Tíminn - 25.05.1975, Blaðsíða 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 25. mal 1975
iUmsjón: Sigmundur ó. Steinarssoni
Bjarni Felixson.
Magnús Sigurjónsson.
Ævar Pálmi.
Ólafur Agústsson.
Páll Heiöar Jónsson. Regina Bergs.
Þau svara TÍMA-spurningu:
Ólafur Þóröarson.
Einar Magnússon.
Erlendur Hauksson.
HVERNIG FER
LANDSLEIKURINN?
GUÐMUNDUR ÞóRÐARSON,
leikmaður með Breiðablik: „Eg
er ánægður með valið á landslið-
inu, en það þýðir ekki að bjóða á-
horfendum upp á algjöran varn-
arleik. Leikurinn verður þungur,
þar sem Laugardalsvöllurinn er
mjög slæmur. Ég spái þvi, að
Frakkarnir vinni — 2:1.”
ÆVAR PALMI, lögregluþjónn:
„Ég tel að landsliðið sé mjög gott,
sérstaklega þar sem búið er að ná
i knattspyrnumennina okkar frá
útlöndum — þá Einar Geirsson,
Asgeir Sigurvinsson og Jóhannes
Eðvaldsson. Það er erfitt að spá
úrslitum — en ætli leikurinn endi
ekki með jafntefli (0:0!.”
MAGNÚS SIGURJÓNSSON,
knattspyrnuunnandi og áhang-
andi Vals: „Leikurinn? — við
vinnum 2:0. Ég er búinn að sjá
fyrra markið okkar fyrir mér.
Knötturinn hafnar efst uppi i
vinstra horninu á markinu.
Óvænt mark, þvi að allir héldu að
knötturinn myndi fara fram hjá
markinu. Ég er ekki enn búinn að
sjá siðara markið fyrir mér.”
JÓN ERLENDSSON, fyrrum for-
maöur landsliösnefndar karla I
handknattleik: „Ég held að þetta
hljóti að ganga vel hjá strákun-
um. Ég vona það bezta og spái
jafntefli — það verða skoruð
mörk I leiknum. Ég er ekki hrif-
inn af varnarleik, en verður ekki
oft að gera það, sem ekki er
skemmtilegt?”
ÓLAFUR AGÚSTSSON, lögfræö-
ingur: „Strákunum tekst að
hanga i jöfnu —1:1. Annars er ég
ekki ánægður með landsliðið —
Kristinn Björnsson úr Val á tvi-
mælalaus heima i liðinnu, hann
hefði getað hresst upp á framlin-
una.”
ARNI JOHNSEN, þjóðlagasöngv-
ari frá Vestmannaeyjum, með
meiru: „Það er á hreinu, að við
vinnum leikinn — 3:1, en þá má
alls ekki leika varnarleik. Asgeir
Sigurvinsson (2) og Matthias
Hallgrimsson skora mörkin, ég
læt siðan Frökkunum eftir, að bit-
ast um það hver skorar þeirra
mark.”
SIGl/RnóR SIGURDÓRSSON,
blaðamaður við Þjóðviljann:
„Það er ekki hægt að búast við of
miklu, þvi að af okkar hálfu
verður leikinn varnarleikur, sem
endurspeglast i þeirri knatt-
spyrnu, sem erlendu þjálfararnir
hafa verið að láta félagslið okkar
leika — 8 menn i vörn og 2
frammi. Sem varnarlið er lands-
liðið mjög gott, það vantar aðeins
Einar Gunnarsson i vörnina, svo
að liðið verði fullkomið varnarlið.
Ég er ávallt bjartsýnn — við töp-
um 0:2.”
REGÍNA BERGS, kennari: „Ég
hef engan áhuga á knattspyrnu.
Ætli leiknum lykti ekki með jafn-
tefli - 1:1.”
BJARNI FELIXSON, formaður
knattspyrnudeildar KR og fyrr-
verandi formaður Iandsiiðsnefnd-
arinnar i knattspyrnu: „Það má
búast við skemmtilegum leik.
Það er allt i lagi að hugsa um
varnarleik, en það má ekki ein-
göngu hugsa um hann og leika
hann stift. Það á að vera i lagi að
þreifa á Frökkunum og sina þeim
i tvo heimana. Að minu áliti vant-
ar fleiri framlinuspilara I Jands-
liðið — það hefði verið allt i lagi
að hafa þá til taks. Ætli úrslitin
verða ekki jafntefli — 1:1.
EINAR MAGNÚSSON, landsliðs-
maður i handknattieik: „Það eru
engir byrjendur, sem við eigum i
höggi við og þess vegna er slæmt
að leika gegn þeim núna, þegar
keppnistimabilið er að byrja hjá
okkur, en enda hjá þeim. Ég er
ánægður með liðið, sem er skipað
nær sömu leikmönnum og léku
með liðinu i fyrra. Það má alls
ekki leika stifan varnarleik, sér-
staklega þar sem við leikum á
heimavelli. Ég er bjartsýnn og
spái jafntefli — ég vona að eitt
eða tvö mörk verða skoruð, það
væri skemmtilegra.”
KARL HARRY SIGURÐSSON,
bankastarfsmaður: „Ég er ekki
ánægður með liðið, þar sem ég er
algjörlega á móti varnarleik. Ég
skil ekki hvað erlendu þjálfararn-
ir meina með öllum þessum
varnarleik, sem þeir eru nú að
innleiða i knattspyrnuna hér.
Knattspyrnan er ekki það góð hjá
okkur um þessar mundir, að það
þurfi að vera að innleiða varnar-
leik hér, þar sem sóknarleikur
ræður nú rikjum alls staðar i
heiminum. Ég er bjartsýnn á úr-
slit leiksins — Frakkarnir vinna
sigur 0:2.”
ERLENDUR HAUKSSON, mat-
sveinn: „Ég vona að landsliðið
leiki ekki varnarleik gegn Frökk-
unum. Við eigum það góða knatt-
spyrnumenn, að ekki á að þurfa
að beita varnarleik og það á
heimavelli. — Ég hef trú á þvi að
leikurinn verði góður og
skemmtilegur og sé ég ekkert þvi
til fyrirstöðu, að okkur takist að
vinna sigur yfir Frökkunum —
2:1. — Hverjir skora mörkin? Þvi
er fljótsvarað, Elmar Geirsson
skorar bæði.”
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON, hinn
kunni skemmtikraftur úr Rló-
trióinu: „Þetta verður gifurlega
skemmtilegur leikur. Svo verður
dómurunum kennt um það, þegar
islenzka liðið tapar. Ég vona
samt að við vinnum sigur yfir
Fransmönnunum.”
PALL HEIÐAR JÓNSSON,
fréttamaður hjá útvarpinu: „Nei,
ég skal svara öllu öðru en þessu.
Ég hef alls engan áhuga — skiptir
þétta einhverju máli?”
Myndir:
GUNNAR
Karl Harry.
Arni Johnsen.
Guðmundur Þórðarson.
Sigurdór Sigurdórsson.
Jón Erlendsson.