Tíminn - 25.05.1975, Side 19

Tíminn - 25.05.1975, Side 19
Sunnudagur 25. mai 1975 TÍMINN 19 r Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæindastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisiason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar Í8300 — 18306. Skrifstofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — af- greiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö I lausa- sölu kr. 40.00. Áskriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Biaöaprenth.f. v_____________________________________________J Við voðans dyr Meira en tuttugu togarar hafa legið bundnir við bryggjur i sjö vikur. Jafnlengi hefur fjöldi fólks á nokkrum stöðum i landinu ekki haft verkefnum að sinna. Launatapið er orðið óskaplegt, framleiðslu- tapið og gjaldeyristapið slikt hið sama. Samtimis aukast gjaldeyrisskuldir þjóðarinnar hröðum skrefum. Sementsframleiðsla hefur stöðvazt með þeim afleiðingum, að framkvæmdum i landinu i sumar er ógnað, sér i lagi i þeim landshlutum, þar sem ekki er nema upp á skammvinna sumarmánuði að hlaupa til steypuvinnu. Á hinn bóginn er brýn nauðsyn á þvi að hraða orkuvirkjun — ekki einungis vegna þess, hve oliuverð er nú hátt, held- ur einnig af þvi, að allt bendir til þess, að það muni enn hækka til muna innan tiðar. Áburðarvinnsla liggur niðri, og bændur i Faxa- flóabyggðum og á Suðurlandi hafa ekki fengið nema helming þess áburðar, sem þeir þurfa að nota. Það mun valda þungum búsifjum, fái þeir ekki áburðinn — eða þá svo seint, að hans verða ekki nema hálf not. í ofanálag á þetta hefur Alþýðusamband íslands hvatt verkalýðsfélögin til þess að afla sér verk- fallsheimildar frá og með ellefta degi júnimánað- ar. Þar eru sextán til seytján dagar til stefnu. Þá gera opinberir starfsmenn, bæði innan Bandalags starfsmanna rikis og bæja og samtaka háskólamenntaðra manna, tilkall til hærri launa en þeir nú hafa. Hið sama er að segja um fleiri starfshópa heldur en hér er rúm til þess að nefna. Allt gerist þetta samtimis þvi, að verulega kreppir að, og minna er til skiptanna en verið hef- ur. En til þess er hvergi litið. Hver hópur um sig beinir orku sinni að þvi að draga þá burst úr nefi samfélagsins, að hlutur hans verði sem beztur, þótt afleiðingin hljóti að verða sú, þegar allar kvislar falla að sama ósi, að þjóðfélagið rambi á barmi upplausnar. Verzlunarfyrirtækin vilja hafa sem frjálsastar hendur um innflutning og álagn- ingu — launafólkið, hvar i stétt sem er, vill fá hærra kaup — atvinnurekendur vílja, að sinn hlut- ur verði gerður betri. En það hefur aldrei verið framkvæmanlegt að gera allt fyrir alla, og er ekki frekar nú en endranær. Og efnahagslegt heljar- stökk út i óvissuna er ekki liklegt til farsældar. Þetta verða landsmenn að sætta sig við, ef þeir vilja ekki feta þann veg hörmunga og lægingar, sem fylgir fjármálalegu öngþveiti. Menn verða að sætta sig við að hafa úr minna að moða en verið hefur á undanförnum árum. Þeir verða að læra að kaupa ekki hvað sem er af þvi einu, að hugurinn kann að girnast það. En jafnframt er þeirrar skyldu að gæta, að enginn sé svo afskiptur, að hann sé dæmdur til