Fréttablaðið - 06.03.2005, Page 30

Fréttablaðið - 06.03.2005, Page 30
Matarfræðing, matartækni eða mateiðslumann vantar í aðaleldhús Eirar hjúkrunarheimilis. Eir hjúkrunarheimili hefur verið starfrækt frá árinu 1993 og aukið við starfsemi sína jafnt og þétt og er nú fjölþætt þjónusta við aldraða einstaklinga í hjúkrunarþörf veitt í þremur húsum með samtals 250 einstak- lingum, auk þess sem eldhúsið sinnir Skjóli hjúkrunarheimili með samtals 108 einstaklingum. Hjá okkur starfar góður hópur fólks við að trygg- ja faglega, örugga og farsæla þjónustu til þeirra sem dvelja á Eir. Nú vantar matarfræðing, matartæki eða mat- reiðslumann í fullt starf í aðaleldhús Eirar. Einnig vantar starfsmenn til almennra starfa í eldhúsi í framtíðarstörf og sumarafleysingar. Upplýsingar gefur forstöðumaður eldhúss Gunn- ar J. Einarsson í síma 522 5760 milli kl. 8.00 – 16.00 virka daga, netfang: eldhus@eir.is Hjúkrunarheimili Starf í móttöku Hótel og veitingahús út á landi, ca. 150 km frá Reykja- vík, óskar eftir starfskrafti í móttöku. 100% þjónustu- lund, samviskusemi, bókhalds-, tungumála- og tölvu- kunnátta skilyrði. Frumkvæði í vinnu og auðvelt með að vinna sjálfstætt. Fæði og húsnæði á staðnum. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfangið box@frettabladid.is undir fyrirsögninni „Móttaka“. LAUS STÖRF Leikskólinn Krakkaborg, Þingborg, auglýsir eftir leikskólakennara, leikskólasérkennara eða þroskaþjálfa til starfa sem fyrst. Umsóknir berist til Þórdísar Bjarnadóttur leikskólastjóra á netfangið: leikskoli@simnet.is eða í síma 482-3085. Ef ekki fást fagaðilar kemur til greina að ráða einstaklinga sem hafa áhuga og reynslu á vinnu með börnum. HÚSGAGNAVERSLUN – AFGREIÐSLA Húsgagnaverslunin Nýform Reykja- víkurveg 66 Hafnarfirði óskar eftir að ráða starfskraft til afgreiðslu- starfa í ca 50% stöðu. Skriflegar umsóknir sendist til afgreiðslu Fréttablaðsins merkt NÝFORM afgreiðsla. Iðnaðarmenn - Verkamenn - Tækjastjórnendur: Bygging álvers á Reyðarfirði hefst í mars Hafist hefur verið handa við ráðningar. Okkur vantar vana verk- stjóra og starfsmenn í eftirfarandi iðngreinum: • Stálsmíði • Húsasmíði • Málmsuðu • Vélvirkjun • Rafvirkjun Á byggingatímanum sem nær til ársloka 2007 verður þörf fyrir fjöldann allan af iðn- aðarmönnum og aðstoðarmönnum ásamt tækjastjórnendum. Þeir sem áhuga hafa á störfum við byggingu álvers á Reyðarfirði eru vinsamlega beðnir um að leggja inn umsókn. Þeir sem þegar hafa lagt inn umsókn eru vinsamlega beðnir um að hafa samband í síma 470 7595. Á skrifstofunum eru veittar upplýsingar um störfin og annað sem að þeim lýtur. Þar er einnig hægt að nálgast umsóknareyðublöð, sem og á heimasíðunni. Ráðningarstofan á Reyðarfirði Búðareyri 2 730 Reyðarfirði Sími 470 7599 Eyðublöð og upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu Fjarðaáls, www.fjardaalproject.is Á vegum Alcoa byggir Bechtel International Inc. álver á Reyðarfirði. Bechtel er yfir 100 ára gamalt bandarískt verktaka- fyrirtæki með starfsemi um heim allan. Fjarðaál er hannað og byggt í samstarfi við HRV sem samanstendur af nokkrum fremstu fyrirtækjum á Íslandi á sviðinu, Hönnun, Rafhönnun og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Ráðningarstofan í Reykjavík Suðurlandsbraut 4 108 Reykjavík Sími 470 7400 Einnig vantar: • Tækjastjórnendur • Vörubílstjóra • Verkamenn 8 ATVINNA Togarastemning í Greiningardeildinni Strákarnir í Greiningardeild KB banka kvarta ekki yfir leiðindum í vinnunni sinni þótt leikmenn botni hvorki upp né niður í hvað þeir eru að gera allan liðlangan daginn. Svipmyndir í fréttum sýna ábúðarmikla stráka grúfa sig yfir tölvurnar sínar en hvað eru þeir eiginlega að rýna í? Steingrímur Finnsson er hag- fræðingur og einn starfsmanna Greiningardeildar. Hann kippir sér ekkert upp við heimskuleg- ar spurningar blaðamanns og segist ekki vera hissa þó al- menningur skilji ekki alltaf um hvað Greiningardeildin snýst. „Þetta skiptist í þrjú horn,“ segir Steingrímur. „Í fyrsta lagi fylgjumst við með þróun efna- hagslífsins hérlendis og erlend- is, fylgjumst með gengi krón- unnar, atvinnuleysi, verðbólgu og erlendum stýrivaxtahækkun- um svo eitthvað sé nefnt. Á hverjum degi gefur svo Grein- ingardeild út fréttapistilinn ,,Hálffimm fréttir“, sem eru helstu fréttir um það sem er að gerast á mörkuðum á hverjum degi. Á um það bil þriggja mán- aða fresti gefur efnahagsgrein- ingin frá sér sérefni um afmark- að efni, síðast var til dæmis fjallað um orsakir hækkana á fasteignamarkaði að undan- förnu og haldinn kynningar- fundur þar sem mættu 300 manns.“ Steingrímur segir starfið afar skemmtilegt og alltaf eitt- hvað nýtt að gerast. „Þetta er aldrei tilbreytingar- laust því viðskiptaumhverfið er svo spennandi og dýnamískt. Við erum þrír hagfræðingar í deildinni og reynum að vera á tánum og fylgjast með öllu. Svo fer alltaf tími í að sinna miðlur- unum okkar sem eru að selja út- lendingurm skuldabréf, en þeir vilja hafa greiðan aðgang að hagfræðingum.“ Steingrímur var strax í menntaskóla áhugasamur um tölur og hagfræði og eftir að hafa tekið hagfræðikúrs var framtíð hans ráðin. Nú er hann með BS-gráðu í greininni. Hann segir samt mjög skiljanlegt að fólk sé oft áttavillt í fjármála- frumskóginum. „Maður tekur það oft sem gefið að fólk skilji almenn hugtök eins og stýri- vexti og verðbólgu. Það er ekk- ert sjálfsagt. Það er ekki einu sinni skrýtið þó fólk kunni ekki skil á samspili vaxta og gengis.“ Steingrímur segir móralinn á vinnustaðnum mjög góðan og í hádeginu hittist menn og lesi upp úr DV. „Ég var einu sinni á sjó og þetta er hálfgerð tog- arastemning hjá okkur. Þetta eru hressir strákar og ekkert nema gott um móralinn að segja.“ ■ Steingrímur Finnsson hagfræðingur nýt- ur hverrar mínútu í vinnunni og finnst hver dagur spennandi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.