Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 30
Dögg Hjaltalín skrifar Magnús Þorsteinsson hyggst selja hlut sinn í Samson en hann segist aðspurður ekki vita hvert verð- mæti hlutarins sé. Ef miðað er við núverandi markaðsvirði Lands- bankans og Burðaráss, sem Sam- son á stóran hlut í, er hlutur Magnúsar um 12 milljarðar króna. Ekki liggur fyrir hversu mikið Samson skuldar á móti eignum sínum. Samson eignar- haldsfélag, sem á tæpan 45 pró- senta hlut í Landsbankanum og Samson Global Holding, sem á tæp 20 prósent í Burðarási, hafa til þessa verið í eigu þeirra Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, Björg- ólfs Guðmundssonar og Magnús- ar en nú skilja leiðir. Magnús átti 14,5 prósenta hlut í Samson. Samson Global Holding átti upphaflega hlut í Straumi Fjár- festingarbanka en hann var seld- ur að hluta til í skiptum fyrir hlut í Eimskipi haustið 2003. Félagið bætti svo við sig og nú seinast kom það að kaupum Burðaráss á Kaldbaki. Samson keypti Landsbankann á tæpa 12 milljarða króna og því hefur hlutur Magnúsar numið tæpum tveimur milljörðum á þeim tíma. Virði hlutar hans í Landsbankanum er nú hátt í 10 milljarða króna. Gengi bréfa í Landsbankanum hefur fjórfaldast síðan Samson keypti fyrir rúmum tveimur árum. Gengi bréfa í Burðarási hefur tvöfaldast frá því að Samson byrjaði að kaupa seinni part ársins 2003. Samson-félögin verða eftir viðskiptin eingöngu í eigu Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors. Magnús Þorsteinsson á um 75 prósenta hlut í Avion Group og er hann stjórnarformaður fyrir- tækisins. Einnig situr Magnús í stjórn Actavis og Eddu. Í frétta- tilkynningu um áætlaða sölu segir að Magnús hyggist með þessari ákvörðun einbeita sér að fjárfest- ingum í almennri flutningastarf- semi og flugrekstri. Magnús er aðaleigandi Avion Group, sem á og rekur flugfélögin Air Atlanta og Excel Airways. Vika Frá áramótum Actavis -10% 5% Atorka -1% 2% Bakkavör 2% 45% Burðarás -2% 17% Flaga Group -1% -19% FL GROUP -2% 46% Íslandsbanki -2% 17% Kaupþing Bank hf. -1% 19% Kögun -1% 32% Landsbankinn -1% 34% Marel 0% 15% Og fjarskipti -3% 28% Samherji 0% 9% Straumur 0% 24% Össur -4% 1% *Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Eign Magnúsar í Sam- son um 12 milljarðar Ekki er endanlega búið að ganga frá sölu Magnúsar Þor- steinssonar á hlut hans í Samson eignarhaldsfélagi og Samson Global Holding. Félögin eiga hluti í Landsbankan- um og Burðarási fyrir um 80 milljarða króna. 410 4000 | www.landsbanki.is Við færum þér fjármálaheiminn Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Kynntu þér málið á www.landsbanki.is Útbreiðsla dag- blaða í heim- inum jókst á síðasta ári um rúm tvö prósent. , , Þ e t t a hefur verið frá- bært ár fyrir blaðaútgáfu,“ sagði Timothy Balding, talsmaður Alþjóða- samtaka dagblaða, og bætti við: ,,Það er langt síðan við höfum séð svona sölutölur. Það er greinilegt að dagblöð eru í mikilli sókn í heiminum“. S a l a a u g l ý s - inga í dag- blöð jókst á sama tíma- bili um fimm prósent og hefur ekki verið meiri síðan árið 2000. Daglega seljast 395 milljónir dag- blaða í heiminum, þar af um fjórðungur í Kína. -jsk Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, segir aðra aðila hafa sýnt félaginu áhuga en betra verð fáist nú fyrir Eimskip en áður hafi verið boðið. Fyrir fjórum mánuðum höfðu forsvarsmenn FL Group áhuga á að kaupa Eimskip af Burðarási en ekkert varð af því. Verðhug- myndir Burðaráss voru mun hærri en væntanlegir kaupendur voru tilbúnir að greiða. Þeir vildu greiða um 20 milljarða samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins en Burðarás vildi fá mun hærri fjárhæð fyrir Eim- skip. Verðið sem Avion greiddi fyrir Eimskip er því með hærra móti en Burðarás fær þó ekki allt söluvirðið greitt í peningum. Avion greiðir um níu milljarða með bréfum í félaginu. Virði Eimskips samkvæmt greiningardeildum bankanna hefur verið í kringum 20 millj- arða að undanförnu. Greiningar- deild Íslandsbanka sendi frá sér verðmat í gær sem hljóðaði upp á 21 milljarð króna. Landsbankinn mat Eimskip á um 19 milljarða á síðasta ári. KB banki hefur ekki sent frá sér verðmat. -dh Betra verð en áður hefur verið boðið Verðið nokkuð hærra en verðmat bankanna en á móti kemur að greiðslan er að hluta til í bréfum í Avion Group. Lykilmenn selja í Nýherja Verð á hlutabréfum í norska