Fréttablaðið - 26.03.2005, Síða 45
LAUGARDAGUR 26. mars 2005 33
Sven-Göran Eriksson segir aðenska landsliðið í knattspyrnu
hafi sýnt miklar framfarir á þeim
tíma sem hann hefur verið við
stjórnvölinn hjá liðinu. Leikur Eng-
lendinga gegn N-Írum í undan-
keppni HM í dag er sá fimmtugasti
sem Eriksson stjórnar. „Hópurinn er
miklu betri en sá sem við höfðum
fyrir fjórum árum síðan,“ segir Eriks-
son.
Joe Cole verður í lykilhlutverkimeð enska landsliðinu í leiknum
gegn N-Írum í dag ef eitthvað er að
marka orð Svens-
Görans Eriksson.
Cole hefur verið í
fantaformi með liði
Chelsea að undan-
förnu og vakið at-
hygli margra, meðal
annars landsliðs-
þjálfarans sænska.
„Hann virðist vera orðinn allt annar
leikmaður en hann var í fyrra og
það sést mikill munur á þroska
hans sem leikmanns. Hann á fram-
tíðina fyrir sér í boltanum.“
ÚR SPORTINU
GRILLAÐU UM PÁSKANA!
Breiddin-Verslun 10-18
Sími: 515 4200
Timburverslun-Breidd 10-16
Sími: 515 4100
Lagnadeild-Breidd 10-16
Sími: 515 4040
Leigumarkaður BYKO 10-18
Sími: 515 4020
Hringbraut 10-18
Sími: 562 9400
Hafnarfjörður 9-15
Sími: 555 4411
Aðalsímanúmer: 515 4000
Akranes 10-14
Sími: 433 4100
Akureyri, Glerártorg 10-17
Sími: 460 4800
Akureyri, Furuvöllum 10-14
Sími: 460 4860
Reyðarfjörður 10-14
Sími: 470 4200
Suðurnes 9-15
Sími: 421 7000
Selfoss 10-16
Sími: 480 4600
Laugard. Sunnud.Laugard. Sunnud.
BYGGIR MEÐ ÞÉR
19.900
ELEGANT UNION gasgrill, 2 brennarar,
pottjárn í steikargrind. Grillflötur
50x50 cm. Neistakveikjari, grill-
steinar, hitamælir og efri grind.
Gasgrill
Vnr.50632102
MR HEAT borðhitari ryðfrír,
2,7 kw, hattur 40 cm.
Gashitari
Vnr.50632104
9.900
Hringbraut kl
. 11-17
Selfossi: k
l. 12-16
ANNAN Í PÁS
KUM
OPIÐ 14.900
OUTBACK OMEGA 200 gasgrill. Stærð: 55x36 cm,
grillflötur með tvískiptum brennara, hliðarborðum,
neistakveikju, þrýstijafnara og grillsteinum. Kemur
samsett fyrir utan fætur og hliðarborð.
Gasgrill
Vnr.50630100
TRJÁKLIPPINGAR!
Kynning í BYKO Breidd
laugardag kl. 13-17
Garðyrkjufræðingurinn góðkunni
Steinn Kárason,
höfundur myndbandsins
TRJÁKLIPPINGAR OG UMHIRÐA
– TRJÁA OG RUNNA og
bókarinnar GARÐVERKIN, verður
með kynningu á þessum verkum
sínum og leiðbeinir fólki um
vorverkin í garðinum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 31
Mánudagur
MARS
■ ■ SJÓNVARP
14.45 US PGA Players Champ-
ionship á Sýn.
18.30 NBA-deildin á Sýn. Útsend-
ing frá viðureign San Antonio og
Houston.
20.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
21.30 Maradona á Sýn. Þáttur þar
sem ferill þessa knattspyrnusnillings
er rakinn.
