Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 57
■ KVIKMYNDAHÁTÍÐ ■ TÓNLIST Að mínu mati voru vinsældir 50 Cent eftir frumraun hans frekar ýktar. Jú jú, hann er sæmilegasti rappari, en ekki mikið meira en það. Það virðist enn loða við hiphop í dag að rapparar séu dæmdir eftir því hversu synd- samleg fortíð þeirra er frekar en gæðum. Og ef þú hefur verið svo heppinn að hafa verið skotinn níu sinnum og lifað það af, ertu kóng- urinn. Það skemmdi heldur ekki fyrir að 50 Cent var undir vernd- arvæng Eminem og Dr. Dre. Skot- held formúla, það hefði nánast ekki skipt neinu máli hvernig platan hljómaði. Markaðsöfl 50 Cent eru nægi- lega skynsöm til þess að vita að það sé best að gefa út aðra plötu sem fyrst. Og nú er The Massacre komin í búðir. Nú er ekki haldið jafn fast í höndina á honum og á frumrauninni, og 50 Cent gengur uppréttari en áður. Ég held að það sé öruggt að þeir sem kunnu að meta fyrri plötuna eigi eftir að hafa gaman að þessari. Hljómur þeirra og yfirbragð er nánast eins. Það er vel passað upp á að grúfin séu grípandi, og 50 Cent virðist hafa gott lag á því að semja smitandi öngla sem festast vel í kinn. Ég held að það sé öruggt mál að 50 Cent nái að festa vinsældir sínar í sessi með þessari plötu. Hér er nægilega mikið af slögurum til þess og óhætt að fullyrða að 50 Cent spili „leikinn“ eftir bókinni og taki litlar sem engar áhættur. En hvað mig varðar þá hef ég ekki mjög gaman að þessu. Ég næ alveg stundum að koma mér inn í lögin, en þá heyri ég textann og fæ bara alveg æluna upp í háls. Svo virðist flest allt sem kemur úr smiðju Eminem og Dr. Dre þessa dagana hljóma nákvæmlega eins. Það er komin of mikil mjaltar- konulykt af þessum bítum. Það er a.m.k. verið að mjólka eitthvað. Ég get svo sem alveg dillað mér við þessa tónlist á góðum klúbbi á laugardagsmorgni, en oftast nýtir maður tækifærið bara til þess að fara á barinn eða á kló- settið. Iss, piss og pelamál. Skrítið að svona ungur listamaður sé byrjaður að hljóma svona gamall? Birgir Örn Steinarsson Það sama og síðast 50 CENT: THE MASSACRE NIÐURSTAÐA: 50 Cent gefur aðdáendum sínum það sem þeir vilja á fylgifiski hinnar geysivinsælu Get Rich or Die Tryin. Þetta er nánast sama kaffið, Nesquick með allt of mikl- um sykri. Aðdáendur verða sáttir, hinir halda áfram að hrista hausinn. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Það eru enn að bætast við áhuga- verðar myndir á Kvikmyndahátíð Íslands, IIFF 2005, sem hefst í byrjun apríl. Dagskrá hátíðarinn- ar er fyrir löngu orðin svo þétt að það leikur enginn vafi á því að hún er ein glæsilegasta kvik- myndahátíð sem blásið hefur ver- ið til á Íslandi árum saman. Nú er ljóst að myndirnar Hotel Rwanda, Bomb the System, Dark- ness, Omagh og What the Bleep Do We Know bætast við þessa glæsilegu dagskrá. Hotel Rwanda er ekki síst beðið með mikilli eft- irvæntingu en mörgum kvik- myndaunnandanum ótti það súrt að myndin skyldi ekki koma í kvikmyndahús á Íslandi fyrir Óskarsverðlaunahátíðina en hún fékk þrjár tilnefningar; fyrir besta leikarann, bestu leikkonu í aukahlutverki og besta frum- samda handrit. Þar fyrir utan hef- ur myndin hlotið sjö meiriháttar alþjóðleg verðlaun og 16 tilnefn- ingar og komst inn á rúmlega 120 topp tíu lista yfir bestu myndir síðasta árs. Hotel Rwanda er byggð á sönn- um atburðum sem áttu sér stað árið 1994 í þjóðarmorðunum í Rú- anda. Þrátt fyrir að ein milljón manns hafi látið lífið á 100 dögum, þá fengu blóðsúthellingarnar ekki mikla athygli annars staðar í heiminum og fréttir af málinu í vestrænum fjölmiðlum voru ekki áberandi. ■ WHITE STRIPES Ný plata er væntanleg frá White Stripes í sumar. Nýja platan tilbúin Fimmta plata rokkdúettsins White Stripes er tilbúin. Upptökur stóðu yfir í tæpar tvær vikur og tóku þau Jack og Meg White upp að meðaltali eitt lag á dag á heimili Jack í Detriot. Platan, sem hefur enn ekki fengið nafn, er væntanleg í búðir í lok júní. Síðasta plata White Stripes, Elephant, var einnig tekin upp á skömmum tíma, eða tíu dögum. Fékk hún frábærar viðtökur um heim allan og er eftirvæntingin því mikil eftir nýju plötunni. ■ Spennandi titlar bætast við DON CHEADLE Þessi frábæri en van- metni leikari fer á kostum í Hotel Rwanda en hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í myndinni sem greinir frá skelfilegum sannsögulegum at- burðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.