örbirgðar. Við vitum ekkert, hvenær viðskiptavogin i ver- öldinni kann að sveiflast okkur i hag. Á þvi getur orðið bið. Hin blindu viðskiptalögmál eru dutt- lungafull eins og veðurlagið og þjóðirnar sundur- þykkar. í okkar valdi stendur aftur á móti að gæta þess sem bezt, að hlutfallslega nógu margir stundi arðgæf framleiðslustörf, þvi að þau eru uppspretta alls, sem til skipta er i landinu. — JH Grein úr Aftenposten, Osló: Uggvænleg skýrsla um framtíðarhorfur Sambúð ríkra og fótækra þjóða fer versnandi Boumidienne, forseti /-.lsir, er einn skeleggasti talsmaöur þróunarlandanna. EKKI er að finna mörg upp- örvandi orð i nýjustu skýrslu hinnar alþjóðlegu stofnunar til athugana á vigbúnaði (CIISS). Skýrsla þessi var birt 9. mai s.l. og fjallar fyrst og fremst um yfirlit vigbúnaðar árið 1974, en. þar er þó einnig skyggnzt nokkuð fram á veg- inn. Þykir syrta verulega i ál- inn að þvi er tekur til aðstöðu, vilja og getu mannkynsins til þess að komast hjá átökum og almennum hörmungum. Stofnunin hefur aðsetur i London og nýtur meira álits en nokkur annar aðili, sem fjall- ar um athugun á vigbúnaði, enda ná athuganir hennar til allrar heimsbyggðarinnar. Til þessa hefur stofnunin verið kunnust fyrir árlegt yfirlit sitt um hernaðarjafnvægið. I HINNI nýju skýrslu stofn- unarinnar segir meðal annars um árið 1974: „Þegar litið er um öxl til einstakra atriða, sem mestum áhyggjum hafa valdið, ber hæst óvissuna um, hvort hið alþjóðlega samfélag reynist þess umkomið að móta reglur til varðveizlu friðar og vel- megunar, eða með öðrum og hógværari orðum sagt, að virða vopnahlé og lifa af efna- hagslega.” Skýrslan er i heild litt upp- örvandi, eins og áður er sagt, en þó má lita svo á, að nokk- urrar bjartsýni gæti i inn- ganginum. Þar er sagt, að þrátt fyrir öll vonbrigði, kreppur og breytingar, hafi á- sannazt, að minna hafi orðið úr hörmungum og alþjóðlegu stjórnleysi á árinu 1974 en margir höfðu spáð. 1 þeim hluta skýrslunnar, þar sem fjallar um framtið- ina, er gert ráð fyrir versn- andi horfum i flestum efnum. Stofnunin telur árið 1974 loka- ár þess timabils, sem hófst fyrir 1950. Eins konar milli- bilsástand er talið hafa rikt siðast liðiö ár, en siðan hljóti að taka við ný skipan i ýmsum efnum, og til hennar fari senn að taka i fullri alvöru. MEÐAL þeirra nýju áhrifa- þátta, sem stofnunin gerir ráð fyrir að senn fari að gæta i mjög auknum mæli á alþjóða vettvangi, má nefna hafrétt- arráðstefnuna, sem hefur ekki enn borið tilætlaðan árangur. Þar er um að ræða mörg mjög brýn og þungvæg hagsmuna- mál afar margra þjóða og snerta þau bæði efnahag, tækni, vigbúnað og hernaðar- aðstöðu. Arekstrarnir milli fátækra þjóða og rikra i heimi hér, og milli oliusölurikja og oliu- kauparikja, eru hvað mest á- berandi. Stofnunin nefnir I þessu sambandi alþjóðlegu orkumálasamtökin, en ekki hefur enn komið fram, hvers þau kunna að reynast megn- ug. Ókyrrðar og kreppu i efna- hagsmálum gætir mikið og viða, og á það sinn þátt i versnandi horfum, en gert er ráð fyrir, að áhrif þess eigi eftir að verða enn tilfinnan- legri en orðið er. Svipuðu máli gegnir um erfiðleikana á að sjá tugmilljónum