Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 1
BYLTING Í KIRGISISTAN Stjórnarbylt- ing var gerð í Kirgisistan á fimmtudaginn og hafa leiðtogar byltingarinnar þegar skip- að nýja ríkisstjórn. Boðað hefur verið til kosninga í júní. Sjá síðu 4 SKILYRTUR STYRKUR Stjórnarfor- maður Mannréttindaskrifstofu Íslands undr- ast að 2,2 milljóna króna styrkur frá ríkinu sé skilyrtur. Sjá síðu 2 ÓTTAST HRYÐJUVERK Óttast er að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða þegar Karl Bretaprins og Camilla Parker-Bowles gifta sig í næsta mánuði. Sjá síðu 2 KEYPTU Í INTRUM Burðarás hefur eignast 4,5 prósenta eignarhlut í Intrum Justitia, sem er skráð í sænsku kauphöll- inni. Burðarás á nú um tveggja milljarða króna hlut í Intrum. Sjá síðu 4 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Kvikmyndir 44 Tónlist 38 Leikhús 42 Myndlist 42 Íþróttir 30 Sjónvarp 46 LAUGARDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 26. mars 2005 – 82. tölublað – 5. árgangur FREMUR HÆG SUNNANÁTT í dag og rigning um sunnanvert landið. Annars skýjað með köflum og hlýtt í veðri. Sjá síðu 4 LEIKIÐ GEGN KRÓÖTUM Íslenska landsliðið í fótbolta mætir Króatíu í undan- keppni heimsmeistarakeppninnar. Leikur- inn, sem er sýndur beint á Sýn, fer fram í Króatíu og hefst klukkan 17. Hjálpin fylgir Fréttablaðinu í dag STJÓRNMÁL Formanni borgarráðs, Alfreð Þorsteinssyni, líst illa á hug- myndir fjármálaráðherra um að fasteignagjöld af opinberum bygg- ingum renni í jöfnunarsjóð sveitar- félaganna. Geir Haarde fjármálaráðherra lýsti þeirri skoðun sinni í kvöldfrétt- um Ríkisútvarpsins á miðvikudag- inn að til greina kæmi að fasteigna- gjöld af opinberum byggingum rynnu í jöfnunarsjóð. Alfreð Þor- steinsson telur að sú ráðstöfun muni kippa stoðunum undan hugmyndum um gjaldfrjálsan leikskóla. „Ég er undrandi á viðbrögðum fjármálaráðherra því að samkomu- lagið sem gert var á milli ríkisins og sveitarfélaganna um tekjustofna var ekki skilyrt að neinu leyti og því ekki á valdi sjálfstæðismanna að segja til um það hvernig einstök sveitarfélög og þar með talið Reykjavíkurborg ráðstafi sínum tekjum,“ segir Alfreð. Alfreð bendir á að flokkarnir sem standa að Reykjavíkurlistanum séu sammála um að stefna beri að gjaldfrjálsum leikskóla. „Ef Sjálf- stæðisflokkurinn ætlar að hindra efndir á samkomulaginu sýnist mér vera kominn upp ágreiningur á milli stjórnarflokkanna.“ - shg VINIRNIR BOBBY FISCHER OG SÆMUNDUR PÁLSSON Fischer var harðorður í garð ýmissa manna og málefna á blaðamannafund- inum á Hótel Loftleiðum í gær. Sæmundur Pálsson og Ísland fengu þó ekkert nema lof þessa nýja Íslendings. Fönn, fönn, fönn Um þrjú þúsund manns skemmtu sér konunglega í Royal Albert Hall í í fyrrakvöld þar sem Stuðmenn léku á als oddi eins og þeim er einum lagið. SÍÐA 22 Tími kraftaverka Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson tónskáld hefur verið með óperu í smíðum í félagi við Hall- grím Helga Helgason og Hilmar Oddsson. SÍÐA 26▲▲ Ópera verður til SÍÐA 28 ▲ Um páska minnumst við mesta kraftaverks sögunnar. Kraftaverkin má enn finna samkvæmt kirkjunnar mönnum. Ásökunum vísað á bug: Ólafur kom hreint fram VIÐSKIPTI Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers, segir Landsbank- ann snúa hlutum á hvolf þegar bankinn reyni að gera sig að fórn- arlambi eftir að hafa reynt fjand- samlega yfirtöku á Keri. Hann segir