Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 40
Napóleon Bonaparte sagði eitt sinn að þegar
Kína vaknaði myndi jörðin skjálfa. Kína er
vaknað og íslenskt viðskiptalíf iðar af til-
hlökkun. Yfir 200 manna hópur úr íslensku
viðskiptalífi lagði leið sína til Kína í fylgd
með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís-
lands. Mörg fyrirtæki skrifuðu undir samn-
inga við Kínverja og gefa þeir samningar til
kynna að viðskipti milli landanna muni
aukast. Þessi viðskipti snúast um allt frá hita-
veitu til tísku, og vonandi allt þar á milli enda
eru tækifærin mýmörg.
Fylgd forseta Íslands skipti mjög miklu
máli að mati kínverskra fyrirtækja og fannst
Kínverjum merkilegt hversu mikinn áhuga
forsetinn sýndi fulltrúum fyrirtækjanna.
Ólafur Ragnar heimsótti fyrirtæki sem eru í
eigu og tengjast Íslendingum í Kína. Einnig
var hann viðstaddur undirritun ýmissa samn-
inga og töldu Kínverjar nærveru hans mjög
þýðingarmikla.
Íslendingar fluttu vörur fyrir um tíu millj-
arða frá Kína á síðasta ári. Þar af nam inn-
flutningur Norvikur-samstæðunnar um millj-
arði og Hagkaup flutti inn vörur fyrir á bilinu
700 til 900 milljónir. Oasis-verslun var opnuð
af Dorrit Moussaieff meðan á heimsókn for-
setans stóð. Stór hluti af vörum sem seldar
eru í verslunum Oasis er framleiddur í Kína.
Í Kína er markaður fyrir íslenskar vörur á
borð við fisk og svo má auðvitað líkja landinu
við verksmiðju heimsins.
NEYTENDUR FRAMTÍÐARINNAR
Á fundi á vegum sendiráðs Íslands í Kína og
Útflutningsráðs kynnti Þjóðverjinn Georg
Wuttke hvernig viðskipti í Kína fara fram og
hver árangurinn af þeim hefur verið. Wuttke
starfar hjá þýska fyrirtækinu BASF, sem
hefur átt viðskipti við Kínverja allt frá árinu
1885. Hann lagði áherslu á að Kínverjar
hefðu aukið mikið neyslu sína á flestum
vörum. Wuttke sagði að það blekkti mjög
ferðamenn að sjá Ferrari og aðrar glæsibif-
reiðar því að þær væru einungis toppurinn á
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN12
Ú T T E K T
Búast má við stórauknum viðskiptum Íslendinga við Kína í kjölfar heimsóknar forseta Íslands og yfir
200 manna viðskiptasendinefndar til Kína. Kínverjar verka meðal annars íslenskan fisk og sauma föt
fyrir íslensk fyrirtæki. Starfsemi fyrirtækja í eigu Íslendinga er orðin mjög alþjóðleg og tækifæri virð-
ast á hverju strái í Kína. En þó er ýmislegt sem ber að varast og íslenskir viðskiptahættir duga
skammt í Kína. Dögg Hjaltalín brá sér til Kína og fylgdist með dagskránni þar.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/K
G
B
, D
ög
g
KJARTAN ÓLAFSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI FAKTA, ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, FORSETI ÍSLANDS, DORRIT MOUSSAIEFF OG GUÐNI B. GUÐNASON, FRAMKVÆMDASTJÓRI ANZA, ÁSAMT KÍNVERJUM Í PEK-
ING Forsetahjónin stilltu sér upp með forsvarsmönnum íslenskra fyrirtækja og kínverskum gestum þeirra.
Kína er vaknað
Hagkerfið í
Kína er ein-
faldlega það
hagkerfi sem
vex hraðast í
heiminum. Til
dæmis útskrif-
ast 350 þúsund
verkfræðingar
í Kína á ári.
KÍNAMÚRINN Tákn um
hversu mikið stórveldi Kína
var fyrr á öldum.
Á VIÐSKIPTAÞINGI Í
PEKING VAR MARGT
UM MANNINN Fulltrúar
íslenskra og kínverskra
fyrirtækja ræða málin.