Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 24

Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 25. mai 1975 Höfundur: David Morrell Blóðugur hildarleikur 28 hugleiða hvers konar barn við Bea hefðum eignazt — ef við hefðum getað það. Honum sveið þetta. Það var eins og hann hefði aðeins verið þurfandi barn látins vinar í augum Orvals. Hann gat ekki sætt sig við það. Hann efaðist um sjálfan sig eftir að Anna fór. Nú var hann að tala um hana. Teasle fann, að hann varð að vekja máls á þessu í eitt skipti fyrir öll. — Áður en við komum til ykkar i mat — um síðustu jól, litum við inn hjá Sinqleton oq fenqum okkur í olas.Éa horfði á börnin hans tvö og andlit þeirra er þau fengu gjaf irnar. Þá hugsaði ég með mér, að það væri ef til vill gott aðeiga barn. Það kom mér á óvart að ég skyldi vilja barn á mínum aldri. HÚN varð svo sannarleaa undrandi. Við ræddum málið en hún sagði alltaf nei. Líklega hef ég gengið of langt. Hún hef ur sennilega borið mig saman við þau vandræði, sem hljótast myndu af barninu. Svo fór hún. Það hljómar kannski fáránlega, en þó ég geti varla sof ið, og óski þess að hún komi aftur — er ég eigin- lega feginn að hún skyldi fara. Nú er ég aftur einn míns liðs. Engar deilur. Ég get gert það sem ég vil — þegar ég vil. Ég þarf ekki að afsaka mig ef ég kem seint heim og missi af kvöldmatnum. Ég get farið út ef mér sýnist svo og elt kvenfólk. Stundum finnst mér, að það versta við burtför hennar verði kostnaðurinn við skilnaðinn. Samt sem áður get ég tæplega lýst því, hvað ég þarf nast henn- ar mikið. 1 í kuldanum sást loftið, sem hann andaði frá sér. Há- vaðinn í f uglunum var nú mangaðri en áður. Hann horfði á Orval soga að sér síðasta reyk sígarettunnar. Glóðin snerti fingur hans. Liðamótin voru hnýtt og gulnuð af tóbaksreyk. — Hvað með náungann, sem við erum að elta, sagði Orval. Lætur þú þetta allt bitna á honum. — Nei. — Ertu viss? — Það veiztu vel. Ég beiti ekki meiri hörku en ég þarf. Þú veizt jafn vel og ég, að friður helzt í bænum af því smámunirnir eru undir aga og stjórn Það er ekkert hægt að gera til að fyrirbyggja rán eða morð. Ef einhver f inn- ur hjá sér brennandi þörf til slíks — gerir hann það. En smámunirnir skapa bæinn. Þú getur haft hönd í bagga með þeim. Ef ég hefði brosað og gleypt allt sem pilturinn bauð mér upp á — hef ði það komizt upp í vana hjá mér að kyngja því sama frá öðrum af sama sauðarhúsi. Innan skamms hefði ég leitt hlutina hjá mér. Ég var að hugsa um minn hag engu síður en hans. Ég get ekki leyft mér að slaka á aganum. Ég get ekki haldið uppi lögum og reglum í eitt skiptið, en ekki það næsta. — Samt ertu anzi æstur að elta hann uppi, þrátt fyrir það að þínum hluta starfsins sé lokið. Þetta er mál rikis- lögreglunnar núna. — En hann drap einn af starf smönnum mínum. Það er skylda mín að handsama hann. Mitt lögreglulið má vita, að ég svífst einskis til að hafa hendur í hári þeirra, sem vinna því mein. Orval leit á sígarettustubbinn í hönd sinni, kinkaði kolli og fleygði honum í logana. Það var að birta. Tré og runnar sáust greinilega. En þetta var ekki raunveruleg dögun. innan skamms mundi aftur dimma yfir. Síðan kæmi sólin upp og allt yrði greinilegt á ný. Teasle hugsaði með sér, að nú gætu þeir verið komnir á fætur og af stað. Hvað var orðið af Singleton með liðsaukann og vistirnar? Hann hefði átt að vera kominn fyrir hálfri stundu. Kannski hafði eitthvað farið úrskeiðis í bænum. Ef til vill hafði ríkislögreglan hindrað för hans. Teasle rótaði til í bálinu. Loginn jókst. HVAÐ VAR ORÐIÐ AF HONUM? Þá heyrði hann geltið í hundinum langt inni í skógin- um. Hundarnir, sem bundnir voru við tréð hjá Orval ó- kyrrðust. Þeir voru f imm talsins og höfðu legið vakandi á maganum og starað á Orval. Nú voru þeir staðnir upp. Þeir voru æstir og gjömmuðu. Orval hastaði á þá. Hundarnir litu á hann og þögnuðu. Herðakambur þeirra