Fréttablaðið - 01.06.2005, Page 66

Fréttablaðið - 01.06.2005, Page 66
1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR > Við hrósum ... ... Ásgeiri Sigurvinssyni fyrir að velja Fylkismanninn Helga Val Daníelsson í landsliðið í gær. Helgi Valur hefur leikið frábærlega það sem af er sumri og á sætið í landsliðinu svo sannarlega skilið og hefði með réttu átt að vera í upprunalegum hópi landsliðsþjálfaranna. Heyrst hefur ... ... að Þróttarar ætli sér að senda útlendingana sem eru hjá félaginu til síns heima á ný. Þeir hafa ekki staðið undir væntingum og sátu á bekknum hjá Þrótti í gær. sport@frettabladid.is 26 > Við hrósum ... .... Valsmönnum fyrir að standa undir væntingum í Landsbankadeildinni. Miðað við gang mála fyrstu umferðirnar í mótinu er Valur eina liðið sem virðist líklegt til að geta staðið í FH- ingum. Frábær frammista›a Vals í fyrri hálfleik sló Framara gjörsamlega af laginu og áttu fleir ekkert svar vi› flremur mörkum Valsara í fyrri hálfleik. Valsmenn vængjum þöndum FÓTBOLTI Willum Þór Þórsson hefur blásið lífi í Reykjavíkurstórveldið Val. Liðið hefur fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og spilaði hreint stórkostlega í fyrri hálfleik gegn Fram í gær. Strax frá fyrstu mín- útu var ljóst að menn voru mættir til að hirða þrjú stig og gefa hvergi færi á sér. Það gekk eftir. Vel skipulagðar sóknarlotur Valsara voru fljótar að borga sig er mörkin röðuðust inn í fyrri hálfleik. Eftir hlé komu Framarar stað- ráðnir í að láta ekki niðurlægja sig enn frekar og stóðu sig bærilega, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hvers konar útreið þeir fengu fyrir hlé. Annars var sóknarkraft- urinn algerlega horfinn úr liðinu og allur botn datt úr miðjuspili liðsins. „Við eigum ekkert skilið eftir svona fyrri hálfleik, hann var okk- ur hreinlega til skammar,“ sagði Ríkharður Daðason, fyrirliði Fram, eftir leik. „Það góða sem við vorum að gera í síðasta leik var ekki til staðar í dag, hvort sem er í vörn eða sókn. Þeir voru betri á öll- um sviðum í fyrri hálfleik og það er erfitt að ná upp 3-0 forskoti eftir fyrri hálfleikinn, þó svo að annað hafi sýnt sig undanfarið. Það eina jákvæða við þennan leik er að við berjumst vel í seinni hálfleik og gerum þeim erfitt fyrir. En það vantar herslumuninn að fá markið inn og komast þannig aftur inn í leikinn. Og það verður alltaf erfið- ara eftir því sem tíminn líður.“ Valsmenn eru skemmtilega leikandi lið sem á stigin tólf fylli- lega skilið. Það var hrein unun að fylgjast með liðinu fyrir hlé. „Við byrjuðum af miklum krafti. Eins og allir vita er langt frí fram undan og við vorum stað- ráðnir í að fara mjög sáttir inn í það hlé,“ sagði miðjumaðurinn og Valsarinn Sigþór Júlíusson, hæst- ánægður með góða frammistöðu sinna manna. „Það er frábært að vera með fullt hús stiga en við tök- um engu að síður aðeins einn leik fyrir í einu. Við höfum verið lán- samir að hafa byrjað mótið vel og það vill oft vinda upp á sig, það kemur stemning inn í liðið og sjálfstraustið líka. Þetta fylgist alltaf að og verður alltaf auðveld- ara hjá okkur.