Fréttablaðið - 10.04.2005, Side 2
2 10. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Átök í Nepal:
Tugir skæruliða felldir
NEPAL, AP Hermenn úr stjórnarher
Nepals hrundu árás uppreisnar-
manna á herstöð í fjallahéraði í
norðvesturhluta landsins. Að
minnsta kosti fimmtíu uppreisn-
armenn voru felldir í bardagan-
um, að því er talsmenn hersins
greindu frá í gær.
Hundruð skæruliða gerðu árás
á herstöðina á fimmtudagskvöld.
Bardaginn stóð í tólf tíma að því
er herinn upplýsti. Átta hermenn
hlutu misalvarleg sár og voru þeir
fluttir í þyrlu á sjúkrahús.
Héraðið þar sem átökin urðu er
að miklu leyti á valdi uppreisnar-
manna sem segjast berjast í anda
Maós formanns, en þeir vilja fella
stjórn Gyandendras Nepal-
konungs. Um síðustu helgi hvöttu
uppreisnarmenn til allsherjar-
verkfalls í mótmælaskyni við að
konungur skyldi hafa tekið sér
alræðisvald 1. febrúar. Konungur
hefur sagt að sér hafi verið nauð-
ugur einn kostur að taka fram
fyrir hendurnar á stjórnmála-
mönnunum, því þeim miðaði
ekkert í að kveða niður uppreisn-
ina. Um 500 manns sem mót-
mæltu alræðisvaldi konungs voru
handtekin í borgum Nepals í gær,
að sögn fólks sem fylgist með þró-
un mála í landinu. Yfir 10.000
manns hafa fallið í uppreisninni
frá því að hún hófst árið 1996. ■
Hreiðar Eiríksson:
Gætir friðar í Líberíu
FRIÐARGÆSLA Hreiðar Eiríksson,
rannsóknarlögreglumaður á Akur-
eyri, er á leið til Afríkuríkisins
Líberíu til að sinna friðargæslu-
störfum. Stefnt er að því að hann
fari nú um næstu mánaðamót.
„Þetta er sex mánaða samning-
ur og veit ekki alveg í hverju
starfið felst,“ segir Hreiðar. Hann
hefur áður komið nálægt friðar-
gæslu, en árið 2002 var hann við
störf í Bosníu þar sem hann starf-
aði í teymi gegn mansali. Þessu er
þó ólíku saman að bera. Bæði var
hann þá að starfa á vegum ís-
lensku lögreglunnar, en nú verður
hann heyra beint undir friðar-
gæslu Sameinuðu þjóðanna. Þá
segir Hreiðar að ekki sé hægt að
líkja saman Bosníu fyrir þremur
árum og Líberíu nú. Bæði sé
menning landanna svo ólík, en
einnig deilurnar.
Hann verður ekki eini Íslend-
ingurinn á svæðinu, því þegar
starfar Snorri Magnússon lög-
reglumaður við friðargæslu í
Líberíu. Þá er Steinar Berg
Björnsson nýlega farinn frá
svæðinu, en hann hefur verið
einn af æðstu stjórnendum frið-
argæslu Sameinuðu þjóðanna
þar.
Hreiðar segist ekki óttast það
að vera að fara á ófriðarsvæði.
„Eðli málsins samkvæmt er ekki
friðargæsla á friðsamlegum
svæðum. En ég lít á þetta eins og
hvert annað starf. Ég er núna að
lesa mér til um hvað hefur verið
að gerast þarna.“ - ss
Íran og Ísrael:
Neitar
handabandi
ÍRAN, AP Mohammad Khatami
Íransforseti harðneitaði því í gær
að hann hefði tekist í hendur og
spjallað við Moshe Katsav Ísra-
elsforseta við jarðarför Jóhannes-
ar Páls II páfa í Róm á föstudag.
Eftir útförina hafði Katsav látið
hafa eftir sér að hann hefði hitt og
skipst á nokkrum orðum við
Khatami og Bashar Assad, forseta
Sýrlands, en Íran og Sýrland eru
erkióvinir Ísraelsríkis. En í írönsk-
um ríkisfjölmiðlum var í gær haft
eftir Khatami að þótt Íran viður-
kenndi „sið- og rökfræðilega“ ekki
Ísraelsríki myndi Íran ekki hafa
afskipti af friðarsamningaferli
Ísraela og Palestínumanna.
