Fréttablaðið - 01.06.2005, Page 45
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 17
S K O Ð U N
Katrín Ólafsdóttir
skrifar
Í nýrri skýrslu Efnahags- og
framfarastofnunarinnar kemur
fram álit sérfræðinga stofnunar-
innar um Ísland. Þar segir að
þjóðarbúið sé að ofhitna og ójafn-
vægi í þjóðarbúskapnum sé tölu-
vert. Hættumerki sé að finna í
miklum halla á viðskiptum við út-
lönd og miklum erlendum skuld-
um. Þá sé verðbólga langt yfir
verðbólgumarkmiði.
Sérfræðingar stofnunarinnar
brýna fyrir íslenskum stjórn-
völdum að það þurfi styrka
peningamálastjórn til að ná verð-
bólgu aftur að verðbólgumark-
miðinu. Þá mæla þeir með því að
ríkissjóður verði rekinn með enn
meiri afgangi en nú er gert ráð
fyrir.
Sérfræðingar Efnahags- og
framfarastofnunarinnar telja að
afleiðingar ofhitnunarinnar hér á
landi verði tímabil hárra vaxta
og hugsanlega sé niðursveifla í
þjóðarbúskapnum fram undan.
Töluverðar líkur verði að telja á
því að lendingin eftir þessa upp-
sveiflu verði ekki mjúk í ljósi
þess ójafnvægis sem myndast
hafi í þjóðarbúskapnum. Í því
sambandi nefna þeir að hugsan-
legt sé að kjarasamningar verði í
uppnámi í haust og gengi gæti
fallið snögglega. Í því ljósi reyni
á hagstjórn, og styrk ríkisfjár-
málastefna og afgangur á rekstri
hins opinbera í dag gæti dregið
úr fallinu síðar.
Í nýlegri grein í Newsweek er
Íslandi lýst sem nýjasta tígri
Evrópu, en það orð var oft notað
um Asíuríkin þegar hagvöxtur
þar var sem mestur. Í greininni
er því lýst að flest gangi okkur í
haginn þessa dagana. En höfund-
ur greinarinnar gerir sér einnig
grein fyrir því að spenna hefur
myndast í þjóðarbúskapnum og
lýkur grein sinni á því að ef til
vill sé tími til kominn að hægja á
ferðinni.
Einhvern tímann var sagt að
best væri að ganga hægt um
gleðinnar dyr. Það er ekki ástæða
til annars en að gleðjast yfir vel-
gengni okkar, en á sama tíma
þurfa þeir sem sinna hagstjórn
hér á landi, Seðlabanki og ríkis-
stjórn, að vera á varðbergi fyrir
hættumerkjum og grípa til að-
gerða strax.
Í vikuriti sínu gerir fjármála-
ráðuneytið fremur lítið úr aðvör-
unum Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar. Getur verið að
það eimi eftir af þeirri gömlu
hugsun að kenningar hagfræð-
innar eigi ekki við um Ísland og
útlendingar geti ekki vitað allt
um íslenskar aðstæður? En eru
þeir að segja annað en íslenskir
hagfræðingar hafa verið að segja
undanfarna mánuði?
Hversu glöggt er gests augað?
H
in
rik
P
ét
ur
ss
on
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Hjá okkur vega allir jafnt
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
“fiegar kemur a› flví a› veita persónulega
og faglega rá›gjöf í fjármögnun atvinnu-
tækja vega allir vi›skiptavinir jafn. Hvort
sem um er a› ræ›a stórfyrirtæki e›a líti›
einstaklingsfyrirtæki leggjum vi› allt kapp í
fla› a› veita framúrskarandi fljónustu og
sérsní›a lausnir í takt vi› flarfir hvers eins.“
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson
Rá›gjafi, Fjármögnun atvinnutækja
Sumarið
er tíminn
Sumir halda alltaf að sumarið sé
sá tími þegar ekkert gerist. Þann
fyrsta júní fara launamennirnir
að flykkjast í sumarfríin og við
taka saklaus og bólugrafin ung-
menni sem bíða óþreyjufull eftir
að komast á helgardjammið. Oft
er talað um gúrkutíð og aumingja
blaða- og fréttamennirnir sitja
sveittir við að grafa upp fréttir
úr umferðinni sem fréttastjór-
arnir hefðu ekki litið við að vetr-
arlagi.
En fyrir gamlan hund eins og
mig er sumarið tími tækifær-
anna og ég get lofað ykkur fullt
af tíðindum úr viðskiptaheimin-
um. Það verða vafalaust tíðindi
af Straumi og Íslandsbanka,
Burðarási, Símanum, KB banka
og SPRON og náttúrlega Mosaic
Group, tilvonandi Kauphallar-
félagi. Skandia kemur við sögu,
sem og einhver útrásarfyrirtæki.
Síminn mun auðvitað koma
mikið við sögu á næstunni. Fylgst
verður gaumgæfilega með gangi
einkavæðingarinnar eftir að
Fréttablaðið hóf að birta greina-
flokk um bankasöluna. Líklega
verður krafa meiri en ella um að
ríkið fái sem hæst verð fyrir
fyrirtækið.
Ég býst við því að vera heldur
á kauphliðinni í sumar, enda eru
alltaf til kauptækifæri. Margir
eru að bíða eftir hálfsársuppgjör-
unum, sem verða góð, og því má
búast við rólegheitum í Kauphöll-
inni fram í miðjan júlí. Þótt hljótt
sé yfir Kauphöllinni þessa dag-
ana er markaðurinn hvergi nærri
dottinn af baki.
Svo kitlar fasteignamarkaður-
inn mig alltaf. Ég er að spá í að
selja íbúðirnar sem ég keypti í
Sjálandinu. Fasteignaheildsali,
vinur minn, laumaði því að mér í
september síðastliðnum að þarna
væri magnað kauptækifæri. Sló
því til og keypti tvær fjögurra
herbergja íbúðir. Lagði sjö millj-
ónir í púkkið og ætti að geta tekið
inn tólf milljónir án teljandi
vandræða. Kannski að ég og
familían skellum okkur til Krítar
í haust þegar fer að kólna. Aldrei
að vita nema ég kaupi eitt stykki
vetrarhús þar.
Já, spákaupmaðurinn er bjart-
sýnn þegar sumarið fer í hönd,
fullviss um að allt sé á uppleið.
Spákaupmaðurinn mun njóta sól-
arinnar og þeirra góðu tíma sem
eru í nánd fyrir alla spekúlanta.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
Það er ekki ástæða til annars en að gleðjast yfir vel-
gengni okkar, en á sama tíma þurfa þeir sem sinna hag-
stjórn hér á landi, Seðlabanki og ríkisstjórn, að vera á
varðbergi fyrir hættumerkjum og grípa til aðgerða strax.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI