Tíminn - 17.05.1975, Blaðsíða 30

Tíminn - 17.05.1975, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Laugardagur 17. mai 1975. STUÐMENN og ðe Lónli blú bojs eru þær tvær hljómsveitir islenzkar, sem haft hafa um sig hjúp leyndarinnar, og hafa meðlimir þeirra aldrei opinberað sig alþýðu manna. Regin- munur er þó á þessum tveimur hljómsveitum, að þvi leyti til, að flestir fara nærri um hverjir séu i ðe Lónli blú bojs, — en obbinn af islenzkri alþýðu hefur ekki minnstu hugmynd um hverj- ir meðlimir Stuðmanna eru, enda hafa þeir félagar ekkert haft sig i frammi utan plötu- gerðar, og hingað til hafa leiðir blaðamanna að þeim verið þyrnum stráðar. Nú hefur sú gata verið rudd, og varð blaða- maður Nú-timans fyrstur til að ræða við með- limi Stuðmanna. Sá atburður gerðist fyrir skömmu. Að sjálfsögðu hvildi mikil leynd yfir þessum fundi, og m.a. varð Nú-timamaðurinn að vera þess alveg fullviss, að engir veittu hon- um eftirför, er hann ók að ónefndu húsi hér i bæ, sem hafði að geyma Stuðmenn. ___________________________________________J NÝ 13 LAGA SKRUGGUGÓÐ PLATA FRÁ STUÐMÖNNUM VÆNTANLEG Þaö dylst engum, aö Stuömenn er stuöhljómsveit I þess orös fyllstu merkingu, og ber þessi mynd þess glögg merki. Eins og aö likum lætur voru blaðaljósmyndarar bannvara i þessu húsi, meöan Stuömenn áttu viöræöur viö Nú-timamann, en Stuömenn áttu hins vegar i fórum sinum nokkrar myndir, sem birt- ast hér meö viötalinu. Blaðamaður Nú-timans segir nú frá dvöl sinni i húsi meö Stuð- mönnum: Þrír á taugahæli í Týról Húsráðandi tók á móti mér og vlsaði mér til stofu. Þar voru fyr- ir tv.eir ungir menn, sem muldr- uðu nöfn sin ofan i bringu sér að islenzkum sið, er ég heilsaði þeim. Eftir að húsráðandi hafði visað mér til sætis, gaut ég laumulega augum á þessa tvo menn og spuröi siðan, eftir að hafa barið þá augum um hrið: — Eruð þið Stuðmenn? — Já, svöruðu þeir. POPPOPERETTAN SUMAR A SYRLANDI: Stína stuð, Baddi á bjúkkanum og vísltöluklíkan f draumi bíðskýlismannsins — Eruð þið bara tveir? — Nei, segir annar þeirra, — Nokkrir aödáenda Stuömanna sjást hér saman komnir fyrir utan stúdfóiö, langeygir eftir aö sjá átrúnaöargoöin storma örmagna úr upptökusalnum. Aödáendurnir eru kiæddir I aðdáendabúning Stuö- manna, en lögreglukonan fremst á myndinni róar aödáendurna meö þvl aö brosa sinu bezta brosi. Eins og greinilega sést á myndinni, leynir eftirvæntingin sér ekki. við erum raunar fimm I hljóm- sveitinni. Hins vegar erum við allir mjög örmagna eftir langa útiveru og plötuupptöku, — og þrír okkar komust hreinlega ekki heim á Frón. Þess I stað voru þeir sendir á taugahæli I Týról. Stuðmenn hafa semsé verið að taka upp LP-plötu úti i Bretlandi að undanförnu. Platan nefnist Sumar á Sýrlandi og hefur að geyma 13 skruggugóð lög. Á plöt- unni er haldið samfelldum sögu- þræði, og að sögn Stuðmanna má lita á hana sem poppóperettu. Við báðum þá að lýsa sögu þeirri, er platan hefur að geyma. Maður sem gleymir sér smástund — Sagan segir frá ferð, sem þó var aldrei farin i raunveruleikan- um. Hún gerist i hugskoti manns, sem ætlar að fara á fylleri. Sagan gerist I strætisvagnabiðskýli, meðan maðurinn biður eftir strætisvagninum. Sagan segir frá þeirri hugsun, sem þýtur i gegn- um huga hans: Svona gæti kvöld- ið hugsanlega orðið. — Á þennan hátt, segir hinn Stuðmaðurinn, höfum við að okk- ar dómi sett plötuna I skemmti- lega umgerð, þótt söguþráðurinn sé i okkar meöferð eins laus og hugsazt getur. — Raunar má segja, að sagan fjalli um mann, sem gleymir sér smástund, bætir hinn við, sem einföldustu skýringu á efni