Ísrael og Íran hafa ekki haft
nein diplómatísk samskipti síðan
fyrir klerkabyltinguna árið 1979
og ýmis herská samtök andstæð-
inga Ísraels hafa lengi notið
stuðnings frá Íran. ■
Bílvelta í Kópavogi:
Bíll hafnaði í
húsagarði
UMFERÐARSLYS Árekstur varð á
Hafnarfjarðarvegi laust eftir há-
degi á laugardag með þeim afleið-
ingum að annar ökumannanna
missti stjórn á bifreið sinni, sem
þá rakst utan í nærliggjandi bíla
áður en hún valt sjálf harkalega
og hafnaði ofan í húsagarði við
íbúðarhús á Ásbraut í Kópavogi.
Ökumaðurinn, sem var einn í
bifreiðinni, var fluttur á slysa-
deild til aðhlynningar. Eftir skoð-
un var hann yfirheyrður af lög-
reglunni. Ökumann hinnar bif-
reiðarinnar er lenti í árekstinum
sakaði ekki. Bifreiðin sem valt
skemmdist mikið í veltunni og er
talin ónýt. - þlg
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
56.995 kr.
á mann í tvíbýli með öllum sköttum
Verðdæmi:
Ný vídd í sólarlandaferðum
á verði sem kemur á óvart!
Vika í Alanya, Tyrklandi 7.-15. maí:
Tyrkland
Grikkl
and Túnis
Malta Kanaríeyjar Mallorca Króatía Búlgaria
Rúmenía Egyptaland Taíland Ítalía
draCretsaM
udnuM
!aninusívá
aðref
SPURNING DAGSINS
Eyrún, er fjelagið ekki að slig-
ast af verkefnum þessa dagana?
„Jú, en við sinnum þessum skylduverk-
um af einskærum áhuga og gleði.“
Eyrún Ingadóttir er kammerjómfrú Hins konung-
lega fjelags. Mikið hefur verið um að vera hjá
konungsfjölskyldum Evrópu upp á síðkastið.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
ÖLVAÐIR REYKVÍKINGAR Mikill
erill var í miðborg Reykjavíkur
aðfaranótt laugardags. Sex öku-
menn voru teknir ölvaðir við
aksturinn þegar morgnaði.
BÖRN Á PLAYERS Lögreglunni í
Kópavogi barst kvörtun í gær
um að börn, allt niður í tíu ára
gömul, sætu innanum reyk og
bjórdrykkju á vínveitingastaðn-
um Players. Samkvæmt lögum
mega börn ekki fara inn á vín-
veitingahús í fylgd með fullorðn-
um nema þau séu orðin fimmtán
ára gömul. Lögreglan fór á stað-
inn og vísaði börnunum út.
■ LOTTÓ
Lottótölurnar sem dregnar voru
út í gær voru 2 – 3 – 13 – 27 – 32.
Bónustalan var 17. Einn heppinn
var með allar tölurnar fimm
réttar og fékk 11,3 milljónir.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SKEMMDARVERK Á AKRANESI
Keyrt var utan í kyrrstæðan glæ-
nýjan fólksbíl á mótum Kirkju-
brautar og Merkigerðis á Akra-
nesi á tímabilinu frá klukkan 21 á
föstudagskvöld til 14.45 á laugar-
dag, og stungið af frá verknaðin-
um. Bíllinn er talsvert skemmd-
ur. Lögregla hvetur vitni til að
hafa samband eða sökudólginn að
gefa sig fram.
HRAÐAKSTUR Í BORGARNESI Alls
voru sextán ökumenn teknir fyrir
of hraðan akstur í umdæmi lög-
reglunnar í Borgarnesi frá því
seint á föstudagskvöld og aðfara-
nótt laugardags. Sýndi hraðamæl-
ir flestra ökumannanna hátt í 120
kílómetra hraða, þar sem há-
markshraði er 90 kílómetrar á
klukkustund.
GYANENDRA KONUNGUR
Uppreisnarmenn í Nepal hafa í tæpan ára-
tug háð vopnaða baráttu gegn konungs-
stjórninni.
