samstarfi við þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar og sinna alþjóðatengslum Kröfur um þekkingu, reynslu og hæfni: Yfirsýn yfir gunnskólastigið og reynsla af kennslu og vinnu með nemendum í grunnskólum Grunnskólakennaramenntun og framhaldsmenntun á háskólastigi er tengist viðfangsefnum starfsins Stjórnunarhæfileikar og reynsla af stjórnun Lipurð í mannlegum samskiptum Hæfni til að setja fram hugmyndir í ræðu og riti Næsti yfirmaður skrifstofustjóra er sviðsstjóri Mennta- sviðs. Um ráðningarskilmála gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Kjör eru ákvörðuð af kjaranefnd Reykjavíkurborgar. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og störf og í henni þarf að gera grein fyrir hvernig umsækjandi mætir öllum ofangreindum kröfum. Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. Umsóknir sendist á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Hulda D. Styrmisdóttir, breytingastjóri vegna stofnunar Menntasviðs, tölvupóstfang: hulda.dora.styrmisdottir@reykjavik.is, sími 535 5000. Skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu á Menntasviði Reykjavíkurborgar Menntasvið verður til við samruna Leikskóla Reykjavíkur og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og er eitt af 10 sviðum Reykjavíkurborgar. Á Menntasviði verða tvær fagskrifstofur, grunnskólaskrifstofa og leikskólaskrifstofa. Undir leikskólaskrifstofu heyra 78 leikskólar þar sem eru 5.800 börn og um 1.700 starfsmenn. Undir grunnskólaskrifstofu heyra 38 grunnskólar með 15.500 nemendum og þar starfa um 2.500 starfsmenn. Austurbyggð –Austurbyggð Kennarar óskast að Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Grunnskólanum á Stöðvarfirði Umsækjendur þurfa að hafa kennsluréttindi og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar vantar kennara í sérkennslu, almennri kennslu nemenda á miðstigi og yngsta stigi, heimilisfræði, upplýsinga og tækni- mennt og textilmennt. Nánari upplýsingar gefur Þórhildur Helga Þorleifsdóttir skólastjóri í símum 475-1224 og 822-3151. Netfang er helga@gf.is Við Grunnskólann á Stöðvarfirði vantar kennara í sérkennslu, íslensku, ensku, dönsku, samfélags- fræði, heimilisfræði og almennri kennslu á miðstigi. Nánari upplýsingar gefur Jónas E. Ólafsson skólastjóri í símum 475-8818 og 897-1962. Netfang er jonas@austurbyggd.is Einnig auglýsa Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar, Grunnskólinn á Stöðvarfirði og Tónlistarskóli Austurbyggðar sameiginlega eftir kennara í tónmennt og tónlist. Nánari upplýsingar gefur Valdimar Másson skólastjóri Tónlistarskólans í símum 475-1132 og 663-4401. Netfang er tonlist@austurbyggd.is Umsóknarfrestur er til 28. mars 2005. Við viljum vekja athygli á heimasíðu Austurbyggðar www.austurbyggd.is, heimasíðu Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar www.gf.is, heimsíðu Grunnskólans á Stöðvarfirði www.austurbyggd.is/grunnskoli og heimasíðu Tónlistarskóla Austurbyggðar www.austurbyggd.is/tonlist Verkfræðingar tæknifræðingar VSÓ Ráðgjöf vill bæta við sig starfsmönnum á byggðatækni- umhverfis og mannvirkjasvið stofunnar. Leitað er að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að starfa við fjölbreytt verk- efni við landmælingar, hönnun og eftirlit á sviði jarðvinnu, gatnagerðar, vegagerðar og veitukerfa. Æskilegt en ekki skilyrði er að viðkomandi hafi starfsreynslu. VSÓ Ráðgjöf hefur starfað frá árinu 1958 og er eitt af rótgrónustu ráðgjafafyrirtækjum landsins. Lögð er mikil áhersla á fagleg vinnubrögð og góða þjón- ustu. Hjá VSÓ Ráðgjöf, samstarfs- og dótturfyrir- tækjum starfa nú um 80 manns. Í fyrirtækinu ríkir jákvæður starfsandi og starfsmenn reka öflugt starfsmannafélag. Umsóknum skal skilað til Guðrúnar Guð- mundsdóttur á netfangið gudrun@vso.is eða til móttöku VSÓ Ráðgjafar. Grunnskóli Grindavíkur Starf námsráðgjafa Óskum eftir að ráða námsráðgjafa eða einstakling með menntun og reynslu á sviði námsráðgjafar í 50% starf. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri í síma 420-1150 7 ATVINNA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.