Tíminn - 25.05.1975, Qupperneq 7
..Sunnudsgur 25. mal,l975
7
iií,miii.Hiii.íi..(í.ni..r.....iS.iii..u
Ágúst Þorvaldsson:
Hin blessaða
íslenzka gróðurmold
Þegar þetta er ritað þá er vet-
urinn liðinn og sumarið að
byrja. Vor- og sumarkoman
færirlandi og lýð að þessu sinni
blíðan sumarblæ, og græn strá
eru farin að gægjast varlega
upp Ur moldinni. Sumir farfugl-
amir eru komnir og farnir að
syngja sinn dýrðaróð til lifs-
ins. Þeim hefur enn fundizt
gamla tsland hafa svo mikið að
gefa, að þeir hafa lagt það á sig,
að fljúga um hálfan hnöttinn,
þúsundir kilómetra yfir ólgandi
höf til að dvelja hér i nokkra
mánuði á eyjunni norðlægu og
eiga hér friðsælar ástar- og
yndisstundir, eignazt hér hreið-
ur, maka og börn, og annazt þá
þjónustu við lifið, sem fólgin er i
þvi að fæða og fóstra nýja kyn-
slóð. Það er islenzka moldin,
sem veitir þau skilyrði, sem
þessir gestir þurfa og þrá svo
fast, að engin hindrun gæti heft
för þeirra. Þess vegna gleyma
þeir aldrei mýri eða móa, mosa
eða lyngi og hrislu, læk eða lind,
laut og hlið. Þessi skilyrði Is-
lenzkrar náttúru veita þeim lifs-
björg einsog búfénu, sem þjóðin
hefur lifað á i 11 aldir.
Með vorkomunni þegar klaka
er aðleysa, moldin að þiðna og
grösin að vakna til lifsins að
nýju eftir vetrardvalann þá
leggur að vitum manns sætsúr-
an ilm úr jörðinni. Slikur ilmur
er sterkastur á vorin þegar ræt-
ir blóma og grasa eru að lifna,
og aftur á haustin þegar þær bú-
ast til vetrarsvefnsins. Moldin
geymir margt i sinum mjúka
faðmi. Ótal smáverur rfsa upp
af vetrarsvefni þegar vorsólin
sendir sina vermandi geisla til
jarðarinnar og regnið hjálpar til
að vekja og frjóvga hina kviku
jörð. Moldin og vatnið eru hinar
miklu uppsprettur allra hluta.
Þar sem hvorugt er til, eins og á
hinum miklu sandorpnu eyði-
mörkum, þar þrifst ekkert lif.
Island er land mikillar moldar
og auðugt af hollu vatni. Þess
vegna eru góð lifsskilyrði hér
þrátt fyrir norðlæga hnattstöðu
landsins. Hinar fyrstu frásagnir
af ferðum manna til íslands,
þótt fáorðar séu eru mjög fróð-
legar og bera vitni um góða
landkosti hér á þeim tima. Um
Naddoð viking og félaga hans,
sem taldir eru fyrsti hafa kom-
ið hér er sagt, að þeir hafi mjög
lofað landið. Garðar Svavarsson
hafði vetursetu á Húsavik við
Skjálfanda, og fór svo aftur til
Noregs. Þá var skógur milli
fjalls og fjöru, og lofaði hann
mjög landið. Flóki Vilgerðarson
og félagar hans þeir, Faxi,
Herjólfur og Þórólfur sátu eitt
ár i Vatnsfirði á Barðaströnd og
var þá fjörðurinn svo fullur af
fiski, að þeir gáðu eigi að afla
heyja svo kvikfé þeirra dó, þvi
vetur var harður og vorið kalt,
og is lá inn á firði, en þess vegna
var það sem þeir gáfu landinu
nafnið Island. Þórólfur kvað þó
smjör drjúpa af hverju strái,
þegar hann var spurður um
landkostina. Siðan þessir land-
könnuðir dvöldust hér hafa
landgæði mjög rýrnað. Skógar
horfið og gróðurlendur blásið
upp, hraun og aska breiðzt yfir
frjóar lendur. Fiskistofnar og
önnur sjávardýr verið ofveidd,
svo að liggur við tortimingu
sumra tegunda.
