Tíminn - 06.07.1975, Side 37
37
Suniiudágur G. júíi’ 1975.
0
loftleysi, en Ólafur Thors fór úr
jakkanum og bretti upp fyrir oln-
boga.
Fjölmennir dansleikir voru hér
oft og húsið i miklu uppáhaldi hjá
ungu fólki, enda kvað Gisli i Mikl-
ey eitt sinn:
Komi ég út að kvöldi dags,
klæddur i frakkann bláa,
augun leita uppi strax
Akrahúsið gráa.
Mér er nær að halda, að ekki
séu næsta margir fullorðnir Skag-
firðingar, sem ekki hafa einhvern
tima verið á balli á ökrum. Og
segja mætti mér, að þar hafi ver-
iðlögð fyrstu drög að þó nokkuð
mörgum hjónaböndum. Mun það
ekki einsdæmi, sem Magnús á
Vöglum orti svo um :
Ofarlega i Löngubrekku átti
hún
stefnumót,
einmitt þar sem hallar mest i
gilið, o.s.frv.,
en Langabrekka er, eins og þú
veizt, hér uppi i Bæjargilinu.
Það var að sjálfsögðu mikill
léttir, einkum fyrir konurnar, að
losna við öll fundahöld úr gamla
bænum en svo kom að þvi, að við
byggðum ibúðarhúsin. t þá bygg-
ingu réðist ég 1938 og sá Ólafur
Eiriksson, húsasmiður á Hegra-
bjargi i Heganesi um hana. ólaf-
ur er Austur-Skaftfellingur, flutt-
isthingað til Skagafjarðar að mig
minnir 1933 og hóf þá hér húsa-
byggingar. Aður en Ólafur byrj-
aði að byggja hér var mjög litið
um steinhús i Skagafirði, og er
mitt hús þannig eitt með þeim
allra fyrstu. ólafur var afburða-
maður til verka og svo vandað er
húsið, að þar sést hvergi sprunga
i vegg þótt miklu yngri steinhús
séu að springa og hálfhrynja.
Byrjað var að grafa fyrir húsinu
snemma i mai og flutt i það fyrir
jól. Þá var ólafur ekki einungis
búinn að koma þvi undir þak
heldur einnig að smiða i það allar
innréttingar. Uppkomið kostaði
húsið rúmar 7 þús. kr. Ef ég nam
rétt nam byggingarlán þá kr. 4
þús. og svo var veitt 1500,00 kr. ó-
afturkræft framlag. Þetta voru
afbragðs kjör, enda sagði Ólafur
að allir gætu byggt, það væri bara
að hafa sig upp f að byrja á þvi, —
og það var alveg rétt. Ef til vill
hefur húsið verið eitthvað ódýr-
ara, af þvi að það var eins konar
tilraunahús. Áður voru húsin höfð
með tvöföldum veggjum og
stoppáð á milli þeirra, þannig
vildi Jóhann Fr. Kristjánsson,
byggingameistari hafa það, en
mitt hús var hins vegar með ein-
földum veggjum og einangrun og
þvi i raun og veru byggt i and-
stöðu við Jóhann. Jóel byggði sitt
hús ári seinna. Það er álika að
stærð en varð um 3 þús. kr. dýr-
ara. Seinna var svo byggt við hús-
ið mitt, eftir að Sigurður sonur
minn fór að búa hér og fjölskylda
hans stækkaði.
— Nú var lengi lögferja yfir
Héraðsvötn á Akrahyl. Var ekki
átroðningur og erill á ykkur
Akrabændum i sambandi við
hana?
— Já, lögferja var hér um
langan aldur og hún var ekki lögð
niður fyrr en Héraðsvötnin voru
brúuð á Grundarstokk 1929. Nei,
átroðningur gat nú varla heitið
verulegur i sambandi við hana en
ferjumannsstarfið gat auðvitað
verið erilsamt, það þekkti ég af
eigin raun, þvi við Jón i Miðhús-
um vorum seinustu ferjumenn-
irnir á Akrahyl. En ég hafði samt
gaman af þessu starfi. Ég hef
alltaf verið mannblendinn og haft
ánægju af þvi að kynnast fólki og
spjalla viðþað. Og viðferjunahitti
ég marga, og m.a. menn, sem ég
hefði naumast fundið að öðrum
kosti. Fyrir kom að ferjan bilaði
og varð þá að flytja fólk yfir á
pramma en reka hestana eða
teyma á eftir prammanum. Eitt
sinn hittist svo ilia á. að stór hón-
ur manna, Eyfirðinga og Þingey
ingar, sem voru að fara á aðal-
fund Sambands isl. samvinnufé-
laga, sem haldinn var þá á
Blönduósi, þurfti að fá ferju yfir
Vötnin en ferjustrengurinn var
bilaður. Fararstjóri hópsins var
Jón Ólafsson frá Mýrarlóni,
hestamaðurinn viðkunni og man
ég glöggt hvað hann reið þá á fall-
'Wminn
HINGAÐ HAFA...
egum hesti. Þarna var og Vil-
hjálmur Þór með i' för og fleiri
höfðingjar. Að sjálfsögðu varð að
ferja mennina á prammanum en
flestir vildu reka hestana, sem
voru margir, töldu það fljótlegra
og brotaminna. Nú hittist svo á,
að talsvert flóð var i Vötnunum
svo að við Jón óttuðumst, að erfitt
kynni að reynast að reka yfir svo
marga og ókunnuga hesta, viss-
um ekki heldur, hversu vel mætti
treysta þeim i sliku volki, en töld-
um okkur hins vegar bera ábyrgð
á þvi, að allt gengi slysalaust.
Vart) þvi úr, að við teymdum þá á
eftir prammanum og urðu þetta
margar ferðir. Allt gekk þetta
slysalaust en hætta gat verið á, að
óstilltir hestar, sem óvanir voru
svona meðferð, prjónuðu upp á
prammann og gat þá illa farið.
Reið þvi á miklu, að taumhald á
þeim væri rólegt og öruggt.
— Nú hagar svo til hér i Akra-
torfu, að hér eru fimm býli, sem
öll liggja samtýnis og aðeins
fárra minútna gangur milli
þeirra, sem fjast liggja hvort
öðru. Má þvi segja, að hér sé eins
konar byggðahverfi. Hvernig
hefur þér fallið þetta þröngbýli?
— Sjálfsagt má segja á þvi
bæði kost og löst. Ég hef oft verið
að furða mig á þvi, svona með
sjálfum mér, að hér skuli ekki
hafa verið nágrannakritur. Nú vil
ég náttúrlega ekki segja, að hans
hafi aldrei gætt, annað væri nú i
sjálfu sér óeðlilegt, en aldrei
hefur hann þó staðið dýpra en
svo, að allir hafa ætið verið reiðu-
búnir til þess að hlaupa undir
bagga hver með öðrum þegar á
hefur þurft að halda. Og þetta
þéttbýli hefur lika komið sér vel
hér áður fyrr, þegar hér voru fjöl-
mennir fundir og samkomur. Þá
voru ekki bilarnir til staðar, en
menn komu riðandi i stórum
flokkum svo að hestar skiptu tug-
um, stundum jafnvel mikið á ann-
að hundrað. Alla þessa hesta
þurfti að taka hér i gæzlu, að vetr-
inum i hús og þá kom sér vel, að
stutt var i húsaskjól á næstu bæj-
um. Þessa fyrirgreiðslu var auð-
vitað sjálfsagt að veita, eins vel
og kostur var. Nú, svo þegar hest-
unum fækkaði þá kom hér póstur
og simi og margs konar fyrir-
greiðsla i sambandi við það.
Þannig held ég að dvölin hér á
Okrum hafi einmitt orðið til þess
að ég hef getað gert ýmsum ein-
hvern greiða, sem annars hefði
ekki orðið til og ti! þess er gott að
hugsa.
— Nú þekki ég þig að því,
Björn, að þú hefur áhuga á fé-
lagsm álastörfum, en þykir
kannski dálitið gjar'n á að fara
stundum I þeim efnum utan við
alfaraleið. Hvað viltu segja um
það?
— Já, það er rétt, að ég hef allt-
af haft nokkurn áhuga á félags-
málum, þótt þátttaka min i þeim
hafi nú aldrei verið mikil né
merkileg. Eins og ég sagði áðan
gekk ég snemma i ungmennafé-
lög og starfabi i þeim nokkuð
frameftir ævi, mér til gagns og á-
nægju. Ungmennafélögin voru,
á sínu blómaskeiði, stórmerkur
félagsskapur og reyndist mörg-
um beinlinis dýrmætur félags-
málaskóli. Nú er allur félags-
skapur dauður, miðað við það,
sem áður var. Mér sýnist það
helzt vera kvenfélögin, sem eitt-
hvert lifsmark er með og svo —■
hér frammi i héraðinu — karla-
kórinn ykkar, sem þarf þó að
sækja söngstjóra til Akureyrar.
Nú, ég hef starfað hér i hrepps-
nefndinni i tvö kjörtimabil. Mig
minnir að ég hafi fyrst verið kos-
inn þangað 1935 og svo aftur 1958.
A samvinnufélagsskapnum hef ég
alltaf haft mikinn áhuga og reynt
að hlynna að honum eftir megni
og oft verið fulltrúi á aðalfundum
Kaupfélags Skagfirðinga. A sið-
ari árum hefur margt misjafnt
verið sagt um samvinnufélögin og
sjálfsagt sumt með réttu. Þau eru
ekki fullkomin, fremur en önnur
mannanna verk. Og það veldur,
þar sem annars staðar, hver á
heldur. En þá er að reyna að bæta
úr þvi, sem aflaga þykir fara. Ég
tel lifsnauðsyn fyrir þessa þjóð,
að hin sanna samvinnuhugsjón
nái að móta þjóðlifið i auknum
mæli og á sem flestum sviðum.
