Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.03.2005, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 06.03.2005, Qupperneq 64
36 6. mars 2005 SUNNUDAGUR Þessa dagana er að koma í bóka- búðir ný kilja eftir Lisu Mark- lund. Bókin heitir Hulduslóð og er hún sönn saga um heimilis- ofbeldi. „Þessi saga er sakamálasaga alveg eins og hinar bækurnar hennar, nema þarna er engin lögga að leita og það er líka spurn- ing hvort glæpur er framinn,“ segir Anna R. Ingólfsdóttir, sem hefur þýtt bækur Lizu Marklund á íslensku. Marklund hefur skrifað fimm spennusögur þar sem aðalsögu- hetjan er blaðakonan Annika Bengtson, sem kynnist ýmsum skuggahliðum samfélagsins um leið og hún lendir í spennandi ævintýrum. Bækurnar hafa allar notið gíf- urlegra vinsælda og gerðar hafa verið kvikmyndir eftir tveimur þeirra. Blaðakonan Annika er ekki söguhetjan í Hulduslóð, heldur Maria Erikson, jafnan kölluð Mia, sem jafnframt er meðhöfundur Lizu að bókinni. „Þær segja einfaldlega frá því sem gerðist. Þær eru ekkert að dæma neinn eða túlka atburðina, en frásögnin er samt öll sögð frá sjónarhorni Miu. Hún verður ást- fangin af manni og eignast barn með honum. Hún treystir honum algerlega.“ Maðurinn reynist ekki trausts- ins verður. Hann beitir Miu of- beldi og heldur áfram að ofsækja hana eftir að hún fer frá honum. „Síðan kynnist hún öðrum manni sem verður samherji henn- ar í þessu. Hann verður líka fyrir ofbeldi. Þessi maður gengur enn þá laus í Svíþjóð. Hún flúði land og getur aldrei aftur snúið til Sví- þjóðar. En honum er alltaf hjálpað af því hann á svo bágt andlega.“ Liza Marklund skrifar bókina eins og spennusögu. Frásögnin er hröð og lífleg og lesendur átta sig smám saman á því sem er að gerast. „Þetta er í raun og veru ná- kvæmlega það sama og er að ger- ast í hinum bókunum hennar, t.d. í Úlfinum rauða, nema þarna er Annika ekki söguhetjan. Liza er alltaf að skrifa um það hvernig ungt og saklaust fólk flækist inn í ofbeldi, algerlega grandalaust. Það sem ég les alltaf út úr bókun- um hennar er: Varaðu þig, svona getur þetta farið hjá þér.“ Hulduslóð er fyrsta bókin sem Liza Marklund skrifaði. Hún kom út á sænsku árið 1995 og hefur selst í hálfri milljón eintaka í ell- efu löndum. Framhaldið kom síð- an út í fyrravor, tíu árum seinna. „Þar segja þær frá því hvernig Miu reiddi af í útlegðinni. Hún fékk á endanum hæli í Bandaríkj- unum vegna heimilisofbeldis árið 2000, sem var mjög merkilegt. Með þessu var í rauninni brotið blað í réttarsögu Bandaríkjanna.“ Framhaldið kemur út á ís- lensku í september og mun fá heitið Friðland í þýðingu Önnu. „Þá verð ég búin að ná henni Lizu. Þá hef ég þýtt allar bækurn- ar hennar,“ segir Anna, sem hefur reyndar ekki ákveðið hvort hún ætlar að þýða næstu bók Lizu Marklund, sem enn er í vinnslu. „Hún er að skrifa bók núna um sænska framakonu. Ég held að það sé kona í stjórnmálum, en þetta verður ekki nein glæpa- saga.“ ■ Kólumbíski rithöfundurinn Gabriel Garcia Marquez fæddist á þessum degi árið 1928. Í barnæsku sagði amma hans hon- um furðusögur og setti þær fram sem blákaldar staðreyndir. Ömmusögurnar urðu honum drjúgt veganesti á rithöfundarferl- inum. Meðal þekktustu verka hans eru Ástin á tímum kóler- unnar, Frásögn um margboðað morð og Hundrað ára einsemd. Já: Ég er vistmaður á hæli; hjúkrunarmaðurinn minn fylgist með mér, hann hefur vart af mér augun og það er gægjugat á hurðinni, en hjúkrunarmaðurinn er brúneygður og sér ekki í gegnum mig, bláeygðan manninn. Upphaf Blikktrommunnar eftir Gunter Grass. ANNA R. INGÓLFSDÓTTIR Er langt komin með að þýða allar bækur Lizu Marklund. Brotist úr viðjum ofbeldis LIZA MARKLUND: FYRSTA BÓK SÆNSKA SPENNUSAGNAHÖFUNDARINS ER KOMIN ÚT Í ÍSLENSKRI ÞÝÐINGU LISTMUNAUPPBOÐ verður haldið í kvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal Boðin verða upp um 160 verk, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna. Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14 – 16, í dag kl. 12.00 – 17.00. Sími 551 0400 Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is Námskeið um Nietzsche Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og Þjóðleikhúsið standa fyrir námskeiði um nýtt leikrit Birgis Sigurðssonar, Dínamít. Námskeiðsdagar: Þri. 8/3 Þri. 15/3 Þri. 22/3 "Ég er ekki maður. Ég er dínamít." Fyrirlesarar: Hlín Agnarsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins og umsjónarmaður námskeiðins Birgir Sigurðsson, höfundur verksins Stefán Baldursson, leikstjóri verksins Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur Auk fyrirlestra, verður litið inn á æfingu á verkinu, boðið upp á umræðufund í tengslum við námskeiðið og sýninguna auk þess sem þátttakendur fá miða á sýningu á Dínamíti í Þjóðleikhúsinu. Námskeiðsgjald: 16.200 Skráning og nánari upplýsingar fást hjá EHÍ - www.endurmenntun.is BÓKASKÁPURINN Þýskir kepptu um Sjón Það hefur allt verið brjálað í herbúðum bókaforlagsins Bjarts eftir að Sjón hreppti Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Skugga-Baldur en þaðan berast þær fréttir að verðlaunin þyki greinilega slíkur gæða- stimpill að forlög um víða veröld séu farin að falast eftir verkinu. Þannig kepptust fimm þýsk forlög um útgáfuréttinn á fimmtudag í æsilegu yfirboðskapphlaupi þar sem ekkert var gefið eftir. Nú hafa þegar verið undirritaðir samningar um útgáfu bókarinnar í Svíþjóð, Ítalíu, Dan- mörku, Finnlandi, Færeyjum og Noregi. Enn á eftir að ganga til samn- inga við Hollendinga, Englendinga, Spánverja og Frakka en útgáfufélög frá þessum löndum hafa lýst áhuga sínum á bókinni þannig að Baldur Skuggason á líklega eftir að tala flest Evrópumál á árinu ef Guð lofar. Teiknaðir eðalreyfarar Efist einhverjir um að myndasögur séu fullþroskuð bókmenntagrein ættu þeir hinir sömu að kynna sér svart/hvíta og harðsoðna reyfara Franks Miller um líf og dauða ógæfufólks, vændiskvenna og andhetja með gullhjörtu í sagna- bálknum sem kenndur er við Sin City. Bækurnar eru sjö talsins; The Hard Goodbye, A Dame to Kill for, The Big Fat Kill, That Yellow Bastard, Family Valu- es, To Hell and Back og Booze, Broads, & Bullets. Bækurnar hafa verið ill- eða ófáanlegar um nokkurt skeið en þar sem kvikmynd byggð á þremur bókanna er væntanleg í sumar er endurútgáfa á bókunum hafin. Þrjár þeirra eru þegar komnar í myndasöguverslunina Nexus og afgangurinn er væntanlegur. Bækurnar eru í minna broti en þær hafa áður verið en hráar teikningarnar taka sig ákaflega vel út í nýju umbúðunum. Blikktromman eftir Nóbelsverð-launahafann Günter Grass er komin út í kilju hjá Máli og menningu í þýðingu Bjarna Jóns- sonar. Bókin er eitt af höf- uðverkum heimsbók- mennta 20. aldar. Hún var fyrsta skáld- saga Günters Grass, varð metsölubók í mörgum löndum, og eftir henni gerði Völker Schlöndorf magnaða Óskarsverðlaunakvikmynd. Blikk- tromman er sjálfsævisaga Óskars sem er þrítugur þegar sagan hefst og vistaður á geðveikrahæli. Hann var þriggja ára þegar hann ákvað að hætta að stækka. Þannig mark- ar hann sérstöðu sína í hverfulum heimi og slær blikktrommu sína ákaft og af ástríðu á meðan nas- isminn marsérar fram á sviðið. Hjá Máli ogmenningu er komin út í kilju skáldsag- an Náðarkraft- ur eftir Guð- mund Andra Thorsson. Bók- in kom áður út árið 2003 og hlaut einróma lof gagn- rýnenda. Náð- arkraftur er fjölskyldusaga þar sem komið er saman við píanóið á kvöldin. Hjá Máli ogmenningu er einnig komin út í kilju Siðprýði fallegra stúlkna. Þetta er þriðja bókin um kven- spæjarann knáa Precious Ramotswe eftir Alexander McCall Smith. Helga Soffía Einarsdóttir þýðir. NÝJAR BÆKUR LIZA MARKLUND Fyrsta bók hennar, Hulduslóð, er sönn saga um heimilisof- beldi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL LI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.