Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 42
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í handknattleik lék á alls oddi í sín- um fyrsta heimaleik undir stjórn Viggós Sigurðssonar þegar það mætti Pólverjum í vináttulands- leik í gær. Fyrstu mínútur leiksins lofuðu ekkert sérstaklega góðu en svo datt íslenska liðið í gírinn svo um munaði. Það skildi Pólverja fljótlega eftir í rykinu og leit aldrei til baka. Íslenska liðið leiddi í hálfleik með sex mörkum, 20-14, og pólska liðið komst aldrei nálægt því ís- lenska í síðari hálfleik. Sigurinn var mun öruggari en búast mátti við í fyrstu en Pólverjar munu eflaust bíta betur frá sér í dag. Liðsheild íslenska liðsins var frábær en tveir menn stóðu engu að síður upp úr. Þeir heita Einar Hólmgeirsson og Birkir Ívar Guð- mundsson. Einar skoraði 12 stór- kostleg mörk úr 16 skottilraunum og Birkir Ívar varði hátt í 30 skot, mörg hver úr dauðafærum. Marg- ir biðu spenntir eftir að sjá Jaliesky Garcia Padron en hann sneri aftur eftir hasarinn fyrir HM og hann sýndi að liðið getur vel notað hann í vörninni þótt skotnýtingin sé sjaldnast góð en hann klúðraði fjórum fyrstu skot- um sínum að þessu sinni. Hinn umdeildi framliggjandi varnarleikur liðsins lofaði ekki góðu framan af en hann small saman fljótlega í fyrri hálfleik og varnarleikurinn sem liðið spilaði í þessum leik var sá besti undir stjórn Viggós Sigurðssonar. Mótherjinn skoraði engu að síður yfir 30 mörk en það breytti engu að þessu sinni. Það var boðið upp á flugelda- sýningu í sókninni þar sem Einar Hólmgeirsson skaut upp tívolí- bombunum en hann sá til þess að enginn saknaði Ólafs Stefánsson- ar í gær. „Ég vil nú ekki meina að ég sé í neitt sérstöku formi enda er ég alveg búinn á því,“ sagði Einar hógvær í leikslok. „Ég hef lítið æft síðustu vikur vegna meiðsla og það er flott að koma heim og spila sig í form. Ég sætti mig al- veg við þessi tólf mörk í dag,“ sagði Einar og hló. Það var einnig gaman að fylgj- ast með Snorra Steini Guðjóns- syni í leiknum en hann minnti rækilega á sig eftir að hafa komið inn úr kuldanum og Alexander Peterson var einnig drjúgur. henry@frettabladid.is Felix Magath, þjálfari BayernMünchen, segir sitt lið vera betra en Chelsea. Bayern og Chelsea mætast í 8 liða úr- slitum Meistara- deildarinnar í byrjun apríl og segist Mag- ath fullviss um að sitt lið fari áfram. „Ég held að Chelsea sé í lakara formi nú en fyrir þremur mánuðum og leikjaálagið er farið að segja til sín. Þetta er góður tími til að mæta þeim,“ segir Magath. Ralf Schumacher segist alls ekkisjá eftir því að hafa skipt úr Willi- ams yfir í Toyota fyrir nýhafið keppnistímabil í Formúlu 1. Hann telur að Toyota-liðið muni berjast um tit- il bílasmiða í ár. „Ég held að enginn hafi búist við þeim ár- angri sem við höf- um náð á fyrstu tveimur mótum árs- ins. Við höfum góð- an grunn sem við byggjum á og ég held að við munum hafna ofarlega í mörgum mótum í ár.“ Xavi, miðjumaður hjá Barcelona,vill ólmur að Shaun Wright- Phillips verði keyptur til félagsins fyrir næstu leiktíð. Xavi kveðst mjög hrifinn af Wright-Phillips og vill að Barcelona yfirbjóði Arsenal, Chelsea og Liverpool, sem öll eru talinn hafa mikinn áhuga á vængmanninum. „Hann er stórkostlegur leikmaður og myndi njóta mikillar velgengni hjá Barca,“ segir Xavi. LA Lakers tapaði í fyrrinótt sjö-unda leik sínum í röð í NBA- deildinni í körfu- bolta. Í þetta sinn steinlá liðið fyrir Denver, 117-96, og er nú orðið tvísýnt hvort liðið nái inn í úrslitakeppnina. Yrði það í fyrsta sinn í 11 ár sem það ger- ist. „Við erum að reyna að snúa blaðinu við. Liðin sem við höfum verið að mæta hafa einfaldlega spil- að betur en við,“ sagði einstaklega spakur Kobe Bryant eftir leikinn. ÚR SPORTINU 30 26. mars 2005 LAUGARDAGUR > Við fordæmum ... ... stuðningsmenn körfuboltaliðs Keflavíkur sem hafa nú, annað árið í röð, hafist handa við að koma andstæð- ingum Keflavíkur í úrslita- keppninni úr jafnvægi með lúalegri framkomu. Nokkrir vel valdir leikmenn ÍR hafa vaknað við símhringingar og SMS-skilaboð undanfarnar nætur frá stuðningsmönnum Keflavíkur þar sem þeim er hreinlega hótað öllu illu. sport@frettabladid.is > Við hvetjum ... ... landsmenn til þess að fjölmenna á landsleikina í Höllinni enda ekki oft sem slík handboltaveisla er í boði hér á landi. Mætingin í gær var ágæt en stemningin afleit. Til að mynda heyrðist hin fróma setning „Áfram Ísland“ mjög sjaldan og af fáum einstaklingum. Aðal leikir dagsins Handbolta- og körfuboltaveislur Það er nóg um að vera á innlendum vettvangi á morgun. Úrslitakeppni Intersportdeildarinnar heldur áfram með leikjum í Keflavík og í Stykkishólmi og þá verða ungmenna- og A-landslið karla í handbolta í eldlínunni í Laugardalshöll. 