Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 50
> Plata vikunnar ...
BLOC PARTY:
Silent Alarm
„Nýjasta eftir-
lætið frá Bret-
landi veldur ekki
vonbrigðum. Fín-
asta frumraun frá Bloc Party.
Angurvært og grípandi rokk
með hjartað á réttum stað.“ BÖS
38 26. mars 2005 LAUGARDAGUR
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Beck: Guero
Kings of Leon: Aha Shake Heartbreak
Bloc Party: Silent Alarm
Queens of the Stone Age: Lullabies to Paralyze
Athlete: Tourist.
>
B
ec
k
>
Q
ueens of
the Stone Age
Radiohead er komin aftur í hljóðverið
eftir tveggja ára fjarveru til þess að
hefja vinnu að sinni sjöundu plötu.
Ekkert er þó vitað um hvenær platan
kemur út og segjast liðsmenn Radio-
head staðráðnir í því að gefa ekkert út
fyrr en þeir finni leið til þess að þróa
stíl sinn enn lengra inn í undarlegheit-
in.
Söngvarinn Thom Yorke og gítarleikar-
inn Johnny Greenwood munu svo á
mánudag frumflytja klassískt tónverk í
London Royal Festival Hall ásamt
sinfóníusveitinni London Sinfonietta.
Verkið var sérsamið fyrir tónleikana og
hefur aldrei heyrst áður. Samkvæmt
fréttatilkynningu sem gefin var út frá
sveitinni verða þar gerðar tilraunir til
þess að blanda saman tónlistarstílum.
Radiohead brettir upp ermarnar
> Popptextinn ...
„The only thing
constant in the
world is change.“
- India Arie réð lífsgát-
una í einni setningu í
laginu Growth af plöt-
unni Acoustic Soul frá
árinu 2002.
Yfirhafnir
á hálfvirði
Vattúlpur, dúnúlpur,
ullarkápur, húfur og hattar
S: 588 5518
Opnunartími Mörkinni 6
mán. – fös. 10 – 18
lau. 10 – 16
Beck rýfur þriggja ára
útgáfuþögn eftir helg-
ina. Nýja platan heitir
Guero og á henni má
heyra Beck færa sig
aftur yfir í þann fjöl-
skrúðuga stíl sem hann
er þekktastur fyrir.
Ef Beck hefði fæðst tveimur ára-
tugum fyrr hefði hann eflaust
endað sem trúbadúr, syngjandi
pólitíska söngva í von um að
breyta heiminum. Löngu áður en
hann varð heimsfrægur hafði
hann skapað sér nafn sem sér-
vitur trúbadúr, bæði í listasenunni
í New York og í Los Angeles.
Hann fór aldrei í framhaldsskóla
og ákvað frekar að reyna fyrir sér
sem trúbadúr á þeim stað sem
hann var hverju sinni.
Hann kemur af miklu listafólki
og því er það honum nánast eðlis-
lægt að vera sífellt leitandi í
sköpun sinni. Mamma hans, Bibbe
Hansen, var hluti af Factory-senu
Andy Warhol og kom fram í einni
mynd hans, Prison. Afi hans, Al
Hansen, var stofnandi Fluxus-
hreyfingarinnar sem kom lista-
mönnum á borð við Yoko Ono á
kortið. Pabbi hans, David Camp-
bell, útsetur strengi fyrir
popptónlist og hefur unnið með
listamönnum frá flestum skúma-
skotum, allt frá Linkin Park til
Celine Dion. Hann kemur svo lítil-
lega við sögu á nýrri plötu sonar
síns, Guero.
Nafn plötunnar er slanguryrði
frá spænskumælandi hverfum
Los Angeles, þar sem Beck ólst
upp, og þýðir „hvítur strákur“.
Nafnið valdi hann vegna þess
hversu oft þetta var kallað á eftir
honum á leiðinni í og úr strætó
sem unglingur.
Alveg frá því að Beck sló í
gegn með Loser árið 1994 hefur
hann lagt sig fram við að blanda
saman stílum. Það lag var til
dæmis vel heppnuð tilraun til
þess að blanda hipphoppi við trú-
badúrsspil. Síðan þá hefur hann
bætt rokki, sambatónlist, teknó,
fönki og blús við uppskrift sína,
svo eitthvað sé nefnt. Honum
virðist þó alltaf takast að hljóma
eins og hann sjálfur.
Það eru liðin þrjú löng ár frá
því að meistarastykkið drama-
tíska Sea Change kom út. Öll sú
plata var hlaðin lögum sem voru
samin eftir að hann skildi við kær-
ustu sína, Leigh Limon, til níu ára.
Líf hans hefur tekið töluverðum
stakkaskiptum frá þeim tíma og í
dag er Beck hamingjusamlega
giftur faðir. Eiginkona hans og
barnsmóðir er leikkonan Marissa
Ribisi. Það var einmitt á þeim níu
mánuðum sem það tók Beck að
gera nýju plötuna sem líf hans tók
þessum stakkaskiptum.
Aðdáendur Becks verða
ánægðir að heyra að á nýju plöt-
unni má heyra Beck færa sig
aftur nær þeim fjölskrúðuga stíl
sem hann er þekktastur fyrir.
Hann vann plötuna með The Dust
Brothers, en þeir gerðu einmitt
með honum Odelay á sínum tíma.
Lögin eru því öll eitursvöl, hlaðin
áhugaverðum taktpælingum sem
hægt er að dilla sér við.
Beck er orðinn 35 ára gamall
og hefur átt blómlegan feril
síðustu tíu ár, eða frá því að
frumraun hans, Mellow Gold, kom
út. Hann var það heitur á sínum
tíma að hann náði að tryggja sér
einn umtalaðasta plötusamning
allra tíma. Hann samdi þannig við
Geffen að hann hafði leyfi til þess
að gefa út plötur hjá öðrum plötu-
fyrirtækjum líka, en einungis ef
plöturnar þættu ekki mjög sölu-
vænar. Hann nýtti sér þetta ítrek-
að fyrstu tvö árin eða svo, en í dag
selst líklegast allt sem hann gerir
í bílförmum.
Stærsta páskaeggið í ár er því
líklegast þessi nýja plata Becks
sem ætti að skila sér í búðir strax
eftir páskahelgina.
biggi@frettabladid.is
RAVEONETTES
Danska hljómsveitin Raveonettes spilar á
Hróarskeldu í ár.
Skandinavískar
á Hróarskeldu
Fimm nýjum hljómsveitum hefur
verið bætt á lista þeirra sem spila
á Hróarskelduhátíðinni í Dan-
mörku í sumar. Eiga þær það
allar sameiginlegt að vera frá
Norðurlöndunum.
Hljómsveitirnar eru Mew,
Outlandish og Raveonettes frá
Danmörku og Eskobar og The
Haunted frá Svíþjóð. Áður höfðu
hljómsveitir á borð við Foo
Fighters, Audioslave, Interpol,
Black Sabbath, Green Day, The
Tears, Brian Wilson og Mugison
skráð sig til leiks. ■
Beck pressa?
BECK Tónlistarmaðurinn snjalli rýfur þriggja ára útgáfuþögn eftir helgi þegar nýja platan
hans, Guero, kemur út.