Fréttablaðið - 01.06.2005, Page 70
„Þetta er að verða þannig að
leikarinn þarf að gera allt, bæði
skrifa og leika og sjá um ljósin
og allt,“ segir Ingibjörg Reynis-
dóttir leikari, sem gerði sér lítið
fyrir og skrifaði sjálf leikritið
Móðir mín, dóttir mín, sem
frumsýnt verður í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu í kvöld.
„Maður verður að skapa sjálf-
um sér atvinnu,“ segir hún, en í
verkinu fer hún með hlutverk
vanhæfrar móður sem á við
fíkniefnavanda að etja. Með hlut-
verk dótturinnar fer Ísgerður
Elfa Gunnarsdóttir, sem útskrif-
aðist úr leiklistardeild Lista-
háskólans fyrir fáeinum árum.
Leikstjóri er Eline McKay.
„Við erum að fjalla um efni
sem ekki er mikið rætt um. Það
er mikið talað um fíkniefnamál
og unglingana, og líka um full-
orðna alkóhólista, en það er
sjaldan sem maður sér inn í
heim aðstandandans í þessum
efnum.“
Dóttirin er að komast á ung-
lingsárin og líklega væri best fyrir
hana að losna frá móður sinni og
komast í umsjón annarrar fjöl-
skyldu. Báðir kostirnir eru samt
vondir, að fara og að vera, því
enginn vill yfirgefa móður sína.
„Það eru alltaf einhver til-
finningaleg tengsl til staðar
þrátt fyrir ljótleikann og allt
saman.“
Leiksýningin er frekar stutt,
rétt um fimmtíu mínútur í flutn-
ingi. Ragnheiður Gröndal söng-
kona setur sterkan svip á sýn-
inguna, því hún hefur samið
nokkur lög við texta Ingibjargar
og flytur þau á sýningunni.
Sýning þessi er opnunaratriði
Bjartra daga, en svo nefnist
lista- og menningarhátíð Hafn-
arfjarðar. Bjartir dagar í Hafn-
arfirði hefjast í dag og stendur
hátíðin yfir í rúmar tvær vikur.
Aðeins sex sýningar verða á
leikritinu, sú síðasta þann 16.
júní. ■
30 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
EKKI MISSA AF…
... hinni sérkennilegu og fallegu
sýningu Jóns Sæmundar, „Hvítir
hrafnar“, í galleríi Sævars Karls við
Bankastræti, en henni lýkur á
morgun, fimmtudag.
... sirkusnum Cirque, sem sýnir
Söguna um Gústa trúð á Mið-
bakkanum í Reykjavík næstu
daga á Listahátíð.
... fiðlusnillingnum Yuri Bash-
met, sem spilar með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands á Listahátíðar-
tónleikum annað kvöld.
Sigurður Flosason saxófónleikari og Gunnar
Gunnarsson organisti ætla að flytja nokkur
alþekkt ættjarðarlög í Hafnarfjarðarkirkju í
kvöld. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá
menningarhátíðarinnar Bjartra daga í Hafnar-
firði.
Þeir Sigurður og Gunnar gáfu á síðasta ári út
geisladisk með íslenskum ættjarðarlögum,
sem þeir flytja í algerlega nýjum búningi.
Diskurinn hlaut mjög góða dóma og var til-
nefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna.
Lögin ganga í endunýjun lífdaga í flutningi
þeirra Gunnars og Sigurðar. Þeir spinna í
kringum lögin, en halda sig þó oftast á ró-
legu nótunum.
Leikin verða sígild lög Sigfúsar Einarssonar,
Pál Ísólfssonar, Emils Thoroddsen auk nýrri
ættjarðarlaga. Að gefnu tilefni mun hafnfirska
tónskáldið Friðrik Bjarnason, höfundur lags-
ins „Þú hýri Hafnarfjörður“ koma nokkuð við
sögu á tónleikunum.
Kl. 22.00
Patagonia Jazz Quartet flytur djasstón-
list í brasilískum og afró-kúbönskum
anda á Café Rosenberg í kvöld. Kvartett-
inn skipa þeir Jacob Hadendorn Olsen á
gítar, Ludvig Kári Forberg á víbrafón,
Guðjón Steinar Þorláksson á kontra-
bassa og George Claessen á trommur.
menning@frettabladid.is
Endurnýja ættjarðarlögin
MÓÐIR OG DÓTTIR Í VANDRÆÐUM Ingibjörg Reynisdóttir og Ísgerður Elfa í hlutverkum sínum.
Leikur í eigin leikriti
!
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TÍMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi
við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,-
Einstakur viðburður
ÞUMALÍNA
Frá Sólheimaleikhúsinu
Fi 2/6 kl 20 - 1.000,-
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Lau 4/6 kl 14 UPPS., Su 5/6 kl 14 - UPPS.,
Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17, Lau 18/6
kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Fi 2/6 kl 20 UPPS., Fö 3/6 kl 20,
Lau 4/6 kl 20, Su 5/6 kl 20, Fi 9/6 kl 20,
Fö 10/6 kl 20, Lau 11/6 kl 20
Aðeins 3 sýningarhelgar eftir
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.isMiðasalan í
Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Bjartir dagar byrja
Hafnfirðingar kalla lista- og
menningarhátíð sína Bjarta daga.
Hátíðin hefst í dag og stendur til
16. júní með fjölbreyttri dagskrá,
meðal annars tónleikum, leiksýn-
ingu og myndlistarsýningum af
ýmsu tagi.
Í dag verður meðal annars á
dagskránni frumsýning á nýju ís-
lensku leikriti í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu og tónleikar með Sig-
urði Flosasyni saxófónleikara og
Gunnari Gunnarssyni orgelleik-
ara í Hafnarfjarðarkirkju.
Setningarathöfn verður haldin
í Hafnarborg klukkan 18 í dag,
þar sem Lúðvík Geirsson bæjar-
stjóri flytur ávarp og kór Flens-
borgarskóla syngur. Einnig verð-
ur útnefndur bæjarlistamaður
Hafnarfjarðar.
Þetta árið er lögð sérstök áh-
ersla á þátttöku barna og ung-
linga. Meðal annars taka hafn-
firsk leikskólabörn virkan þátt í
Björtum dögum með sýningum á
verkum sínum víða um bæinn. ■
DANSAÐ AF LIST Listdansskóli Hafnarfjarðar tekur þátt í menningarahátíðinni Björtum
dögum, sem stendur yfir í Hafnarfirði næstu tvær vikurnar og rúmlega það.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/E.Ó
L.