60 SEKÚNDUR Af hverju box? Af hverju ekki? Mike Tyson eða Lennox Lewis? Tyson. Ómar eða Bubbi? Bubbi, hann er meiri töffari. Bjór eða rauðvín? Bjór. Impreza eða Golf? Golf. Impreza er algjört drasl. Ég myndi ekki láta sjá mig dauðan í Imprezu. Er glasið hálffullt eða hálftómt? Það er hálftómt. Ice T eða Ice Cube? DMX, hann er svalastur. Ljósabekkur eða brúnkukrem? Sitt lítið af hvoru. Hvað myndirðu endast lengi gegn Tyson? Veit það ekki en það yrði samt væntanlega undir mínútu. Hvern viltu helst berjast við? Erfitt að segja því þeir myndu allir berja mig. En það væri heiður að standa í hringnum með Roy Jones Jr. Rocky Balboa er... nagli. Njarðvík er... íslenska útgáfan af Harlem. Keflavík er... töffarastaður. MEÐ SKÚLA TYSON FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI! Sólbakka 8 310 Borgarnesi Miðási 23 700 Egilsstöðum Víkurbraut 4 780 Höfn Gagnheiði 13 800 Selfossi Njarðarnesi 1 603 Akureyri Skeifunni 3c 108 Reykjavík Viðarhöfða 6 110 Reykjavík Melabraut 24 220 Hafnarfirði Iðavöllum 8 230 Keflavík Flugumýri 16 270 Mosfellsbæ Smiðjuvegur 6 200 Kópavogi LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI LEIKIR GÆRDAGSINS Undankeppni HM í hand- bolta U-21 ÍSLAND–HOLLAND 33–27 Mörk Íslands: Ásgeir Örn Hallgrímsson 10 (13 skot), Arnór Atlason 8/4 (14/6), Andri Stefan 4 (4), Ragnar Hjaltested 4 (7), Ernir Hrafn Arnarson 3 (4), Einar Ingi Hrafnsson 1 (3), Kári Kristjánsson 1 (2), Árni Þór Sigtryggsson 1 (5/1), Árni Björn Þórarinsson 1 (2), Daníel Berg Grétarsson 0 (2/1). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/2 (af 28/2, 46%), Pálmar Pétursson 9 (af 21, 43%). Hraðaupphlaupsmörk (3): Ásgeir Örn 1, Andri 1, Ragnar 1. Fiskuð víti (8): Andri 3, Arnór 2, Kári, Daníel Berg, Árni Björn. Stoðsendingar (20): Arnór 7, Andri 5, Ásgeir Örn 3, Ernir, Ívar Grétarsson, Árni Þór. Magnús Stefánsson, Ragnar. Úkraína vann Austurríki í hinum leik undan- riðilsins 30–27 eftir að hafa verið 13–16 undir í hálfleik. Vináttuleikur í handbolta ÍSLAND–PÓLLAND 38–33 Mörk Íslands: Einar Hólmgeirsson 12 (16 skot), Alexander Peterson 5 (7), Guðjón Valur Sigurðsson 5/3 (8/4), Jaliesky Gracia 5 (10), Snorri Steinn Guðjónsson 4 (5), Vignir Svavarsson 2 (2), Róbert Gunnarsson 2/1 (4/2), Dagur Sigurðsson 1 (1), Þórir Ólafsson 1 (1), Baldvin Þorsteinsson 1 (1), Ingimundur Ingimundarson 0 (1), Markús Máni Michaelsson 0 (1). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 28/2 (af 60/6, 47%), Hreiðar Guðmundsson 1/1 (af 2/2, 50%). Hraðaupphlaupsmörk (9): Peterson 2, Dagur, Þórir, Guðjón Valur, Garcia, Baldvin, Vignir, Einar. Fiskuð víti (6): Guðjón Valur 2, Snorri Steinn 2, Garcia, Róbert. Stoðsendingar (23): Guðjón Valur 5, Peterson 5, Dagur 4, Snorri Steinn 3, Þórir 2, Garcia 2, Ingimundur, Einar. Mörk Póllands: Piotr Obrusiewicz 12/5, Karol Bielecki 6, Daniel Urbanowicz 5, Bartosz Jurecki 4, Wojciech Zydron 4, Piotr Grabarczyk 1, Patryk Kuchczynski 1. Varin skot Póllands: Slawomir Szmal 8/1, Artur Banisz 4. Undankeppni HM í fótbolta U-21 KRÓATÍA–ÍSLAND 2–1 0–1 Ingvi Hrafn Guðmundsson (43.), 1–1 Neven Vukman (45.), 2–1 Mladen Bartulovic (80.). Einar og Birkir Ívar sáu um að afgreiða Pólverja Einar Hólmgeirsson og Birkir Ívar Guðmundsson fóru á kostum þegar Ís- land vann sannfærandi sigur á Póllandi, 38-33, í Laugardalshöll í gær. Þetta var fyrsta viðureign þjóðanna af þremur. ÓSTÖÐVANDI Pólverjar réðu ekkert við stórskyttuna Einar Hólmgeirsson, sem fór á kostum í Laugardalshöllinni í gær. Hann skorar hér eitt af tólf mörkum sínum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.