Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 20

Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 20
20 26. mars 2005 LAUGARDAGUR ÞORSTEINN BERGSSON VIÐ AÐALSTRÆTI 10 Þorsteinn hefur áratugareynslu af því að gera upp gömul hús, en hann er framkvæmdastjóri Minjaverndar. Hann segir starf félagsins hafa verið farsælt og ánægjulegt hvernig til hafi tekist á suðurhorni Aðalstrætis þar sem nú er risið hótel. Í Aðalstræti 10, einu elsta húsi bæjarins, eru nýhafnar framkvæmdir við endurgerð. Bjargar lífi húsanna í bænum „Það er svo sem hægt að gera hús að safni en það er ekki okkar upp- legg,“ segir Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar hf. Hann vill gera upp og finna not fyrir gömul hús þannig að í þeim verði áfram líf. Honum nægir ekki að bjarga húsunum, heldur vill hann bjarga lífi þeirra. „Og um leið og lífi þeirra er bjargað er húsunum sjálfum bjargað,“ sagði hann með nokkru stolti fyrir utan nýjasta björgunarafrekið, Aðalstræti 16, þar sem Centrum Hótel hefur hafið starfsemi. Markmið Minjaverndar er að í húsum sem bjargað er verði starfsemi sem staðið geti undir rekstri og endurgerð húsanna, en félagið fær ekki fjármuni hjá ríki eða borg heldur stendur sjálft að framkvæmdum og ber á þeim ábyrgð. Borgin kom inn í Minjavernd „Aðalstræti 16 er með sama útlit og árið 1905. Við völdum að byggja í kring en leyfa húsinu samt sem áður að njóta sín allan hringinn,“ segir hann. Í gamla húsinu eru 12 gistiherbergi á eftir hæð, en setu- stofa, fundarherbergi og bar á neðri hæðinni. Í kjallaranum undir hótel- inu er svo unnið hörðum höndum að gerð safns í kringum mannvistar- leyfarnar sem þar fundust. „Það er búið að pakka rústinni alveg inn,“ segir Þorsteinn, en einna markverð- ast þykir honum þó að þarna í kjall- aranum er að finna elstu mannvist- arleyfar sem vitað er um í landinu. „Innst í horninu fundust torf- hnausar frá árinu 872, plús eða mín- us þrjú ár. Þar með er komið ártalið 874 og búið að færa rök fyrir ártölum í Landnámu.“ Þegar Reykjavíkurborg gerðist aðili að Minjavernd síðla árs 2002 lagði hún með sér sem hlutafé hús- eignir í Grjótaþorpi, að undanskildu húsinu í Aðalstræti 10 en á því hvíldi leigusamningur sem Minja- vernd vildi ekki taka yfir. „Þetta þýddi að ekkert gerðist með það hús, en við aftur búin að klára Aðal- stræti 2 sem Geysir hét áður, núna Ingólfsnaust, og svo eru fyrstu gestirnir að fara inn á hótelið hinum megin, þannig að endastólparnir eru báðir komnir en eftir sat elsta heillega húsið í götumyndinni.“ Í byrjun febrúar síðastliðnum samdi svo borgin við Minjavernd um end- urgerð Aðalstrætis 10 og þar eru nú nýhafnar framkvæmdir. Í húsinu hafa síðustu 20 til 25 árin verið reknir skemmtistaðir, en það er merkt að utan með skildi sem „elsta hús í Reykjavík.“ Á skjöldinn er letrað ártalið 1752 og ekki óalgengt að sjá ferðamenn mynda húsið. Íbúðarhús, verslun og pöbb „Þetta hús er nú að öllum líkind- um frá árinu 1765, en ef skjöldurinn væri réttur þá væri hér um að ræða elsta hús í Reykjavík,“ segir Þorsteinn, en húsið er eitt þeirra sem reist voru fyrir starfsemi Inn- réttinganna sem hófu starfsemi í Reykjavík árið 1752. Tveimur árum eftir að byggingar hófust brunnu flest húsin og telur Þorsteinn ekki alveg loku fyrir það skotið að húsið hafi brunnið en verið endurbyggt. „Við tókum við þessum kaleik af borginni fyrir nokkrum vikum síðan og heitir sem svo að við höfum tekið við húsinu til vörslu til 