Tíminn - 17.05.1975, Blaðsíða 20

Tíminn - 17.05.1975, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Laugardagur 17. maí 1975. Laugardagur 17. mai 1975. TtMINN 21 BH-Reykjavík— Á borgarstjórnarfundi sl. fimmtudag var samþykkt skipulag fyrra á- fanga nýs miðbæjar/ sem rísa mun í Kringlumýrinni. i þessum nýja miðbæ verða ýmsar þýðingarmiklar þjónustu- stofnanir/ svo sem borgarleikhús og borg- arbókasafn/ auk verzlana/ hótelbygginga og íbúöabygginga. Að samþykkt þessa skipulags stóðu borgarfulltrúar Framsókn- arflokksins/ Sjálfstæðisfiokksins og Al- þýöuflokksins, en gegn samþykkt skipu- lagsins greiddu fulltrúar Alþýðubandalags- ins atkvæði. í bókun, sem borgarfulltrúar Framsóknarflokksins létu gera, segir svo: ,,A sinum tima stóöu borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins ekki að samþykkt um innra gatnakerfiö i Nýja miðbænum við Kringlumýrarbraut, þar sem ekk- ert lá fyrir um, hvernig tengingum við ytra gatnakerf- ið yrði fyrir komið. Einnig töldum við, að ákvörðun um staðsetningu húss verzlunarinnar væri varasöm, vegna nálægðar þess viö gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar og fyrirhuguð umferðarmannvirki þar. Við höfum itrekað gagnrýnt, hvernig unnið hefur verið að skipulagi nýja miðbæjarsvæðisins og fluttum m.a. tillögu um, að opinber samkeppni yrði höfð um heildarskipulagningu svæðisins. Skipulag Nýja miðbæjarins er hins vegar það langt á veg komin og búið að verja það miklu fjármagni til þess verkefnis, að ekki er raunhæft að okkar dómi að gera ráð fyrir, að nú verði snúið við og byrjað að nýju. Við teljum brýnt, að unnið verði af fullum krafti við að gera þetta svæði byggingarhæft og munum taka af stöðu til einstakra þátta við áframhaldandi skipulag eftir því sem efni standa til hverju sinni án þess að það feli i sér viðurkenningu á skipulaginu i heild eða þeini vinnuaðferðum sem viðhöfð eru. I sambandi við tengingu undir Miklubraut bendum við á, hvort ekki sé hagkvæmara að færa hana vestar, nær Kringlumýrarbraut.” ólafur B. Thors, formaður skipulagsnefndar borgar- innar fylgdi skipulaginu úr hlaði með ítarlegu máli, þar sem hann undirstrikaði þörf hins nýja miðbæjar, sem væri óskabarn borgarinnar, og vissulega hefði dregizt úr hömlu að skipuleggja hann. Það væri þó engan veginn um seinan, og með tilliti til hlutverks sliks miðbæjar væri hann áreiðanlega vel settur i Kringlumýrinni. Það hefði að minnsta kosti ekki verið sannað, að hann væri betur settur annars staðar. Endurmat á skipulagningunni nú myndi tefja þróun, sem væri nauðsynleg og óhjákvæmiieg vegna upp- byggingarinnar. Guðmundur G. Þórarinsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, kvaðst ekki ánægður með skipulagið i núverandi mynd. Þvi miður væri gengið of langt i sum- um efnum, en of skammt i öðrum, og veigamiklir hlut- ir væru óleystir. Hins vegar teldi hann og þeir borgar- fulltrúar Framsóknarflokksins, að höfuðáherzluna verði að leggja á það, að að þessu verði unnið áfram af fuilum krafti og láta ekki deigan siga. Það sé nauðsyn- legt, að byggingaframkvæmdir geti hafizf sem fyrst, þannig að af tveim slæmum kostum verði að taka þann skárri og hafa þau áhrif á framvindu málsins, að nýi miðbærinn i Kringlumýrinni geti risið fljótiega. Ann- ars myndi stefna i óefni. Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins tóku allir til máls á fundinum og voru á einu máli um, að mesta ó- ráð væri að hafna endurmati á skipulagningu, og af- greiðslu þess hefði verið hraðaö óeðlilega mikið i gegn- um skipulagsnefnd. Meðfylgjandi myndir eru af skipulagsuppdráttum hins nýja miðbæjar i Kringlumýrinni, sem hlotið hefur á teikningunum nafnið Kringlubær, og mun það verða framtiðarheiti þessa hverfis. skrifstofuhús Kringlubær, séður að norðan borgarleikhús C-gata ibúðarhús borgarbókasafn D-gata verzlunarbrú Kringlubær, séöur aðsunnan hótel verzlanalengja 1 göngugata bílageymsla torg I vöruhús skrifstofur Miklabraut stígur verzlanir, fundasalir bilageymsla A-gata verzlunarbru ■^Tl SKOLlf IPBENÍI Kringlubær, séður að vestan

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.