Fréttablaðið - 10.04.2005, Page 47

Fréttablaðið - 10.04.2005, Page 47
Innritun í tónlistarskóla í Reykjavík Rafræn innritun í tónlistarskóla Innritun í tónlistarskóla fer að þessu sinni eingöngu fram með rafrænum hætti í Rafrænni Reykjavík. Innritun nýnema: Nýnemar/forráðamenn skrá sig í Rafræna Reykjavík og sækja um þjónustugátt. Þegar henni hefur verið úthlutað er hægt að velja tónlistarskóla og sækja um skólavist. Tónlistarskólar vinna úr umsóknum og senda svar fyrir lok júnímánaðar. Skilaboð um stöðu umsókna eru send í þjónustugátt og á netfang viðkomandi. Innritun eldri nemenda: Eldri nemendur sem ekki eru með þjónustu- gátt þurfa að sækja um hana og hafa samband við skrifstofu síns tónlistarskóla til að fá nánari upplýsingar um innritun. Nánari upplýsingar eru veittar í tónlistarskólunum, á Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur, sími 535 5000 og í símanúmeri Reykja- víkurborgar, 411 11 11. Hægt er að komast inn á Rafræna Reykjavík á heimasíðum flestra tónlistarskólanna og á: www.reykjavik.is www.grunnskolar.is Innritunartímabil 1.-30. apríl 2005 SUNNUDAGUR 10. apríl 2005 19 Þrátt fyrir að hafa fæðst með silfurskeið í munni hefur Karó- lína prinsessa af Mónakó ekki farið varhluta af sorg og áföllum í lífinu. Nú þegar lík föður henn- ar, Rainiers fursta af Mónakó, stendur uppi og bíður greftrunar, hefur eiginmaður hennar, Ernst August prins af Hannover, verið lagður alvarlega veikur inn á sjúkrahús vegna enn óþekkts sjúkdóms í brisi. Ástand prinsins er talið alvarlegt og gengst hann undir víðtækar rannsóknir þar sem hann liggur á gjörgæslu- deild Sjúkrahúss Grace prins- essu í Mónakó. Þjóðarsorg ríkir í Mónakó vegna andláts Rainiers fursta, sem verður jarðsunginn í næstu viku og fréttirnar um veikindi Ernst auka enn á sorg Mónakó- búa. Ernst August er þriðji eigin- maður Karólínu, sem er elsta barn Rainiers fursta og Hollywood-stjörnunnar Grace Kelly. Þegar Grace leitaði Karó- línu mannsefnis meðal kónga- fólks í Evrópu var drauma- tengdasonurinn Ernst August af Hannover, með sitt kóngabláa blóð og göfugu ættir, sem Grace vonaði að hefði góð áhrif á óstýri- láta dóttur sína. Meira en tveim- ur áratugum síðar, sem og tveim- ur hjónaböndum seinna, giftust þau Karólína, en áður var Kar- ólína gift glaumgosanum Phillipe Junot og síðar Stefano Casiraghi, sem lést voveiflega árið 1990. Ernst er skyldmenni Elísabet- ar Englandsdrottningar og langafabarn Vilhelms II, síðasta keisara Þýskalands. Hann þykir óheflaður í skapi og var í fyrra sektaður fyrir að beita hótel- eiganda í Kenýa líkamsmeið- ingum, auk þess sem hann bað al- menning í Tyrklandi afsökunar á að kasta þvagi á tyrkneska sýningarskálann á heimssýning- unni í Hannover árið 2000. Þau Karólína giftu sig í Mónakó 1999 og sex mánuðum síðar fæddist þeim dóttirin Alexandra, en sam- an áttu þau fyrir fimm börn úr fyrri hjónaböndum. Læknar hafa ekki gefið upp hvers kyns veikindi prinsins eru, en tvær helstu ástæður sjúk- dóma í brisi eru briskrabbamein og bráðabólga í brisi. Krabba- mein í brisi gerir jafnan ekki vart við sig svo skyndilega, þótt til séu undantekningar. Í tilvik- um brisbólgu er ástæðan oftast vegna ofneyslu áfengis eða gall- steina, þótt sjaldgæf tilfelli or- sakist einnig af meiðslum, lyfj- um eða veirusýkingum. ■ 11.9. 2001 Al-Kaída hryðjuverkahópurinn réttlætti árásirnar á Tvíburaturnana með tilvís- un í hugtakið Jihad, þó að skilgreining Múhameðs á hugtakinu hafi bannað árásir á sak- laust fólk. Flestir jarðarbúar eru mótfallnir stríði. Mannskepnan kýs að lifa frekar í friði en í stríði. Stöku sinnum lítur hún þó þannig á að hún verði að verja umhverfi sitt, menningu og trú fyrir utanaðkom- andi árásaraðilum. Það er rétt að mörg stríð hafa verið réttlætt með trúnni en þau hafa ekki öll verið heilög stríð. Hugtakið jihad hefur verið samofið hugmyndinni um heilagt stríð á þessari öld sem og á þeirri síðustu. Hefur það þá í flestum til- vikum verið tengt við hryðju- verkamenn frá Mið-Austurlönd- um sem hafa notað þetta hugtak til þess að réttlæta blóðsúthelling- ar og hryðjuverk. Jihad þýðir þó ekki heilagt stríð heldur að „keppa að einhverju“. Spámaðurinn Múhameð útskýrði orðið á tvennan hátt, annars vegar það stríð sem hver múslimi á við sjálfan sig, það er að segja hið innra stríð, og hins vegar gegn sönnum óvinum íslams. Þegar spá- maðurinn féll frá þóttu mörgum þessar skilgreiningar hans vera „losaralegar“. Þær voru síðar túlk- aðar sem stríð gegn trúníðingum og hefur það síðar verið misnotað af múslimum til þess að réttlæta stríð hvers gegn öðrum. Múhameð spámaður setti mjög strangar reglur um hvernig jihad ætti að vera framkvæmt. Einungis mætti hefna fyrir þau sár sem hefðu ver- ið veitt en aldrei mætti skaða þá sem ekki tækju þátt í stríðsátökun- um; konur, börn eða þá sem eru veikir. Ekki mætti eyðileggja hí- býli þeirra sem veittu enga mót- spyrnu. Samkvæmt þessu útilokar íslam til að mynda hryðjuverk á óbreytta borgara. Mikilvægast er þó að hafa í huga örlög þeirra sem taka þátt í heilögu stríði vegna þess að dauði í slíku stríði setur stríðsmanninn á hærri stall. Sá sem deyr í heilögu stríði verður píslarvottur og fer beint upp í hæstu hæðir paradísar. Þetta á ekki eingöngu við um múslima því krossfararnir „rændu“ þessari hugmynd. Þeir álitu sig vera að ná aftur „hinu heilaga landi“ úr hendi múslima auk þess sem það væri þeirra trú- arlega skylda að bæta fyrir synd- ir sínar með því að berjast og deyja fyrir kristnina. ■ BREYTTUR HEIMUR: TRÚ OG STRÍÐ Heilög stríð PRINS ERNST AUGUST AF HANNOVER OG KARÓLÍNA PRINSESSA AF MÓNAKÓ Karólína og Ernst giftu sig 1999 en það var þriðja hjónaband Karó- línu og annað hjónaband Ernst. Karólína missti eiginmann númer tvö af slysförum, frá þremur ungum börnum. Eiginmaður Karólínu prinsessu alvarlega veikur: Beðið milli vonar og ótta

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.