Ísrael-Palestína:
Drengir
skotnir á Gaza
PALESTÍNA, AP Ísraelskir hermenn
skutu á hóp palestínskra unglinga á
sunnanverðu Gaza-svæðinu í gær,
með þeim afleiðingum að þrír ung-
lingar létu lífið. Þetta er mannskæð-
asta atvikið sem átt hefur sér stað á
Gaza síðan lýst var yfir vopnahléi í
átökum Ísraela og Palestínumanna
fyrir tveimur mánuðum.
Atvikið varð í Rafah-flótta-
mannabúðunum, næst landamær-
unum að Egyptalandi. Það bætir á
spennuna sem orsakast hefur af
áformaðri göngu herskárra gyð-
inga á stað í Jerúsalem sem er
helgur í augum trúaðra Palestínu-
manna. ■
HREIÐAR EIRÍKSSON
Er nú að fara til Líberíu til að
sinna friðargæslu. Hann hefur
áður starfað í Bosníu.
Ástand slæmt á
sjúkrahúsum
Pálína Ásgeirsdóttir verður fyrst íslenskra hjúkrunarfræðinga til að setjast í
stól yfirmanns spítalahjúkrunarþjónustu Alþjóða Rauða krossins í Genf um
næstu mánaðamót. Hún hefur starfað að uppbyggingu í Afganistan.
HEILBRIGÐISMÁL Pálína Ásgeirsdótt-
ir verður fyrst íslenskra hjúkrun-
arfræðinga til að gegna starfi
yfirmanns spítalahjúkrunarþjón-
ustu Alþjóða Rauða krossins í
Genf. Hún tekur við starfinu um
næstu mánaðamót.
„Ég verð í samstarfi við aðra á
skrifstofunni í Genf í spítala-
stjórnun og uppbyggingu Rauða
krossins í þeim löndum þar sem
hann aðstoðar sjúkrahús,“ sagði
hún.
Pálína hefur starfað af og til á
vegum Rauða krossins síðan 1986.
Hún hefur unnið á sjúkrahúsum
sem almennur hjúkrunarfræðing-
ur, svæfingarhjúkrunarfræðing-
ur og stjórnandi. Síðustu tvö ár
hefur hún verið í Afganistan, þar
sem hún vann við sjúkrahús sem
Rauði krossinn aðstoðar. Jafn-
framt starfaði hún fyrir hönd
Rauða krossins með Alþjóða heil-
brigðismálastofnuninni, svo og
stórum styrktaraðilum sem styrkt
hafa uppbyggingu hjúkrunarþjón-
ustu í Afganistan.
„Starfið í Afganistan hefur
verið mjög áhugavert,“ sagði
Pálína. „Það hefur verið mjög gott
samstarf milli þeirra sem unnið
hafa að þessu verkefni. Við höfum
verið að aðstoða heilbrigðisráðu-
neytið þar við að byggja upp
stefnumótun í sjúkrahúsþjónustu
fyrir allt landið.“
Pálína sagði að ástandið í
sjúkrahúsmálum í Afganistan
væri ekki gott. Skiljanlega hefðu
fjármunirnir fremur farið í að
byggja upp heilsugæslu. Spítal-
arnir hefðu orðið útundan. Unnið
hefði verið að því að byggja upp
spítalaþjónustu sem væri hag-
kvæm og góð miðað við þær að-
stæður sem væru í landinu. Þær
væru bágbornar hvað varðaði
húsnæði, allan tækjabúnað og
menntun heilbrigðisstarfsmanna.
Allt væri þetta í uppbyggingu, en
ekki væri fyrirséð hvort nægileg-
ir peningar fengjust í lágmarks-
hjúkrunarþjónustu.
„Nú söðla ég um,“ sagði Pálína.
„Ég verð hinum megin við borðið
en ekki lengur í viðkomandi lönd-
um. Ég verð í stuðnings- og mót-
unarhlutverki í Genf. Vissulega
mun ég sakna þess í bland að
starfa ekki úti á vettvangi, en ég
mun heimsækja þau lönd sem
Rauði krossinn styður í þessum
málaflokki.“ jss@frettabladid.is
PÁLÍNA ÁSGEIRSDÓTTIR
Hefur störf um mánaðamótin.