Fréttablaðið - 06.03.2005, Blaðsíða 65
SUNNUDAGUR 6. mars 2005 37
Glæsilegar bækur um
afrek mannsins
Vísanir í
tengt efni
í bókinni
Spennandi fróðleiksmolar
Áhugaverðar tilvitnanir
Bent á frekara lesefni
Saga vísindanna frá upphafi
Aðgengileg og ríkulega myndskreytt bók um
sögu vísindanna. Greint í máli og myndum
frá 250 merkum vísindaafrekum frá upphafi
vega til dagsins í dag. Einstæð og yfirgrips-
mikil sýn á það hvernig skilningur mannsins
á umhverfi sínu hefur þróast í tímanna rás.
528 bls.
300 myndir
Tilboðsverð
3.490 kr.
400 bls.
1000 myndir
verð aðeins
4.990 kr.
Í líflegum texta og áhrifaríkum myndum er hér fjallað um 175
lykilhugmyndir sem hafa breytt heiminum frá árdögum til
okkar daga. Hugmyndir sem breyttu heiminum er bók sem hristir
rækilega upp í okkur og breytir sýn okkar á lífið og tilveruna.
Skemmtileg fróðleiksnáma
Ný hugmynd á hverri opnu!
30%
afsláttur
í mars
Á hverri opnu er fjallað um eitt
vísindaafrek sem raðað er í tímaröð
Uppruni,
samhengi,
einkenni og
afleiðing skýrð á
skýran og mynd-
rænan hátt
Merkileg framfaraspor í
líffræði, eðlisfræði,
stjörnufræði, heimsfræði,
jarðfræði, læknisfræði og
stærðfræði.
edda.is
Bókin Ekkert mál eftir þá feðga
Njörð P. Njarðvík og Frey Njarð-
arson er komin út í kilju. Bókin
kom fyrst út árið 1984 og vakti
gríðarlega athygli á sínum tíma,
enda opinskárri og einlægari
lýsing á heimi eiturlyfjaneytand-
ans en áður hafði sést í íslenskum
bókmenntum.
„Upphaflega var ekki hugmynd-
in að skrifa bók. Ég vildi bara skilja
og vita hvað hafði komið fyrir
drenginn minn,“ segir Njörður um
tilurð bókarinnar í byrjun níunda
áratugarins, en á þeim árum voru
fíkniefni fremur nýtt fyrirbæri og
fólk ekki mikið í eiturlyfjum.
„Þá uppgötva ég að sonur minn
er orðinn heróínneytandi sem
kom eins og reiðarslag. Eftir að
við náðum Frey heim bað ég hann
að segja mér frá, því ég vildi
skilja hvað hafði gerst, og af ein-
hverjum ástæðum tók ég samtöl
okkar inn á segulband. Þegar við
vorum búnir að tala saman kvikn-
aði sú hugmynd að eitthvert gagn
gæti verið af því að koma þessari
frásögn í bók.“
Tveimur áratugum síðar,
haustið 2004, sendu þeir feðgar
frá sér bókina Eftirmál, þar sem
segir frá afdrifum heróínfíkilsins
og fjölskyldu hans. Njörður segir
ástandið í fíkniefnaheiminum
miklum mun verra nú en þegar
fyrri bókin var skrifuð.
„Fyrri bókin lýsir þessum
heimi eins og hann var fyrir 22
árum í Kaupmannahöfn, en hin
síðari er skrifuð þegar Freyr
kemur heim illa haldinn eftir
heróínneyslu í Hollandi og lýsir
fíkniefnaheiminum eins og hann
var fyrir tveimur árum í Amster-
dam. Þetta eru gjörbreyttir tímar,
enda talið auðveldara fyrir ungt
fólk í dag að ná í eiturlyf en
áfengi.“
Það er JPV útgáfa sem endur-
útgefur Ekkert mál í kilju, svo les-
endur seinni bókarinnar geti nálg-
ast efnið frá byrjun. Báðar bæk-
urnar eru skrifaðar af hugrekki
og hæfileikum til að snúa per-
sónulegum harmleik í listræna
frásögn.
„Foreldrar þurfa að gæta
barna sinna og börn þurfa að gæta
að sjálfum sér. Í bókunum er
engin prédikun; þær lýsa þessum
heimi bara eins og hann er,“ segir
Njörður og bætir við að bækurnar
séu fyrir alla.
thordis@frettabladid.is
FEÐGARNIR FREYR NJARÐARSON OG NJÖRÐUR P. NJARÐVÍK Skrifuðu tvær bæk-
ur um heróínneyslu Freys með tveggja áratuga millibili. Sú fyrri, Ekkert mál, kom út í kilju
á dögunum.
Ég vildi skilja hvað kom fyrir
drenginn minn
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
SKUGGA-BALDUR
Sjón
KARLMANNAHANDBÓKIN
Barbara Enander
TANTRA FYRIR ELSKENDUR
Anne Johnson
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
BELLADONNA SKJALIÐ
Ian Caldwell
SKUGGA-BALDUR
Sjón
FÓLKIÐ Í KJALLARANUM
Auður Jónsdóttir
350 STOFUBLÓM
Rob Herwig
HVALIR VIÐ ÍSLAND
Mark Carwardine
BAKAÐ ÚR SPELTI
Fríða S. Böðvarsdóttir
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
SKUGGA BALDUR
Sjón
SÁLMABÓK
Ýmsir höfundar
BELLADONNA SKJALIÐ
Ian Caldwell
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
KONAN SEM MAN
Linda Ley Shuler
STÚLKA M. PERLUEYRNALOKKA
Tracy Chevalier
KARÍTAS ÁN TITILS
Kristín Marja Baldursdóttir
DAUÐANS ÓVISSI TÍMI
Þráinn Bertelsson
PADDY CLARKE HA HA HA
Roddy Doyle
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
Listinn er gerður út frá sölu dagana
23.02.05 – 01.03.05 í Bókabúðum Máls og
menningar, Eymundsson og Pennanum.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]