Ingólfur Arnarson og Hjör-
leifur fósturbróðir hans, töldu
landið betra að sunnan en norð-
an, enda eru þar stærstu sam-
felld gróðursvæði. Talið er að nú
sé gróið land neðan 200 metra
hæðarlinu 13718 ferkilómetrar,
þar af i V-Skaftafells-, Rangár-
valla- og Arnessýslum 5487
ferkm. Þegar fasteignamat það
sem tók gildi 1957 var gert, þá
voru þessar þrjár sýslur, sem
ná yfir 1/4 af flatarmáli
landsins alls með 1/3 af öllu
landverði á Islandi. Tölurnar
um hið gróna land neðan 200
metra hæðarlinunnar sýna bezt
hversu gifurlegir möguleikar
eru enn til ræktunar á Islandi,
en við þetta bætast svo hin
miklu flæmi af söndum sérstak-
lega á Suðurlandi, sem tiltölu-
lega auðveft er að græða og gera
að arðbæru landi eins og
reynslan hefur sannað.
tsland er gott land til fóður-
öflunar fyrir búfé og enn er ekki
búið að rækta nema 1/10 þeirra
grónu svæða, sem tiltölulega
auðvelt er að breyta I tún. Þetta
er hið mikla forðabúr þjóðar-
innar, sem biður eftir þvi, að
verða notað þegar aðrar
auðlindir eins og t.d. fiski-
stofnanir hafa ef til vill verið
svo rányrktir, að áratugir eða
jafnvel aldir verða að liða þar
til þeir ná sér aftur.
Fyrir 20 til 30 árum sagði vit-
ur maður, sem lengi var
heppnisformaður á fiskibát, og
var flestum kunnugri fiskimið-
um við sunnanvert landið, að
fiskistofnarnir myndu þverra
með hinni gegndarlausu veiði,
en íslendingar þyrftu samt ekki
neinu að kviða, þvi að þeir ættu
auðugt land þar sem væru orku-
lindirnar I fallvötnum og
jarðhita, en þó siðast en ekki
sizt væri framtiðargæfa þeirra
geymd i moldinni, sem landið er
svo rikt af, en hún getur verið og
er undirstaða að heita má allra
lifgæða ef rétt er á haldið, þvi að
með hjálp moldarinnar má
framleiða og skapa flesta þá
hluti æta og óæta, sem hugurinn
gimist.
Enginn staður á jörðinni er
Hfvænlegur án moldar. An
hennareru allar aðrar auðlindir
einskis virði, þvi að hún er
frumskilyrði fyrir lifinu. Við
mennirnir erum moldinni vigðir
I mörgum skilningi, enda hluti
af henni. „Til moldar oss vigði
hið mikla vald, hvert mannslif
sem jörðin elur.” Svo kvað
Einar Benediktsson. Kvikfjár-
ræktin og akuryrkjan, sem
hvort tveggja byggist á
moldinni eru undirstaða
menningarinnar. A meðan
mennirnir bjuggu i holum og
hellum og veiddu dýr merkur-
innar eða vatnanna sér til mat-
ar, þá miðaði menningunni og
þroska mannsins hægt,en þegar
hann vígðist þvi helga starfi að
erja jörðina, sá og uppskera, þá
hófst hann yfir önnur dýr og
varðherra hjarðarinnar. Flestir
hinir beztu leiðtogar þjóðanna
hafa svo langt aftur i timann
sem sögur greina skilið þetta,
og þá hefur þjóðunum vegnað
bezt þegar þær hafa mátt i friði
rækta jörð sina. Sigurður
konungur Sýr gekk sjálfur á
akur með húskörlum sinum og
mat jarðyrkjuna meira en
hemað, sem aðrir konungar
ýmsir lögðu fyrir sig og sina
þegna. Sigurður Sýr var talinn
einn hinn vitrasti og bezti
konungur um sina daga á
Norðurlöndum, svo nafn hans
lifir i fornum heimildum ekki
siður en þeirra þjóðhöfðingja,
sem voru uppi honum samtiða
og störfuðu mest að ránum og
manndrápum i hernaði.
tslenzka þjóðin var eingöngu
bændaþjóð i 10 aldir. Nú stundar
aðeins 10-12% þjóðarinnar land-
búnaðarstörf, en eins margir
eða fleiri hafa atvinnu sina i
beinum eða óbeinum tengslum
við landbúnaðinn. Þjóðin er þvi
bæði um atvinnu og neyzlu mjög
háð islenzkri mold, þvi að frá
moldinni fær hún mikinn og
hollan mat og mörg efni til
iðnaðar.
