Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 28
Aðgát í umferðinni
Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Sýnum aðgát í umferðinni og verndum
með því líf okkar og annarra. Keyrum eftir umferðarreglunum og verum
vel vakandi undir stýri. [ ]
VINNUM EFTIR
CABAS-KERFINU
Tjónaskoðun
G. Tómasson ehf • Smiðjuvegi 8, Kópavogi
• sími: 577 6400 • www.hvellur.com
• hvellur@hvellur.com
NÝJASTA ÆÐIÐ!
Stór og þægilegur fjölskyldubíll
Ford Mondeo station er bæði stór og gerðarlegur og hreint ekki ólaglegur.
Ford Mondeo er stór og mikill
bíll. Þar er því rúmt um fjöl-
skylduna, jafnvel þótt hún losi
vísitölustærð. Stórt skott í
stationbíl er líka ómetanlegt
þegar kemur að því að flytja
milli staða allt sem slíkri fjöl-
skyldu fylgir, hvort heldur í
dagsins önn eða á ferðalagi.
Ford Mondeo fæst í mörgum út-
færslum, fjögurra dyra, fimm
dyra og fimm dyra station, sem
fást í grunnútfærslunni, Ambiente
og svo Trend sem er með viðbótar-
búnað miðað við Ambiente og Ghia
sem er með enn meiri viðbótar-
búnað. Loks ber svo að nefna Ghia
X sem er kominn með lúxusbúnað
eins og leðurklædd sæti, viðará-
ferð í miðjustokk og krómuð hand-
föng á hurðaropnun að innan.
Ford Mondeo Ghia var reynslu-
ekinn, sjálfskiptur stationbíll. Þetta
er stór og mikill bíll sem gefur til-
finningu fyrir öryggi og stöðug-
leika. Hann er þægilegur og að-
gengilegur á alla lund, fyrir utan
auðvitað að vera nokkuð langur
þegar kemur að því að leggja í
stæði, en það er víst ekki hægt bæði
að eiga kökuna og éta hana, langur
bíll er alltaf langur bíll. Bíllinn er
með tveggja lítra vél og ágætt afl.
Bíllinn er búinn öllum helstu
þægindum, svo sem hita í fram-
sætum (sem undirritaðri finnst að
ætti að vera staðalbúnaður í öllum
bílum), hita í framrúðum, leður-
stýri og rafstýrðum sætum. Í bíln-
um eru skemmtilegar útfærslur á
ýmsum búnaði, svo sem glasahald-
ari sem sprettur fram úr mæla-
borðinu, ljós sem kviknar þegar
dregið er frá varalitaspeglinum í
sólskyggninu og klukkan góða sem
er að finna í Ghia bílnum og setur
óneitanlega á hann sterkan svip.
Sætisbökin í aftursæti station-
bílsins leggjast alveg að gólfi sem
eykur nýtingarmöguleika skotts-
ins í fullri stærð.
Ford Mondeo er bíll sem hentar
fjölskyldum sem hafa mikið um-
leikis. Ekki síst hentar skottið í
stationbílnum vel til að henda inn
íþróttatöskum, hljóðfærum (ekki
henda þeim þó) og öðru slíku dóti
sem oft fylgir barnafjölskyldum.
Bíllinn er þægilegur í allri um-
gengni og nægilega stór til að gott
pláss sé fyrir alla, jafnvel þótt
börnin í aftursætinu séu farin að
stálpast. steinunn@frettabladid.is
Skapari hins fræga DeLorean bíls með nútímalegu
hurðirnar er dáinn. Enn er mikil eftirspurn eftir
DeLorean bílum.
John Z. DeLorean, eigandi bílaframleiðandans DeLorean,
lést sunnudaginn 20. mars. DeLorean fæddist árið 1925 og
þótt hans þekkta fyrirtæki hafi aðeins framleitt 8.900 bíla og
tapað milljónum þá lifði hann eins og konungur. De Lorean
átti í fjölmörgum ástarsamböndum við fyrirsætur og kvik-
myndastjörnur og um hann hafa verið skrifaðar að minnsta
kosti fimm bækur.
Bandarískir fræðimenn telja að hefði hann fæðst fimmtíu
árum fyrr þá hefði hann getað byggt upp eitt öflugasta bíla-
fyrirtæki Bandaríkjanna. En hvað um það. DeLorean nafnið
er frægt enn þann dag í dag, án vefa vegna þess að DeLorean
DMC-12 bíll var notaður í myndunum Back to the Future sem
skartaði meðal annarra stjörnunni Michael J. Fox.
Þó að fáir bílar hafi verið framleiddir og um sex þúsund
séu enn í lagi í dag, þá er enn mikil eftirspurn eftir DoLorean
bílnum og voru meðal annars tólf slíkir boðnir upp á eBay
daginn sem hann dó.
DeLorean stofnaði verksmiðju sína árið 1975 en stórt
fíkniefnahneyksli varð veldi hans að falli. ■
Bílakóngurinn DeLorean allur
DeLorean hjá mynd af samnefndum bíl sem hann gerði
frægan – en ekki ríkan.
REYNSLUAKSTUR
FORD MONDEO
Verð frá 1.950.000 (Ambiente: fjögurra
dyra, 1,8 l, 110 hestafla vél, beinskiptur)
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA