Tíminn - 25.05.1975, Qupperneq 27
Sunnudagur 25. mai 1975
T/T/ririT
TÍMINN
27
íslenzku landsliðsmennirnir
verfta að beriast eins oa li
— ef þeim á að takast að klekkja á Frökkum d Laugardalsvellinum í dag
on
Það væri að bera i bakkafull-
an lækinn, að fara að fjölyrða
um fyrstu leikina i tslandsmót-
inu i knattspyrnu. Þvi hafa
lesendur blaða og óánægðir
áhorfendur vafaiitið fengið nóg
af. Til þess að setja kommuna
yfir „núllið’’ um helgina, ætla
ég að rabba örlltið um þessa
söguiegu helgi. Nokkur atriði
verða þá helzt minnisstæð.
Aldrei áður hefur sézt eins mik-
ill varnarleikur i 1. umferð
tslandsmóts. Sjaldan hafa gefizt
eins frá tækifæri til marka-
skorunar og ALDREI eins ,,fá”
mörk skoruð. Þá vakti það at-
hygli mina með fullri virðingu
fyrir vini minum Þorsteini
Ólafssyni, að markvörður
skyldi vera álitinn eiga meiri
möguleika á að skora úr vita-
spyrnu, heldur en sóknarmað-
,ur!
Ég hef engan áhuga á þvi að
elta ólar við einn eða neinn i
þessum pistlum, en vil gjarnan
gagnrýna það sem ég álit miður
fara og greina frá þvi sem vel er
gert. Vona ég að hvorki þjálfar-
ar, íslenzkir, jafnt sem erlendir,
leikmenn og aðrir taki skrif min
óstinnt upp. Þvi sfðastur manna
vildi ég upphefja leiðindi.
Uppbygging knatt-
spyrnunnar
Flestir vita að góða knatt-
spyrnu skal skipuleggja frá
grunni, þ.e. frá markverði til
fremsta manns. Fyrst skal
þjálfari skapa góðan varnar-
leik, fikra sig siðan áfram og
loks blása til orustu eins og góð-
um hershöfðingja sæmir. Likj-
um knattspyrnunni við hús-
byggingu. Byrjað á stöplum,
slegið upp og steypt. Við erum i
dag með húsið fokhelt! Látum
ekki deigan siga, þvi fjármagn-
ið er fyrir hendi, og efnið
er mjög gott, sem við byggjum
úr. Höldum þvi áfram og ljúk-
um verkinu i sóknarhug.
Til umhugsunar er, hvort at-
vinnuþjálfararnir leggi metra
upp úr varnarleik en áður hefur
verið. Markaskorun i 1. umferð
1. deildar tslandsmótsins hefur
verið eftirfarandi undanfarin
ár. erl. þjálf.
1971 13 m örk 0
1972 13 m örk 0
1973 12 m örk 2
1974 Gmörk 7
1975 1 mark 6
Þjálfarar islenzku liðanna
vita vafalaust miklu betur en
ég, hvernig skipuleggja þarf
sóknarknattspyrnu. En þvi
ekki að byrja strax?
Erlendu þjálfararnir koma
allir frá föðurlandi knatt-
spyrnunnar og hafa örugglega
mismunandi hugmyndir um
uppbyggingu og árangursrikan
leik. Hvers vegna fara þeir ekki
sinar eigin leiðir og framkvæma
áform sin? Þannig yrðu liðin
ólikari hvort örðu og knatt-
spyrnan og leikaðferðirnar fjöl-
breyttari og skemmtilegri fyrir
áhorfendur. Taka mætti einnig
upp þá nýbreytni, sem Frakkar
og fleiri þjóðir hafa byrjað með,
þ.e. gefa aukastig ef líð skorar
meira en þrjú mörk I leik. Mikill
áhugamaður um knattspyrnu
sagði við mig, að einfalt væri að
auka sóknarleikinn. „Fækka
bara mönnum eins og á stóru
togurunum”. Og að lokum um
þetta mái: „Eitthvað er sem
veldur, að fólkið vill sóknina
heldur”.
Úrslit fyrstu leikjanna
Hinir ungu F.H.-ingar sem
ásamt liði I.B.V. leika einna
mestan sóknarleik, tóku væng-
brotna Framara i hálfgeröa
kennslustund og sigrufju verð-
skuldað! Þeir sýndu mpð þess-
ari frammistöðu, að eigin lið
skyldu vanmeta þessa ungu og
skemmtilegu knattspyrnu-
menn. Mark þeirra skoráði mið-
herjinn Leifur Hclgason og er
hann nú lang-markhæstur f ts-
landsmótinu með samtals eitt
mark.en öll liðin hafa nú leikið!
Erkifjendurnir, KR-ingar og
< —...... m.
LANDSLIÐSHÓPURINN var á
æfingu á nýja grasvellinum i
Kópavogi á föstudagskvöldið.
(Timamynd Gunnar).
Skagamenn gerðu jafntefli á
Skipaskaga i þófkenndum leik.
öðru visi mér áður brá!
Valsmenn heimsóttu Keflvik-
inga og i miklum baráttuleik á
20 metra svæði varð jafntefli.
Tækifæri voru fá, en helzt bar til
tiðinda að markverði Keflvik-
inga brást bogalistin i vita-
spyrnu. Skot hans var þó engu
að siður með afbrigðum glæsi-
legt. Það hefði verið eftir gangi
fyrstu leikjanna, að markvörð-
ur væri markhæstur!