hlutafjáraukningu stjórnar- manna í Festingu siðlausa. Samstarfsmenn Ólafs Ólafs- sonar, aðaleiganda Kers, vísa til föðurhúsanna fullyrðingum Páls Þórs Magnússonar, framkvæmda- stjóra Sunds, um óheilbrigða við- skiptahætti Ólafs. Þeir segja sam- starfsaðila Ólafs hafa verið upp- lýsta um stöðu Ólafs í viðskiptum Essó og SÍF. Ólafur hafi vikið af fundi við sölu SÍF á Iceland Seafood og Jóni Kristjánssyni, mági Páls og aðaleiganda Sunds, hafi verið fullkunnugt um alla þætti þeirra viðskipta og um að- komu Ólafs að hugsanlegum kaupum á Essó. - hh Sjá síðu 6 Hugmyndir fjármálaráðherra um að fasteignagjöld rynnu í jöfnunarsjóð: Gjaldfrjáls leikskóli yrði ekki að veruleika FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Rannsókn olíumálsins: Niðurstöður í haust LÖGREGLUMÁL „Erfitt er að segja til um hvenær rannsókn lýkur en við erum aðeins byrjaðir að sjá fyrir endann og niðurstöður gætu legið fyrir með haustinu,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson, lög- fræðingur hjá Rík is lögreg lu - stjóra, um rann- sóknina á olíu- málinu svokall- aða. Helgi segir hart unnið að rann- sókn málsins en það sé viðamikið og hafa beri í huga að lögregla hafi orðið að hefja rannsókn sína á málinu alveg frá grunni og ekki getað stuðst að neinu leyti við rannsókn Samkeppnisstofnunar en sú rannsókn var undanfari afskipta lögreglu. Um þrjátíu ein- staklingar hafa nú réttarstöðu grunaðra. -aöe Gle›ilega páska! HELGI MAGNÚS GUNNARSSON Fannst ég fyrst frjáls þegar ég sá Sæma Bobby Fischer sagðist afar sæll með að vera kominn til Íslands. Hann sagðist engar áhyggjur hafa af því að vera eftirlýstur í Bandaríkjunum. FISCHER-MÁLIÐ Bobby Fischer lýsti væntumþykju sinni til Sæmundar Pálssonar á blaðamannafundi sem haldinn var á Hótel Loftleiðum í gærdag. Fischer sagðist fyrst hafa fundist hann vera frjáls þegar hann sá Sæmund í Kaupmannahöfn. Fischer kom til landsins með einkaþotu á fimmtudagskvöldið. Vel á annað hundrað manns voru á Reykjavíkurflugvelli þegar þotan lenti, þar af fjöldi erlendra sem innlendra fjölmiðlamanna. Fischer gaf þó engum nema Stöð 2 færi á viðtali fyrr en blaðamannafundur- inn var haldinn í gær. Á fundinum kvaðst Fischer vera afar sæll með að vera kominn til Íslands. „Hér er hreint og gott loft, nóg rými og góður matur.“ Bandarísk yfirvöld hafa lýst vonbrigðum yfir ákvörðun íslenskra stjórnvalda að veita Fischer íslenskan ríkisborgara- rétt. Fischer sagðist ekki hafa áhyggjur af því að vera eftirlýstur í Bandaríkjunum. „Við skulum bara bíða og sjá hvað þeir gera,“ sagði hann. Hvað framtíðina varðar kvaðst hann helst vilja einbeita sér að því að klára skákklukkuna sem hann væri að hanna og ljúka við bók sem hann hefur lengi unnið að um nýstárlega taflmennsku. Svo ætl- aði hann að huga að sínum áhuga- málum eins og ferðalögum og sam- ræðum. Um áform unnustu sinnar vildi hann ekki ræða. Fischer hefur verið gagnrýndur fyrir öfgakenndar skoðanir sínar á ýmsum málefnum. Á fundinum vandaði hann gyðingum ekki kveðjurnar. „Þeir hafa rænt mig eigum mínum,“ sagði hann. Einar S. Einarsson úr stuðnings- nefnd Bobby Fischer hefur gagn- rýnt framgöngu Stöðvar 2 við komu skákmeistarans á Reykjavíkurflug- völl. Hann lýsti því sem svo að engu væri líkara en sjónvarpsstöðin hefði rænt honum svo enginn annar fengi aðgang að honum. - jse / Sjá síðu 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.