Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN14 F Y R I R T Æ K I F Ó L K Á F E R L I Einar Bárðarson, eigandi um- boðsskrifstofunnar Concert og umboðsmaður stúlknahljóm- sveitarinnar Nylon, segir besta ráð sem hann hafi fengið vera að vakna snemma á morgnana og leggja hart að sér það sem eftir lifi dags. Einar segir eldri félaga sinn hafa kennt sér þetta: „Hann hringdi einhverju sinni um hálf- tíuleytið og náði ekki í mig. Síðan frétti hann að ég hefði verið steinsofandi, hundskammaði mig og sagði menn aldrei ná árangri í lífinu nema með því að vakna snemma á morgnana og vera duglegir allan daginn“. Einar segist taka mikið mark á vininum dularfulla enda maður sem hafi náð langt í lífinu og viti hvað hann syngi: „Þetta hefur verið mér ofarlega í huga alla tíð síðan og reynst mér vel þótt ég segi sjálfur frá. Það þarf ekki alltaf að vera að flækja hlutina“. - jsk B E S T A R Á Ð I Ð Kínverska fyrirtækið Huawei Technologies er alls ekki dæmigert kínverskt fyrirtæki því það starfar í hátt í hundrað löndum og selur vörur sínar til margra stærstu fjarskiptafyrirtækja heims. Huawei skrifaði nýlega undir samning við Novator, félag í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar, um samstarf á sviði fjar- skiptatækja. Eins og kunnugt er ætlar Björg- ólfur sér stóra hluti í fjar- skiptafyrirtækjum í Evrópu. Hjá Huawei starfa 24 þúsund manns og þar af eru 3.400 erlendir starfsmenn. Huawei var stofnað 1988 og er fyrirtækið í einkaeigu og hefur alltaf verið. Starfsemi Huawei snýst um rannsóknir og þróun, framleiðslu og markaðssetningu á fjar- skiptatækjum og býður það upp á sérsniðnar lausnir fyrir fjarskiptafyrirtæki um allan heim. ÚTFLUTNINGUR TVÖFALDAST ÁRLEGA Huawei hefur verið alþjóðlegt fyrirtæki í mörg ár og selur nú til yfir 90 landa. Þar á meðal eru Indland, Bretland, Frakkland, Þýskaland, Spánn, Bandaríkin og Rússland. Samkvæmt kínverskum fjölmiðlum verð- ur sala fyrirtækisins á þessu ári 8,5 milljarð- ar dollara, tæplega 550 milljónir króna. Útflutningur Huawei verður meira en fimm milljarðar dollara á þessu ári, um 320 millj- arðar króna. Sala Huawei í fyrra nam 5,58 milljörðum dollara, sem er 45 prósenta aukning milli ára, þar af voru 2,28 milljarðar dollara af al- þjóðlegri sölu. Útflutn- ingur Huawei hefur meira en tvöfaldast á hverju ári frá árinu 1999 og er útflutning- ur nú meira en helm- ingur af allri veltu félags- ins og markar það ákveðin tímamót. Samstarfsaðilar fyrirtækisins eru yfir 400 og meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru 22 af 50 stærstu fjarskiptafyrirtækjum heimsins. Í BusinessWeek er fjallað um fyrirtækið undir fyrirsögninni; Huawei, meira en lókal hetja. Fjölmiðlar í Kína og víðar hafa sýnt fyrirtækinu mikinn áhuga. Jafnvel hefur því verið líkt við alþjóðarisann Cisco. ÁHERSLA Á RANNSÓKNIR OG ÞRÓUN Eitt af lykilatriðum í starfsemi Huawei er mikil áhersla á rannsóknir og þróun og vinn- ur nærri helmingur starfsfólks Huawei við rannsóknir og þróun. Á hverju ári fjárfestir Huawei meira en 10 prósent af sölutekjum í rannsóknir og þróun. Þetta er gert til að tryggja stöðugan og fullnægjandi vöxt og til að standa einu skrefi framar en samkeppnis- aðilarnir. Huawei leggur áherslu á að starfa í sam- vinnu við leiðandi alþjóðafyrirtæki bæði í framleiðslu og markaðssetningu. Huawei hefur meðal annars starfað með Texas Instruments, Motorola, Microsoft, Intel og Sun Microsystems. Huawei er fyrirtæki sem er gott dæmi um hversu langt Kínverjar geta náð í hátækni með mikilli áherslu á rannsóknir og þróun og stenst fullkomlega gæðakröfur Vesturlanda. Huawei er með