Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
-
9
0
4
0
3
7
9
agstæð sumarhúsalán
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað?
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt sumar-
húsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Lánið
getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til
framkvæmda er lánað allt að 75% af byggingar-
kostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar
nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
www.frjalsi.is
5 ár 18.850 19.100 19.560 19.800
10 ár 10.580 10.850 11.350 11.610
15 ár 7.880 8.170 8.710 8.990
* Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00%
Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
60%veðsetningarhlutfall
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 26. mars,
85. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 7.07 13.33 20.02
AKUREYRI 6.50 13.18 19.48
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmað-
ur, betur þekktur sem Óli Palli á Rás
2, lumar á mótorhjóli í bílskúrnum
sem hann er ekki alveg nógu duglegur
að nota.
„Ég átti fullt af skellinöðrum þegar ég var
yngri, eða á aldrinum fjórtán til sextán ára.
Þetta er hins vegar fyrsta alvöru mótor-
hjólið mitt. Það heitir Suzuki Intruder og er
orðið gamalt, 1986 módelið. Þetta er rosa-
lega flott hjól og mjög svipað nýjustu hjól-
unum af sömu gerð. Þannig að þetta er
mjög vel heppnað módel.“
Óli Palli hefur í nógu að snúast þessa
dagana þar sem hann stendur í húsbygging-
um. „Ég hef eiginlega ekkert hjólað síðan
síðasta sumar og er með smá samviskubit.
Á meðan margir hjólamenn kíkja út í rúnt
þá er ég inni í smíðaskapi. Ég er ekki í
neinum félagsskap eins og Sniglunum en ég
á nokkra vini og kunningja sem eiga hjól.
Ég næ lítið að hjóla með þeim en það
stendur allt til bóta.“
„Mér þykir vænt um hjólið mitt en ég er
ekki alltaf að pússa það,“ segir Óli Palli
aðspurður um hvort hjólið sé honum eitt og
allt. „Ég lít fyrst og fremst á þetta sem
skemmtilegt farartæki.“
Nú er bara spurning hvort Óli Palli þurfi
ekki að safna hári til að vindurinn leiki
almennilega um það á hjólinu. „Já, það er
frekar stutt núna en ég náði að láta það
flaksa vel fyrir nokkrum árum. Það er
aldrei að vita nema ég safni aftur hári
einhvern tímann í framtíðinni.“
lilja@frettabladid.is
Skemmtilegt farartæki
bilar@frettabladid.is
Sendlabílar endurnýjaðir At-
vinnubíladeild B&L mun sjá um
endurnýjun og sölu á öllum
sölu- og sendlabílum Ölgerðar
Egils Skallagrímssonar og
Danól næstu fjögur
árin samkvæmt nýj-
um samningi sem
fyrirtækin undir-
rituðu nýlega.
Þetta er um-
fangsmesti lang-
tímasamningur-
inn sem undirritaður hefur ver-
ið á þessu sviði bílaviðskipta.
Mini-skutbíll Það muna sjálf-
sagt margir eldri borgarar eftir
langbaksútgáfu gamla Mini-
bílsins sem nefndist Mini Clu-
bman Estate. Nú
er á teikniborðinu ný skutbíls-
útgáfa hins nýja
Mini, sam-
kvæmt
frétt á
vef
FÍB, en
ekki er
vitað hvort hann muni fá hið
gamla og virðulega nafn,
Clubman Estate. Það á eftir að
koma í ljós. Bíllinn mun koma
á markað innan tveggja ára.
Bylting í vörudreifingu Stórir
flutningavagnar með nýja gerð
af öxli eru að valda byltingu í
vörudreifingu, þar sem þeir
henta þrátt fyrir stærð-
ina afar vel til vöru-
dreifingar í þéttbýli.
Öxullinn gerir að
verkum að beygju-
radíusinn á stærstu
gerð af aftanívagni
verður svipaður og
hjá stórum fólksbíl. B&L
atvinnubílar afhentu nýlega
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
einn af fyrstu vögnunum af
þessari nýju gerð sem fluttir
hafa verið til landsins.
Bang&Olufsen í Audi Danska
rafeindafyrirtækið Bang & Oluf-
sen, eða B&O hefur hannað og
þróað hljómkerfi fyrir hinn nýja
Audi A8 og verður fáanlegt
snemma næsta árs.
Hljómkerfið er sérstak-
lega hannað fyrir A8 bíl-
inn og það lagar sig að
ökuhraða, vindgnauði og dekkja-
hvini. Hjarta kerfisins er rúmlega
1000 watta magnari sem sendir
hljómlist eða talað mál út í 14
hátalara sem hver um sig er
knúinn sérstökum magnara.
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég missti hand-
klæðið í baðkerið
og nú er ég búinn
að þurrka mig
miklu blautari en
ég var þegar ég
kom upp úr!
Ford Mondeo reynsluekinn
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Toyota mest inn-
flutti nýi bíllinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Í janúar og febrúar á
þessu ári voru fluttir inn
2.405 nýir bílar.
Á fyrstu tveimur mánuðum
ársins voru 2.405 nýir fólks-
bílar fluttir inn til landsins,
samkvæmt tölum frá Um-
ferðarstofu. Mest var flutt
inn af Toyota bifreiðum, eða
660, en næstmest af Ford
bifreiðum, voru þær 226
talsins, þriðja sætið tekur
Hyundai með 159 bifreiðar.
Á sama tíma í fyrra voru
fluttir inn 1.472 nýir fólks-
bílar og er því aukningin
frá þeim tíma 63,4%. Þar
átti Toyota einnig langflesta
bílana, eða 386, sem var
26,2% af innfluttum bílum á
þeim tíma.
Af notuðum fólksbílum
voru 644 fluttir inn til
landsins í janúar og febrúar
á þessu ári og var mest flutt
inn af Chrysler bifreiðum,
eða 119 bifreiðar, og Ford
bifreiðum, eða 91 bifreið.
En saman eru Chrysler og
Ford með tæp 40% af inn-
fluttum notuðum fólks-
bílum í janúar og febrúar
en þriðji mest innflutti not-
aði bíllinn var Mercedes
Benz með 55 bifreiðar. ■