“ eirikurst@frettabladid.is LEIKIR GÆRDAGSINS Landsbankadeild karla STAÐAN FH 4 4 0 0 12–1 12 VALUR 4 4 0 0 10–2 12 KEFLAVÍK 4 2 1 1 7–8 7 FYLKIR 4 2 0 2 7–5 6 FRAM 4 2 0 2 6–4 6 KR 4 2 0 2 4–4 6 ÍA 4 2 0 2 4–7 6 GRINDAVÍK 4 1 0 3 6–12 3 ÞRÓTTUR 4 0 1 3 3–8 1 ÍBV 4 0 0 4 3–11 0 Landsbankadeild kvenna KR–FH 6–1 1–0 Júliana Einarsdóttir (13.), 2–0 Hrefna Jóhannesdóttir (19.), 2–1 Valdís Rögnvaldsdóttir (23.), 3–1 Hrefna Jóhannesdóttir (70.), 4–1 Hrefna Jóhannesdóttir (74.), 5–1 Guðrún Sóley Gunnarsdóttir (84.), 6–1 Hrefna Jóhannesdóttir (87.). KEFLAVÍK–VALUR 0–9 - Dóra María Lárusdóttir 2, Rakel Logadóttir 2, Margrét Lára Viðarsdóttir 2, Laufey Ólafsdóttir 2, Elín Svavarsdóttir. STJARNAN–ÍA 1–0 1–0 Björk Gunnarsdóttir (77.). ÍBV–BREIÐABLIK 1–2 0–1 Guðlaug Jónsdóttir (18.), 0–2 Erna Björk Sigurðardóttir (46.), 1–2 Bryndís Jóhannesdóttir (57.). STAÐAN KR 3 3 0 0 16–3 9 BREIÐAB. 3 3 0 0 9–4 9 VALUR 3 2 0 1 17–4 6 ÍBV 3 1 0 2 13–5 3 FH 3 1 0 2 2–8 3 KEFLAVÍK 3 1 0 2 4–12 3 STJARNAN 3 1 0 2 2–10 3 ÍA 3 0 0 3 3–20 0 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 29 30 31 1 2 3 4 Miðvikudagur JÚNÍ ■ ■ SJÓNVARP  07.00 Olíssport á Sýn. Endursýndur þáttur fjórum sinnum.  16.50 Smáþjóðaleikarnir á RÚV. Fyrsti þáttur af fimm endursýndur.  18.20 Olíssport á Sýn. Endursýndur þáttur.  19.35 Golf á Sýn. Sýnt frá bandarísku mótaröðinni.  20.30 Fitness á Sýn. Sýnt frá karlakeppninni á bikarmótinu,  21.00 Tiger Woods á Sýn. Fyrsti þáttur af þremur um þennan frábæra kylfing.  21.30 Smáþjóðaleikarnir á RÚV. Annar þáttur af fimm  22.00 Olíssport á Sýn. Íþróttir dagsins gerðar upp.  23.15 Poker á Sýn. Sýnt frá HM í póker. Þróttur og Keflavík skiptu með sér stigunum eftir 2–2 jafntefli í Laugardal: FÓTBOLTI Hann var ekki rishár leikur Þróttar og Keflavíkur í Laugardalnum í gær. Bæði lið áttu frekar slakan dag og það var sanngjarnt að þau skyldu skipta með sér stigunum. Niðurstaðan var steindautt fjögurra marka jafntefli, 2-2. Mörkin fjögur komu úr víti, aukaspyrnu, horn- spyrnu og með góðu skoti. Keflvíkingar voru alltaf lík- legri uppi við markið en gekk illa að binda endahnútinn á sóknir sínar. Hin margfræga síðasta sending fór ansi oft forgörðum. Spilamennska Þróttara var ekki til fyrirmyndar. Endalausar kýl- ingar og svo var lagt upp með að ná seinni boltanum og gera eitt- hvað við hann. Eins og áður sagði náði leikurinn aldrei neinum hæðum og þótt Keflvíkingar hafi verið betri fram á við var jafn- tefli sanngjörn niðurstaða. „Mér fannst við spila ágæt- lega. Þetta var með því skásta hjá okkur í sumar,“ sagði Páll Einarsson, fyrirliði Þróttar. „Við ætluðum okkur meira en einbeitingarleysi varð okkur að falli. Eins og staðan er í dag verðum við í botnbaráttu en við höfum trú á að við getum betur og við stefnum upp á við.“ Guð- mundur Steinarsson, fyrirliði Keflavíkur, skoraði gull af marki og var með skárri mönnum vall- arins í gær. „Við erum grautfúlir með að hafa ekki fengið öll stigin.Við vorum ekki að spila okkar bolta og spurning hvort skortur á breidd sé að há okkur. Við getum gert miklu betur enda var liðs- heildin döpur. Við vorum heppn- ir með að ná stigi miðað við hvað við vorum daprir. henry@frettabladid.is Fyrsta jafntefli sumarsins sta›reynd „Ég fékk símtal frá KSÍ í hádeginu og var spurður hvort ég gæfi kost á mér. Að sjálfsögðu sagði ég svo vera,“ segir Helgi Valur Daníelsson, leikmaður Fylk- is, sem í gær var valinn í íslenska lands- liðið fyrir leikina gegn Ungverjalandi og Möltu í næstu viku í stað Hjálmars Jónssonar hjá Gautaborg, sem á við meiðsli að stríða. Helgi Valur á reyndar