Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 18
18 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Ræddi ekki vi› Daví› um VÍS Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra segist aldrei hafa rætt átök um eignarhald á VÍS við Davíð Oddsson. Hann kveðst hafa rætt símleið- is við fulltrúa Kaldbaks og S-hópsins, sem báðir vildu verða gjaldgengir kaupendur ríkisbank- anna. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra neitar því algerlega að af greinarflokki Fréttablaðsins um einkavæðingu ríkisbankanna megi ráða að hann og Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, hafi handstýrt sölu þeirra til kaupenda sem þeir höfðu velþóknun á. „Það er ekki rétt. En ég vil fyrst segja, að þarna eru ýmsar fullyrð- ingar og það hefur engin tilraun verið gerð til þess að leita upplýs- inga hjá mér eða hjá því fólki sem vinnur fyrir mig í þessu máli. Og ég undrast það að slík vinnubrögð skuli viðhöfð. Þetta mál er tiltölulega einfalt. Það var reynt, sérstaklega árið 2001, að fá kjölfestufjárfesta inn í bankana. Einkum var reynt við er- lenda aðila og það gekk ekki. Síðan gerist það um mitt ár 2002 að það kemur bréf frá Samsonarmönnum um áhuga á kaupum á öðrum bank- anum. Það varð að bregðast við þessu erindi því það var kærkomið að slíkur áhugi skyldi vera fyrir hendi og að þarna kæmi inn kjöl- festufjárfestir með erlent fjár- magn. Í framhaldi af því var ákveð- ið að auglýsa bankana til sölu þannig að það ferli væri algerlega opið eins og nauðsynlegt var. Fimm aðilar sýndu þessu áhuga. Og HSBC-bankinn og framkvæmda- nefndin um einkavæðingu mæltu með því að gengið yrði til viðræðu við þrjá aðila en tveir uppfylltu ekki skilyrðin. Síðan hófst þetta mál, fyrst með viðræðum við alla sem leiddu til viðræðna við Samsonar- menn. Í framhaldinu var rætt við hina tvo sem endaði með samning- um við annan aðilann. Ég er þeirrar skoðunar, að þegar litið er til baka hafi einkavæðing bankanna tekist mjög vel. Hún hefur skipt mjög miklu máli fyrir framvindu í ís- lensku efnahagslífi. En auðvitað hefðum við viljað sjá meiri áhuga á bönkunum á þessum tíma og að fleiri hefðu boðið í þá eins og nú er að gerast með Símann.“ Var beðinn um að ræða við fulltrúa Kaldbaks og S-hópsins Af greinaflokki Sigríðar Daggar Auðunsdóttur í Fréttablaðinu má ráða að Halldór Ásgrímsson hafi rætt við fulltrúa Kaldbaks og S- hópsins um hugsanlega þátttöku um tilboð í ríkisbankanna. Spyrja má hvort það hafi verið sérstakt áhuga- mál Halldórs að þessi fjárfestinga- félög gerðu sameiginlegt tilboð. „Jóhannes Geir Sigurgeirsson óskaði eftir fundi með mér fyrir hönd nokkurra aðila. Og ég gat ekki orðið við þeirri beiðni vegna þess að ég var upptekinn við fundi úti á landi, var síðan að fara erlendis og stóð til að ég yrði lengi í burtu. Og ég spurði hvort þeir gætu ekki hringt í mig. Og þeir gerðu það. Ég sagði þeim einfaldlega að þeir stjórnuðu sínum eigin málum og ef að þeir vildu verða vissari um að báðir aðilar kæmust að málinu væri líklegasta leiðin til þess, að þeir stæðu sameiginlega að því og bæðu sameiginlega um samninga um mál- ið. Og það getur nú í sjálfu sér hver sagt sér það. Ég hef alltaf verið áhugamaður um að sem mest breidd væri í eignaraðild að ís- lensku fjármálalífi. Þeir komu sér ekki saman og ég hafði ekkert um það að segja. Það var þeirra mál. Ég neita venjulega ekki samtölum við fólk í mikilvægum málum og það voru margir sem báðu um samtöl við mig út af þessum málum á sín- um tíma. Ég veitti þau samtöl. Síðan gerðist það að ég fór algerlega út úr þessu vegna minna veikinda þannig að mikið af því sem gerðist á síðari stigum var í minni fjarveru. Ég tel að félögum mínum í ríkisstjórninni hafi tekist vel að ljúka þessu máli. Menn verða að átta sig á því að auð- vitað eru það ráðherrar sem taka endanlegar ákvarðanir. Það eru ekki ráðgjafar eða embættismenn. Það eru ráðherrarnir sem bera ábyrgð á málum. Mér finnst stund- um að það sé látið í það skína að embættismennirnir og ráðgjafarnir eigi að taka allar ákvarðanir. Ef þannig stjórnarhættir væru þyrfti ekki ríkisstjórn.“ Hótaði aldrei stjórnarslitum og ræddi ekki við Davíð um VÍS Tengsl viðskiptalífsins og stjórn- málanna um áratugi eru kunn, en í greinaflokki Fréttablaðsins vekur athygli svonefnt sex daga stríð um Vátryggingafélag Íslands, VÍS. Freistandi er að túlka þetta sem átök á grundvelli einhvers konar helmingaskiptareglu Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks í gegn um tíðina. „Það er algerlega út í hött,“ segir Halldór. „Landsbankinn ákvað á sínum tíma að kaupa hlut í VÍS og síðan gekk aðilum illa að koma sér saman um hvernig þessu fyrirtæki skyldi stjórnað. Þetta mál var síðan rekið á vettvangi þessara aðila. Því er haldið fram í þessum greinar- flokki að ég hafi hótað stjórnarslit- um út af þessu máli. Það hef ég aldrei gert. Því er líka haldið fram að ég hafi átt sérstakan fund með Davíð Oddssyni um þetta mál. Sá fundur hefur aldrei átt sér stað. Og ég minnist þess aldrei að við Davíð höfum talað um þetta mál. Ég hef spurt hann, hvort hann myndi eftir að við hefðum rætt þetta mál. Hann sagði nei. Þannig að við ræddum þetta mál aldrei okkar í milli. Þetta var á borði annarra manna. Og það var leyst eftir því sem ég best veit á viðskiptalegum grundvelli. Þannig var það. Fréttablaðið hefði getað borið þetta undir mig. En það var ekki gerð nein tilraun til þess.“ Farið eftir settum reglum Margt bendir til þess að umtalsverð átök hafi verið um einkavæðingu bankanna á stjórnarheimilinu og þá oddvita stjórnarflokkanna. „Það hafa engin átök verið okkar í milli út af þessu máli,“ segir Hall- dór. „Við höfum í þessu máli eins og í öðrum stórum málum farið yfir það með okkar ráðgjöfum og við höfum reynt að leysa það eftir bestu getu og það hefur verið gert. Síðan hefur Ríkisendurskoðun farið yfir allt þetta mál og skilað um það skýrslu. Skýrslan er nú uppistaðan í þessari frásögn Fréttablaðsins og í sjálfu sér ekkert nýtt í því.“ Engu að síður verður að telja að eitthvað gangi á þegar menn eins og Hreinn Loftsson og Steingrímur Ari Arason yfirgefa einkavæðingar- nefndina og tala um forkastanleg vinnubrögð. Gera þeir það vegna þess að stjórnmálamennirnir, ráð- herrarnir, eru að blanda sér á ein- hvern óhæfilegan hátt inn í þetta ferli? Halldór kveðst ekkert vita um það. „Ég hef aldrei talað við Stein- grím Ara Arason og Hrein Loftsson um þessi mál og þekki það ekki. En það var í framhaldi af afsögn Stein- gríms Ara að Ríkisendurskoðun var beðin um að fara yfir málið. Hún skilaði skýrslu um það og taldi að farið hefði verið að settum regl- um,“segir Halldór Ásgrímsson. ■ Viðey hefur verið óvenjulega mikið í fréttum að undanförnu. Í byrjun maí var það í fréttum að Guðmundur Gestsson taldi að Reykjavíkurborg hefði staðið óheiðarlega að útboði Viðeyjarferjunnar þegar samið var á ný við aðilann sem hefur rekið ferjuna síðastliðin tólf