um 55 skrifstofur víðs vegar um heiminn. Huawei hefur einnig sett upp rannsóknarstofur í Dallas, Silicon Valley, Bangalore, Stokkhólmi, Moskvu, Peking og Shanghai. SAMSTARF VIÐ NOVATOR Novator, sem er í eigu Björgólfs Thor Björg- ólfssonar, skrifaði undir samstarfssamning við Huawei í Kína nýlega. Samningurinn felur í sér áhuga á frekari samstarfi milli félaganna. Búlgarski síminn BTC hefur átt viðskipti við Huawei og frekara samstarf er væntanlega fram undan. Huawei er orðið leiðandi birgir í fjar- skiptageiranum, sem fer ört vaxandi. Ef miðað er við markaðshlutdeild er Huawei fremst eða mjög framarlega þegar kemur að mörgum tækninýjungum. Huawei er einnig einn af fáum birgjum í heiminum sem bjóða upp þriðju kynslóð farsíma. Ef Novator nýtir fjarskiptaleyfi fyrir þriðju kynslóð farsíma í Póllandi má gera ráð fyrir að Huawei verði samstarfsaðili þess. Huawei Velta á árinu: 8,5 milljarðar dollara Útflutningur: Yfir fimm milljarðar dollara Fjöldi starfsmanna: 24 þúsund Kínverskur fjarskiptarisi Huawei er eitt af fáum kínverskum fyrirtækjum sem eru þekkt á alþjóðavettvangi. Fyrirtækið selur fjarskiptakerfi til yfir 90 landa og kemur um helmingur af tekjum fyrirtækisins frá útflutningi. Dögg Hjaltalín skoðaði fyrirtækið nánar og komst að því að áhersla fyrirtækisins á rannsóknir og þróun hefur margborgað sig. Huawei framleiðir og selur nánast allt sem við kemur fjarskiptatækjum og tólum. SIGÞÓR SAMÚELSSON hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Teymis og hefur hann hafið störf. Hann hefur verið markaðsstjóri Teym- is undanfarin ár en hann hefur verið sölu- og markaðs- stjóri Teymis frá ár- inu 1999. Sigþór var að klára rekstrar- og viðskiptanám við Endurmenntun Há- skóla Íslands. Hann er með stúdents- próf frá Menntaskólanum í Reykjavík. ÞÓRÓLFUR ÁRNASON hefur verið ráðinn forstjóri Icelandic Group, áður SH. Hann er vélaverkfræðing- ur frá HÍ og lauk hann jafnframt fram- haldsnámi í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá DTH í Kaup- mannahöfn. Þórólfur hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum og stjórnun. Hann var framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Marel í sex ár og sama starfi gengdi hann síðar hjá Olíu- félaginu hf. Hann varð fyrsti forstjóri Tals hf. og síðar borgarstjóri í Reykjavík á árunum 2003-2004. Þá hefur hann ver- ið virkur í félagsmálum auk þess hann hefur setið í stjórnum nærri tuttugu fyrirtækja og stofnana. BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON UNDIRRITAR SAMSTARFSSAMNING VIÐ HUAWEI FYRIR HÖND NOVATOR Huawei starfar í hátt í hundrað löndum og selur vörur til stærstu fjarskiptafyrirtækja heims. EINAR BÁRÐARSON, EIGANDI CONCERT Segir eldri félaga sinn hafa kennt sér að til að ná árangri þurfi að vakna snemma og vera duglegur allan daginn. Vakna snemma og vera duglegur Sjálfvindu skeiðklukku úrverk, kúpt safírgler með afspeglun, handsaumuð leðuról, einnig fáanlegt í 18kt gulli. Fr ét ta bl að ið /K G B Mannabreyt- ingar hjá WTO Frakkinn Pascal Lamy hefur verið útnefndur yfirmaður Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Hann mun taka við starf- inu 31. ágúst þegar kjörtímabili núverandi yfirmanns, Supachai Panitchpakdi, lýkur. Jaques Chirac Frakklandsfor- seti óskaði landa sínum til ham- ingju með nýja starfið og bætti við: „Ég vona að undir stjórn Lamy verði heimi hnattvæðing- arinnar betur stýrt og að sam- einingar gæti í stað sundrung- ar“. Lamy sagðist ætla að vinna að frjálsari viðskiptaháttum og tryggja hag þróunarríkja í al- þjóðaviðskiptum. - jsk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.