einn landsleik að baki sem kom fyrir allnokkru síðan, nánar tiltekið í janúar árið 2001 þegar hann kom inn á sem varamaður í 3-0 sigri gegnÝIndverjum í Cochin á Indlandi. Þá á Helgi Valur tugi landsleikja að baki með yngri landslið- um Íslands. „Ég get ekki sagt annað en að þetta hafi komið mér skemmtilega á óvart. Það var náttúrlega búið að velja liðið og þetta var í raun það síð- asta sem ég var að hugsa um. En ég hlakka mikið til, ég þekki fullt af þess- um strákum frá tíma mínum með yngri lands- liðunum og það verður gaman að hitta þá aftur. Í leiknum gegn Indlandi var um hálfgert B-lið að ræða en það er náttúrlega toppurinn að komast í hópinn þegar það eru alvöru leikir fram und- an eins og núna,“ segir Helgi Valur. Helgi Valur var þó ekkert frekar á því að frammi- staðan gegn ÍA í fyrra- dag hefði verið það sem gerði útslagið en þá var hann hreint óstöðvandi og nánast eignaði sér miðjuna á vellinum þrátt fyrir að þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem hann spilar þá stöðu í sumar. „En það er ljóst að ég er mínu besta formi í langan tíma,“ segir hann. Þess má geta að Helgi Valur fékk einkunn- ina 9 fyrir frammistöðu sína gegn ÍA í Frétta- blaðinu og er hann sá fyrsti sem gerir það í sumar, en samkvæmt skilgreiningu blaðsins segir sú einkunn að viðkomandi sé „í landsliðsklassa.“ HELGI VALUR DANÍELSSON: VALINN Í ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Í STAÐ HJÁLMARS JÓNSSONAR Verður gaman að hitta strákana aftur *MAÐUR LEIKSINS VALUR 4–4–2 Kjartan 7 Steinþór 7 Atli Sveinn 8 Grétar 7 Bjarni Ólafur 7 Baldur 7 Sigurbjörn 7 Kristinn 7 (87. Henriksen –) *Sigþór 8 Matthías 7 (76. Garðar –) Guðmundur 8 (80. Sigurður –) FRAM 4–3–3 Gunnar 7 Kristófer 6 (61. Ívar 5) Þórhallur Dan 6 Kristján 5 Gunnar Þór 6 Ingvar 4 Nörholt 3 (46. Viðar 5) Mathiesen 3 Andri Steinn 3 (29. Heiðar Geir 6) Ríkharður 6 Andri Fannar 4 *MAÐUR LEIKSINS ÞRÓTTUR 3–5–2 Fjalar 5 Eysteinn 6 Jens 6 Ólafur 5 Freyr 4 Páll 4 Halldór 4 Haukur Páll 4 Ingvi 4 Henning 3 (86. Maruniak –) Þórarinn 4 (77. Sævar –) KEFLAVÍK 4–4–2 Ómar 5 Guðjón 4 O´Callaghan 4 Johansson 6 Milisevic 5 Jónas Guðni 6 Baldur 5 (65., Abdulkadir 4) Hólmar Örn 6 (84., Gunnar H. –) Gestur 5 (84. Atli Rúnar –) Hörður 6 *Guðmundur 6 2-2 Laugardalsv., áhorf: 659 Egill Már Markússon (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–9 (4–3) Varin skot Fjalar 1 – Ómar 2 Horn 3–4 Aukaspyrnur fengnar 12–12 Rangstöður 2–2 1–0 Eysteinn Pétur Lárusson (39.) 1–1 Hörður Sveinsson (45.) 1–2 Guðmundur Steinarsson (61.) 2–2 Páll Einarsson, víti (71.) Þróttur Keflavík LA ND SB AN KA DE IL DI N TVEIR VALSMENN Á HVERN FRAMARA Valsmenn unnu öruggan sigur á Fram í gær. Hér sést Ingvar Ólason tapa tæklingu gegn þeim Kristni Lárussyni og Sigþóri Júlíussyni (6) sem báðir áttu góðan leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. GLÆSIMARK Baldur Sigurðsson og Hörður Sveinsson fagna hér glæsimarki Harðar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. 3-0 Valsvöllur, áhorf: 1050 Magnús Þórisson (4) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–11 (5–5) Varin skot Kjartan 5 – Gunnar 2 Horn 5–7 Aukaspyrnur fengnar 14–16 Rangstöður 4–1 1–0 Matthías Guðmundsson (12.) 2–0 Sigþór Júlíusson (19.) 3–0 Baldur Aðalsteinsson (36.) Valur Fram

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.