sveltandi manna fyrir nægilegum mat. Sérstök áherzla er á það lögð i skýrslunni, að hér kunni að reynast erfiðara um úr- lausnir en séð verður að svo stöddu. Fjarri fari að vitað sé, hvort þær ráðstafanir, sem þegar er búið að fitja upp á, muni hrökkva til þess að af- stýra alvarlegri kreppu og beinu vandræðaástandi. HÆTTAN á aukinni útbreiðslu kjarnorkuvopna er einn þeirra þátta, sem hlýtur að hafa mjög mikil áhrif á framtiðar- horfurnar i alþjóðamálum yfirleitt. Indverjar sprengdu sina fyrstu kjarnorkusprengju fyrir tæpu ári. óliklegt kann að viröast, að þeir komi sér upp eiginkjarnorkuvigbúnaöi, en sú hætta er eigi að siður fyrir hendi. Aðrar þjóðir kunna svo að feta i fótspor Indverja áður en varir, og þá er orðin næsta litil stoð I sam- komulaginu, sem átti að koma i veg fyrir fjölgun þeirra þjóða, sem yfir kjarnorku- vopnum ráða. Meðal þeirra þjóða, sem liklegt má telja að eignist næst eigin kjarnorku- vopn, eru til dæmis tsraels- menn og annaðhvort Egyptar eða önnur Arabaþjóð, sem efalitið kæmi fast á hæla Isra- elsmanna. Skýrslan lýsir mikilli svart- sýni á framvinduna i deilum rikjanna fyrir botni Miðjarö- arhafsins. Hafa þurfi hraðan á, ef takast eigi að koma á sáttum i tæka tið. Henry Kiss- inger, utanrikisráðherra Bandarikjanna, tókst árið 1974 að halda hinu tvisýna vopna- hléi við lýði. Starfsmenn stofnunarinnar telja allar horfur á, að úrslitin hljóti að ráðast annaðhvort á þessu ári eða árinu 1976. tbúar Arabarikjanna biða ó- þolinmóðir eftir áþreifanleg- um árangri. Þeir telja sig hafa sigrað i Októberstyrjöldinni og vænta eðlilegs framhalds þess sigurs. Aðstaða Banda- rikjamanna til að bera klæði á vopnin mun versna verulega á árinu 1976 vegna forsetakosn- inganna. Skelli ný styrjöld á i löndunum fyrir botni Miðjarð- arhafsins, er afar mikil hætta á, að þar verði reynt eitthvað af þeim nýju vigvélum, sem Bandarikjamenn og Sovét- menn hafa veriö að reka smiðshöggið á undangengin ár. HÆTTAN á átökum milli risa- veldanna er flestum ofar i huga en allt annað, en ekki veröur annað sagt, en að skýrslan lýsi bjartsýni hvað þessa hættu áhrærir. Ekki er talinn teika neinn vafi á, að Sovétmenn telji sinum hag bezt borgið með þvi að halda friðinn. Þeir hafa enn mikinn hug á að auka viðskipti sin við Vesturlandamenn. Um þetta segir til dæmis i skýrslunni: „Þegar horft er til næstu framtiðar, eða meðan núver- andi leiðtogar i Moskvu ráða ferðinni (og að öllum likindum einnig þeir, sem við taka af þeim), eru langmestar likur á, að afstaða Sovétmanna hald- ist óbreytt, reynt verði að draga úr spennu og bæta sam- búðina við Bandarikjamenn. Ekki verður heldur séð, að um aðra leið geti orðið að ræða. Sovézkt efnahagslif þolir naumast þá raun, sem af nýju og auknu vignúnaðarkapp- hlaupi hlyti að leiða. Auk þess hljóta Moskvumenn að lita svo á, að veruleg áreitni i alþjóða- málum muni fremur þjappa Vesturlandamönnum og aðil- unum að Atlantshafsbanda- laginu saman en valda sundr- ungu i stjórn- og hermálum”. Um þetta má með sanni segja: „Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott”.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.