Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 10
26. mars 2005 LAUGARDAGUR
MAÐUR VIKUNNAR
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25% ívikunni við litla hrifningu Halldórs Ásgríms-sonar forsætisráðherra sem óttast að hækkun-
in valdi enn frekari gengishækkun krónunnar og þar
með auknum rekstrarerfiðleikum útflutningsgreina.
Rök bankans eru þau að hamla verði
hækkun verðbólgu, enda sé það
meginhlutverk Seðlabankans, og
verðbólgan stefni nú óðfluga
fram yfir þau þolmörk sem
við er miðað.
Birgir Ísleifur Gunn-
arsson, aðalbankastjóri
Seðlabankans, ræður
ekki einn ferðinni
þegar teknar eru
ákvarðanir um vaxta-
hækkanir. Við hlið hans
eru bankastjórarnir Ei-
ríkur Guðnason og Jón
Sigurðsson, og Arnór
Sighvatsson aðal-
hagfræðingur. En
auðvitað vegur
sjónarmið hans
þungt og væri
hann andsnú-
inn málinu
næði það ekki
fram að
ganga. Það
fellur líka í
hlut hans að
skýra og
verja ákvarð-
anir af þessu
tagi. Vaxtahækk-
unin nú og fyrri
hækkanir sýna að
Birgir Ísleifur og
s a m s t a r f s m e n n
hans standa vörð um
faglegt sjálfstæði
bankans. Ekki hvarflar að
nokkrum manni að þeir séu í
vasa stjórnvalda.
Birgir Ísleifur hefur setið í
bankastjórastólnum í næstum
hálfan annan áratug. Á næsta
ári verður hann sjötugur og
lætur þá af störfum. Hann var
skipaður í embættið vorið
1991, þá þingmaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Vék hann
af framboðslista flokksins það
vor og leysti þannig ákveðin
innanhússvandamál í fram-
boðsmálum flokksins. Skipan
hans í embætti var óumdeilanlega pólitísk, hann er
lögfræðingur að mennt og á hvorki að baki skóla-
göngu í hagfræði né reynslu af bankastörfum. Marg-
ir höfðu áhyggjur af því að þetta mundi skapa Seðla-
bankanum vandræði, ekki síst vegna þess að þá
styttist í að helsti fagmaður bankans, Jóhannes
Nordal, léti af störfum. En þessar áhyggjur hafa
reynst ástæðulausar. Jafnt hagfræðingar og banka-
menn sem aðrir viðurkenna að Birgir Ísleif-
ur hafi staðið sig mjög vel í bankanum, sett
sig vandlega inn í hin flóknu fræði
peningamálanna, unnið af fagmennsku
og staðið vörð um faglegt sjálfstæði
bankans.
Birgir Ísleifur átti að baki
langan stjórnmálaferil þegar
hann varð bankastjóri. Ári
eftir að hann lauk lögfræði-
námi við Háskóla Íslands,
1961, var hann kosinn í
borgarstjórn Reykjavíkur
fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og sat þar í tuttugu ár.
Hann var borgarstjóri á
árunum 1972 til 1978 er
flokkurinn tapaði borg-
inni í fyrra sinn.
Sem borgarstjóri
naut hann mik-
illa vinsælda
og er einna
þekktastur
fyrir forystu
um „grænu
byltinguna“
svokölluðu sem
fól í sér stóraukna
áherslu á útivist-
arsvæði innan
borgarmarkanna
og hlýlegri ásjónu
borgarinnar. Birgir
sat síðan á þingi
fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn frá 1979 og þar
til hann sagði af sér þing-
mennsku 1991. Margir vildu
að hann yrði formaður flokks-
ins þegar Geir Hallgrímsson
dró sig í hlé; hann gaf kost á
sér en tapaði fyrir Þorsteini
Pálssyni. Hann var mennta-
málaráðherra í ríkisstjórn
Þorsteins 1987 til 1988.
Birgi Ísleifi er lýst sem hlé-
drægnum manni, vinnusömum
og strangheiðarlegum. Sem
stjórnmálamaður þótti hann
alltaf málefnalegur og sama
þykir einkenna hann í bankan-
um. Í honum eru listrænar taugar,
hann leikur á píanó heima hjá sér og á góðra vini
fundi en flíkar lítt þeim hæfileikum opinberlega.