30 ára, því borgin mun eiga það áfram, meðan Minjavernd á allar endur- bæturnar, en þær annast Minja- vernd, sem og alla endurgerð, fjár- mögnun og rekstur á húsinu,“ segir hann og telur ekki að aftur verði öldurhús á þessum stað að loknum endurbótum, en þannig rekstur hafði verið í húsinu frá því þar opn- aði Fógetinn í kringum árið 1980. „Fram að því, frá um 1881 var þetta verslun. Frá 1926 voru hér höfuð- stöðvar Silla og Valda, en þeir sátu hér uppi við gaflglugga á efri hæð- inni hvor á móti öðrum og stýrðu öllum sínum verslunarrekstri.“ Fyrir þennan tíma var hins vegar búið í húsinu og segir Þorsteinn þá nafntoguðustu í þeim hópi hafa verið Geir Vídalín biskup og Jens Sigurðsson, bróðir Jóns Sigurðs- sonar forseta. Þorsteinn segir ekki alveg búið að ákveða til hvaða horfs Aðalstræti 10 verður fært, en segir heildstæð- ustu lýsinguna á því vera frá árinu 1823. Þá segir hann ekki búið að ákveða not fyrir húsið en telur lík- legt það verði nokkurs konar mót- taka fyrir annað hús sem á eftir að byggja á bak við og tengja með nett- um glergangi. „Við látum húsið ráða svolítið starfseminni. Húsið markar línuna og starfsemin lagar sig að því. Þetta verða að miklu leyti lítil rými og húsið því mögulega aðkoma að annarri starfsemi.“ Þorsteinn er búinn að vera við- loðandi endurgerð og björgun gam- alla húsa áratugum saman, en hann tók við formennsku í Torfusamtök- unum árið 1979. Frá stofnun í apríl árið 1985 hefur hann verið í for- svari fyrir Minjavernd sem þá var sjálfseignarstofnun, en að henni stóðu Fjármálaráðuneytið, Þjóð- minjasafnið og Torfusamtökin. Árið 2000 var svo breytt um rekstrar- form og Minjavernd gerð að hluta- félagi. Minjavernd hefur verið með verkefni víða um land og meðal ann- ars stutt við endurbyggingu kirkj- unnar í Flatey og endurgert sæluhús bæði á Hveravöllum og svo það elsta sem vitað er um í Landmannalaugum. Núna segir Þorsteinn horft til ýmissa skemmti- legra verkefna og nefnir þar hús- byggingar sem reistar voru þegar síminn var lagður yfir hálendið og sögufræg hús á Seyðisfirði sem stutt gætu atvinnulíf þar í bæ. Þorsteinn er vongóður um að vel gangi við frekari uppbyggingu gam- alla húsa, hvort heldur sem er í Reykjavík eða úti um land. „Við höf- um verið svo heppin að okkar bak- hugsun hefur alla jafna notið hljóm- grunns hjá stjórnvöldum, kannski að sumu leyti vegna þess að við höf- um ekki alltaf verið að biðja um aur, heldur haft aðrar hugmyndir og vilj- að standa á eigin fótum svo framast sem við höfum getað og fundið þá aðra fjármögnun með okkur,“ segir hann og vísar til hugmyndarinnar um að reisa hótel í Aðalstræti 16. ■ Hótel Loftlei›ir er mjög spennandi og hagkvæmur kostur hvort sem halda á fund, standa fyrir gle›skap e›a eiga notalega daga í Reykjavík. Veri› velkomin! Nordica • Loftlei›ir • Flughótel • Flú›ir • Rangá • Klaustur • Héra› fiEGAR HALDA Á GÓ‹AN FUND HÓTEL LOFTLEI‹IR GÆ‹I Á GÓ‹U VER‹I GÓ‹ STA‹SETNING FYRIRTAKS FUNDARA‹STA‹A FYRSTA FLOKKS VEITINGAR VEISLUR VI‹ ÖLL TÆKIFÆRI E N N E M M / S ÍA / N M 15 2 4 7 Sími: 444 4500 www.icehotels.is Í Grjótaþorpi í Reykjavík hefur hvert sögufræga húsið á fætur öðru gengið í endurnýjun lífdaga. Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri Minjaverndar lýsir í sam- tali við Óla Kristján Ármannsson síðustu verkefnum og talar um hvernig endurgera megi hús þannig að þau lifi áfram og standi undir sér. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.