lax- eldisfyrirtækinu Pan Fish hækk- aði um fimmtung í norsku kaup- höllinni á mánudag. Félagið seldi nýtt hlutafé fyrir 200 millj- ónir norskra króna þar sem eft- irspurn var fjórum sinnum meiri en framboð. Upphæðinni verður varið til að endurfjár- magna félagið. Sérfræðingar spá því að félagið verði jafnvel yfirtekið en mikið skattalegt hagræði getur fylgt því að yfir- taka það. Henning Lund, hjá Kaupþing banka í Noregi, mælir með kaupum í Pan Fish að því er kemur fram hjá Dow Jones- fréttaþjónustunni. Bankinn segir að verðmatsgengi á félag- inu sé 1,5 norsk króna en loka- gengi mánudagsins var 1,33 norskar krónur. „Þetta er í fyrsta skipti í tvö ár sem mælt er með kaupum í Pan Fish,“ segir Valdimar Hall- dórsson, sérfræðingur hjá grein- ingu Íslandsbanka, en fyrirtækið hefur lækkað gríðarlega á undanförnum árum. „Verð á frystum og ferskum laxi hefur verið á uppleið og lítur út fyrir að það sé bjartara yfir rekstri Pan Fish en oft áður.“ - eþa MAGNÚS ÞORSTEINSSON, STJÓRNARFORMAÐUR AVION GROUP Ætlar að einbeita sér að fjárfestingum í almennri flutningastarfsemi. PAN FISH HÆKKAR Hlutafjárútboð Pan Fish gekk vel og var mikil umframeftir- spurn. Verð á hlutabréfum í Pan Fish hækkaði um 20 próesent á norska mark- aðnum í gær. Pan Fish hækkar mikið Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur hótað að rifta samningi sín- um við enska knattspyrnuliðið Manchester United, bæti liðið ekki frammistöðu sína. Samn- ingurinn er til þrettán ára og var undirritaður árið 2002. „Chelsea vann deildina á síðasta ári, Arsenal bikarinn og Liverpool Evrópukeppn- ina. Það er því hægt að halda því fram að Manchester United sé fjórða besta liðið á Englandi í dag“, sagði Ian Todd, varaforseti markaðsdeildar Nike. Samningurinn er metinn á 35 milljarða króna og er stærsti samningur sem íþróttavörufram- leiðandi hefur gert við knatt- spyrnulið. Í samningnum er kveðið á um að hann skuli endur- skoðaður sumarið 2008. Talið er fullvíst að Malcolm Glazer, hinn nýi eigandi Manchest- er United, sé ekki sátt- ur við þessa þróun, enda koma tólf prósent árstekna félagsins frá samningn- um við Nike. - jsk Nike hótar United Segist íhuga að rifta treyjusamningi sínum við Manchester United. DAGBLÖÐ Útbreiðsla dagblaða jókst í heiminum í fyrra. Daglega seljast 395 milljónir eintaka. Aukin útbreiðsla dagblaða Hóparnir verði klárir í júlí Tveimur vikum áður en fjárfest- ar skila inn bindandi tilboðum í Símann þurfa þeir að vera búnir að mynda fjárfestahóp með minnst þremur óskyldum aðilum. Þeir hópar þurfa að uppfylla skil- yrði einkavæðingarnefndar um eignatengsl eins og gilti um þá sem skiluðu inn óbindandi tilboð- um. Morgan Stanley sem aðstoðar einkavæðingarnefnd við sölu Símans, mun nú senda þeim tólf bjóðendum sem halda áfram í söluferlinu bréf þar sem þeim verður boðið að kynna sér svo- kallað gagnaherbergi Símans og halda kynningarfundi. Á grund- velli þeirrar vinnu munu bjóð- endur ákveða hvort þeir skili inn bindandi tilboðum og hvaða verð þeir bjóði í fyrirtækið. Samkvæmt einkavæðingar- ferlinu er miðað við að bindandi tilboð í Símann berist í lok júlí næstkomandi. – bg Nokkrir af æðstu yfirmönnum Nýherja hafa frá því í mars á þessu ári verið að selja hlutabréf sín í fyrirtækinu. Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, segist engar áhyggjur hafa af þessu. Menn hafi ýmsar ástæður fyrir því að selja. Ekki sé óeðlilegt að æðstu yfirmenn þurfi að losa um fé. Sumt af þessu hafi verið skammtímafjárfesting. Þorvaldur Jacobsen, fram- kvæmdastjóri kjarnalausna Ný- herja, sem seldi fyrir rúma millj- ón í fyrradag, segir að gengi hlutabréfanna hafi verið hag- stætt. Menn hafi verið að nýta sér það og ekkert annað felist í þessu. Í gær hafði gengi hlutabréfa í Nýherja hækkað um 20,6 prósent frá áramótum og var 12,5. - bg Dags. Nafn/staða Söluvirði* Virði** 30. maí Þorvaldur Jacobsen 1.353 100 frkvstj. kjarnalausna 19. maí Erling Ásgeirsson 30.750 0 frkvstj. notendalausna 25. apríl Tómas Jónsson 1.830 50 lögfræðingur 23. marsFriðrik Þ. Snorrason 417 0 markaðsstjóri 22. marsKristján Jóhannsson 1.718 0 frkvstj. hugbúnaðarlausna * Söluvirði í þúsundum króna ** Eign í þúsundum króna eftir viðskiptin V I Ð S K I P T I Y F I R M A N N A N N A ÞÓRÐUR SVERRISSON Menn eru að losa um fé. Fr ét ta bl að ið /E .Ó l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.