Eyjamenn sóttu mjög i leik
sinum, en sem sönnum Viking-
um sæmdi gáfu þeir ekkert eftir
og markalaust jafntefli varð
staðreynd.
ÁFRAM ÍSLAND
I dag leika Islendingar sinn
fyrsta landsleik á árinu og mæta
þá Frökkunt i Laugardal.
Astæða er til að hvetja fólk til að
fjölmenna og styðja við bak
okkar manna, þvi Frakkar eru
nú þegar orðnir eitt af stórveld-
unum i knattspyrnunni.
Persónulega er ég ntjög bjart-
sýnn á úrslitin og að við náurn
með góðum leik a.m.k. jafntefii.
Munar þar mest um tilkomu
þeirra Ásgeirs Sigurvinssonar,
Jóhannesar Eðvaldssonar og
Elmars Geirssonar I.Iiðið. Þess-
ir menn munu eflaust mynda
þann kjarna, sem hverju lands-
liði er nauðsynlegur, ásamt
Sigurði Dagssyni og Guðgeiri
Leifssyni. Að öðru leyti sýnist
mér liðið vera mjög vel valið og
til alis liklegt. Ég ætla þá að lok-
um að óska strákunum góðs
gengis i leiknum og veit að þeir
ganga ótrauðir frant til barátt-
unnar með samstillingu og
sigurvilja i huga. Þá þarf engu
að kviða.
Kveðja.
„FÆKKA BARA EINS OG
Á STÓRU TOGURUNUM"
Landsleikurinn gegn Frökkum i
dag er fyrsti landsleikurinn hjá
íslendingum eftir hið frækilega
jafntefli (1:1) gegn A-Þjóðverjum
i Magdeburg. islenzku leikmenn-
irnir eiga erfiða raun framundan,
þvi að flestir ætlast til að þeir
fylgi jafnteflinu gegn A-Þjóðverj-
um eftir og sýni Frökkum I tvo
heintana. Það verður erfitt fyrir
okkar beztu knattspyrnumenn,
sem eru að hefja keppnistimabil-
ið, þvi að Frakkar eru nú I topp-
æfingu og þeir eru að ljúka
keppnistimabilinu hjá sér. En
Á vellinum með
hvað um það, hinir fjölmennu
knattspyrnuunnendur hafa mikla
trú á landsliðsmönnunum okkar
og þeir krefjast þess af landsliðs-
mönnunum, að þeir berjist eins
og grenjandi ljón á Laugardals-
vellinunt I dag, og þeir stefni
óhikað að sigri.
Umhelgina hafa landsliðsmenn
okkar verið i æfingabúðum á
Þingvöllum og að Laugarvatni
undir stjórn landsliðsþjálfarans
Tony Knapp.Knapp er örugglega
búinn að leggja þeim reglurnar
og þeir mæta óhræddir til leiks.
Nú eru uppi miklar getgátur um
það, hvernig landsliðið verður
skipað i dag — hvaða leikmenn
byrja leikinn gegn Frökkum.
tþróttasiðan ætlar hér til gamans
að stilla landsliðinu upp, eins og
hún hefur trú á, að liðið verði.
Miklar likur eru á þvi, að Sigurð-
ur Dagssonverji markið, þar sem
hann hefur reynsluna fram yfir
Arna Stefánsson,nýliðann i hópn-
um. Þá má búast við að aftasta
vörnin verði skipuð sömu leik-
mönnum og léku i liðinu sl.
keppnistimabil — þeim Jóni
Péturssyni og Gisla Torfasyni
sem bakvörðum og þeir Jóhannes
Eðvaldssonog Marteinn Geirsson
sjái um miðjuna. Það er erfiðast
að segja um, hvaða leikmenn
verða á miðjunni, en miklar likur
eru á þvi, að þeir Ásgeir Sigur-
vinsson, Guðgeir Leifsson, Grétar
Magnússon og Elmar Geirsson
byrji á miðjunni, en þeir Elmar,
Ásgeir og Guðgeirgeta allir tekið
virkan þátt i sóknarleiknum.
Skagamennirnir Teitur Þórðar-
son og Matthfas Hallgrimsson
verða þá i fremstu viglinu, tilbún-
ir að taka við sendingum frá Guð-
geiri og Ásgeiri, sem verða svo
kallaðir matarar, og Elmar
bregður sér fram, þeim til að-
stoðar.
Miklar likur eru á því, að tvær
breytingar verði gerðar á liðinu i
leiknum og læðist þá að sá grun-
ur, að Keflvikingunum ólafi
Júliussyni og Karli Hermanns-
syniverði hleypt inn á.
En hvað um það, þetta er bara
getgáta. Að sjálfsögðu stillir Tony
Knapp liðinu upp, eins og honum
þykir rétt. Hann hefur oft sýnt
það, að hann kann að tefla sinum
mönnum fram, þar sem það á við
hverju sinni.
tþróttasiðan óskar landsliðs-
mönnunum góðs gengis i leiknum
i dag og vonar að þeir geti klekkt
á Frökkunum. Og áhorfendur
mega ekki gleyma sinu hlutverki
— þeir verða að hvetja strákana.
ÁFRAM tSLAND.
LEIFUR HELGASON...er nú
lang-markhæstur i tslandsmót-
inu, eftir fyrstu umferðina.