titraði. Ward, Lester og ungi lögreglumaðurinn byltu sér sof- andi. Þeir lágu þétt við bálið og sveipuðu um sig ábreið- unum. Ward rumskaði. — Eftir augnablik, sagði Lesster, sofandi. í fjarska heyrðist hundurinn aftur gjamma. Þó var hann aðeins nær. Hundar Orvals drápu tittlinga og endurguldu gjammið af ákafa. Orval hastaði á þá. — Setjist. En þeir horfðu þangað sem gjammið heyrðist. Nasa- vængir þeirra titruðu. — Setjist, sagði Orval skipandi. Þeir hlýddu hægt og treglega. Ward engdist undir ábreiðunni með hnén við br jóst sér. — Hvað er að? Hvað er að gerast? — Fótaferðatími, sagði Teasle. Lester hváði og skalf. — Hvílíkur kuldi. — Fótaferðatími. — Eftir andartak. Þvi notaöir þú ekki byssu þina Geiri? /Ég veit hvernijpV' Ég reyni aö fá taPS „Eöa hetjuý" Akkiles? Þekkir þessu striöi lauk. af Agamemnon kon þeirra Akilles þú mig meö A ungi eöa ódysseif.' Þaö er erfitt og hættulegt aö vera alltaf aö hjálpa . öðrum. &g veitaðfúlklifiri ^ jörumheimien viðhér, 1 |eðlilegu liferni. Langar þig’ ; að prófa það? y® viðurkenna það ,en svariö er já, L't Guran. ,— Ertu orðinn þreyttur á a lifa svona li Dreki? PÞvi^ heldur þú það Guran?, A morgun: Hættir Dreki? Sunnudagur 25. mai 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson bisk- up flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. 11.00 Messa i safnaðarheimili Grensássóknar. Prestur: Séra Halldór S. Gröndal. Organleikari: Jón G. Þórar- insson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.15 Leitin að nýju Islandi. Siðari hluti dagskrár um að- draganda og upphaf vestur- ferða af Islandi á 19. öld. Bergsteinn Jónsson lektor tekur saman. Flytjandi ásamt honum: Sveinn Skorri Höskuldsson prófess- or. 14.20 Pianókonsert i a-moll op. 54 eftir Schumann. Justus Frantz og Sinfóniuhljóm- sveit finnska útvarpsins leika. Kari Tikka stjórnar. — Frá tónlistarhátið i Hel- sinki I september. 15.00 Landsleikur í knatt- spyrnu: tsland-Frakkland. Jón Asgeirsson lýsir siðari hálfleik á Laugardalsvelli. 15.55 Ilarmonikulög. Egil Hauge og félagar hans leika. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.15 Barnatimi: Ágústa Björnsdóttir stjórnar. Selur sefur á steini. — Fluttar frá- sagnir af selum, m.a. les Sigurður Grétar Guð- mundsson „Lubba’ eftir Ey- stein Gislason og Sigrún Sigurðardóttir les „Sel i sumarleyfi” eftir Halldór Pétursson. 18.00 Stundarkorn með búlg- arska bassasöngvaranum Nicolaj Ghjauroff. Tilkynn- ingar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Molar úr dulfræðum miðalda. Sigvaldi Hjálm- arsson flytur erindi. 19.50 Sinfóniuhljómsveit ts- lands leikur I útvarpssal. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. a. Forleikur að „Hollend- ingnum fljúgandi” eftir Wagner. b. Intermezzo eftir Mascagni. c. Ensk þjóð- lagasvita eftir Williams. 20.20 Frá árdegi til ævikvölds. Nokkur brot um konuna i is- lenzkum bókmenntum. Annar þáttur: Þjóðlag. — Gunnar Valdimarsson tekur saman þáttinn. Flytjendur auk hans: Helga Hjörvar, Grimur M. Helgason og Úlf- ur Hjörvar. 21.05 Kvennakór Suðurnesja syngur i útvarpssal. Söng- stjóri: Herbert H. Agústs- son. Einsöngvarar: Elisa- bet Erlingsdóttir og Rósa Helgadóttir. Undirleikarar: Ragnheiður Skúladóttir, Hrönn Sigurmundsdóttir og Sigriður Þorsteinsdóttir. 21.40 „Bcrnskusumar”, smá- saga eftir Jóhönnu Bryn- jólfsdóttur. Höfundur les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Hulda Björnsdóttir dans- kennari velur lögin. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Mánudagur 26. mai 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari (alla virka daga vikunnar). Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. landsmálabl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55: Séra Þorbergur Kristj- ánsson flytur. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sigriður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.