Þetta segi ég hiklaust, þótt ég
annars telji mig fæddan róttækan
ihaldsmann. Svo gekk ég i
Bændaflokkinn á sinni tið, þvi að
mér fannsl að bændur þyrftu að
eiga sinn eigin stjórnmálaflokk
og þar taldi ég mig réttan mann á
réttum stað en sú flokksstofnun
fór nú út um þúfur.
— Og nú, Björm, þegar þú lítur
til baka yfir langa ævi, hvaö leitar
þá mest á hugann?
— Náttúrlega kemur margt i
hugann þegar litið er til baka. Og
að sjálfsögðu fer aldrei allt eins
og maður hefði helzt kosið, enda
má deila um, hvað æskilegt það
væri. Ég hef reyntað tileinka mér
þá lifsspeki, sem birtist i tveimur
vísum, sem ég lærði ungur. önnur
þeirra er visan hans Öla gamla á
Bakka en Óli var próventukarl
hjá Gosa, (Gottskálk Egilssyni),
á Bakka i Vallhólmi. Visan er
svona:
„Dómar falla eilifð i'
öld þótt spjalli minna,
gæta allir ættu þvi
eigin galla sinna”.
Ég sé enn ljóslifandi fyrir mér
Óla gamla, þar sem hann situr á
rúminu si'nu, rær fram i gráðið og
raular aítur og aftur þessa visu.
Hin visan, sem raunar er svipuð
þeirri fyrri, að efni til, er þannig:
„Illt er að halla á ólánsmann,
það ætti varla að gera.
Við höfum allir, eins og hann,
einhvern galla að bera”.
Hvernig mér hefur tekizt að lifa
eftir þessum boðskap er svo ann-
að mál og ekki mitt að dæma um.
Valdimar heitinn i Vallanesi
var einhver sú mesta hamhleypa
til allra verka, sem ég hef kynnzt.
Hann linnti aldrei á sprettinum.
Og þegar um það var rætt við
Valdimar, að hann ætti nú stund-
um að fara sér hægar, þá svaraði
hann:
„Uss, það dugar ekki, lífið er
svo stutt en það er svo mikið að
gera”.
Og þó að þetta sé auðvitað gull-
satthjá Valdimar þá hef ég nú átt
dálitið erfitt með að lifa eftir
þessari lifsreglu. Eins og ég sagði
þér vist áðan, þá hef ég alltaf ver-
ið latur. En konan min aftur á
móti, hún Sigriður, er einstök at-
orku- og dugnaðarkona. Og henni
er það margfalt meira að þakka
en mér hvað við höfum þó komizt
vel af. Og það er þakklæti til
hennar og fjölskyldunnar, sem'
mér er rikast i huga þegar ég lit
um öxl. Henni og börnunum er
það að þakka að mér finnst alltaf
hafa verið sólskin, sfðan við byrj-
uðum að búa. Börnin hafa raðað
sér hér i kringum okkur og meira
að segja telur Gunnar heimili sitt
hér i Akrahreppi þótt hann hafi
verið búsettur i Reykjavik að
undanförnu. Og svo hefur alltaf
verið hér gestkvæmt og það likar
mér vel. Þaö hefur sannazt, sem
Ólafur á Hegrabjargi sagði, þeg-
ar bann var að smiða fyrir mig
stofuborðið. Ég fór að tala um
hvort það væri ekki of stórt i
svona litla stofu en þá svaraði
Ólafur:
„Nei, þú sannar til, það verður
ekki of stórt. Hér koma fleiri en
boðnir eru”.
Og raunar hafa nú aldrei neinir
sérstakir verið boðnir. Hingað
hafa allir verið velkomnir.
Magnús H. Gíslason.
AAold
til söiu. — Heimkeyrð.
Sími 7-31-26.
HAGSTÆÐ
KAUP I
pHW
GERIÐ HAGSTÆÐ KAUP
Pantið heyvinnuvélarnar strax
5ÍMI 81500-ÁRMÚLA11
Traktorar
Búvélar
f Þriggja og fjögurra skúffu
kommóöur.
vio bjooum
BÆSUD HUSGOGN
Hjá okkur færöu húsgögn úr spónaplötum,
bæsuö eöa tilbúin undir málningu,
hvort heldur sem er eftir þinni hugmynd eöa okkar.
Skrifborö og hillur,
miklir uppröðunarmöguleikar
Klæöaskapur
afarrúm-«i|
góöur.
Svefnbekkur með
rúmfatageymslu.
Skrifborð og hilla. ”
iv.r
Unglingaherbergið
Barna og unglingaskrifborð og fataskápur
hannaður fyrir sérstaklega
Pirahillur og skápar.
lítið gólfplass