Þegar Bjarni Thorarensen
skáld orti sitt fræga ættjarðar-
ljóð, sem lengi var eins konar
þjóðsöngur tslendinga, þá varð
honum fyrst fyrir að minnast
moldarinnar, og hóf hann ástar
óð sinn til ættjarðarinnar meö
þessum fleygu orðum: „Eld-
gamla ísafold, ástkæra fóstur-
mold----— ”. Þetta gamla ætt-
jarðarljóð kveikti eld og brá
kyndli á loft, og fyrir áhrif þess
vigðist margur maður til dáða
fyrir land og þjóð. Verk þeirra
hafa talað með mörgu móti og
meðal annars á þann hátt,
að láta úr moldinni vaxa mörg
strá, þar sem áður aðeins óx eitt
eða ekkert.
Ólafur Jóhannesson formaður
Framsóknarflokksins hélt yfir-
litsræðu um þróun og horfur i
þjóðmálum i upphafi nýaf-
staðins miðstjórnarfundar og
minnist þar meðal annars á
landgræðsluna, sem hið stóra
framtiðarmál islenzku þjóðar-
innar og endaði þann kafla
ræðunnar, sem um þetta
fjallaði, með þvi að segja: „Is-
lenzk þjóð má aldrei gleyma
skuldinni við moldina — hina
blessuðu fslenzku gróðurmold.”
Þessi orð hins vitra stjórnmála-
foringja hafa áreiðanlega
glatt marga, og vist mega
bændur landsins vera þakklátir
fyrir þau, ekki sizt nú, þegar
málgagn vissra gróðamanna i
höfuðborginni hefur — að
likindum vegna þröngsýni og
imyndaðra gróðavona af
innflutningi landbúnaðarvara,
sem eigendur þess ætla að sér
myndi falla i skaut — lagt til, að
landbúnaður yrði lagður hér að
mestu eða öllu i rúst. Auðvitað
verða oftast til óþjóðleg
gróðaöfl og skammsýn i græðgi
sinni, en slfkan mátt á islenzk
gróðurmold i hugum flestra
niðja sinna, að engu þarf að
kviða. Þjóðin vill áreiðanlega
yrkja sina eigin jörð og lifa sem
mest af auði sinnar ástkæru
fósturmoldar.
Fjármálaráðuneytið,
21. mai 1975.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir april-
mánuð 1975, hafi hann ekki verið
greiddur i siðasta lagi 26. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga uns þau eru orðin 10% en
siðan eru viðurlögin 11/2% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá
og með 16. degi næsta mánaðar eftir
eindaga.
Ágúst Þorvaldsson
sýttíng á keramík
GLIT kynnir nýja
keramikmum
hjá íslenskum
heimilisidnadi
m
Sýningin stendur til
3l.maí á almennum
opnunartíma.
GLIT HF.
Jeppa og
Dráttarvéla
hjólbaröar
VERÐTILBOÐ
5y af »veim •/ af fjórum
' dekkjum dekkjum
600-16/6 ET 1 m/slöngu Kr. 7.180,-
650-16/6 ET 1 m/slöngu — 7.650,-
650-16/6 NT 6 m/slöngu — 7.750,-
650-16/6 TP 7 m/slöngu — 7.290,-
750-16/6 TP 7 m/slöngu — 8.695,-
750-16/8 ET 1 m/slöngu — 11.580,-
TEKKNESKA B/FfíE/ÐAUMBOÐ/Ð Á ÍSLAND/H/F
AUÐBREKKU 44 - 46 SÍMI 42606