Kona hans er Sonja Backman. ■
Alltaf
málefnalegur
MAÐUR VIKUNNAR
BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON
TE
IK
N
: H
EL
G
I S
IG
. W
W
W
.H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Þegar hafist var handa við gerð
hringvegar um landið með
bundnu slitlagi var það að hluta til
lagt ofan á gamlar undirstöður
eldri vega, hálfrar aldar gamalla.
Segja má að vegurinn hafi þjónað
vel umferð síns tíma hvað varðar
flutningsgetu þungaflutnings-
bifreiða sem var þá a.m.k þrefalt
minni en nú tíðkast. Þrjátíu tonna
burðargeta auk tuttugu tonna
þyngdar bifreiðar og tengivagna
eða alls fimmtíu tonn er nú algeng
sjón á vegum,sem er ekki í neinu
samræmi við styrkleika veganna.
Þegar sjóflutningar skipafélag-
anna hættu til hinna ýmsu hafna
umhverfis landið og við tóku land-
flutningar skipafélaganna jókst
margfalt umferð þungaflutninga-
bifreiða á hringveginum samfara
fiskflutningum landshornanna á
milli, sem hin rangláta auðdrottn-
unarstefna fiskveiðistjórnunar-
innar hafði í för með sér.
Allir þeir sem aka um hring-
veginn sjá árlega aukningu þeirra
gífurlegu skemmda sem aðallega
þungaflutningar umræddra aðila
valda. Vegurinn er í öldum og
hryggjum og víða sprunginn,
eyðileggingin er svo hröð og aug-
ljós að stjórnendur vegamála, rík-
isstjórn og alþingismenn hljóta að
vera meðvitaðir að hverju stefnir.
Hringveginum, sameign og stolt
þjóðarinnar, sem menn höfðu ára-
tugum saman beðið eftir er nú
fórnað fyrir auðdrottnunarstefnu
græðginnar, sem engu eirir.
Við erum að ræða um tugmillj-
arða tjón, sem enginn virðist bera
ábyrgð á og ekki einu sinni stjórn-
arandstaðan á hæstvirtu alþingi
hefur borið gæfu til að fjalla um af
einhverri alvöru. Eru hringa-
drottnar fjármálavaldsins orðnir
svo allsráðandi að löggjafar- og
framkvæmdavaldið er algjört
handbendi þeirra? Sjálfsagt munu
skipafélögin og kvótakóngar sem
bera höfuðábyrgð á þessu mikla
vegatjóni koma sér undan að bæta
tjónið og koma því yfir á þjóðina.
Okkur þykir öllum vænt um þjóð-
veginn okkar og ég er þess fullviss
að þjóðin er í hjarta sínu sár og
reið að sjá hringveginn sinn þurfa
að gjalda svo dýru verði afglapa-
og aumingjahætti stjórnvalda
gagnvart auðhyggjuöflunum. Við
hljótum að gera þá kröfu til við-
komandi stjórnvalda að umrædd-
um þungaflutningum á þjóðvegum
verði hætt og sjóflutningar skipa-
félaganna verði aftur komið á eða
öxulþungi flutningatækja séu
samræmd burðargetu veganna. Þó
þessir landflutningar kunni að
auka og flýta fyrir ýmissi þjón-
ustu landsbyggðarfólks þá er hún
allof dýru verði keypt eins og nú
háttar. Hina langþráðu lífæð þjóð-
arinnar, hringveginn, verðum við
öll að standa vörð um. ■
Við erum að ræða
um tugmilljarða
tjón, sem enginn virðist
bera ábyrgð á og ekki einu
sinni stjórnarandstaðan á
hæstvirtu alþingi hefur
borið gæfu til að fjalla um
af einhverri alvöru.
KRISTJÁN PÉTURSSON
FYRRV. DEILDARSTJÓRI
UMRÆÐAN
HRINGVEGURINN
,,
Þungaflutningum á hringveginum verði hætt