Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 6
VIÐSKIPTI Samstarfsmenn Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, vísa á bug ásökunum Páls Þórs Magnús- sonar, framkvæmdastjóra Sunds, um óheilbrigða viðskiptahætti Ólafs í tengslum við fyrrum með- eigendur sína í Keri. Páll sagði í samtali við Frétta- blaðið að Ólafur hefði ætlað að sölsa undir sig Olíufélagið Essó. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Essó, segir þessa staðhæfingu al- ranga. Hjörleifur lýsti áhuga á að kaupa Essó og segist hafa rætt við Ólaf um fjárhagslega aðkomu að málinu til að brúa bil í skuldsetn- ingunni. „Ólafur sagðist vera tilbú- inn að skoða það, en vildi engu svara fyrr en hann hefði rætt við meðeigendur sína í Keri,“ segir Hjörleifur. Hann segir Ólaf hafa komið hreint fram í málinum, en Jóni Kristjánssyni, aðaleiganda Sunds, hafi snúist hugur og frestað öllum viðræðum um sölu. Hjörleif- ur segir fráleitt að halda því fram að Ólafur hafi verið að reyna að selja sjálfum sér félagið, og sam- starfsaðlilum hafi verið fullkunn- ugt um alla þætti málsins. „Mér finnst því ódrengilega vegið að Ólafi.“ Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF, segir aðkomu Ólafs að sölu á Iceland Seafood til Sjóvíkur einnig hafa verið þannig að öllum hafi verið fullkunnugt um stöðu Ólafs af málinu. Hann segir Ólaf hafa beðist undan því að taka þátt í af- greiðslu sölunnar vegna fjárhags- legra tengsla sinna við Sund og Jón Kristjánsson. Þetta komi skýrt fram í fundargerðarbók SÍF. „Í framhaldi af þessum fundi hófust samningaviðræður við Sjóvík og tókust samningar sem lagðir voru fyrir stjórnarfund SÍF. Ólafur, Jón og Guðmundur Hjaltason, forstjóri Kers, viku allir af fundi við af- greiðslu málsins.“ Jakob segir furðu sæta að reynt sé að véfengja söluna því hún hafi verið einstak- lega hagstæð fyrir SÍF. Guðmundur Hjaltason, for- stjóri Kers, segir að með því að þyrla upp moldviðri sé Páll Þór að beina athyglinni frá gjörðum sín- um í stjórn Festingar. „Staðreynd- in er sú að fulltrúar tæplega 20 prósenta hluthafa í stjórn Festing- ar misnotuðu stöðu sína og seldu framkvæmdastjóra félagsins og vini annars stjórnarmannsins til margra ára óútgefið hlutafé félagsins á undirverði til að ná meirhluta,“ segir Guðmundur. Hann segir að þetta hafi verið gert þrátt fyrir að andstaða eigenda 80 prósenta hlutar hafi legið fyrir. Hann segir framgönguna siðlausa og að Landsbankinn reyni að snúa hlutum á hvolf. „Þeir reyndu fjandsamlega yfirtöku á Keri og telja sig nú vera fórnarlamb.“ haflidi@frettabladid.is 6 26. mars 2005 LAUGARDAGUR NÍGERÍA, AP Það er mikið um dýrðir í Argungu í Nígeríu þessa dagana þar sem árleg fiskveiðikeppni er haldin í fljótinu Matan Fada. Yfir tíu þúsund veiðimenn taka þátt í keppninni. Tveir eru saman í liði og heldur annar á flotholti sem búið er til úr graskeri en hinn leitar risafiskjar í leirugu vatninu með net í hönd. Verðlaunin eru ekki ekki af verri endanum, fjölskyldubifreið og fimmtíu þúsund krónur í reiðufé. Veiðikeppnin í Argungu er kærkomin í þessu landi sem kemst oftar í fréttirnar fyrir um- fangsmikil spillingarmál. For- svarsmenn hennar binda vonir við að hún verði aðdráttarafl fyr- ir ferðamenn þegar fram í sækir. Keppnin á sér samt yfir sjötíu ára langa sögu því árið 1934 innsigl- uðu leiðtogar Kebbi-konungs- dæmisins og Sokoto-kalífadæmis- ins friðarsamning sinn með því að keppa um hver gæti veitt stærsta fiskinn. Þótt íbúar héraðsins séu flestir múslimar er andatrú þar einnig áberandi. Margir telja að fisk- arnir í Matan Fada hafi eitt sinn verið fólk en vondir áar þess hafi hins vegar breytt því í fiska og étið. ■ Aðkomu Ólafs var hvergi leynt Samstarfsmenn Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, segja fyrrum samstarfs- menn vega ódrengilega að honum. Aðilar í viðskiptunum hafi verið upplýstir um alla stöðu mála í viðskiptum Ólafs við fyrrum meðeigendur sína í Keri. ■ LEIÐRÉTTING ■ ALÞINGI Borðarðu páskaegg um páskana? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlarðu að fylgjast með leik Íslands og Króatíu í fótbolta? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 22% 78% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN EINSKIS VAR Ekki er gott að sjá hvernig veiðimennirnir koma auga á fiskinn í fljótinu brúna. Stærstu fiskarnir eru rúmlega sjötíu kíló. Stúlka fékk vatn yfir sig: Dæmd fyrir líkamsárás DÓMSMÁL Harkaleg viðbrögð ungrar stúlku við því að fá vatn yfir sig á veitingastað kostuðu hana rúmar 140 þúsund krónur en mál hennar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Sakfelldi dómurinn stúlkuna fyrir að hafa gengið í skrokk á annarri stúlku á veitingastaðn- um Traffic í Keflavík í október síðastliðnum. Rákust þær tvær saman með þeim afleiðingum að vatn skvettist úr glasi fórnar- lambsins og svaraði ákærða fyr- ir sig með hnefahöggi og öðrum barsmíðum. Þótti tilefnið það lítilvægt að ekki yrði sloppið við refsingu henni til handa og var hún dæmd til 60 þúsund króna sektar auk 80 þúsund króna í miskabætur. - aöe Í Fréttablaðinu í fyrradag var ranglega sagt að Samtök atvinnu- lífsins hefðu ályktað um bann á reykingum á stjórnarfundi fyrr í mánuðinum. Hið rétta er að það var ráðgefandi stjórn Vinnueftir- litsins sem ályktaði um málið gegn atkvæðum fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í stjórninni, sem telja það ekki hlutverk stjórnar- innar að samþykkja og senda út ályktanir á borð við þessa. FÆKKUN MINKA Frumvarp sem Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, hafði í smíð- um varðandi fækkun minka í ís- lenskri náttúru er enn í vinnslu undir handleiðslu nýs umhverfis- ráðherra, Sigríðar Önnu Þórðar- dóttur. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að leggja málið fram á Alþingi. DEILUR UM FESTINGU Jóhann Halldórsson, framkvæmdastjóri Festingar, ásamt Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni. Lögbanns hefur verið krafist á meðferð nýs hlutafjár í Festingu. Forstjóri Kers, sem átti meirihluta í Festingu fyrir hlutafjáraukningu, segir útgáfu og sölu hlutafjárins siðlausa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Íbúi er ósáttur við niðurrif fimleikahúss Ármanns: Síðasta græna svæðið MÓTMÆLI „Ég er óhress með að eyðileggja eigi eina græna svæðið sem er eftir hér,“ segir Jóhann Helgason, íbúi við Miðtún sem hef- ur búið þar í áratug. Hann er ósátt- ur við að rífa á fimleikahús Ár- manns, en þar eiga að rísa fjölbýl- ishús. „Það er verið að eyðileggja knattspyrnuvöll sem hefur verið hér áratugum saman. Það er orðið yfirgengilegt hvað þessir stóru verktakar ná að sölsa undir sig bestu og fallegustu svæði Reykja- víkurborgar.“ Jóhann segir að þegar þetta græna svæði hverfur undir íbúða- byggð, sé ekkert grænt svæði eftir í hverfinu. „Þetta svæði var notað síðasta sumar af íþróttafélögum, svo gott sem í hverri viku. Lands- lið kvenna notaði þetta meðal ann- ars til að æfa. Það er með ólíkind- um að þeir skuli hirða þetta svæði undir íbúðablokk. Maður skilur ekki hvað er að gerast.“ Auk þess sem græna svæðið hverfur hefur Jóhann áhyggjur af því að umferð muni aukast í göt- unni, auk þess sem útsýnið sé alltaf að minnka. „Við sjáum ekk- ert orðið út hérna. Útsýnið er farið og við sjáum ekkert í Esjuna leng- ur. Ég óska bara eftir því að fólk mótmæli þessu.“ - ss NIÐURRIFI MÓTMÆLT Jóhann Helgason segir svæðið við fim- leikahús Ármanns vera síðasta græna blettinn í hverfinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Fiskidagurinn mikli í Nígeríu: Stórfiskar sem eitt sinn voru menn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.