ár. Guðmundur taldi sitt útboð það hag- stæðasta. Um svipað leyti var greint frá deilum á milli veitingamannsins sem rak Viðeyjarstofu, Steinars Davíðssonar, og Árbæjarsafns vegna vangoldinnar húsaleigu Steinars sem lauk með því að Árbæjarsafn rifti samningnum við hann. Síðan hefur veitingamaðurinn á Múla- kaffi tekið við rekstrinum. Í síðustu viku greindi borgarstjórnar- flokkur Sjálfstæðisflokksins svo frá fram- tíðaráætlunum sínum um að tengja Viðey við land með brú og mögulega byggð á austurhluta eyjunnar en eyjan hefur ekki verið í byggð síðan þorpið sem þar var lagðist af árið 1943. Hug- myndin um landtengingu Viðeyjar er þó ekki ný af nálinni því nokkuð hefur verið deilt um hana á liðnum árum. Fuglafræðingurinn Jóhann Óli Hilmars- son gagnrýndi áætlanirnar í kjölfarið með þeim rökum að eyjurnar fyrir utan ströndu Reykjavíkur væru of lágar til að óhætt væri að byggja þær. Jóhann sagði að í flóði gætu eyjarnar horfið undir sjó og minntist á Básendaflóðið 1799 þar sem sjór flæddi yfir hálft Seltjarnarnes- ið. Í þessari viku hefur svo áhugamaður um Viðey, Örlygur Hálfdánarson, greint frá þeim áhyggjum sínum að eyjan sé að skolast burt vegna landrofs sem hann segir afleiðingu af dýpkunarfram- kvæmdum í Sundahöfn. Síðastliðinn mánuður í sögu Viðeyjar hefur því verið nokkuð róstusamur því harðar umræður hafa staðið um eyjuna og málefni tengd henni. Karp, brú, bygg› og landrof FBL-GREINING: VIÐEY Dr. Þorbjörn Broddason telur frétta- miðla best setta í eign þeirra sem aðeins hafa hagsmuni af fjölmiðla- rekstri. Er eftirsóknarvert fyrir fjölmiðla að eiga gagnaveitur eins og Sím- ann? Það er augljóst að gagnaveit- ur vilja eiga fjölmiðla. En því minna sem eignarhald á fréttamiðli bland- ast saman við eignarhald á einhverj- um öðrum rekstri, þeim mun frjáls- ari og sjálfstæðari er fjölmiðilinn. Það eru allt of mörg dæmi þess hvernig hagsmunir eigenda á ein- hverjum öðrum vettvangi geta leikið fjölmiðilinn grátt. Besti kosturinn er að fréttamiðillinn sé í eigu einhvers sem hefur ekki áhuga eða hagsmuni af neinu öðru en að reka fréttamiðil. Þess vegna sé ég engan hag í því að miðilinn eigi gagnaveitu frekar en til dæmis mjólkurbú eða álver. Hvað gerist þegar búið verður að selja Símann? Nýir eigendur sækj- ast eftir að eiga hlut í fjölmiðlum og það er fjölmiðlunum ekki til neinnar blessunar. Nýju eigendurnir verða uppteknir af því að tryggja efnis- flutning um sínar gagnaveitur. Hags- munir fjölmiðils eiga bara að vera hagsmunir almennings. Og það er ekkert gefið að hagsmunir almenn- ings og hagsmunir þessa nýja fyrir- tækis fari alltaf saman. ÞORBJÖRN BRODDASON Vilja dagskrá í gagnaveitu SALA SÍMANS SPURT & SVARAÐ Traustur tækjabúnaður Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur Sími 535 3500 · Fax 535 3509 www.kraftvelar.isVíbratorar og dælur Jarðvegsþjöppur Malbikunarvélar Fræsarar JÓHANN HAUKSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTAVIÐTAL EINKAVÆÐING BANKANNA HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Því er líka haldið fram að ég hafi átt sérstakan fund með Davíð Oddssyni um þetta mál. Sá fundur hefur aldrei átt sér stað. Og ég minnist þess aldrei að við Davíð höfum talað um þetta mál.“ LEIKMUNUR Sprengja fannst í Heiðmörk síðdegis á mánudag. Lögreglan og Víkinga- sveitin voru kallaðar á vettvang. Við athug- un kom í ljós að um leikmun var að ræða en ekki sprengju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.