23.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
Verður væntan-
lega nóg að
gera í markinu
Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður Ís-
lands, býst við annasömum leik í dag. Landsliðs-
þjálfari Króata óttast vanmat og að völlurinn verði
drullusvað eftir miklar rigningar.
FÓTBOLTI ,,Ég á von á því að það
verði nóg að gera hjá mér í mark-
inu dag. Ég hef æft eins og vit-
leysingur í vetur og er í ágætri
spilaæfingu eftir marga leiki í
Skandinavíudeildinni með Våler-
enga, þessi deild hefur verið mik-
il lyftistöng,“ sagði Árni Gautur
Arason, landsliðsmarkvörður við
Fréttablaðið í Zagreb í gær en Ís-
lendingar mæta Króatíu í und-
ankeppni HM kl. 17 í dag. Króatía
hefur 7 stig eftir þrjá leiki en Ís-
land eitt eftir fjóra leiki.
Árni Gautur hefur varið frá-
bærlega vel á æfingum með
landsliðinu í Zagreb. Hann segir
góðan anda í íslenska hópnum og
landsliðið hafi stillt saman streng-
ina eftir áfallið að missa landsliðs-
fyrirliðann Eið Smára Guðjohn-
sen vegna meiðsla. Aðrir leik-
menn liðsins muni axla ábyrgðina
í staðinn.
Ásgeir Sigurvinsson landsliðs-
þjálfari tók í sama streng. ,,Mér
finnst strákarnir hafa þjappað sér
vel saman og ætla að láta Króata
hafa fyrir hlutunum.“
Athygli vekur að króatíska
landsliðið kom saman í Slóveníu
fyrir landsleikinn og hefur æft
þar undanfarna daga og gerir al-
veg fram að leik þar sem aðstaðan
í Slóveníu er betri. Króatísku dag-
blöðin hafa eftir Zlatko Kranjcar
landsliðsþjálfara að hans helsta
áhyggjuefni sé að leikmenn sínir
sínir taki íslenska landsliðið ekki
nógu alvarlega. Það verði hans
helsta vandamál að leikmenn sínir
vanmeti ekki andstæðingana.
Þá segist Kranjcar órólegur
yfir því úrhelli sem var í gær og
er spáð fram yfir leik. Hann segir
að Maksimir-leikvangurinn,
heimavöllur Dinamo Zagreb, geti
breyst í drullusvað og Íslendingar
hagnist á því.
Helst vildi ég að það yrði bara
smá bleyta, það gerir íslenska
markverðinum erfitt fyrir því það
verður nóg að gera hjá honum,“
sagði Kranjcar. Árni Gautur er
ekki sammála þessu en segist
njóta þess best að spila fótbolta
þegar nóg sé að gera á milli stang-
anna.
Heiðar Helguson æfði með
íslenska liðinu í fyrsta skipti í
Zagreb en hann var frá vegna
smávægilegra meiðsla. Króatískir
fjölmiðlar stilltu íslenska liðinu
þannig upp að Hannes Þ. Sigurðs-
son, sem lék með ungmennalands-
liðinu í gær, kæmi inn í byrjunar-
lið A-landsliðsins, sem að sjálf-
sögðu er út í hött.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari
sagði að byrjunarliðið yrði til-
kynnt á hádegi en leikaðferðin
yrði 4-2-3-1. ,,Króatar eru með
frábært lið og fyrir fram hefði ég
talið þetta erfiðasta leik okkar í
riðlinum. Við leggjum upp með
agaðan varnarleik og að beita
skyndisóknum. Æfingarnar hafa
gengið vel og allir vita nákvæm-
lega hvert hlutverk þeirra er í því
leikkerfi sem við stillum upp,“
sagði Logi.
thorsteinn.gunnarsson@365.is
ÁSGEIR SIGURVINSSON Stóð í ströngu við að veita fjölmiðlum í Króatíu viðtöl á æfingu
íslenska landsliðsins í gær. Fréttablaðið/Böddi