sög- unnar. Héldu hljómsveitarmeð- limi vera rétt undir fimm- tugu Nú-timamanni var nú orðið mál að spyrja þá um öllu veigameira atriði, — semsé hvers vegna þeir hefðu valið þann kost að leynast. — í raunveruleikanum hefði aldrei verið hægt að reka hljóm- sveitina, það er meginástæðan fyrir þvi að Stuðmenn eru leyni- hljómsveit. — „Honey, will you marry me” var fyrsta plata ykkar, og sú tón- list á ekkert skylt við það, sem þið eruð að gera núna með Sumari á Sýrlandi. (Nú-timamaður hafði orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að hlýða á plötuna). — „Honey, will you marry me” var eingöngu grin af okkar hálfu. Hins vegar voru margir sem tóku plötuna alvarlega og gerðu sér þar af leiöandi ákveðnar hug- myndir um meðlimi Stuðmanna, þ.e.a.s. voru þess fullvissir að hljómsveitarmeðlimir væru svona rétt undir fimmtugu. — Stuðmenn væru trió, sem léki i Þjóðleikhúskjallaranum. — Við vildum hreinlega ekki láta bendla okkur við þessa tón- list, vegna þess að við vorum sjálfir að vinna að allt öðruvisi tónlist á sama tima. Mér finnst auk þess ágætt, að ekki viti fleiri deili á hljómsveitarmeðlimum en nauðsynlegt er. — Hvenær mun sú stund upp renna, að Stuðmenn komi undan leyndarhjúp sinum? — Þegar sú stóra er búin að slá I gegn og sanna ágæti sitt! Og þó, — sennilega munum við aldrei BLAÐAMAÐUR NÚ-TÍMANS FYRSTUR BLAÐAMANNA TIL AÐ RÆÐA VIÐ STUÐMENN Nú-timinn fór þess á leit það færi ekki á milli við þeirri bón, og fara við Stuðmenn, að þeir mála, hvaða fóður plat- skýringar þeirra hér á greindu litillega frá an hefði að geyma. Stuð- eftir. hverju lagi, þannig að menn urðu að sjálfsögðu 1. STÍNA STUÐ Lagið var samið á þeim tíma, er nýja leiðakerfið var að halda inn- reið sína, en þá fóru tónskáld einnig aö sjá lífið og tilveruna I öðru ljdsi. Lagið fjallar um þann merkisatburð, er vinur Stínu reynir I fyrsta sinn nýja leiðakerfið, og er hann þá á leiö I partý hjá vísitöluklikunni. 2. BADDI Á BJÚKKANUM „Ég vona bara að hún komi hon- um I lag”, segir í textanum. Þetta er söngur bllaskvísunnar og felur I sér vonir hennar og drauma um lífiö og tilveruna. Þess er vænzt, að hlustendur finni til samstöðu með stúlkunni. 3. TÆTUM OG TRILLUM Velferðarkapphlaupið I hnot- skurn. Fjallar um visitöluklik- una, sem aftur er komin á kreik i velferðarkapphlaupinu. 4. „SHE BROKE MY HEART” Afspyrnu vangalag 5. DANSLEIKUR Raunsönn lýsing á menningar- neyzlu Frónara um helgar. 7. LYFJAGRAS Lagiö var samið eftir að Stuð- menn kynntust gamalli konu að norðan sem bjó til hóstameðal. Hún hét Grasa-Magga. Lagið er samiö til heiðurs henni, en hún bjó til hóstamixtúru fyrir Stuð- menn. 8. FLJÚGÐU Hvatning til hins Islenzkra geir- fugls að hefja sig loksins til flugs, — en I lok lagsins heyrist, þegar Geirfuglinn hefur sig tignarlega til flugs. Ekkert mannlegt er Stuðmönnum óviðkomandi, og þvl væri öllum hollt að athuga sinn gang, sérstaklega með tilliti til lifs á öðrum stjörnum. 9. SÖNGUR DÝRANNA Eins og fram hefur komið áður, dvöldu þrir Stúðmanna á tauga- hæli I Týrol eftir gerð plötunnar, — og var þetta lag samið þar. 10. GEFÐU OKKUR GRIÐ Bænakall hins islenzka launþega. 11. ANDAGLASH) Yfirskilvitlegt lag. Textinn kom fram við ósjálfráða skrift. Lagið er samið af einum Stuðmanna, sem er „hinum megin”. Einn Stuðmanna er nefnilega látinn (sbr. Bitlarnir), og lék sá I gegn- um einn Stuðmanna, sem er I raun ekki meðlimur I hljómsveit- inni, en er tengiliður. 12. SUMAR ÁSÝRLANDI er ey, hvar sjáöldur brotna við strönd. 13. DAGUR Dagur er slðasta lag fyrir fréttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.